Þjóðviljinn - 07.09.1990, Qupperneq 14

Þjóðviljinn - 07.09.1990, Qupperneq 14
 : María, 23 ára kerskálamaður. Allt í lagi að vera héma í sumarafleysingu, en ég vildi ekki vinna héma allt árið Áþreifanleg og sýnileg mengun Mestur hluti efnanna sem stíga upp úr keijunum á að fara um stóra stokka og inn í hreinsi- búnað. Hreinsibúnaðurinn á að taka hluta mengunarinnar áður en hún kemst út í andrúmsloftið. En verulegur hluti efnanna fer beint í andrúmsloftið í kerskálunum og það dylst ekki þeim sem stígur þangað inn fæti. Mengunin í skál- anum er áþreifanleg og sýnileg. Hún er líka vel sýnileg í nið- urstöðum rannsókna sem sýna að kerskálamenn kvarta meira en aðrir undan alls kyns meinum í öndunarfærum. Sú kerskálamengun sem ekki fer niður í lungu starfsmanna fer óhreinsuð um öflugar viflur í rjáfri skálanna og út í andrúms- loflið. Flúor, súrálsryk og brenni- steinsdíoxíð. Baldur Baldursson, trúnaðar- maður og fylgdarmaður blaða- manns um álverið, segir að menn fái þyngsli fyrir brjóstið og verði slappir af því að vinna tvær til þijár vaktir í senn í kerskála, einkum þegar ástandið í skálun- um er slæmt eins og nú. Baldur Baldursson, tmnaðarmaður Mér léttir alltaf þegar ég kemst aftur út (hreint loft. Karlavígi Rétt sem snöggvast fínnst blaðamanninum eins og hann sé staddur í kvikmynd um verk- smiðjukarla í upphafi iðnbylting- ar. Viðhaldsmenn koma í skálana á reiðhjólum, enda eru fjarlægðir í skálunum meiri en gengur og gerist á vinnustöðum á Islandi. Viðhaldsmennimir reyna að stoppa stutt i skálunum. Starfsmenn í kerskálum eru um 130 talsins. Þetta er karlavígi, en konur hafa ekki látið það alveg afskiptalaust. María er 23 ára gömul og hefúr verið í kcrskála í sumar. Hún þarf ekki að hugsa sig um þegar hún er spurð um ffam- tíðaráformin í þessu starfi: - Það er allt í lagi að vera í sumarafleysingu héma. En ég myndi ekki vilja vinna héma allt árið. Það er allt of mikil drulla og mengun héma. Hún vinnur við áltöku ásamt reyndum starfsbróður, grímulaus- um. Hann segist ekki geta notað grímu vegna hitans. - Ef það er 20 stiga hiti úti fer hitinn hér upp í fimmtíu gráður, segir hann. Lítiö álver Kerskálamir í Straumsvík em hvor um sig nær kílómetri að lengd og em merktir með tölu- stöfúnum einn og tveir. Þeir liggja meðfram Reykjanesbrautinni frá suðvestri til norðausturs. Þama fer fram mannfrekasta og um- fangsmesta starfsemin í því ferli sem þarf til þess að framleiða hrá- ál. Sem fyrr segir em 160 ker í hvorum skála um sig, 320 alls. Alverið í Straumsvík er lítið álver. Þar em ffamleidd 80,000 til 90,000 tonn af hrááli á ári. Það er lítið ef miðað er við það álver sem fyrirhugað er að reisa á íslandi innan fárra ára. Það er líka lítið miðað við að árið 1984 vom ffamleiddar nær 19 miljónir tonna af áli í heiminum. En Straumsvíkurverið er dótturfyrirtæki svissneska fjöl- þjóðafyrirtækisins Alusuisse og það er stórfyrirtæki. Auðhringur, myndi einhver segja. Starfsmenn álversins í Straumsvik em um 600 talsins, en Alusuisse hefur um það bil 25 þúsund starfsmenn á sínum snæmm. Fyrirtækið hef- ur umsvif í Ameríku, Affíku, Evr- ópu og Ástralíu. Fyrir tíu ámm ffamleiddi Alusuisse um 800 þús- und tonn af hrááli á ári, en hefur nú dregið vemlega úr þeirri ffam- leiðslu. Þess í stað hefur fyrirtæk- ið einbeitt sér að úrvinnslu áls. Stund milli stríöa Súrálið sem notað er í Straumsvík kemur frá Ástralíu þar sem auðugar báxítnámur er að finna. Úr báxíti er unnið súrál og það er meginhráefni álversins. Súrálið kemur sem duft í Straumsvíkurhöfn og er dælt í þijá súrálsgeyma. Þaðan er það flutt í smærri geyma, svokallaða súrálsdaggeyma. Þeir em fjórir, staðsettir á milli kerskálanna. Úr daggeymunum fer súrálið ásamt öðm sem til þarf í kerin í skálun- um. Það er mikill léttir að koma inn í aðsetur viðhaldsdeildar á milli kerskálanna. Öndunarfærin starfa eðlilega að nýju og