Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1995, Page 38
46
fréttir
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995
Danir fagna fyrsta konunglega brúðkaupinu í 28 ár:
Eftirvænting fyrir brúðkaup aldarinnar
Laugardaginn 18. nóvember mun
Alexandra Christina Manley ganga
inn kirkjugólfið í Hallarkirkjunni í
Friðriksborgarhöll í fylgd föður
síns. Þar mun hún játast Jóakimi
prins, yngri syni Margrétar Þórhild-
ar drottningar og Henriks prins. Eft-
irvæntingin er mikil innan kon-
ungsfjölskyldunnar og ekki síst
meðal almennings í Danmörku sem
beðið hefur eftir konunglegu brúð-
kaupi í 28 ár. Viðbúnaðurinn var
mikill 1967, þegar Margrét Þórhild-
ur og Henrik prins voru geFin sam-
an í Holmenskirkju, en hann jafnast
ekkert á við viðbúnaðinn í dag.
Jóakim kom öllum á óvart þegar
hann tilkynnti trúlofun sína í sum-
ar. Engan grunaði hvað var í vænd-
um þótt trúlofunin hefði átt langan
aðdraganda. Jóakim hafði kynnst
Alexöndru í Hong Kong þar sem
hún var dugandi starfsmaður stórs
verðbréfafyrirtækis. Rómantíkin
kviknaði og innan tíðar virtist ljóst
hvert stefndi. En enginn vissi þó
neitt og varð mikið öngþveiti á
dönskum fjölmiðlum, sérstaklega
vikublöðunum, í kjölfarið. Rifjaðist
• upp fyrir mönnum að Jóakim fetaði
þarna í fótspor móður sinnar en
hún kom einnig öllum á óvart þegar
hún tilkynnti trúlofun sína og Hen-
riks prins fyrir tæpum 30 árum.
Allt frá trúlofun Jóakims og Alex-
öndru hafa kastljós fjölmiðla í Dan-
mörku beinst að hjónaleysunum.
Ljósmyndarar og blaðamenn hafa
fylgt Jóakim og sérstaklega Alex-
öndru hvert sem þau hafa farið. Les-
endur, sérstaklega þeir sem kaupa
vikublöðin, hafa fengið nákvæmar
lýsingar á hverri hreyfingu, svip-
brigðum og látbragði Alexöndru.
Kaupmenn og framleiðendur alls
Stjörnuspekingur segir að Jóakim
og Alexandra eigi margt sameigin-
legt í stjörnunum. Hann spáir afar
kærleiksríku hjónabandi sem þó
verði hlaðið spennu á stundum.
mælti sérstaklega með honum en
hann hefur saumað brúðarkjóla
handa öllum brúðum konungsfjöl-
skyldunnar frá því Margrét gifti sig.
í honum verður væntanlega silki frá
Hong Kong en eitt koffort Al-
exöndru, sem kom frá Hong Kong
fyrr i haust, var fullt af dýrindis
silki. Hönnunin er mikið leyndar-
mál og á kjóllinn að koma á óvart.
Konunglegir gestir
Friðriksborgarhöll er í Hillered,
skammt norðvestur af Kaupmanna-
höfn. Höllina lét Kristján konungur
fjórði byggja en Hallarkirkjan var
byggð á árunum 1602-1617. Þar hafa
einungis tvö konungleg brúðkaup
verið haldin áður, hið fyrra 1752,
þegar Friðrik fimmti kvæntist Júlí-
önu Maríu af Braunschweig, og hið
síðara 1850 þegar Friðrik sjöundi
kvæntist Danner greifynju.
Um 400 gestir verða viðstaddir
sjálfa athöfnina í kirkjunni, þar af
50 útvaldir fulltrúar fjölmiðla. Brúð-
guminn mun koma til kirkjunnar
klukkan 16 í fylgd Friðriks krón-
prins sem verður svaramaður litla
bróður. Hálftíma síðar mun Alex-
andra koma til kirkjunnar í fylgd
föður sins. Athöfnin mun taka um
Trúlofun Jóakims og Alexöndru kom öllum í opna
skjöldu á sama hátt og þegar Margrét Þórhildur og
Henrik prins trúlofuðu sig fyrir tæpum 30 árum.
kyns varnings voru ekki lengi að sjá
hagnaðarvon í brúðkaupinu og áður
en langt um leið var Alexöndru-
postulín, Alexöndrukonfekt, Alex-
öndrudragtir og Alexöndru þetta og
Alexöndru hitt boðið til sölu. Veltan
varð gífurleg. Danir hyggjast einnig
notfæra sér brúðkaupið á mörkuð-
um sínum í Austurlöndum. Hefur
völdum viðskiptaðilum eystra verð-
ur boðið á danska menningarhátíð í
Hong Kong 10. desember.
Heillandi og skemmtileg
Verðandi prinsessa Danmerkur
virðist hafa fallið í kramið hjá Dön-
um og eru fáir þar undanskildir.
Þeim finnst hún sérlega heillandi og
skemmtileg manneskja og æðisleg
eða „smaddersod", eins og eigandi
skóverslunar, sem Alexandra heim-
sótti, orðaði það. Eru það ólíkt vin-
samlegri móttökur en Henrik prins
fékk en Danir voru afar lengi að
taka hann í sátt og voru beinlínis
rætnir á stundum.
