Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1995, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1995, Page 14
14 erlend bóksjá j Metsölukiljur Bandaríkin Skáldsögur: 1. Tom Clancy & Steve Pieczenlk: Mlrror Image. 2. Mary Hlgglns Clark: The Lottery Wlnner. 3. Dean Koontz: Dark Rlvers of the Heart. 4. Sldney Sheldon: Nothlng Lasts forever. 5. Danlelle Steel: Wings. 6. Catharlne Coulter: The Duke. 7. Nelson DeMille: Spencerville. 8. Sharyn McCrumb: She Walks These Hllls. 9. Carol Shlelds: The Stone Diaries. 10. Patricia Cornwell: The Body Farm. 11. David Guterson: Snow Falllng on Cedars. 12. Stephen King: Insomnla. 13. Dick Francis: Wlld Horses. 14. Whitney Otto: How to Make an Amerlcan Quilt. 15. W.E.B. Griffin: The Murderers. Rit almenns eölis: 1. Paul Reiser: Copplehood. 2. Tlm Allen: Don't Stand to Close To a Naked Man. 3. Mary Pipher: Revivlng Ophelia. 4. Rlchard Preston: The Hot Zone. 5. Delany, Delany & Hearth: Havlng Our Say. 6. H. Johnson & N. Rommelmann: The Real Real World. . 7. M. Scott Peck: The Road Less Travelled. 8. R. McEntire & T. Carter: Reba: My Story. 9. Thomas Moore: Care of the Soul. 10. Clarissa Plnkola Estés: Women Who Run wlth the Wolves. 11. Dorls Kearns Goodwln: No Ordinary Tlme. 12. B.J. Eadie & C. Taylor: Embraced by the Llght. ■ 13. LouAnne Johnson: Dangerous Minds. 14. J. Lovell & J. Kluger: Apollo 13. 15. Laurie Garrett: The Comlng Plague. (Byggt á New York Times Book Revlew) vísindi_______________________ Grísafrumur í mannsaugu Frumur úr augum grísa koma kannski til með að bjarga sjón mikils fjölda .gamals fólks sem . þjáist af svokallaðri augnkölk- . un. Sjúkdómur þessi er algeng- asta ástæða skertrar sjónar eða ■ algerrar blindu hjá göiplu fólki. Vísindamenn við riídssjúkra- húsið í Kaupmannahöfn eru að fara í gang með rannsóknir þar : sem frumur úr grísaaugum verða ræktaðar og settar í stað kalkaðra frumna í augum gam- f als fólks. Rannsóknirnar kreijast sam- j vinnu vísindamanna á ýmsum : sviðum þar sem m.a. tryggja þarf að ræktun frumnanna heppnast og þróa verður ný skurðtæki. Streita hægir ábata Sálræn streita kemur í veg • fyrir að sár grói eðlilega. Þetta er niðurstaða bandarískra vís- | indamanna eftir að þeir rann- sökuðu 13 konur sem önnuðust < ættingja með heilabilun. Vísindamennimir gerðu smá- ; skeinu á handlegg kvennanna og 13 kvenna í samanburðarhópi. Sár síðarnefndu kvennanna greru á 39 dögum en hinna á 49 dögum. Blóðsýni leiddu í ljós að konumar sem önnuðust ættingj- ana framleiddu minna af efni sem er til aðstoðar varnarkerfi : líkamans. Umsjón Guðlaupr Bergmundsson Booker fyrir sögu úr fyrra heimsstríðinu Þótt flestir hafi talið næsta víst að Salman Rushdie, höfundurinn dauðadæmdi, fengi hin eftirsóttu bresku Booker-verðlaun að þessu sinni fyrir nýju skáldsöguna sína, The Moor’s Last Sigh eða Síðasta andvarp Márans, var dómnefndin sjálf á öðru máli. Eftir harðar umræður í nefndinni var niðurstaðan sú að veita þessi kunnustu bókmenntaverðlauna Bretlands ensku skáldkonunni Pat Barker fyrir skáldsöguna The