Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1995, Blaðsíða 12
12
MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 1995
Spurningin
Hvaða bók lastu síðast?
Sigurdór Sigurðsson bílstjóri:
Bankabókina mína. Ég hef oft lesið
eitthvað skemmtilegra.
Karólína Aðalsteinsdóttir hús-
móðir: Ég les voða lítið. Helst les ég
barnabækur fyrir krakkana.
Haraldur Clausen nemi: Bók
Kristjáns Péturssonar tollara.
Björn Rafnsson nemi: Enga.
Stefán Jóhannsson, nemi í MR:
Kjölfar kríunnar. Hún er nokkuð
góð.
Þóra Jensdóttir, nemi í MR: Ég er
að lesa Grettissögu.
Lesendur_____________
Sorp og sori í
Ríkissjónvarpinu
Innanhúss sviðsetning fyrir sjónvarpsþátt hjá Sjónvarpinu.
Einar Gunnarsson skrifar:
íslensk list fjarlægist nú
mjög þann kúltúr sem viðtek-
inn er um allan hinn sið-
menntaða heim. Hér er t.d.
vart færð upp sú leiksýning,
jáfnt i dreifbýli sem þéttbýli,
að ekki fylgi ein eða fleiri
rúmsenur eða uppáferðir eða
þá að leikarar afklæðist og
stripli um sviðið berrassaðir
góða stund. Áhorfendur,
margir hverjir, falla í stafi en
láta kyrrt liggja því þetta tek-
ur yfirleitt fljótt af. En
ástæðulaust með öllu til sýn-
ingar nema þá til að sefa öf-
ugugga og sálarkreppukindur
sem ávallt eru einhverjar í
áhorfendahópnum.
Skólarnir eru smátt og
smátt að upphefja klámið til
vegs og virðingar á skemmti-
kvöldum sínum. Um eitt slíkt
skemmtikvöld las ég í bréfí í
Mbl. frá kennara, sem sótti slíka
sýningu ásamt nemendum sínum,
þar sem óprúttnir „klámkallar” íétu
gamminn geisa. íslensku ljósvakam-
iðlarnir hafa líka slegist í hópinn og
hefur Ríkisútvarpið, Sjónvarp lengi
verið þar fre:nst í flokki.
Segja má að Ríkissjónvarpið sé
ein allsherjar útungunarvél fyrir
klám, ofbeldi og saurlifnað í
myndefni þvi sem það býður kúguð-
um áskrifendum sínum. Dagsljós-
þættirnir eru stærsti.vettvangurinn
fyrir svoria efni. í síðustu viku
bættu þeir enn um betur og buðu
fram „unglingaþátt" þar sem sjálfs-
fróun var uppistaðan. Og sl. mið-
vikudagskvöld var áhorfendum boð-
inn mannaskítur til sýnis. — Allt í
gamni auðvitað (að mati RÚV)! En
er þetta orðið helsta gamanmálið í
augum forráðamanna Ríkisútvarps-
ins? í húsi þar sem ég var staddur
kom þessi breytni Sjónvarpsins til
umræðu. Voru menn á einu máli
um að þetta væri slík vanvirðing
gagnvart áhorfendum að ékki yrði
við unað. Menn spurðu hver annan:
Hver er ábyrgur fyrir þessum uppá-
komum? Hver býður þetta til sýn-
ingar? Flestir töldu að útvarpsstjóri
sjálfur væri ábyrgur og honum bæri
að stöðva leikaraskap hinna óprút-
tnu klámgjafa. Útvarpsráð væri
spegilmynd Alþingis og því væri
ekki við neinu að búast af þess
hálfu. En manni er í forundran að-
eins ein spurning efst í huga: Er út-
varpsstjórinn einskis megnugur í
allri menningarviðleitni sinni fyrir
hönd Ríkisútvarpsins?
Dýrir Bessastaðir
Kristján Jónsson skrifar:
Á vegum forsætisráðuneytis
stendur nú yfir endurnýjun Bessa-
staðaseturs. Líklega er almenn sam-
staða um að húsakosti þar sé haldið
við og hann endurnýjaður með
sóma. Var og ákveðið fyrir fáum
árum að hefjast handa og láta u.þ.b.
kvartmilljón renna til verksins.
Nú bregður svo við að varla er
heill milljarður sagður duga til að
rekinn verði endahnútur á þessa
umfangslitlu ríkisframkvæmd sem
felur í sér endurnýjun á gama setr-
inu og byggingu einbýlishúss af ein-
faldri og venjulegri gerð.
Eitt þúsund milljónir króna er
upphæð sem venjulegu fólki reynist
erfitt að skilja án samhengis. Þetta
er t.d. andvirði 150 fullbúinna fjöl-
skylduíbúða. Upphæðin dygði 5.000
afrískum börnum til grunnskóla-
náms í 4 ár. Upphæðin er m.ö.o.
mjög há og í engu samræmi við um-
fang Bessastaðaverksins.
Ríkisendurskoðun hefur ítrekað
gert athugasemdir en þær fallið í
grýtta jörð hjá forsætisráðuneyti og
Bessastaðanefnd þess — þar er
stefnan óbreytt. Fjárausturinn hefur
lítil sem engin pólitísk viðbrögð
vakið. Það eitt er mjög undarlegt!
Stór hluti íslendinga ber nú kvíð-
boga því hart er sótt að velferð al-
mennings, harðast þó að börnum,
sjúkum og öldruðum. Landflótti
hundraða fjölskyldna felur í sér
merki um almenna vantrú á að hér
verði lífskjörin bætt. Fyrrnefnd ráð-
stöfun á heilum milljarði króna'er
ögrun við hugsandi íslendinga sem
berjast í bökkum vegna fátæktar.