líkam- inn slakar á. Mengunin kemur heldur ekki eins mikið á óvart þegar farið er yfir í kerskála eitt. Þar er allt á sama veg og í skála tvö. Áltakar fara um, stinga rana í botn kerjanna og sjúga ál upp í deiglur. Hver deigla tekur fimm tonn af áli og það þarf þijú ker til þess að fylla hana. Deiglunum er ekið úr ker- skálum yfir í steypuskála. Sýni em samviskusamlega tekin úr hverri deiglu, en að því loknu liggur leið álsins í mót af ýmsum stærðum og gerðum. Vinnuslys Andrúmsloftið er allt annað og hreinna í steypuskála en í ker- skálum, en móttakan er nokkurs konar millisvæði. Þar kvarta menn yfir óþægindum vegna loft- mengunar. Steypuskálinn er næst stærsta einingin í álverinu í starfs- mönnum taiið. Þar vinna 90 manns. Á neðra gólfi liggja stæð- ur með álbörmm (állengjum), þeir stærstu em 12 tonn að þyngd. Þessir silfurlitu, verðmætu áls- tautar em enn ylvolgir þar sem þeir liggja á gólfinu. - Þú ættir að setja upp gler- augun, segir gamalreyndur verka- maður við blaðamann. Blaða- maðurinn minnist hitans á álinu þegar það rennur niður í mótin, setur hlífðargleraugun upp í flýti og brosir vandræðalega framan í þennan miðaldra verkamann sem hefur starfað við álverið í sautján ár. - Vinnuslys em tíð hér í steypuskálanum, flest smávægi- leg, en það er mun minna um að menn fái álslettur á sig nú en áð- ur, segir Birgir Jónsson, verk- stjóri í steypuskála. Ábyrgö hvers og eins 14 SfÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Manni em afhent hlífðargler- augu og hjálmur áður en lagt er upp í skoðunarferð um álverið. Það er gengið eftir því að maður hafi hjálminn á höfðinu. Menn em líka hvattir til þess að hafa grímur fyrir andlitinu í kerskál- um, en það er þó á ábyrgð hvers og eins. AIl nokkrir láta grímum- ar eiga sig. - Þetta er spuming um hvað menn venja sig á, segir Baldur Baldursson. Hann heldur að starfsmenn í kerskála viti nokkum veginn hvað þeir em að láta oní sig í vinnunni. Þeir gera sér að minnsta kosti grein fyrir því að þeir em að innbyrða efni sem hafa skaðleg áhrif á öndunarfærin. Rannsóknir sýna að kerskála- mönnum er hættara en almennum borgurum við ýmsum kvillum og sjúkdómum. Rannsókn á 20001 kerskálamönnum í níu álverum á íslandi, í Noregi og í Svíþjóð sýn- ir að kerskálamenn kvarta meira en aðrir yflr hósta og surg í bijósti. Munurinn á þeim og við- Súrálsgeymamir. Þama er að finna helsta hráefni álversins, en tvö tonn af súráli þarf til þess að framleiða eitt tonn afáli. miðunarhópi er vemlegur og munurinn eykst eftir því sem þeir vinna lengur í kerskála. En enn sem komið er liggja aðeins fyrir bráðabirgðaniðurstöður úr þessari rannsókn. Lokaniðurstöður eiga að birtast í haust. Langur starfsaldur Niðurstöður norskrar rann- sóknar benda til þess að starfs- mönnum álvera sé hættara en öðr- um við lungnakrabba. Rannsókn- in náði til starfsmanna álvera í Noregi og sýndi að krabbameins- tilfelli í þeim hópi vom fleiri en búast mátti við. Munurinn var sérstaklega mikill hvað lungna- krabba snertir. Þrátt fyrir þetta ílengjast menn í kerskála eins og í álverinu vfirleitt. Fyrsta heila starfsár ál- versins var 1970, en margir nú- verandi starfsmanna hafa verið með frá upphafi. Sumir allt frá byggingartímanum. Jakob R. Möller starfsmanna- Álver og flúormengun Fmmefníð flúor er ekki talið hættulegl þcgar það er innbyrt í mjög litlu magni, enda er ílúor meðal annars notaður í drykkjarvatni og íil tannhirðu. Þessi notkun er þó umdeild. Flúor er eiturefni og getur verið mjög skaðlegur mönnum, dýrum og jurtum í tiltölulega litlu magni. Flú- ormengun hefur alltaf verið vandamál f álverinu í Straumsvr'k. Upphaflega var enginn hreinsibúnaður í álverinu í Straumsvík. En árið 1973 gerðu heilbrigðisyfirvöld verksmiðjunni að setja upp búnað til þess að hreinsa flúor úr lofti frá kerskálunum. Uppsetningu búnaðarins var lokið árið 1982, en hann hefur