Þjóðviljinn - 07.09.1990, Qupperneq 8
NÝTI
Útgefandi: Dtgáfufélag Þjóðvfljans Framkvœtndasfjóri: Hailur Páll Jónsson Ritstjóran Ami Bergmann, Ólafur H. Torfason Afgreiðsla: « 68 13 33 Auglýsirtgadeild: ® 681310 - 68 13 31 Símfax: 68 19 36
Umsjónarmaður Helgarblaðs: Ragnar Kartsson Fréttastjóri: SiguröurÁ. Friðþjófsson Verð: 150 knónur f lausasölu Setning og umbrot: Prentsmiðja Þjóöviljans hf.
ÚtJit: Þröstur Haraldsson Auglýsingastjóri: Steinar Harðarson Prentun: Oddl hf. Aðsetur: Slðumúla 37,108 Reykjavlk
Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis
Utáland
Þótt flaumur fólks utan af landsbyggðinni hafi
streymt til höfuðborgarsvæðisins undanfarin ár
og fyrirtæki í dreifbýli átt í feiknariegum erfiðleik-
um, þá hafa á þessu ári óvenju margar fregnir
borist af nýjungum í atvinnulífi og nýsköpun úti á
landsbyggðinni. Nú síðast beitti Olafur Ragnar
Grímsson fjármálaráðherra sérfyrir þeim óvenju-
legu umskiptum og samningagerð, að öflugt
sjávarútvegsfyrirtæki syðra, Ingimundurhf., hefur
flutt starfsemi sína til út á land, norður til Siglu-
fjarðar og haft makaskipti við Sigló hf. á húsnæði.
Kolbeinn Friðbjamarson hjá Verkalýðsfélaginu
Vöku á Siglufirði lýsti ánægju sinni með þessa
þróun í viðtali við Þjóðviljann á þriðjudaginn.
Koma svo stórs fyrirtækis inn í bæjarfélagið eyk-
ur þar að mun stöðugleika og fjölbreytni, auk
þess að vera gott fordæmi um þá möguleika
sem víða kunna að liggja, sé viljinn fyrir hendi að
stuðla að eflingu byggðanna.
Núverandi ríkisstjóm hefur markað sér sér-
stöðu í málefnum landsbyggðarinnar. Skrefin
hafa verið tekin eitt af öðru og vísa vonandi veg-
inn í þá átt sem halda skal. Steingrímur J. Sigfús-
son landbúnaðarráðherra flutti aðsetur Skóg-
ræktar ríkisins frá Reykjavík til Egilsstaða um
áramót. Á Hvammstanga er tekin til starfa Fjar-
vinnslustofan Órðtak, sem tekur að sér margs
konar tplvuverkefni. Nú hefur Jón Sigurðsson
viðskiptaráðherra undirritað samning við hana
um gerð hlutafélagaskrár frá upphafi. Hann hef-
urfalið öllum stofnunum sem falla undir ráðuneyti
hans að kanna möguleika á að láta vinna verk-
efni úti á landi. Og fleiri dæmi mætti taka úr öðr-
um ráðuneytum þar sem byggðasjónarmiðin em
höfð að leiðarljósi þessa stundina.
En aðrir aðilar hafa líka tekið frumkvæði í
þessum efnum. Bændasamtökin staðsettu ný-
lega Hagþjónustu landbúnaðarins á Hvanneyri,
þar sem hún tekur m. a. við verkefnum Búreikn-
ingastofunnar sem starfaði í Reykjavík.
Á Kópaskeri, fámennu byggðarlagi á ystu
mörkum dreifbýlisins, er sprottin upp alþjóðleg
tölvumiðstöð fyrir forgöngu öflugs skólamanns,
Péturs Þorsteinssonar, skólastjóra, sem gerði
sér grein fyrir því að nútíminn hefur skapað önn-
ur starfsskilyrði og möguleika en þá sem byggð-
ust á tækni og hefð fyrri áratuga.
Það er yfirlýst stefna Alþýðubandalagsins að
komi til nýrra stóriðjuframkvæmda hériendis eins
og álvers þá eigi að reisa það utan höfuðborgar-
svæðisins. Réttilega hefur þó verið bent á, að
með því að einangra umræðuna um of við stað-
setningu stóriðjunnar, vilja gleymast gmndvallar-
atriðin sem beint snerta hag þjóðarinnar mest,
þ.e. orkuverðið, skattamálin, forræði fyrirtækj-
anna og umhverfisþátturinn. Allt hnígur í þá átt
að orkuverð fari hækkandi á alþjóðavettvangi og
öllum Ijóst að fljótræðisákvarðánir um orkuverð
koma ekki til greina við þessi skilyrði.
Samningsaðstaða íslendinga varðandi orku-
verðið hefur styrkst og vandi að sjá hvaða nauð-
syn rekur íslendinga til að ganga frá samningum
við erlenda aðila í meginatriðum á allra næstu
vikum. Allt bendir til, eins og þingmenn Alþýðu-
bandalagsins hafa bent á, að raunhæfara sé að
búa sig undir nokkurra mánaða athugun og við-
ræður.
Ný gögn hafa vemlega breytt þeirri mynd sem
dregin hefur verið upp í byggðamálum, fyrst spáð
er að álver sem reist yrði á Keilisnesi kæmi Suð-
umesjamönnum að litlu haldi varðandi atvinnu-
þátttöku og uppbyggingu á Reykjanesi. Megin-
hluti starfsmanna yrði samkvæmt athugun
Byggðastofnunar fólk af höfuðborgarsvæðinu,
úr Reykjavík og næsta nágrenni. Halldór Ás-
grímsson sjávarútvegsráðherra hefur bæst í hóp
þeirra sem leggja ríka áherslu á að hugsanlegt
álver rísi úti á landsbyggðinni og segist í blaða-
viðtali telja það áfall, ef fyrirtækið hafni á Keilis-
nesi. Trúlega mælir hann þar fyrir munn margra
alþingismanna, ekki síst eftir þær nýju upplýsing-
ar sem borist hafa um lítinn hag Suðumesja-
manna sjálfra af þeirri staðsetningu.
MÁLIT
8 S(ÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 7. september 1990