Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1995, Blaðsíða 39
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995
47
Stjáni stuð með nýja útvarpsstöð í eina viku:
Langar að fá merka
menn í heimsókn
„Sambýlið að Bröndukvísl 17, þar
sem ég bý, er íjögurra ára um þess-
ar mundir og við ætlum að halda
upp á afmælið með því að hafa okk-
ar eigin útvarpsstöð í eina viku. Við
munum senda út alla dagana frá
átta á morgnana til tíu á kvöldin á
FM 88,6,“ segir Kristján Þórðarson
sem löngu hefur verið þekktur í út-
varpi sem Stjáni stuð. Sjálfur ætlar
Stjáni stuð að sitja við hljóðnemann
fyrir hádegi en hann hefur fengið
unglinga í hverfinu til liðs við sig í
dagskrárgerðina. Margir muna eftir
Kristjáni frá því hann var með eig-
in þætti á útvarpsstöðvunum Útrás,
Rót og Sólinni. Kristján, sem er 26
ára gamall, hefur haft ótrúlegan
áhuga á útvarpi frá því hann var
barn að aldri en þá fékk hann að
skoða ríkisútvarpið.
Kristján þykir bæði duglegur og
kjarkmikill en hann hefur staðið að
undirbúningi útvarpsstöðvarinnar
frá því í maí í vor. Hann hefur feng-
ið íþrótta- og tómstundaráð til liðs
við sig en það skaffar honum tæki
til rekstursins. Engu að siður hefur
stofnkostnaður Kristjáns verið um
90 þúsund krónur og vonast hann til
að þeir peningar skili sér til hans að
nýju í gegnum auglýsingar.
Heitir Þruman
„Við verðum með ýmiss konar
tónlist og spjallþætti þannig að þetta
verður fjölbreytt dagskrá," segir
hann. „Við viljum að fólk taki þátt í
þessu með okkur og það getur
hringt í beina útsendingu í síma
567^0886.“
Útvarpsstöðin verður starfrækt í
húsakynnum sambýlisins, þar sem
Kristján býr, og mun hún kallast
Þruman í höfuðið á plötuverslun á
Kristján Þórðarson, betur þekktur sem Stjáni stuð, verður með útvarpsstöð-
ina Þrumuna í gangi næstu viku. DV-mynd Brynjar Gauti.
Camilla og Karl í sömu veislunni
Camilla Parker-Bowles, sem
fræg er fyrir að vera hjákona
Karls prins, mætti i opinbert sam-
kvæmi á Ritz hótelinu fýrir stuttu.
Það væri kannski ekki í frásögur
færandi nema vegna þess aö Kalli
prins var í sama teiti. Camilla
kom með föður sínum í veisluna
og hún passaði mjög vel að ljós-
myndarar næðu ekki að mynda
hana og prinsinn saman. Fyrrver-
andi eiginmaður Camillu,
Andrew, var einnig gestur í sam-
kvæminu svo varla hefur þetta
verið þægileg stund fyrir þessa
frægu konu. En Andrew yfirgaf
Ritz-hótelið víst í fyrra fallinu.
Laugaveginum sem hefur gefið þess-
ari nýju útvarpsstöð plötur.
Kristján langar til að fá merka
menn í heimsókn og sagðist hann
hafa lagt inn skilaboð fyrir Bubba
Morthens. „Hann var ekki í bænum
en ég vona að hann komi í heim-
sókn.“
Kristján segist hafa þráð það
lengi að fá að vera með þátt í út-
varpi en ekkert hafi þýtt fyrir hann
að sækja um á útvarpsstöðvunum.
„Forráðamenn útvarpsstöðva virð-
ast ekki taka mark á umsóknum
mínum. Jafet Ólafsson hjá Bylgj-
unni hafði t.d. aldrei heyrt nafhið
Stjáni stuð. Með því að vera með
þennan útvarpsrekstur i viku get ég
í-leiðinni kynnt mig.“
Mikill spenningur
Kristján segist vera ánægður á
sambýlinu en þar hefur hann búið
frá upphafi. Hann segist spila mikið
af plötum og hefur áhuga á flest allri
tónlist, þó ekki klassík. „Ég var um-
boðsmaður fyrir hljómsveit en er
hættur þvi núna.“
Mikill spenningur er á sambýlinu
fyrir hinni nýju útvarpsstöð og
Stjáni stuð hvetur alla til að hlusta
á FM 88.6 í næstu viku.
-ELA
Ritiö MIKILVÆG SÍMANÚMER er komiö út og berst þér
nú um helgina. Það hefur hagnýtt notagiidi og inniheldur
gagnlegar upplýsingar.
5551111
js*„1
VEISLUEIOHÖSÍÐ
SÍMt
‘593 SAOO
Ui
f*9w JWV
Mundu aö stinga MIKILVÆGUM
SÍMANÚMERUM fremst í símaskrána þína
eða hafa á annan hátt viö höndina.
MIKILVÆG SÍMANÚMER koma sér vel
þegar á þarf að halda.
Útgefandi Steinvík sf.
f
(
í
■i
t
*
Ráðstefna Rauða kross íslands
um skipulag sjúkraflutninga
í tengslum við aðalfund sinn gengst Rauði kross íslands fyrir
ráðstefnu um skipulag og framkvœmd sjúkraflutninga.
Ráðstefnan verðurhaldin á Scandic Hótel Loftleiðum
föstudaginn 17. nóvember.
Hún hefst með skráningu og afhendingu gagna kl. 9.30 og
henni lýkur kl. 16.00.
FRUMMÆLENDUR:
Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðisráðherra
Jón Viðar Matthíasson, aðstoðarslökkviliðsstjóri f Reykjavfk
Magnús Hreinsson, formaður RKÍ-deildar Djúpavogs
Svanhvít Jakobsdóttir, skrifstofustjóri f heilbrigðisráðuneytinu
Þórir Sigurbjörnsson, fulltrúi RKÍ í sjúkraflutningaráði
Jón Baldursson, yfirlœknir slysadeildar Borgarspítalans
Dr. Eelco H. Dykstra, forstöðumaður CIEMS, evrópskrar
upplýsingamiðstöðvar um sjúkraflutninga
Úlfar Hauksson, formaður heilbrigðis- og almannavarnanefndar RKÍ
Ráðstefnustjóri verður Guðjón Arngrímsson blaðamaður.
Upphaflega var fyrirhugað að halda ráðstefnuna
27. október en þá var henni frestað.
Þeir sem áður létu skrá sig eru velkomnir á ráðstefnuna nú og
aðrir geta látið skrá sig á skrifstofu RKÍ f sfma 562 6722 fyrir 16.
nóvember. Þátttaka er án endurgjalds.
RAUÐI KROSS ISLANDS
;
,'***«