Ghost Road sem kalla mætti á islensku Draugaleiðina. Verðlaunaféð nemur 20 þúsund sterlingspundum en það samsvarar ríflega tveimur milljón- um íslenskra króna. Úr kennslu í skáldsagnagerð Pat Barker er 52 ára að aldri ög kemur frá norðurhéruðum Eng- lands. Hún stundaði nám í alþjóða- sagnfræði við London School of Ec- onomics áður en hún sneri blaðinu við og gerðist kennari. Lengi framan af gekk henni illa að koma skáldverkum sínum á framfæri. Sjálf hefur hún orðað það svo að hún hafi um árabil þurft að nærast á höfnunarbréfum frá hin- um ýmsu bókaforlögum. Enda hafði hún náð 39 ára aldri þegar fyrsta saga hennar kom loksins út. Sú heit- ir Union Street og sá dagsins ljós árið 1982. Sú saga var reyndar siðar kvikmynduð undir nafninu Stanley and Iris, og fóru kunnir leikarar, Jane Fonda og Robert de Niro, með aðalhlutverkin. Sjálf var hún hins Pat Barker með verðlaunabók sína, The Ghost Road. Símamynd Reuter Umsjón Elías Snæland Jónsson vegar afar ósátt við niðurstöðuna á hvita tjaldinu. Röð skáldsagna um fyrra heimsstríðið Pat Barker hefur hlotið mest lof fyrir röð skáldsagna um fyrra heimsstríðið og ömurleg áhrif þess á þá ungu menn sem lentu í skot- gröfunum. Þessar sögur eru sagðar vel heppnuð blanda staðreynda og skáldskapar. Verðlaunaskáidsagan hennar er einmitt sú þriðja í þessari ritröð. Þar segir frá enskum liðsforingja úr alþýðustétt sem er sendur á vígvöll- inn á meginlandi Evrópu þegar skotgrafahernaðurinn er í algleym- ingi. Þar kynnist hann öðrum ung- um manni, enska ljóðskáldinu Wilfred Owen sem lét lífið rétt fyrir lok styrjaldarinnar en skildi eftir sig áhrifamikil ljóð um eymd stríðs- ins sem síðar gerðu hann frægan. Hlustaði á sögur afa síns Barker kveðst hafa fyllst áhuga á þessu tímabili í sögu þjóðar sinnar vegna frásagna afa sína af lífinu í skotgröfunum. Hún líkir slátrun ungra manna í orustunni við Somme í Frakklandi við útrýmingu gyðinga á tímum nasista að því leyti að þessir atburðir lýsi hluta mann- legs eölis sem hvorki sé hægt að skilja né gleyma. Þessir atburðir megi aldrei verða fortíð í hugum fólks. Barker er fyrst kvenna til að hljóta Booker-verðlaunin síðan árið 1990. Telja má víst að þessi heiður hafi mikil áhrif á sölu bóka hennar, ekki síst verðlaupaskáldsögunnar. Dómnefndin kynnti sér alls 141 skáldsögu að þessu sinni. Við sjálfa lokaákvörðunina komu til greina, auk þeirra tveggja bóka sem þegar hafa verið nefndar, skáldsögur eftir breska rithöfundinn Barry Unsw- orth, Justin Cartwright frá Suður- Afríku og Tim Winton frá Ástralíu. Metsölu kilju r Bretland. Skáldsögur: 1. Jane Austen: Prlde and Prejudlce. 2. Ruth Rendell: Slmlsola. 3. Davld Guterson: Snow Falllng on Cedars. 4. Colln Dexter: The Daughters of Cain. 5. Chaterine Cookson: The Tlnker’s Glrl. 6. John Grisham: The Chamber. 7. Tom Clancy: Debt of Honour. 8. Ellls Peters: Brother Cadfael’s Penance. 9. Maeve Blnchy: The Glass Lake. 10. Josephine Cox: A Llttle Badness. - Rit almenns eölis: 1. Alan Bennett: Writlng Home. 2. lan Botham: Botham: My Autoblography. 