Þjóðviljinn - 02.11.1990, Qupperneq 23

Þjóðviljinn - 02.11.1990, Qupperneq 23
Fyrir og eftir syndafallið Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir: Skúlptúrar Brynhildar Þorgeirsdóttur /Inua, andleg veröld eskimóa í Alaska. Ekki veit ég hvort það er til- viljun að Kjarvalsstaðir sýna nú saman skúlptúra eftir Brynhildi Þorgeirsdóttur og listiðnað inúíta frá ströndum Beringshafsins í Al- aska. En sé ekki um tilviljun að ræða, þá er það vel til fúndið, því sýningamar bæta hvor aðra upp með ýmsu móti og gefa tilefni til ögrandi samanburðar. Sýningin frá Smithsoni- an-stofnuninni í Washington gef- ur okkur heillandi innsýn í menn- ingarheim þeirra samfélaga, sem bresk-ceylonski listfræðingurinn Ananda K. Coomaraswamy (1877-1947) kallaði hefðbundin, til aðgreiningar frá hinu sundur- virka samfélagi nútímans sem Coomaraswamy segir að hafi haf- ist með falli lénsskipulagsins og eftir dauða Leonardos da Vincis. Coomaraswamy var einhver snjallasti fræðimaður um mið- aldalist og menningarheim Aust- urlanda sem um getur, og átti á sínum tíma mikinn þátt í að opna austurlenskan menningarheim fyrir Vesturlandabúum, en hann starfaði lengst af sem yfirmaður austurlandadeildar Listasafnsins í Boston. í ritgerð ffá árinu 1939, sem hann kallaði „Hinn ffurn- stæði hugarheimur", gerir hann nokkra grein fýrir helstu einkenn- um hins hefðbundna samfélags, sem einnig á vel við samfélag inúíta. I fyrsta lagi, segir Coomaras- wamy, er það einkenni þessara samfélaga að hugmyndimar eiga sér samfélagslegt birtingarform gagnstætt því persónubundna, sem einkennir siðmenningu sam- tímans. 1 hinu hefðbundna samfé- lagi er persónuleg eign á hug- myndum óhugsandi og staðfest- ing sannleikans óijúfanlega bundin guðdómlegum vísdómi, sem er sameign samfélagsins. Myndlist og sagnalist þessa sam- félags fjallar ekki um einstak- lingsbundnar persónur heldur manngerðir sem hægt er að end- urgera í ólíku formi, á meðan eft- irlíking einstaklingsbundinnar persónu verður aldrei annað en eftirherma. Annað megineinkenni hins hefðbundna samfélags og hins „frumstæða hugarheims" er það sem hann kallar „dulræna innlif- un eða þátttöku“. Hlutur er ekki bara það sem hann sýnist, heldur líka það sem hann stendur fyrir. Hlutir og fyrirbæri (manngerð eða náttúruleg) eru ekki gerð að tilfallandi táknmyndum æðri veruleika eins og okkur er tamt að líta á, heldur eru fyrirbærin sjálft birtingarform þessa veruleika. „Öminn eða ljónið, svo dæmi séu tekin, eru ekki tákn eða ímynd sólarinnar, heldur em þau sólin með táknrænum hætti...á sama hátt og sérhvert hús er alheimur- inn og sérhvert fómaraltari er staðsett í miðju alheimsins...Upp- mni dýratótemsins er því ekki fjarstæðukenndur eins og mann- fræðingunum er tamt að halda, heldur má rekja hann til sólarinn- ar, frumfoður allra, í þeirri mynd sem hann birtist stofnanda ætt- bálksins í draumi eða sýn. Sama hugsun liggur á bak við altaris- gönguna: Frumfaðirinn fómar sér og afkomendur hans taka þátt í fóminni í gegnum hold hins heil- aga dýrs: „Þetta er minn líkami, takið og etið“. Og Coomaraswamy vitnar áfram í franska mannfræðinginn Lévy-Bmhl, sem segir að slík tákn séu oft ekki gerð í þeim meg- intilgangi að gera viðfang sitt sjá- anlegt, heldur til þess að gera inn- lifunina eða þátttökuna mögu- lega. Táknin em því í bókstaflegri merkingu staðgenglar ósýnilegra vera eða fyrirbæra, og það er því ekkert skilyrði að þau séu bein