Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1995, Síða 31
UV LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995
Fyrirfram hefði sá sem þetta
skrifar ekki haldið að íslenska ball-
ettflokknum mundi takast að halda
uppi stemningu og fagmannlegum
vinnubrögðum í sex balletta pró-
grammi sem hljómaði dáldið eins og
sitt-lítið-af-hverju, einkum þegar
tekið er tillit til þess óratíma sem
líður milli sýninga flokksins, illu
heilli. Samt hefur flokkurinn ekki í
annan tíma komið fram ámóta heil-
steyptur og samhentur og í fyrra-
ar rósir) eða ágætu „ragtime" dans-
verki Roberts LaFosse. Þá standa
aðrir dansarar flokksins þeim Vali-
ev-hjónum hvergi að baki. Það var
sérstaklega spennandi að sjá sam-
spil þeirra Jóhanns Freys Björg-
vinssonar, sem nú blómstrar sem
aldrei fyrr, og bandarísku dans-
meyjarinnar Christy Lee Dunlap
sem er augljóslega happafengur fyr-
ir dansflokkinn. Guðmundur Helga-
son er einnig ört vaxandi dansari.
Sögulegar áherslur
Þær Sigrún Guðmundsdóttir og
Júlía Gold fá einnig það svigrúm
sem þær þurfa, bæði danslega séð
og til dramatískrar túlkunar, og fyr-
ir vikið er öll framganga þeirra al-
veg sérstakt augnayndi.
Sjálft prógrammið er ef til vill eft-
irminnilegra fyrir sögulegar áhersl-
ur - upprifjun á Bournonvilie og
Petipa - en herjans mikla nýsköpun.
Að sönnu er þarna að finna nýjan og
ljúfan ballett eftir Ingibjörgu
Björnsdóttur Næsti viðkomustaður:
Álfasteinn, en það var eiginlega of
mikið vaðmál í honum fyrir minn
smekk. Og „ragtime" LaFosses, með
öllum sínum bravúr og skemmtileg-
heitum, er í eðli sínu af meiði hins
hefðbundna ameríska músíkals.
Frammistaða dansaranna í þess-
um „sögulegu" verkum sem ég
nefndi leiðir hugann að því hvort nú
Ballett
Aðalsteinn Ingólfsson
sé ekki lag að setja saman, sérstakt
áróðursprógramm slíkra verka til að
senda með hraði miUi skóla landsins.
Það mundi gera meira en flest annað
tU að glæða áhuga ungu kynslóðar-
innar á listdansi. Og veitir ekki af.
En þessi sýning dansflokksins er
byrjunin á einhverju sem ekki má
glutra niður. AI
íslenski dansflokkurinn :
Sex ballettverk á einu kvöldi,
Borgarleikhúsið, 9. nóvember
Júlía Gold fékk það svigrúm sem
hún þurfti.
kvöld. Ég man tU dæmis ekki eftir
að hafa áður séð nær algjört jafn-
ræði með heilum fjórum danspörum
á einni sýningu flokksins eins og
nú. Að sönnu standa engin íslensk
danspör þeim Valiev-hjónum á
sporði þegar kemur að sígildum
ballett eins og Hnotubrjótnum sem
þau dönsuðu óaðfinnanlega.
En þegar kemur að nútímalegri
dansi eins og tilbrigðum Stephens
MiUs við söngva Editar Piaf (Rauð-
AÍUH.
9 0 4 *1700
Verö aöeins 39,90 mín.
1 j Dagskrá Sjónv.
21 Dagskrá St. 2
3 j Dagskrá rásar 1
4 j Myndbandalisti
vikunnar - topp 20
5j Myndbandagagnrýni
6 ísl. listinn
-topp 40
7 j Tónlistargagnrýni
8 Nýjustu myndböndin
9 j Gervihnattadagskrá
Meiri möguleikar og einföldun aðgerða s.s.
•yfirsýn yfir allar aðgerðir í valmynd
hægt er að greiða alla reikninga í einni aðgerð
Þú getur tengst Einkabankanum með disklingi
í PC eða Macintosh einkatölvu hvar sem
er og fengið aðgang að margþættri þjónustu
Landsbankans hvenær sem er sólarhringsins.
BANKI
Hringdu eða komdu og fáðu upplýsingar um
yfirburði Einkabankans.
Landsbanki
íslands
Bankl allra landsmanna
Heimasíða: http://www.centrum.is/lbank/