3. Nelson Mandela: Long Walk to Freedom. 4. J. Lowell & J. Kluger: Apollo 13. 5. Peter de la Bllliére: ÍLooklng for Trouble. 6. Andy McNab: Bravo Two Zero. 7. Jung Chang: Wild Swans. 8. Blll Watterson: Calvln & Hobbes lOth Anniversary Book 9. S. Britwistle & S. Conklin: The Making of Prlde and Prejudice. 10. S. Nye & P. Dornan: The A-Z of Bahavlng Badly. (Byggt á The Sunday Tlmee) Danmörk 1. Michael Crichton: Congo. 2. Jung Chang: Vilde svaner. 3. Peter Hoeg: De máske egnede.. 4. Michael Larsen: Uden sikker viden. 5. Anne Tyler: Sankt muligvis. 6. Margaret Forster: Kampen om Christabel. 7. Jostein Gaarder: Sofles verden. (Byggt á Polltlken Sondag) Kaupendur meðalstórra bila geta látið sig hlakka til: Gervihnattaleiðsaga fyrir aldamót Þess verður ekki langt að biða að flestir meöalstórir bílar verði fáan- legir með gervihnattarleiðsögukerfi gegn vægu aukagjaldi. Leiðsögu- kerfi þetta reiknar út hagstæðustu leiðina að áfangastað og sendir öku- manni ýmsar upplýsingar, svo sem um ástand vega og veðurhorfur. Fyrst verður ökumaðurinn þó að slá áfangastað sinn inn í sérstaka tölvu í bílnum. Reiknað er með að þetta muni gerast fyrir aldamót. Tíu árum síðar mun tölvan í bíln- um taka að sér mestan hluta akst- ursins utan þéttbýlis. Ökumenn fara þá beinustu leið út á næsta þjóðveg, tengjast umferðarleiðsögukeifinu og láta skila sér á áfangastað. Ratsjá mun sjá til þess að hæflleg fjarlægð verði milli bíla og hún sér til þess að beita bremsunum um leið og hún finnur að slys er yfirvofandi. Hugsanlega munu raflínur undir slitlaginu gera ökumanni kleift að slökkva á bensínvélinni og nýta raf- orkuna. En þetta er bara framtíðar- músík. Þýsku bílaframleiðendurnir BMW og Mercedes Benz eru þegar komnir með gervihnattarleiðsögu- tæki í lúxusbílana sína en þau eru svo dýr, kosta tæpar 300 þúsund krónur, að þau eru ekki á færi þorra almennings. Ford verksmiðjurnar eru byrjaðar að prófa svona leið- sögutæki og verða þau hugsanlega boðin sem aukahlutur i bílum eftir tvö til þrjú ár. Sérfræðingar segja að verðið verði að lækka um meira en helm- ing til að almenningur kaupi leið- sögukerfið, auk þess sem kerfið verður að geta veitt upplýsingar um næstu bensínstöðvar, gistihús og ýmislegt fleira. Þá verður það að geta komið boðum til lögreglu ef eitthvað skyldi bjáta á. Stafrænt landakort er nú aðeins til af Þýskalandi en slík kort af Eng- landi og Frakklandi eru væntanleg á næsta ári. Margir hafa af því áhyggjur að með kerfi þessu geti stjórnvöld fylgst nákvæmlega með hverri hreyfingu borgaranna um leið og þeir stíga upp í bíl sinn og nota leið- sögukerfið. Gervihnatíaleiösaqa fvrir bíla Undir aldamót verða flestir meðalstórir bílar með gervihnattaleiðsögutæki sem aðstoðar ökumenn við að finna bestu leiðina að áfangastað Tölvuleiðsaga Ökumaður setur inn áfanga- stað við upphaf ferðar og tölva sýnir hagstæðustu teiðina á skjá íbílnum. Leiðin erstöðugt endurmetin þegar töivan fær upplýsingar um umferð frá leiðsögugervihnetti og stjórn- miðstöð umferðarinnar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.