Þjóðviljinn - 31.08.1990, Page 13
t
5
PERSAFLÓADEILAN
Arabar
allra landa
sameinist
Þegar Irak hundsar sjálfstæði annars
arabaríkis og segist berjast fyrir skiptingu
auðs olíufursta milli allra araba styðst Saddam
Hussein við stefnuskrá Baathflokksins,
ríkisflokks Iraks
Mest umtalaða manni heimsins
í þessum mánuði, Saddam
Hussein at-Takriti, valdsmanni í
írak, þykir gott að láta jafna sér
við kalífana sem gerðu garðinn
frægan í höfuðborg hans Bagdað
forðum tíð, og þótt undadegt
kunni að virðast gerði svo einnig
erkióvinur hans til skamms tíma,
Khomeini heitinn höfuðklerkur
af íran. Hann kallaði Saddam
„rauða kalífann“, en að vísu ekki
þessum andstæðingi sínum til
virðingarauka.
Með því átti sá gamli við að
Saddam væri ekki annað en það
sem Baathflokkurinn (ríkisflokk-
ur í írak síðan 1968 sem Saddam
hefur verið í frá því að hann var
um tvítugt) hefði gert hann að.
Baath (orðið er arabískt og þýðir
endurfæðing) hefur verið talinn
sósíalískur öðrum þræði. Og í
augum íransklerka er hverskonar
sósíalismi viðurstyggð, sem og
kapítalismi, lýðræði og flest ann-
að af hugmyndafræðilega taginu
sem frá löndum Evrópumanna
kemur.
Kristinn uppruni
Frá sjónarhóli múslíma er þar
að auki hægt að leggja Baath-
flokknum það til lasts að hann er
ekki sprottinn úr íslömskum jarð-
vegi nema að takmörkuðu leyti.
Flokkurinn var stofnaður 1940 og
beittu sér einkum fyrir því
kristnir Sýrlendingar, þeirra
helstur Michel Aflak, sem var
mikill áhrifamaður í sýrlenskum
stjórnmálum um miðja öldina.
Baath er veraldlega sinnaður
flokkur, miðað við það sem gerist
í íslamslöndum, og stefnir að því
að skipta þjóðarauði sem jafnast,
helst með því að örva smáat-
vinnurekstur, fremur en með
þjóðnýtingu, sem þó er einnig
með í myndinni. Flokkurinn get-
ur vart talist byltingarsinnaður í
marxískum skilningi orðsins, þar
eð hann vísar stéttabaráttu á bug,
að því frátöldu að hann vill steypa
þeim valdhöfum sem hann skil-
greinir sem lénsaldarmenn. Hug-
myndafræðilega séð hefur flokk-
urinn stundum verið talinn
standa frjálslyndum flokkum á
Vesturlöndum nær en sósíalist-
um.
Áhrif frá
fasistum
Arabísk þjóðemishyggja er af
öllum þáttum mest áberandi í
stefnuskrá flokksins. Stofnendur
hans voru ungir menn, sem mót-
uðust á árunum milli heimsstyrj-
alda, er Austurlönd nær skiptust í
yfirráða- og áhrifasvæði milli
Breta og Frakka. Það var fyrst
þá, sem arabísk þjóðemishyggja
komst verulega á kreik. Hún var
á næstu grösum við íslamska
andúð á kristnum drottnumm, og.
Saddam og fjölskylda. Sitjandi er hann sjálfur á milli Sajidu konu sinnar og dóttur þeirra er Hala heitir. Standandi eru börn
og tengdabörn. Annar frá hægri er Hussein Kamel, tengdasonur Saddams og líklegur til að verða eftirmaður hans. Hann
er frá Tikrit eins og tengdafaðir hans og fleiri ráðamenn landsins.
í því fólst hætta fyrir kristna
minnihlutahópa. Má vera að
Aflak og þeim félögum hafi þótt
að besta ráðið til að leiða frá sér
og sínum þann háska væri að efla
sem mest með aröbum veraldlega
sinnaða þjóðernishyggju.
