Þjóðviljinn - 02.11.1990, Blaðsíða 16
stofnunar íslands, orðaði þetta
þannig í fréttabréfi um þróunar-
mál fyrir tveimur árum:
„Það sem við höfum sam-
þykkt, heitið og lofað hvað eftir
annað er að miða okkar þróunar-
framlög við fólksfjölda, þjóðar-
framleiðslu, þjóðartekjur, annað
ekki. Hvers vegna það er tíu sinn-
um erfiðara fyrir okkur en aðra
Norðurlandabúa er ráðgáta.“
íslendingar þurfa að marg-
falda framlag sitt til þess að ná
meðaltali OECD ríkja.
En það er jaftiframt forvitni-
legt að skoða hvemig aðstoðinni
er varið. Nær tveir þriðju hlutar
norsku aðstoðarinnar fóru til tví-
hliða verkefna ýmiss konar, en
rúmur þriðjungur til alþjóðlegra
stofnana.
Þessu er öfugt farið þegar Is-
land á í hlut. Aðeins þriðjungur
íslensku aðstoðarinnar fór til tví-
hliða verkefna á borð við þau sem
unnið hefur verið að á Græn-
höfðaeyjum og víðar.
Samþykkt
Alþingis
Bjöm Dagbjartsson telur að
Islendingar eigi að leggja áherslu
á tvíhliða verkefni, enda hafi þeir
þannig mest áhrif á hvemig fénu
er varið.
- Við eigum að nota það litla
sem við fáum í tvíhliða verkefni,
ekki bara í stofnanir eins og Mat-
væla- og landbúnaðarstofnun S.Þ.
þar sem tvær krónur af hveijum
þremur fara í skrifstofuhald, segir
Bjöm.
- Alþingi samþykkti árið
1985 að auka framlög til þróunar-
aðstoðar jafnt og þétt þar til hún
næði 0,7 hundraðshlutum af þjóð-
arffamleiðslu árið 1992. Sam-
kvæmt því ætti aðstoðin að nema
einum og hálfúm miljarði króna á
næsta ári. En raunveruleg þróun-
araðstoð í frumvarpi að fjárlögum
fyrir næsta ár nemur 275 miljón-
um króna. Það jafngildir 0,075
hundraðshlutum af þjóðarfram-
leiðslu, segir Bjöm í samtali við
Þjóðviljann.
í fjárlagafmmvarpinu er þró-
unaraðstoð reiknuð 345 miljónir,
en Bjöm telur eðlilegt að draga 70
miljónir ffá því. Það em peningar
sem fara til Austur- Evrópu og
Bjöm segir að engin önnur þjóð
flokki það sem þróunaraðstoð.
Svikin loforð
Samkvæmt fjárlagaffumvarpi
fær Þróunarsamvinnustofnun
78,5 miljónir króna til umráða á
næsta ári. Það er 3,5 miljónum
meira en í fyrra. Hins vegar gerir
frumvarpið ráð fyrir að íslending-
ar greiði rúmlega 104 miljónir
króna til þróunarstofnunar Al-
þjóðabankans, og sú upphæð mun
þá rúmlega tvöfaldast ffá þessu
ári.
- Ef við fáum bara 78,5 milj-
ónir króna á næsta ári getum við
ekki staðið við allt sem við höfúm
lofað eða skapað væntingar um.
Við höfúm til dæmis hálfþartinn
lofað að smíða 12-14 tonna bát og
senda til Grænhöfðaeyja, en það
samrýmist ekki þessari fjárveit-
ingu, segir Bjöm Dagbjartsson.
-gg
Þróunar
samvinnu-
stofnun
Lög um Þróunarsamvinnu-
stofnun Islands voru samþykkt
árið 1981. Nú starfa tveir menn
á skrifstofu stofnunarinnar við
Rauðarárstíg, en starfsmenn
hennar eru 12 alls. Átta þeirra
starfa nú að fiskveiðaverkefni í
Namibíu, einn er á Grænhöfða-
eyjum og einn í Malawí.
Það er í verkahring ÞSSI að
sjá um þróunaraðstoð sem miðar
að varanlegum breytingum til
batnaðar. Neyðarhjálp er ekki á
verksviði stofnunarinnar.
Verkefni ÞSSÍ hafa öðru
fremur beinst að fiskveiðum og
athyglin hefúr einkum beinst að
aðstoð við Grænhöfðaeyjar.
Fyrsti samningurinn um þróunar-
aðstoð við Grænhöfðaeyjar var
undirritaður í júní 1980. Smíði og
útgerð rannsóknaskipsins Fengs
hefúr verið veigamesta verkefnið
þar, en Fengur er nú við bryggju í
Reykjavík, enda kostar 40 miljón-
ir króna á ári að reka hann.
Verkefnið í Namibíu felst að-
allega í aðstoð við fiskirannsókn-
ir.
-gg
16 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ
11 INaP Vf Sil I
m m
Opnub hafa verib ný bílastæbi vib
Alþingisreit meb abkomu frá Tjarnargötu.
Gjaldskylda alla virka daga frá kl. 07:30 til 18:30. Frítt er á kvöldin og
um helgar. Giald fyrir fyrstu klukkustund er 30 krónur og
10 krónur fyrir hverjar byrjaöar 12 mínútur eftir þaö.
1. Komib aö bílastæöi.
Ytið á hnapp við innkeyrsluhliðið,
takið við miða og geymið.
2. Bílinn sóttur.
Gengið að miðaaflesara.
Setjið miðann í miðaraufina,
uppsett gjald greitt,þú
færð miðann aftur.
3. Ekib frá bílastæbi.
Akið af stæði að útaksturshliði.
Setjið miðann í miðaraufina,
hliðið opnast.
Þú hefur 10 mínútur til þess að aka út. Ef lengri tími líður frá greiðslu miða,
opnast úthlið ekki og borga þarf meira. Sé viðdvöl á stæði skemmri en 5 mínútur
þarf ekki að setja miða f miðaaflesara
áður en ekið er af stæðinu.
Ath.
Þó frítt sé á stæðið , á kvöldin og um helgar, þarf samt að setja miða í miðaaflesara og
þá birtist "0 kr." á skjá og þú færð miðann aftur, sem gildirfyrir útaksturshlið.
Á reitum merktir A eru 60 gjaldskyld bílastæði til almennra nota alla virka daga
frá kl. 07:30 til 18:30. Reitur B er sérstaklega merktur Alþingi.
Reitir merktir A eru hins vegar opnir almenningi
á kvöldin og um helgar og þá er frftt í stæðin.
BILASTÆjDASJÓÐUR
REYKJAVIKUR
SKULATUNI 2.
SIMAR: 21242 pG 18720
BILANAVAKT, SIMI 27311, UTAN VINNUTÍMA.
C3
£
55