Þjóðviljinn - 02.11.1990, Síða 5
TT’/SCT'TTT* A C<TTT>17 TTTI>
JD JL vJ JLJ^jr%.vjrö JD JlVJlL JL JL JlJv
Óskað
Stefán Valgeirsson:
Z mánudag hyggst Stefán Val-
A geirsson leggja fram þings-
alyktunartillögu þess efnis að
umboðsmanni Alþingis verði
faiið að kanna hvort bráð-
brigðalög ríkisstjórnarinnar
vegna kjarasamninganna við
BHMR brjóti í bága við ákvæði
stjórnarskrár íslands.
Bæði Hjörleiíur Guttormsson
og Geir Gunnarsson, þingmenn
Alþýðubandalagsins, hafa lýst
þvi yfir að þeir styðja ekki bráð-
birgðalögin en þau hafa verið
lögð fram og rædd einu sinni i
neðri deild Alþingis. Þar sem
stjómin hefur 23 menn í neðri
deild á móti 18 stjómarandstöðu-
þingmönnum auk Stefáns, sem
hefur stundum stutt ríkisstjómina,
gætu lögin oltið á atkvæði Stefáns
að því tilskildu að bæði Geir og
Hjörleifur greiði atkvæði á móti.
Greiði Stefán einnig atkvæði á
móti lögunum falla þau á jöfnu:
21-21.
„Ég vil ekki láta það henda
mig - ef sú ólíklega staða skyldi
koma upp að málið ylti á mínu at-
kvæði - að ég hafi ekki gert mitt
til að láta kanna það til hlítar
hvort þama sé um stjómarskrár-
brot að ræða,“ sagði Stefán og
bætti við að málið í heild sinni
væri klúður og það hefði átt að
taka á því áður en það fór fyrir fé-
Auglvsingar
Hvíta húsið
kynnir SÞ
Auglýsingastofan
Hvíta húsið tekur þátt
í hönnun alþjóðlegra
kynninga Sameinuðu
þjóðanna
Auglýsingastofan Hvíta húsið í
Reykjavík hefur verið valin
sem ein af 90 auglýsingastofum
í 5 heimsálfum til að hanna
fyrstu alþjóðlegu auglýsinga-
herferðina til kynningar á
starfi Sameinuðu þjóðanna.
Heildarkostnaður við her-
ferðina er áætlaður því sem næst
þrír miljarðar íslenskra króna.
Markmiðið er að auka skiln-
ing almennings um allan heim á
starfí SÞ. Gert er ráð fyrir því að
herferðin geti hafist innan 6-9
mánaða.
Hvíta húsið er aðili að al-
þjóðasamtökum sjálfstæðra aug-
lýsingastofa, 3AI, og vinnurþetta
verkefni ásamt systurlýrirtækjum
sínum og embættismönnum SÞ.
ÓHT
Þióðviliinn
Aulýsinga-
verð hækkar
Frá og með 1. nóvember
verður gmnnverð auglýsinga kr.
725 fýrir hvem dálksentimetra.
Auglýsingaverð Þjóðviljans
hefur verið óbreytt ffá 1. ágúst
1989 þar til nú. Hækkun þessi
nemur 10%.
-Sáf
Bráðabirgðalögin
álits umboðsmanns
Nú stendur yfir [ Kringlunni svo kallað matarteiti. Þar taka sig saman kokkar, bakarar, kjötiðnaðarmenn og
framreiðslumenn og kynna matargerð og framreiðslu. Þessi „brúðhjón" gæddu sér á krásunum ( gær, eftirað
þau höfðu verið „gefin sarnan" af „presti“ sem öll þjóðin kannast eflaust við andlitið á. Mynd: Jim Smart.
Fiskiþing
Tækin
fyrir
framan
tólin
Skipstjórnarmenn á Austfjörð-
um óttast að geislavirkni frá
tölvum í brúm fiskiskipa geti
haft skaðleg áhrif á frjósemi
þeirra, þar sem þeir sitja gegnt
tækjunum í mittishæð og þvi
varnarlausir undir skothríð úr
öllum áttum.
