Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1995, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1995, Síða 8
8 MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 1995 Uflönd Skarlimmnaf nauðgaranum Lögreglan í Bangladesh skýrði frá þvi í gær aö getnaöarlimur 35 ára gamals manns hefðl verið skorinn af þegar hann reyndi að nauðga eiginkonu nágrannans. Fómariambið, hin þrítuga Ju- lekha, færði ytirvöldum „sönn- unargagnið" og sagði aö Ayub Ali hefði læöst inn í kofann sinn á meðan bóndi hennar var að heiman. „Hann var búinn að reyna að ná mér í nokkurn tíma en án árangurs. Og í dag varð hann örvæntingarfullur," sagði Julekha lögreglunni. „Ég dró fram hníf undan rúminu og skar bara af honum liminn." Julekha sagðist fyrst hafa ætlað aö gefa öndunum sínum liminn en síðan snúist hugur. Hjúkrunarkona myrti ungbarn Hjúkrunarkona í Jóhannesar- borg hefur verið handtekin fyrir morð á átta daga gömlu barni. Konan, sem hafði áður aðstoðað við fæðinguna, framdi verknað- inn á gjörgæsludeild spítalans og notað til þess skurðhníf. Reuter Afmæli Sameinuðu þjóðanna: Fidel Castro sendi stórveldunum tóninn Fjöldi þjóðarleiðtoga kom saman í Bandaríkjunum um helgina til að fagna fimmtíu ára afmæli Samein- uðu þjóðanna. Margir þeirra tóku til máls en mesta klappið fékk Fidel Castro, forseti Kúbu, sem hélt sína fyrstu ræðu hjá Sameinuðu þjóðun- um í meira en hálfan annan áratug. Castro sendi stórveldunum tóninn og sagði þau m.a. vera orðin skálka- skjól nýlendusinna. Forsetinn vand- aði Bandaríkjamönnum heldur ekki kveðjurnar án þess þó að nefna land- ið á nafn. Hjá viðstöddum fór hins vegar ekkert á milli mála við hvérja var átt þegar Castro fjallað um við- skiptabannið á Kúbu. Þá vakti það ekki síður athygli aö forsetinn var klæddur dökkum jakkafótum í stað hins hefðbundna hermannabúnings sem hann jafnan sést í. Eftir ræðuhöldin átt Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna, ítarlegar við- Fidel Castro, sém hér er orðinn þreyttur á ræðuhöldunum, geymdi hermannabúninginn heima á Kúbu en sparaði þó ekki stóru orðin á fundi S.Þ. um helgina. Simamynd Reuter ræður við nokkra þjóðarleiðtoga en Castro var ekki í þeim hópi. Að sögn eins talsmanns Bandaríkjamanna „týndust" nokkur boðskort á þessa fundi. Sami talsmaður bætti því við að „hundurinn" hefði „étið“ boðs- kortin. Óánægjuraddir heyrðust þó hjá fleirum en Kúbuforseta. Þannig gagnrýndu bæði Japanar og Ný- Sjálendingar Frakka harðlega fyrir kjarnorkutilraunir sínar og sumar þjóðir voru átaldar fyrir að greiða ekki sinn hlut í rekstri Sameinuðu þjóðanna. Málefni Bosníu komu einnig til tals en Boris Jeltsín sagði Rússa aðeins leggja til friðargæslusveitir ef þær heyrðu undir tilskipanir Sameinuðu þjóðanna. Bill Clinton hefur aftur á móti lagt til að sveitunum verði stjórnað af NATO. Reuter RodneyKing kærðurfyrir líkamsárás Rodney King, sem komst í heimsfréttirnar þegar fjórar, hvítar löggur lúskruöu á honum fyrir nokkrum árum, hefur nú sjálfur verið kærður fyrir lík- amsárás. Málavextir eru þeir, að sögn vitna, að King og Crystal, eigin- kona hans, voru að rífast í Los Angeles í júlí. Hann sat í bílnum, en hún var á gangstéttinni. Þegar Crystal reyndi að teygja sig inn í bilinn til að ná í veskið sitt ók King af stað. Hún dróst meö bíln- um stutta leið en þá ýtti hann henni frá. King segist saklaus af þessu. Læstubörnin inniogfóruífrí Þýskir fósturforeldrar eru nú í haldi lögreglunnar þar í landi eft- ir að hafa læst inni börnin sín þrj ú, stúlkur á aldrinum 8-15 ára. Stúlkunum var ætlaö að lifa á brauði, marmelaði og ávöxtum þar til foreldramir kæmu heim enþauvoruífiii. Reuter ÍSLENSKI LÍFEYRIS SJÓÐURINN DÓMUR ER FALLINN ÞÉRÍHAG - lífeyrissjóðsframlag sjálfstæðra atvinnurekanda er nú frádráttarbært! Héraðsdómur Reykjavíkur hefiir hnekkt þeirri lagatúlkun skattayfirvalda að atvinnurekstrarframlag einyrkja til lífeyrissjóðs falli ekki undir rekstrarkostnað. Það misrétti sem ríkt hefur milli rekstrarforma varðandi lífeyrissjóðsmál er því væntanlega úr sögunni. Hafir þú ekki greitt í lífeyrissjóð til þessa - þá er rétti tíminn núna! Með því að sýna fyrirhyggju í lífeyrismálum tryggir þú þér tekjur á eftir launaárunum. SUÐURLANDSBRAUT 24, 1 y LANDSBREF HF. Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi íslands. 108 REYKJAVIK, SIMI 588 9200, BREFASIMI 588 8598 | I 'í -I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.