Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1995, Page 21
JL*V LAUGARDAGUR 11. NÓVÉMBER 1995
menning
21
Krónprinsinn fundinn
Það eru fleiri en stórsöngvarar á Islandi sem velta fyr-
ir sér hvort ekki sé kominn tími á hið guflna þríeyki
sönglistarinnar, Pavarotti, Domingo og Carreras, og
hvenær óumdeiidir eftirmenn þeirra muni hefja upp
tenórraddir sínar svo að um muni. Frábærar tenórradd-
ir hafa hins vegar látið bíða eftir sér, á sama tíma sem
mikil gróska hefur verið meðal
barítona, hvað sem veldur.
láski hafa hinir miklu yfir-
irðir þríeykisins orðið til þess
i draga burst úr nefi verðandi
nórsöngvara. Eða eins og
;áldið Rilke sagði'um Rodin,
yndhöggvarann mikla:
imærri tré þrífast illa í ná-
•enni eikarinnar".
' Nú eru hins vegar ýmis teikn
lofti um að kominn sé fram
Tónlist
Aðalsteinn Ingólfsson
nór með alla burði til að taka
ið af þrieykinu. Hér á ég að
álfsögðu við Roberto Alagna,
ngan og myndarlegan ítala sem
inn er upp í Frakklandi. Svo
úkill er feginleiki tónlistar-
ressunnar yfir frammistöðu
ingvarans að hún er á góðri
ið með að kæfa hann með at- ________ ..
,. . Roberto Alaqna.
ygh og væntingum. „Kron- 3
rinsinn fundinn" var fyrirsögn í einu tónlistarritinu.
n sem betur fer virðist Alagna hafa nógu sterk bein til
3 þola velgengnina, ef marka má viðtöl við hann.
[abarettsöngvari
Ferill Alagnas er'að ýmsu leyti óvenjulegur. Hann
ann fyrir sér með gítarleik og kabarettsöng á frönsku
g ítölsku uns þekktur franskur tónlistarmaður bað
ann í bríaríi að syngja aríu fyrir sig inn á band. Árang-
rinn var framar öllum vónum téðs tónlistarmanns,
sem brast í grát og bauð Alagna að sækja einkatíma í
óperusöng hjá sér. Loks tók Alagna þátt í söngkeppni
sem Pavarotti stendur fyrir og vann þar til verðlauna. í
kjölfarið fóru honum að opnast óperuhús, fyrst í
Glyndebourne árið 1988 og síðan í Frakklandi. Það var
svo í Covent Garden árið 1992, þar sem Alagna söng
Rudolfo í La Boheme, að mönn-
um varð ljóst að hér væri á ferð-
inni efni i meiri háttar tenór.
Nú er kominn á markað „debút“
geisladiskur Alagnas, „Vinsælar
tenóraríur", sem gefur auðvitað
tilefni til að leggja dóm á
frammistöðu hans. Geisladiskn-
um er skipt til helminga milli
ítalskra og franskra tónskálda,
sem segir sjálfsagt sitt um þá
stefnu sem Alagna hyggst marka
sér í sönglistinni. Þarna eru vit-
anlega firna vinsælar aríur, „La
donna é mobile“, „Che gelida
manina!“ og annað í þeim dúr en
einnig ýmislegt óvænt, t.d. sjald-
gæfar aríur eftir Henri Rabaud
og Gounaud.
Satt best að segja þarf ekki að
hlusta ýkja lengi á þessa geisla-
plötu til að heyra að Alagna
stendur undir öllum þeim vænt-
ingum sem við hann hafa verið
bundnar. Hann er lýrískur tenór
af bestu gerð, með franskan „el-
egans“ í röddinni, blandaðan
ástríðufullri innlifun ítalskra
stórsöngvara.
Eins og stendur minnir Alagna undirritaðan ýmist á
Björling (einkum í La Bohéme-aríunni) eða Carreras
upp á sitt besta og ef hann fylgir því heilræði Pavarott-
is að geyma sér erfiðari óperuhlutverk til síðari tíma á
hann sannarlega bjarta framtíð fyrir sér.
Roberto Alagna — Popular Tenor Arias
London Philharmonic
Stj. Richard Armstrong
EMI Classics CDC 5 55540 2
Umboð á íslandi: SKÍFAN
Með Black Line myndlampa,
40W Nicam Stereo magnara
með Surround, aðgerða-
birtingu á skjá, textavarpi með
ísl. stöfum, fullkominni
fjarstýringu, Timer, klukku á
skjá, S-VHS inngangi og
tveimur Scart-tengjum.
ALLT ÞETTA
FYRIR AÐEINS
o
STGR.
ajíts'j
SIÐUMULA 2 • SIMI 568 9090
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
r