Fleiri álíka vísbendingar hafa raun-
ar komið fram að undanförnu.
Áhyggjuleysi stjórnmálamanna af
þessu tilefni er því vísbending um
að hugarheimur þeirra er víðs fjarri
hugarheimi almennings.
Þjónustuíbúðir fyrir aldraða:
Offramboð og lítt seljanlegar
Guðný skrifar:
Á aðalfundi Landssambands aldr-
aðra, sem haldinn var 7.—8. júní sl.,
kom fram að offramboð væri nú orð-
ið á íbúöum fyrir þá sem geta keypt
á almennum markaði og erfitt að
selja.
Þjónustuíbúðir eru nú auglýstar
til sölu í svo til öllum sambýlishús-
um sem byggð hafa verið á vegum
félaga aldraðra og einstaklinga.
Margir hafa lent í þrengingum
vegna þess hve langan tíma það tek-
ur að losna við þessar íbúðir og hafa
orðið að greiða mikið í auglýsinga-
kostnað og þá ekki síð-
ur vegna þeirra kvaða
sem eru á sölu íbúða á
vegum Samtaka aldr-
aðra.
Og þrátt fyrir offram-
boð á nú að byggja
meira! — Það hefur sem
sé kvisast að til standi
að byggja eitthvað um
70 þjónustuíbúðir í við-
bót við þær sem fyrir
eru við Skúlagötu og nú
á lóð sem Gunnar og
Gylfi keyptu á sínum
tíma af Sláturfélaginu.
Eldri hjón, sem festu
kaup á dýrri íbúð í einu
af þessum nýju sambýl-
ishúsum, gátu ekki selt
gamalt hús sem þau
áttu og sitja nú uppi
með tvær eignir og
vaxtakostnað upp á
tvær milljónir króna
vegna nýju íbúðarinn-
ar. — Er þetta nú ekki
komið út í öfgar?
Verður enn aukning á þjónustuhúsnæði fyrir aldraða?
Verðbólgan
háð
tíðarfarinu?
Arnar skrifar:
Þótt ný hættumerki séu á lofti
hér á landi í efnahagslífinu meö
skyndilega vaxandi verðbólgu,
upp í tæp 6% á ársgrundvelli,
segja þeir í Seðlabankanum að
ástæðulaust sé að óttast, verð-
bólgan muni lækka aftur. Guð
láti gott á vita. En ástæðunni,
sem sögð er fyrir aukinni verð-
bólgu, er erfitt að kyngja, a.m.k
fyrir hinn almenna borgara. Og
ástæðan er sögð verðhækkun á
bfium og grænmeti, gengissveifl-
ur og óstöðugt tíðarfar! Maður
hefði nú haldið að grænmetis-
spretta skipti litlu máli um verð-
bólguþróun, hvað þá tíöarfarið.
En svona er íslensk hagspeki.
Þarf nokktmn að furöa, yfirleitt?
3% dúsa
upp í ASÍ
Kjartan Guðmundsson hringdi:
Ráðamenn þjóðarinnar hafa
nú oft reitt af sér brandara gegn-
um tíðina en ef hugmynd forsæt-
isráðherra um að ráðherrar og
þingmenn um að gleyma 3%
launahækkun um áramót sér til
handa er það allra besti brandar-
inn í þessari hrinu um kjaramál-
in. Forseti ASÍ segir að vísu að
þessi hugmynd hafi ekkert verið
rædd við sig eða á fundi hans og
tveggja ráðherra í fyrri viku. En
hér er augljóslega veriö að gera
tilraun til að rétta almennum
launþegum í ASÍ 3% dúsu sem á
að duga til að sljákki í landslýð.
Beint á at-
vinnuleysis-
bætur?
Alfreð hringdi:
Það má vera undarlegt ef stór
fyrirtæki hér á landi tíðka það
að vísa mönnum sem verða að
hætta störfum fyrir lögskilinn
lögaldur, þ.e. 67 ára, beint á at-
vinnuleysisbætur, sem þeir svó
fá greiddar, þótt þeir fái svo
greitt úr sínum lífeyrissjóði.
Þetta finnst mér hreint siðleysi
ef rétt reynist. Þetta ættu nú hin-
ir árvökru fjölmiðlar að kanna
nánar.
Skorið af bót-
um til öryrkja
Pétur Andrésson hringdi:
Okkur öryrkjum er ekki rótt
vegna þess hve mikið er búið að
klippa af bótagreiðslunum. Nú
hefur verið sneitt af bótum til
iyfjakaupa. Einnig hefur bensín-
styrkurinn verið skattlagður og
húsaleigubætur lika. Ég skil satt
að segja ekki hvers vegna lands-
menn taka ekki fastar á með
okkur sem erum í þessum hópi
bótaþega. Það þarf sannarlega að
rísa upp gegn þessu mikla rang-
læti sem okkur öryrkjum er
sýnt.
Góður Boston
kjúklingur
Sveinn Þórhallsson skrifar:
Konan mín hafði séð í skoð-
anakönnun DV að veitingahúsið
Boston Kjúklingur væri með
lægs'ta verðið á kjúklingum. Við
fórum því, fjögur saman á stað-
inn til að sannreyna verðið og
gæðin. Við fengum þama heilan
kjúkling niðursneiddan með
risaskammti af frönskum kart-
öílum, hrásalati og sósu. Þetta
var einstaklega vel útilátinn
skammtur og bragðgóður matur.
Fyrir þetta greiddum við aðeins
1399 kr. samtals. Ég tel að þetta
sé með því ódýrasta sem gerist
hvað kjúklinga snertir í veitinga-
húsum hérlendis. Þarna hafa for-
svarsmenn Boston kjúklinga
■sannarlega tekið frumkvæði til
lækkunar á skyndibitamat.