A Fiskiþingi í gær var sam-
þykkt að vísa til stjómar Fiskifé-
lagsins tillögu ffá Fiskideildarfé-
lögum í Austfirðingafjórðungi
þess efnis að Fiskiþing skori á
heilbrigðisyfirvöld að láta fara
ffam rannsókn á geislavirkum og
heilsuspillandi áhrifúm, sem
kunna að stafa ífá tækjum þeim,
sem algeng eru í brúm fiskiskipa.
í greinargerð með tillögunni
kemur ffam að nýverið hafi komið
ffam í fféttum að læknar teldu sig
vera búna að sanna að mikil hætta
stafaði ffá tölvum og öðmm al-
gengum og sakleysislegum raf-
eindatækjum. Þeir sem vinna við
tölvur í lengri tíma verða fýrir
geislun, sem getur haft vemleg
skaðleg áhrif á heilsu manna og
orsakað ótímabæra ófijósemi hjá
karlmönnum.
Þetta vilja skipstjómarmenn á
Austfjörðum að verði tafarlaust
kannað. Á sama hátt, hvort völ sé
á hlífðarklæðum, sem ekki hái
skipstjómarmönnum við vinnu,
en veiti geislavemd. Þama er ekki
átt við geimferðabúninga, heldur
eins konar blýsvuntur sem hlífi
viðkvæmum líkamspörtum fýrir
skaðlegum geislum. .
Rækjukvóti
Loðnuskip seldu grimmt
Vil láta reyna á hvort um stjómarskrárbrot sé að ræða. Steingrímur
Hermannsson: Stjómin ekki í hættu
lagsdóm. Stefán sagðist ekki vilja
að þingmenn fæm blindandi að
greiða atkvæði um lög sem deilt
væri um hvort stæðust stjómar-
skrána, en prófmál gengur nú í
bæjarþingi vegna meintra stjóm-
arskrárbrota bráðabirgðalaganna,
sem einnig hafa verið kærð til Al-
þjóða vinnumálastofnunarinnar.
„Ég hef ekki nokkrar áhyggj-
ur af þessu,“ saagði Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra
aðspurður um þingsályktunartil-
löguna, en hann sagði í umræðum
um lögin á Alþingi að tryggur
meirihluti væri fýrir samþykkt
laganna. „Ekki vitum við annað,
þetta var allt lagt fýrir í sumar, og
ég held að það standi allt enn,“
sagði Steingrímur um hvort
meirihluti væri fýrir lögunum í
neðri deild. Þegar honum var bent
á það að Geir Gunnarsson styddi
ekki bráðbirgðalögin svaraði for-
sætisráðherra því til að það gæti
verið rétt en að Geir styddi meiri-
hluta þingflokks Alþýðubanda-
lagsins. Því væri stjómin ekki í
neinni hættu. Geir sagði hinsveg-
ar í samtali við Þjóðviljann að
hann myndi greiða atkvæði gegn
bráðbirgðalögunum.
-gpm
Tæplega helmingur kvótans gekk kaupum og sölum
Sé einungis miðað við sölu
rækjukvóta milli útgerðar-
aðila hafa 44% rækjukvótans
gengið kaupum og sölum á síð-
asta ári, en samsvarandi tala er
17,4% af þorskkvóta.
Að mati Félags rækju- og
hörpudiskframleiðenda er ástæða
þessarar miklu kvótasölu sú að of
lítill kvóti kom i hlut hvers skips
og því óhagkvæmt að gera út á
rækjuna. Því hefur félagið lagt
það til við Fiskiþing að það skori
á sjávarútvegsráðherra að úthluta
vemlega auknum úthafsrækju-
kvóta á næsta ári. Með því er talið
að draga megi úr kvótasölu.
