Þjóðviljinn - 07.09.1990, Blaðsíða 12
AUK/SlA k9d21-532
Hörpudeildin
Baráttan í algleymingi
Heil umferð í deildinni á morgun. Þrjúefstuliðinleikaölláútivelli, Fram, KR og ÍBV
Á morgun, laugardag, hefst 17. og næstsíðasta umferðin í 1.
deildinni í íslandsmótinu í knattspyrnu, Hörpudeild. Samkvæmt móta-
skrá byrja allir leikirnir á sama tíma eða klukkan 14. Óhætt er að
fullyrða að sjaldan eða aldrei hafi baráttan um (slandsmeistaratitilinn
verið jafn spennandi og nú.
Tvö lið, Fram og KR eru jöfn
að stigum í efsta sæti deildarinnar
með 32 stig en þó eru þeir blá-
klæddu með betra markahlutfall
en þeir svarthvítu. Á hæla þeirra
koma nýliðirnar frá Eyjum með
31 stig og í fjórða sæti eru ný-
krýndir bikarmeistarar Valur
með 30 stig.
Þór frá Akureyri er þegar fal-
linn í aðra deild en Akurnesing-
ar, með sín 11 stig, eiga þó enn
möguleika á að halda sæti sínu
með því að vinna þá leiki sem
eftir eru. Það er þó háð því að
núverandi íslandsmeistarar KA,
með 16 stig, fái ekki stig úr þeim
tveimur leikjum sem þeir eiga
eftir. Þrjú lið eru hinsvegar á
lygnum sjó um miðbik deildar-
innar. Sigurvegararnir frá því í
fyrra í annarri deild, Stjaman úr
Garðabæ með 26 stig, Fim-
leikafélag Hafnarfjarðar með 20
stig og Víkingur með 19 stig.
Leikir morgundagsins eru í
raun allt úrslitaleikir og má ekk-
ert út af bregða hjá toppliðunum
sem og hjá þeim sem berjast fyrir
tilverurétti sínum í deildinni.
Þrjú efstu liðin leika á útivelli á
morgun, Fram, KR og ÍBV en
Valur heima gegn FH.
Stjarnan-Fram
Framarar sækja Stjömumenn
heim í Garðabæinn og eiga
harma að hefna frá því í fyrri
viðureign liðanna í áttundu um-
ferð. Þá sigraði Stjarnan Fram
með þremur mörkum gegn einu á
Laugardalsvellinum. Stjörnu-
menn hafa verið á mikilli siglingu
í síðustu leikjum og hafa fyrir
meirí háttar
stendur tfl 15. sept.
á kílóastykkjum af brauðostinum góða
Verð áður:
Ki.77T.90 kflóið
TUboðsverð:
kr. 661.-3
kflóið
15% lækkun!
þennan leik sigrað í síðustu fjór-
um leikjum og síðast Víkinga
með einu marki gegn engu. Þeir
eru því til alls vísir og ekki spillir
fyrir þeim að einn helsti baráttu-
jaxl Framara, Pétur Amþórsson
var dæmdur í eins leiks bann á
fundi Aganefndar KSÍ á þriðju-
dag, fyrir brottvísun í Ieik á móti
FH um síðustu helgi. En maður
kemur í manns stað og þennan
leik verða Framarar að vinna,
ætii þeir sér að vera með í topp-
baráttunni. Á sama hátt hlýtur
það að vera mikið metnaðarmál
fyrir Stjörnuna að vinna leikinn
og geta þá státað af því að hafa
fullt hús stiga úr viðureign lið-
anna.
ÍA-KR
Vesturbæjarliðið fær það erf-
iða hlutverk að sækja Skagamenn
heim á morgun, sem em í þeirri
miður skemmtilegri stöðu að
vera í næstneðsta sæti deildarinn-
ar. Þessi lið hafa í gegnum tíðina
háð marga hildi sín í milli en á
morgun þýðir víst lítið fyrir
Skagamenn að oma sér við minn-
ingarar og glæsta sigra í fortíð-
inni. Falldraugurinn er fyrir
nokkm farinn að glefsa í liðið og
þarf nánast kraftaverk til að
forða því frá því að spila í annarri
deild að ári. Þeir náðu að vísu að
sigra Þór frá Akureyri í síðasta
leik og má vera að það hafi hleypt
nýju lífi í liðið.