sýnileg eftirlíking á sama hátt og venjuleg portrettmynd, svo dæmi sé tekið. Og síðan heldur Coomo- roswamy áfram: „Tilgangur hinn- ar frumstæðu listar skýrir hið abstrakta eðli hennar, sem á ekk- ert skylt við fagurfræðileg eða skreytileg markmið „listamanns" nútímans, sem einungis skilur hina fomu myndlist sem merk- ingarlaus „listræn form“. Við, hinir siðmenntuðu menn, höfum glatað þeirri Paradís sem felst í frummynd sálarinnar (Urbildse- ele). Við lifúm ekki lengur meðal þeirra mynda sem við skópum hið innra með okkur: við erum orðnir einfaldir áhorfendur sem skoða fyrirbærin utanfrá." Af þessu má vera ljóst að Coomaraswamy gaf ekki mikið fyrir myndlist eða siðmenningu samtímans. Enda vitnaði hann gjaman í John Lodge: „Frá stein- öld til dagsins í dag, hvílík hnign- un!“ Og syndafallið varð, segir Coomaraswamy, þegar maðurinn hætti að geta lifað líílnu í allri sinni stærð og heild, þegar hann hætti að vera frumspekileg vera, en fór að leggja stund á heimspeki og vísindi og „listir" í staðinn. Samkvæmt túlkun Coomaras- wamy höfúm við sem skoðum inúítasýninguna á Kjarvalsstöð- um takmarkaða möguleika til að skilja það sem þar er að sjá. Okk- ur skortir þá mikilvægu forsendu sem er hin metafysíska eða frum- spekilega innlifun og þátttaka. En þá er rétt að spyija: hvem- ig hefðu inúítamir skilið sýningu Brynhildar Þorgeirsdóttur? Coomaraswamy hefði sjálf- sagt sagt okkur að þeir hefðu ekki skilið hana með neinu móti, því þar væri í rauninni ekkert að skilja. Því myndlist nútímans hefði í raun losað sig við allan til- gang og þar með skilning og eftir stæði tilfínningasemin nakin og ómenguð: hreinræktuð estetík. Því gagnvart hinum metafýsíska manni er listaverkið óskiljanlegt nema í tengslum við áþreifanleg- an tilgang. Annað hvort er það helgimynd eða verkfæri/nytja- hlutur. Og listrænt gildi hlutarins fer eftir því hversu vel helgi- myndin eða nytjahluturinn þjónar sínum tilgangi. Vel gerður hlutur og sannleik- anum samkvæmur er hlutur sem gegnir sínu hlutverki fúllkomlega og er í formi sínu eða omamenti samofmn trúarlegum hugmynda- heimi samfélagsins. Okkar samfélag á sér ekki slika sameiginlega trúarvitund. Jafnvel lútherska kirkjan hefur af- neitað því að oblátan sé í raun og vem hold Krists, eins og kaþól- ikkamir þó segja. Hún er þara frauð, segja prestamir, en við skulum í þykjustunni reyna að ímynda okkur að hún sé líkami Krists. Sú innsýn sem Coomaras- wamy veitir í list fomaldar og miðalda er vissulega opinbemn fyrir þá sem kynna sér hana, en hafði hann rétt fyrir sér um þann glötunarveg sem mannkynið Gríma hins illa anda „tunghak“, sem andamaðurinn einn gat séð. Augun tengjast fullum og vaxandi mána. Háriö sem stóð út úr munnopinu er dottið af. gekk inn á eftir síðara syndafall- ið? Vissulega er gagnrýni hans á vélmenningu samtímans sláandi, þar sem hið fagra og hið nytsama hefur verið aðskilið og möguleik- ar mannsins til alhliða þroska og altækrar upplifunar takmarkaðir, en fordæming hans á myndlist samtímans þarf ekki að standast fyrir því. 1 þessu sambandi er fróðlegt að heyra hvað Theodor W. Adomo segir: „Sú skoðun sem vesturlanda- menn og stalínistar hafa blásið út í sameiningu, að nútímalist sé óskiljanleg, er rétt ffá sjónarmiði reynsluhyggjunnar. En hún er líka röng, því hún meðhöndlar skynj- unina sem óbreytanlega stærð og horfir framhjá þeim áhrifum sem óskiljanleg verk geta haft á vit- undarlífið. I hinum skipulagða heimi nútímans er eina mögulega aðferðin til þess að tileinka sér listina sú að leita þar sem hið ósegjanlega er sagt og þar sem ok hinnar firrtu eða hlutgerðu vit- undar er þar með rofið.