Af einstökum skipaflokkum
sem fengu úthlutað rækjukvóta í
fyrra, seldu útgerðir loðnuskipa
sýnu mest, eða tæplega 60% af
sínum kvóta. Loðnuskip fengu þá
úthlutað alls 6.056 tonnum og af
því voru seld 3.628 tonn. Utgerð-
ir annarra veiðiskipa voru litlir
eftirbátar útgerða loðnuskipa í
sölu rækjukvóta, því þær seldu
alls 57,7% af sínum kvóta eða
6.429 tonn af 11.144 tonnum sem
þeim var úthlutað. Útgerðir sér-
veiðiskipa seldu sýnu minnst eða
26,5% af kvóta sínum. Þeim var
úthlutað í fýrra alls 4.756 tonnum
og af þeim voru seld 1.262 tonn.
—grh
Austurland
Einar Már gegn Hjörleifi
Einar Már Sigurðarson, bæjarfulltrúi í Neskaupstað, gagnrýnir Hjörleif
Guttormsson og telur þörf á endumýjun. Hjörleifur: Þessi staða endur-
speglar djúpstæðan ágreining í flokknum
Einar Már Sigurðarson hefur
ákveðið að freista þess að
velta Hjörlcifi Guttormssyni al-
þingismanni úr efsta sæti G-
listans á Austurlandi fyrir
næstu þingkosningar. Einar
Már gagnrýnir störf Hjörleifs
sem þingmanns, en Hjörleifur
segist ekki ætla að munnhöggv-
ast við væntanlega þátttakend-
ur í forvali á þessu stigi.
Einar Már er bæjarfulltrúi Al-
þýðubandalagsins í Neskaupstað
og formaður Samtaka sveitarfé-
laga á Austurlandi.
Hjörleifur Guttormsson al-
þingismaður hefur lýst yfir að
hann stefni að fýrsta sæti á listan-
um, en það hefúr ekki áður gerst
hjá flokknum í þessu kjördæmi að
menn beijist um ákveðin sæti á
listanum.
Einar Már gagnrýnir meðal
annars afstöðu Hjörleifs til stór-
iðju og segir skorta á tengsl hans
við stuðningsmenn flokksins í
kjördæminu. Hann segir kröfúr
um endumýjun vera háværar í
kjördæminu.
Hjörleifúr segir í samtali við
Þjóðviljann að hann vilji ekki
munnhöggvast við væntanlega
þáttakendur í fýrirhuguðu forvali.
- Mín störf em það vel þekkt að
menn gera sér grein fýrir í hveiju
þau eru fólgin. Ég geri mér grein
fýrir að ég hef haft aðrar áherslur
en hluti af forystu flokksins og
stuðningsmenn flokksins á Aust-
urlandi munu meta þessar ólíku,
málefnalegu áherslur.
Þessi staða sem komin er upp
á Austurlandi endurspeglar kann-
ski þann djúpstæða, málefnalega
ágreining sem ríkir um mikilsverð
málefni i flokknum, segir Hjör-
leifur við Þjóðviljann.
Skúli Alexandersson:
Hef ekkert
ákveðið um
framboð
Skúli Alexandersson alþingis-
maður hafði samband við Þjóðvilj-
ann í gær vegna fréttar í blaðinu,
þar sem segir að ffam hafi komið í
vikunni að hann ætlaði að gefa
kost á sér til ffamboðs á Vestur-
landi við næstu kosningar, en þetta
var hafl eftir Skúla í DV á mið-
vikudaginn. Hann segir:
„Það sem hafl er eftir mér i
Dagblaðinu í gær um að ég hafi
ákveðið að gefa kost á mér i ffam-
boð fýrir Alþýðubandalagið á
Vesturlandi er ekki rétt. Eg hef
ekkert ákveðið í þeim efnum enn.
Þegar ég hef tekið ákvörðun, hver
sem hún verður, mun ég fýrst gera
grein fýrir henni í kjördæmisráð-
inu á Vesturlandi, en ekki á siðum
dagblaðanna.“ háeé
-gg
Föstudagur 2. nóvember 1990 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 5