Hvar sem Alexandra
fer hópast fólk sam
an til að virða
hana fyrir sér og
jafnvel eiga við
hana orða-
stað. Er
áhuginn
svo mikill
að fari
hún í
verslun
er fólk
með nef-
ið límt
við rúð-
una og
glápir.
Alexandra hefur verið mikið í
búðum, enda hefur fatasafn hennar
miðast við heitara loftslag í Hong
Kong. Hefur hún reyndar átt í vand-
ræðum með að fá föt í sinni stærð
en hún er ekki nema 163 sentímetr-
ar á hæð, notar föt númer 34 og skó
númer 36. En Alexanxdra lætur það
ekki á sig fá heldur sérpantar og
sveiflar greiðslukortinu. Hún er
ekki ein á ferð. Með henni eru vin-
konur úr konungsfjölskyldunni eða
hofdama drottningar og til öryggis
fylgja tveir öryggisverðir henni
hvert fótmál. Slíka gæslu hefur
Jóakim aldrei þurft úti á götu.
Þessa dagana er verið að leggja
síðustu hönd á brúðarkjólinn en
hann saumar danskur skraddari,
Jorgen Bender. Margrét Þorhildur
Erlent fréttaljós
Verðandi prinsessa Danmerkur virðist hafa fallið í kramið hjá Dönum. Þeim
finnst hún sérlega heillandi og skemmtileg manneskja og æðisleg, eða
„smaddersod", eins og eigandi skóverslunar orðaði það.
er tekið til þess að Danir eru um 5,5
milljónir. Það er þó ekkert í saman-
burði við þegar síðasti þátturinn í
endursýningu á framhaldsþáttunum
Matador var sýndur. Þá voru hvorki
meira né minna en 3,6 milljónir
Dana límdar við skjáinn. Samt er
búist við að brúðkaup aldarinnar
slái metið enda horfðu um 1,6 millj-
ónir áhorfenda á viðtal við Al-
exöndru sem sjónvarpað var 1. nóv-
ember.
Stormasamt hjónaband
Eins og áður sagði hefur verið
fjallað um brúðkaupið frá öllum
mögulegum hliðum og þar eru
stjörnuspekingar engin undantekn-
ing. Stjörnuspekingur Billedbladets
segir að Jóakim og Alexandra eigi
margt sameiginlegt í stjörnunum.
Hann spáir afar kærleiksríku hjóna-
bandi sem þó verði hlaðið spennu á
stundum. Þau munu fylgjast að í
geðsveiflum, vera samtímis hátt upp
og niðri. En skapgerðin er ólík.
Jóakim er jarðbundinn, enda land-
búnaðarfræðingur, meðan Alex-
andra lætur tilfinningarnar ráða.
Stjömuspekingurinn segir það boða
stormasamt hjónaband þar sem hún
verður fjörkálfurinn en hann hinn
trausti klettur heima fyrir.
Alexandra er af breskum og kín-
verskum uppruna. Hér er hún ásamt
móður sinni sem gaf ráð varðandi
brúðarkjólinn.
Haukur L Hauksson
klukkustund og verð-
ur henni sjónvarpað
beint og á risaskjá
skammt frá höllinni. Strax eft-
ir athöfnina mun öll konungsfjöl-
skyldan, um 50 manns, safnast til
myndatöku. Síðan munu brúðhjón-
in aka í opnum hestvagni drottning-
ar um Hillered og veifa til mann-
fjöldans. Leiðin verður vörðuð log-
andi kyndlum og mikil flugeldasýn-
ing ifer fram.
Gestir verða frá öllum heims-
hornum og munu fulltrúar allra
konungsfjölskyldna Evrópu verða
viðstaddir, þar á meðal Karl Breta-
prins. Lengi var óvist hvort Henrik
prins gæti verið við brúðkaupið
vegna þrálátrar bakveiki en hann
flaug nýlega frá Frakklandi til Dan-
merkur í einkaþotu og undir eftirliti
lækna. Móðir hans, amma Jóakims,
er hins vegar of lasburða og gömul
til að treysta sér.
Stærsta
fjölmiðlauppákoman
Viðbúnaðurinn fyrir þetta brúð-
kaup aldarinnar er gífurlegur enda
búist við stærstu fjölmiðlauppákomu
í Danaveldi fyrr og síðar. Hátt i eitt
þúsund blaða- og fréttamenn munu
fylgjast með brúðkaupinu sem sjón-
varpað verður beint á báðum stærstu
sjónvarpstöðvunum. Áhugi erlendra
fjölmiðla er gífurlegur.
Blaðamenn munu fjalla um bók-
staflega allt sem viðkemur þessari
hátíðarstund: klæðnaðinn, gestina,
óvæntar uppákomur, áhorfendur,
veisluna og hátíðahöld almennings.
Yfir 100 manna lið á vegum danska
ríkisútvarpsins mun koma að út-
sendingum á brúðkaupsdaginn,
enda búist við að öll met verði sleg-
in varðandi áhorf.
Þegar Danir léku gegn Hollend-
ingum í undanúrslitum Evrópu-
meistarakeppninnar í knattspyrnu
1992 var talið að um 2,8 milljónir
hefðu horft á leikinn í sjónvarpi,
sem er gífurlegur fjöldi þegar tillit