“ (Aesthet- ic Theory, bls. 280) Svo virðist sem Adomo telji að sannleiksgildi listaverksins verði sannreynt í þeim ffelsandi krafti sem það kann að miðla. Og þessi frelsandi kraftur tengist þeim galdri sem á sér stað þegar áður ósögð hugmynd eða tilfinn- ing - hið ósegjanlega - tekur á sig efnislegt form. Þegar inúítinn efnisgerir anda selsins er hann ekki að segja nýjan sannleika, því fyrir honum er sannleikurinn einn og óbreytanlegur og óháður tím- anum. í nútímanum er listin háð sögunni og samfélaginu, en hún leitast jafnramt við að frelsa okk- ur undan oki sögunnar og samfé- lagsins. Sannleiksgildi hennar er afstætt út frá sjónarhóli sögunnar en verður hins vegar sannreynt í þeirri einstaklingsbundnu upplif- un sem víkkar sjálfsvitund okkar. Þess vegna hafa umboðsmenn valdsins jafnan litið listina hom- auga. Sannleikur hennar hefúr með frelsun mannsins að gera. Hvemig tengjast þessar vangaveltur svo skúlptúrverkum Brynhildar Þorgeirsdóttur? Ekki nema óbeint. Brynhildur dregur upp úr hugarfylgsnum sin- um kynjaverur og form og um- Brynhildur Þorgeirsdóttir: „Bæjar- fjall", 1990. 120x120x130 sm. Steinsteypa, gler og sandur. breytir þeim í sement og gler. Sumar myndimar eru mjúkar og ávalar eins og mótaðar af veðmn höfúðskepnanna. Aðrar em loðn- ar eða göddóttar, ógnvekjandi eða lúmskt spaugilegar. Þegar best tekst til em þær fúllkomlega ómennskar og eins og til orðnar af sjálfum sér, þar sem glerið virðist hafa vaxið sjálft út úr sendinni áferð steinsins. Eins og til dæmis í myndinni Bæjarfjall. Auðvitað er þetta blekking. Fjallið er holt að innan, sandinum er stráð i se- mentið og glerið er álímt. En samt... Blekkingin, sjónhverfmg- in er einfaldlega hluti af galdrin- um. Galdrinum sem er í því fólg- inn að binda saman anda og efni. Samkvæmt goðsögninni skapaði Guð heiminn úr orðinu einu. Hann þurfti ekki að óhreinka hendur sínar i glímunni við efnið. Hann blés lífi í sköpun- arverkið og gaf því merkingu. Fyrir inúítanum er andagríman ekki blekking. Hún er andinn sjálfur manaður fram í efni trés- ins. Hún veitti manninum aukið vald yfir náttúruöflunum. Bæjar- fjallið hennar Brynhildar veitir ekki slíkt vald. En ef við getum upplifað það í gegnum galdurinn, að við sjálf séum slíkt fjall, þótt ekki sé nema stundarkom, þá er- um við reynslunni ríkari. Reynslu, sem gæti komið að gagni, reynslu sem gæfi okkur nýjan heim að ferðast í. Hvemig væri að prófa? Ólafur Gíslason Gljáin Ný ljóðabók eftir Baldur Oskarsson Ut er komin hjá bókaforlaginu Hringskuggar ný Ijóðabók eftir Baldur Óskarsson. Bókin, sem er 99 blaðsíður, ber nafnið Gljáin eft- ir einu ljóðanna, en þau em sam- tals 75. Þetta er áttunda ljóðabók Baldurs frá því að Svefneyjar komu út árið 1966. Ljóð Baldurs em lágmælt en hnitmiðuð og einkennast af tæm myndmáli og næmri tilfmningu fyrir augnabliki líðandi stundar. Ljóðið Hvíldardagur er gott dæmi þess: __ Sumar stundir liða ekki Þær hvíla eins og litafletir hlið við hlið Nú vef ég að mér einum svona degi Baldur Óskarsson / Útkoma þessarar bókar ætti að vera ljóðaunnendum fagnaðarefni. -ólg. Föstudagur 2. nóvember 1990 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 23

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.