Þjóðviljinn - 02.11.1990, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 02.11.1990, Blaðsíða 3
Kraftajötnar í hár saman íslenska umboðsskrifstofan hf. sendi í gær frá sér fréttatilkynningu þar sem veist er mjög harkalega að Hjalta Ámasyni sem skipulagt hefur mótið „Kraftur 90“ í íréttatilkynningunni segir að mótshaldari hafi aldrei boðið Jóni Páli Sigmarssyni formlega að taka þátt í keppninni. Svo segir orðrétt: „Astæðu þessa má einna helst rekja til þess að Hjalti Ama- son er sagður þreyttur á því að lifa i skugga Jóns Páls.“ Þá segir að Hjalti hafi í gegn- um árin reynt að komast með tæmar þar sem Jón Páll hafi hæl- ana, „án sýnilegs árangurs. I fyrstu var þessi viðleitni Hjalta eins og íþróttamanni sæmir, bundin við þær keppnir sem þeir báðir tóku þátt í. 1 seinni tíð hefur Hjalti Amason gert sig sekan um að nota meðöl sem jaðra við at- vinnuróg og þaðan af verra,“ seg- ir orðrétt í tilkynningunni. Seinna í fréttatilkynningunni er nefnd grein sem birtist í íþróttablaðinu á síðasta ári, „en þar mátti skila á Hjalta að hann væri mun betri að öllu leyti en Jón og einungis slembilukka hafi fært Jóni þann árangur, sem hann hef- ur náð á alþjóðavettvangi". Barði Valdimarsson hjá Is- lensku umboðsskrifstofunni sagði við Þjóðviljann í gær að Jón Páll Sigmarsson hefði lesið yfir ffétta- tilkynninguna áður en hún var send út og ekkert haft við hana að athuga. „Þetta er blaðra sem hefur verið að þenjast út og er að springa núna,“ sgði Barði. Hjalti Amason sagði við Þjóðviljann að hann væri undr- andi á þessu, því hingað til hefði hann talið sig og Jón Pál hina mestu máta. Hjalti sagðist hafa boðið Jóni Páli þátttöku, en Jón Páll tekið dræmt í það, því að hann væri upptekinn við að koma upp lík- amsræktarstöð sinni, Klóa. Barði sagði það rétt hjá Hjalta að hann hefði orðað þátttöku við Jón Pál, en sagði jafnframt að samtímis hefði Hjalti látið í veðri vaka að best væri fyrir alla aðila að Jón Páll væri ekki með. „Jón Páll sagðist ætla að hugsa málið en síðan var öllum nema honum sent skriflegt form- legt boð og boðin þátttaka í keppninni.“ Keppnin „Kraftur 90“ fer fram í Reiðhöllinni á morgun, en þar verður keppt í 25 kg stein- kasti, lýsistunnuhleðslu, hjól- böruakstri, rafgeymalyftu, kraft- hleðslu, sekkjadrætti og hlaupi og trédmmbalyftu. Islensku þátttakendumir em þeir Hjalti Amason og Magnús Ver Magnússon. Auk þeirra em fjórir erlendir keppendur, þeir Bill Kazmaier og O.D. Wilson ffá Bandaríkjunum og Jamie Reeves og Adrian Smith frá Bretlandi. Kraftakeppnin verður með nýju sniði því keppnin er bæði liða- og einstaklingskeppni. -Sáf/hmp Evrópubandalagið Skortur á vinnuafli fyrirsjá- anlegur Þótt flest lönd Evrópubanda- lagsins búi nú við 10-15% at- vinnuleysi þá er fyrirsjáanlegt að skortur verði á vinnuafli í löndum bandalagsins innan 30 ára. Þetta segir í skýrslu breskrar rannsókn- amefhdar, sem nýlega hefur verið gefm út. Astæðan er minnkandi bameignir. Sú mikla fjölgun bameigna sem varð í kjölfar stríðsins skilaði þeirri kynslóð sem nú er á besta aldri. Þessi kynslóð hefúr aukið framleiðslu og hagvöxt svo urn munar, en hún hefur ekki endur- nýjað sig að sama skapi, og skort- ur á fólki á vinnufærum aldri mun þegar gera vart við sig árið 2020 segir í skýrslunni. Þótt fólksfjölgun eigi sér enn stað innan bandalagsins, þá breyt- ist aldursskiptingin þannig að vinnufæm fólki fækkar hlutfalls- lega. Höfundar skýrslunnar telja að íbúafjöldinn innan EB-land- anna muni ná hámarki árið 2005, en síðan muni verða bein fækkun. Arið 2020 reikna höfundar skýrsl- unnar með að vinnufæm íolki iiman EB hafi fækkað um 8 milj- ónir frá því sem nú er. Nú em 145 miljónir vinnufærra manna í bandalagsríkjunum 12. Skýrslu- höfúndar segja að þeim muni fjölga um tvær miljónir fram til ársins 2000, en síðan muni verða ör fækkun á næstu 20 ámm niður í 137 miljónir. Heildarmannfjöld- inn mun á sama tima dragast sam- an úr 326 í 323 miljónir íbúa. Arið 2020 er gert ráð fyrir því að 20% íbúanna verði yfir 65 ára aldri í stað 14% eins og nú er. Höfúndar skýrslunnar telja að innflutt vinnuafl muni ekki geta fyllt þetta skarð, þrátt fyrir mikið framboð frá A-Evrópu. Meðal annars vegna þess að eðlilegt ástand verði komið á vinnumark- aði i Austur-Evrópu um það leyti sem vinnuaflsskortsins tekur að gæta í vesturálfúnni. Skýrsluhöf- undar benda jafnframt á að vax- andi eftirspum eftir hvers konar þjónustu fyrir aldraða muni setja svip sinn á atvinnulíf í álfunni á næstu áratugum. -ólg/Reuter. Föstudagur 2. nóvember 1990 NYTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 3 TILB0Ð VIKUNNAR

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.