Þegar Baathflokkurinn fór í
kreik var Frakkland að hrynja
fyrir áhlaupi Þjóðverja og margir
töldu að þess yrði skammt að
bíða að eins færi fyrir Bretlandi.
Arabískir þjóðernissinnar litu
margir á öxulríkin sem eðlilega
bandamenn gegn Bretum og
Frökkum og þjóðernishyggja og
fleira hjá nasistum og fasistum
var þeim allvel að skapi. Þetta
setti sitt mark á Baathliða og aðra
arabíska þjóðernissinna og í
framhaldi af því á stjórnarfar
ríkja sem þeir urðu valdsmenn
yfir eftir heimsstyrjöldina síðari.
Þau ríki, t.d. Egyptaland Nass-
ers, Sýrland Assads og írak Sadd-
ams Husseins, sóttu til fasista
millistríðsáranna fyrirmyndir að
einsflokkskerfi, foringjadýrkun
með miklum hrifningarlátum,
hermennskulegum fjöldahreyf-
ingum, fjöldaheilaþvotti með
velskipulögðum áróðri, rækilega
auglýstri umhyggju fyrir alþýðu
og þjóðernishyggju á næstum
grösum við kynþáttahyggju. Fyr-
irmyndir að sumu af þessu voru
einnig sóttar til ríkja undir stjórn
kommúnista.
Takmörkuð virðing
fyrir landamærum
Þegar arabar ruddust út af Ar-
abíuskaga á sjöundu öld voru
þeir ein þjóð, eða að minnsta
kosti undir einni stjórn, og síðan
hefur sú hugmynd aldrei dáið al-
veg út hjá þeim að þeir séu ein
þjóð og eigi að vera undir einni
stjórn. Sú hugsun var frá upphafi
nútíma arabískrar þjóðemis-
hyggju meginatriði í henni, og
sameining allra araba í eitt rfki er
eitt helsta baráttumál Baath-
flokksins, upphaflegri stefnuskrá
hans samkvæmt. Þetta ásamt
með öðm gerir að verkum að ar-
abaríki bera ekki ótakmarkaða
virðingu fyrir landamærum hvers
annars. Þetta skýrir að nokkru
hugarfar Saddams, þegar hann
réðist á íran til að vinna af því
arabískumælandi fylki, Kúsest-
an, og einnig þegar hann tók sér
fyrir hendur að hremma Kúvæt.
Þegar Saddam lætur hylla sig
sem frelsara út á það að hafa
steypt af stóli í Kúvæt sjeikunum
af ættinni Sabah, sem setið hefur
að völdum á þeim slóðum frá því
að manneskjur eins og Friðrik
mikli Prússakonungur og Madd-
ama Pompadou slógu sem mest
um sig í Norðurálfu, höfðar hann
til hugsjóna Baathflokksins um
baráttu gegn „lénshöfðingjum“,
sem og þegar hann segist berjast
fyrir því að auði olíusjeika sé
skipt á milli fátækra araba. Að
þessu athuguðu er ekki nema
eðlilegt að furstar Saúdi-Arabíu
og Sameinuðu arabafurstadæm-
anna óttist að Kúvæt sé aðeins
fyrsti áfanginn í þesskonar upp-
skiptaherferð „rauða kalífans“.
Alavítar og súnna
múslímar
Það er með Baathflokkinn eins
og fleiri að hann hefur mikið
breyst í tímans rás. Kristnir menn
eru þar enn meðal áhrifamanna -
þeirra á meðal Tareq Aziz, utan-
ríkisráðherra íraks - en aðrir
hafa miklu meira að segja í
flokknum í þeim tveimur
löndum, þar sem hann fer með
völd, en þau eru írak og Sýrland.