samkvanní heimildum Þjóðviljans aldrei starfað sem skyldí. í framhaldi af kröfunni um hreinsibúnað komu fram tillögur um mörk sem gerðu ráð fyrir að eitt kilógramm af flúor mætti fara út í and- rúmsloftið fyrir hvert tonn sem framleitt er af áli. Um þetta er fjallað í skýrslu Hollustuvemdar rfkisins frá 1988. Þar segir að ISAL hafi ekki talið að verksmiðjan geti staðið við þessi mörk, en hafi samþykkt að miða við tvö kiló af flúor fyrir hvert tonn af áli. Miðað við 88 þúsund tonna ársframleiðslu fara þá 176 tonn af flúor út um rcyk- háfa verksmiðjunnar árlega. Flúormagnið fyrir hvert tonn hefur hins vegar iðulega verið mun meira. Þegar Hollustuvemd mældi flúormagn- ið firá verksmiðjunni árið 1986 mældust allt að 5,8 kiló af flúor fyrir hvert áltonn. Rætt er um að hámarkslosun á flúor eigi að vera um eitt kiló fyrir hvert áltonn sem firamleitt verður í nýju álveri, verði það reist hér á landi. Það þýðir að um 200 tonn af flúor fara út i andrúmsíoftið árlcga. Auk lofhnengunarvanda vegna flúomotkunar álvera má ncfna að kerbrot frá álverum eru flúormenguð. Kerbrot frá vcrinu í Straumsvík hafa vcrið grafin i flæðarmálínu. Ekki er enn vitað hvemig kerbrotum frá hugsanlegu álverí nýju verður fargað. Meint eituráhrif áls Léttmálmurinn ál er mikið notaður í samfélagi nútímans. Á1 er notað í alls kyns samgöngutæki, matvælaumbúðir, klæðningar um hús og til ótal hluta annarra. Á síðari ámm hafa komið fram upp- lýsingar sem benda til þess að ál hafi skaðleg áhrif á menn, dýr og jurtir. Til dæmis hefur verið bent á samband milli áls og hrömun- arsjúkdóma. Á1 er þriðja algengasta frumefnið í jarðskorpunni en er yfirleitt bundið öðrum efnum. Talið er að um 8,5 af hundraði jarð- skorpunnar sé ál. Sýring vatns vegna mengimar, meðal annars vegna brenni- steinsmengunar frá áliðnaði, er sögð valda því að ál losnar frá öðr- um efnum svo það kemst í drykkjarvatn og þannig í líkama manna og dýra. Fiskadauði í súrum vötnum er talinn orsakast meðal ann- ars af áli sem leggst á tálkn fiskanna. I breska læknatimaritinu Lancet 14. janúar í fyrra var sagt frá rannsóknum vísindamanna á fylgni álmagns I drykkjarvami og tíðni Alzheimersjúkdómsins. Rannsóknin náði til svæða í Englandi og Wales og miðað var við tíðni Alzheimer hjá fólki undir 70 ára aldri. Upplýsingar um álinnihald vatns á tíu ára tímabili voru fengnar frá yfirvöldum og vatnsveitum. Niðurstöðumar sýna að haetta á Alzheimer var 50 prósent meiri þar sem álmagn náði 0,11 milligrömmum á hvem litra vatns en þar sem það náði 0,01 milli- grammi á hvem lítra. Hins vegar em menn beðnir að túlka niður- stöðumar með varúð eins og gjama er gert þegar niðurstöður sem þessar em birtar. I Lancet-greininni er jafnframt vimað í norska rannsókn sem bendir til samhengis á milli áls í drykkjarvatni og andlegrar hröm- unar. I tímaritinu New Scientist 18. ágúst siðast liðinn er svo enn fjallað um meint eituráhrif áls. Þar segir frá niðurstöðum rannsókn- ar sem fór fram á vegum háskólans í Toronto í Kanada. Þannig er mál með vexti að á árunum 1944-1979 létu námufyrirtæki í Ont- ario í Kanada verkamenn sína anda að sér álryki til þess að draga úr hættu á steinlungum. Niðurstöður rannsólaiarinnar em sagðar enn ein sönnun þess að ál hafi eituráhrif á heilann. Það kom í ljós að námuverkamenn sem höfðu andað að sér ál- ryki bám í meiri mæli en eðlilegt getur talist einkenni andlegrar hrömunar. Svo virðist sem álrykið hafi haft slæm áhrif á skamm- tímaminni þeirra og aðra andlega getu. Þess ber þó að geta að nið- urstöðumar fela ekki í sér læknisffæðilega greiningu. Búast má við að á næstu ámm verði sífellt meiri áhersla lögð á að rannsaka meint eituráhrif áls, ekki síst þar sem ál er stór hluti af daglegu lífí fólks. Til dæmis er talið að drykkir með lágt sýmstig leysi ál úr umbúðum, til dæmis dósum.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.