Lið KR náði að hefiia bika-
rófaranna gegn Val í síðasta
deildarleik þegar þeim rauð-
klæddu var rúllað upp í Frosta-
skjólinu. í fyrsta skipti í aldar-
fjórðung em þeir svarthvítu að-
eins í seilingarfjarlægð frá ís-
landsmeistaratitlinum. Hvort
það hefur aukið sjálftraustið hjá
liðnu skal ósagt látið, en það mun
koma í ljós á morgun. í fyrri um-
ferðinni sigraði lið KR lið í A með
tveimur mörkum gegn engu.
Víkingur-ÍBV
Ekkert lið í Hörpudeildinni
hefur komið eins mikið á óvart í
sumar og lið Eyjamanna. í vor
þegar deildin byrjaði hafði eng-
inn trú á að liðið gæti náð þeim
árangri sem það státar af, að vera
í þriðja sæti 1. deildar þegar að-
eins tvær umferðir em eftir. í fyr-
ri leik liðanna úti í Eyjum varð
jafntefli, tvö mörk gegn tveimur.
Þá náðu Eyjamenn að vinna upp
tveggja marka forskot Víkinga í
seinni hálfleik.
Á morgun verður einn leik-
maður úr hvoru liði í leikbanni,
þeir Goran Micic Víkingi og Jak-
ob Jónharðsson ÍBV. Micic verð-
ur þó etfki meir með Víkingum
því hann fékk fjögurra leikja
bann fyrir gróft brot í síðasta leik
á móti Stjörnunni. Hann missir
jafnframt af tveimur fyrstu
leikjum liðsins næsta sumar.
Hvort fjarvera hans í fremstu
víglínu Víkinga verður til að taka
allt bit úr framlínu liðsins skal
ósagt látið. Hinsvegar verða
Eyjamenn að knýja fram sigur ef
þeir ætla sér að verða með f
slagnum um íslandsmeistaratit-
ilinn. Þeir munu því mæta
grimmir til leiks og ekki spillir
það fyrir þeim að þeir eiga stóran
og raddsterkan stuðningshóp
uppá fastalandinu.
Valur-FH
Vinningslíkur Valsmanna
dvínuðu til muna þegar þeir töp-
uðu stórt fyrir liði KR í síðustu
umferð og verma nú Tjórða sæti
deildarinnar. Þeirra eina von er
að eitthvað af efstu liðunum tapi
stigum og að þeir nái að vinna
FH. Hafnfirðingarnir sýndu það
og sönnuðu í síðasta leik gegn
Fram að þeir eru sýnd veiði en
ekki gefin, þegar þeir náðu þar
jafntefli í fjörugum leik. Þá spillir
það ekki fyrir FH að varnarmað-
urinn sterki úr Val, Sævar Jóns-
son verður í leikbanni, enn eina
ferðina.
Valsmenn unnu fyrri viðureign
liðanna með einu marki gegn
engu í Kaplakrika og því hafa
Hafnfirðingar ekki gleymt. Þeir
hafa ennfremur innan sinna vé-
banda markakóng deildarinnar,
Hörð Magnússon sem stefnir að
því að endurtaka leikinn í ár og
eignast par af gullskóm.
KA-Þór
Norður á Akureyri eigast svo
við íslandsmeistarar KA og Þór
sem þegar er fallið í aðra deild.
Þór hefur unnið tvo síðustu leiki
gegn KA. í fyrri umferð mótsins
með tveimur mörkum gegn einu
og í Meistarakeppni Akureyrar
með þremur mörkum gegn einu.
Liðsmenn KA vita að þeir verða
að ná stigi til að halda sér uppi í
deildinni og vafalaust verður það
til þess að pressan verður öll á
þeim. Enda yrði það nú saga til
næsta bæjar ef núverandi ís-
landsmeistarar féllu niður í aðra
deild. Þvflíkt og annað eins hefur
trúlega aldrei gerst fyrr í sögu ís-
lenskrar knattspyrnu.
Þór verður án Hlyns Birgis-
sonar sem verður í leikbanni og
KA án Halldórs Kristinssonar af
sömu ástæðu.
-grh
Vegna útfarar
Geirs Hallgrímssonar
fyrrv. borgarstjóra
veröa skrifstofur Reykjavíkurborgar og stofn-
ana hennar lokaðar frá kl. 13.00 föstudaginn 7.
september.
Borgarstjórinn í Reykjavík
/