Þjóðviljinn - 01.06.1990, Side 28
Umhverfismálaráðherra fleygt út í umhverfið eftir að hafa sigrað í forkeppninni. Myndir: Kristinn.
Léttasta lundin
Umhverfisráðherra spaugilegastur
Umhverfismálaráðherra Júlíus
Sólnes átti spaugilegustu sög-
una í forkeppni Spaugstofunnar
um léttustu lundina, sem fram fór
við Kjarvalsstaði í gær. Kristján
heiti ég Ólafsson, umsjónarmað-
ur neitendaþáttarins Nei, kynnti
keppnina blaðamönnum og
sagði: „Spaugkeppnin leitin að
léttustu lundinni er samstarfs-
verkefni Spaugstofunnar og
Samstarfshóps um sölu á lamba-
kjöti, lamb rneat".
Spaugstofan hefur leit sína að
léttustu lundinni þann 17. júní og
stendur leitin til 9. júlí. Boðið
verður upp á tveggja stunda sam-
fellda hláturskemmtun í formi
leikritsins „f gegnum grínmúr-
inn“. Öllum landsmönnum með
sæmilega óbrenglaða kímnigáfu
er heimilt að taka þátt í keppn-
inni um léttustu lundina og verða
fimm keppendur valdir á hverj-
um stað. í hverju kjördæmi verð-
ur valin léttasta lund kjördæmis-
ins, sem síðan tekur þátt í úrslit-
akeppninni sem háð verður í
Reykjavík. Einnig má senda inn
skriflegt spaug í pósthólf 5195,
125 Reykjavík og verða tíu bestu
bréfin birt í auglýsingadálkum
dagblaðanna.
Forkeppni léttustu lundarinn-
ar fór fram við Kjarvalstaði. Það
var samgöngu- og landbúnaðar-
ráðherra, Steingrímur J. Sigfús-
son sem reið á vaðið og bar frétta-
mönnum Stöðvarinnar ‘90
kveðju ríkisstjórnarinnar. Ráð-
herra skýrði frá því að greidd
hefðu verið atkvæði um það á rík-
isstjórnarfundi hvort slfta ætti
fundi til að mæta í léttustu
lundina, en það var fellt með
fimm atkvæðum gegn fjórum.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra og Júlíus Sólnes
umhverfismálaráðherra komu
reyndar seinna á staðinn og kom
Júlíus, sá og sigraði. Hann sagði
sögu frá námsárunum í Kaup-
mannahöfn. Þegar hann og fé-
lagar hans voru einu sinni sem
oftar á nætursumbli, gerðist Jú-
líus lúinn og bauð vinur hans hon-
um lykil að herbergi sínu á
Möllers Pension svo Júlíus gæti
lagt sig. Segist Júlíusi svo frá að
þegar hann opnar herbergið er
þar fyrir eldri kona. Þegar hún
verður Júlíusar vör hrópar hún:
„Voldtag mig, men dræb mig
ikke!“.
Fyrir þessa sögu fékk Júlíus
tolleringu að launum frá
Spaugstofunni, en að sögn
Spaugstofumanna var mikill
ágreiningur um það í dómnefn-
dinni hver ætti vinninginn
skilinn.
-hmp
Kristján heiti ég Ólafsson skýrir reglumar ( keppninni um léttustu
lundina.
150 Lftra
KÆLISKÁPAR
/M* RÖNNING
SUNDABORG 15. S:84«00
Nýtt
símanúmer
Frá og með 1. júni 1990
er símanúmer skiptiborðs
Pósts og síma 63 60 00
og myndsendisnúmer 63 60 09.
Nánari upplýsingar eru
á blaðsíðum 338 og 339
í símaskránni.
PÓSTUR OG SÍMI
Við spörutn þér sporitt
GOTTFÓLK / SÍA 5500-157