í Sýrlandi ráða mestu í flokknum
og þar með landinu herforingjar
sem eru alavítar, en það er trú-
og/eða þjóðflokkur sem opinber-
lega kallar sig íslamskan, en er
það ekki að dómi múslíma al-
mennt og hafa þeir í því áreiðan-
lega mikið til síns máls. Alavítar
eiga það því sammerkt # með
kristnum mönnum í löndum þess-
um að þeim er í hag að stuðla að
veraldlegri þjóðernishyggju í
stað íslamskrar. í írösku flokks-
deildinni ráða lögum og lofum
Saddam og nokkrir gæðingar
hans, flestir súnnamúslímar að
trú og nátengdir hagsmuna-,
átthaga- og ættarböndum. Panar-
abísk samstaða Baathliða er og
löngu úr sögunni; af öllum óvin-
um Saddams er Assad Sýrlands-
forseti líklega sá, sem hvað áhug-
asamastur er um að koma honum
á kné.
« 1 i
iSt!
Viðskiptabannið
Ognun við fleiri en írak
við Iraka fyrir formúgu fjár, sem
nú eru í uppnámi. Þannig er ljóst
er að verktakafyrirtæki í Vestur-
Þýskalandi verða af stórfram-
kvæmdum í írak og sömu sögu er
að segja um þýsk stórfyrirtæki á
sviði hergagnaiðnaðar, en
Vestur-Þjóðverjar hafa séð ír-
ökum fyrir drjúgum hluta stríð-
stóla þeirra. Viðlíka gegnir með
franska vopna- og flugvélafram-
leiðendur og er þá aðeins fátt eitt
upp talið. Þá mega lánardrottnar
íraka reikna með að fá aldrei
endurgreiddan nema hluta þeirra
lána sem þeir eiga útistandandi
hjá írökum.
íslendingar þurfa ekki að hafa
áhyggjur af afleiðingum viðskipt-
abannsins, nema ef vera kynni
stígandi heimsmarkaðsverði á
olíu. Undanfarin ár hafa viðskipti
íslendinga við ríkin við Persáflóa
verið næsta lítil. í fyrra voru flutt
hingað inn frá írak 405 kíló af
döðlum fyrir andvirði 45.000 kr.
Þar með eru öll viðskipti okkar
við þá íraka upptalin. Fyrstu
mánuði þessa árs höfðu engin
viðskipti átt sér stað milli land-
anna. (
Undanfarin ár höfum við flutt;
út nokkurt magn jarðefna til
Saúdí-Arabíu. Á síðasta ári nam
þessi útflutningur 240 tonnum.
Einnig keyptu Saúdí-Arabar af
okkur tæp tvö tonn af köðlum og
reipi og rúm 100 kíló af vélbún-
aði. í það heila tekið námu þessi
viðskipti um 4,3 miljónum krpna.
I -rk
Viðskiptabannið á írak kempr
við kaunin á fleirum en Ir-
ökum einum. Fjölmörg vestræn
ríki hafa undanfarin ár átt blóm-
leg viðskipti við íraka, sem og
Kúvæt og Saudí-Arabíu, en þau
viðskipti eru nú í uppnámi í kjöl-
far deilunnar við botn Persaflóa.
Viðskipti íslands við löndin fyrir
botni Persaflóa hafa verið næsta
lítil. Það er því Ijóst að viðskipta-
bannið hittir íslendinga ekki illa
fyrir nema olíverð fari stígandi.
írakar hafa fátt annað að bjóða
en olíu, en af henni hafa þeir nær
allar gjaldeyristekjur sínar. írak-
ar þurfa að flytja inn gnægð mat-
væla til að geta brauðfætt sig og
nánast alla tækniþekkingu og vél-
ar og tól verða þeir að flytja inn.
Svipaða sögu er að segja um Kú-
væt og Saúdí-Arabíu.
Eftir að stríði íraka við ná-
granna sína írani lauk, hugðu
mörg vestræn stórfyrirtæki gott
til glóðarinnar. írakar þurftu
mjög á innfluttu fé og verk- og
tækniþekkingu að halda við að
rétta við bágborinn efnahag.
Fjölmörg vestræn stórfyrirtæki
lánastofnanir gerðu samninga
Saddam Hussein íraksforseti
í evrópskum fötum og með ís-
lamskan höfuðbúnað-í
stefnu flokks hans fara saman
evrópskar og arabískar hug-
myndir.
Föstudagur 31. ágúst 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 13