Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1995, Qupperneq 43

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1995, Qupperneq 43
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995 ^nniist. ísland t 1(1) | 2.(2) t 3. ( 6 ) t 4.(5) t 5.(8) i 6. ( 3 ) t 7.(17) t 8. (Al) t 9. (Al) t10. (4) $11. (11) tlZ (14) # 13. ( 9 ) 114. (16) t15. (-) i 16. (10) 117. ( - ) 118. (Al) #19. (15) #20. (12) Pottþétt 1 Ýmsir Whigfield Whigfield Dangerous Minds Úr kvikmynd Insomnia Green Day (What's the Story) Morning Glory? Oasis Melon Collie and the Infinite... Smashing Pumpkins Ufe Simply Red Þó liði ór og öld Björgvin Halldórsson Kardimommubœrinn Úr leikriti D'eux Celine Dion Daydream Mariah Carey Súperstar Úr rokkóperu The Great Escape Blur Rocky Horror Úr rokksöngleik Don't Bore Us. Get to... Roxette í góðum sköpum Papar Double Talk Cigarette Outside David Bowie Help Ýmsir Reif í budduna Ýmsir London -lög- t 1. ( - ) I Belive/Up onthe Roof Robson & Jerome t 2. ( - ) Wonderwall Oasis # 3. (1 ) Gangsta's Paradise Coolio Featuring LV # 4. ( 2 ) Heaven for Everyone Queen # 5. ( 4 ) Thunder East 17 ) 6. ( 6 ) Missing Everything but the Girl # 7. ( 3 ) l'd Lie for You (And That's the... Meat Loaf t 8. (11) You llSee Madonna # 9. ( 5 ) Fairground Simply Red # 10. ( 7 ) When Love & Hate Collide Def Leppard Fyrsta platan með lögum Þormars fngimarssonar er nýkomin út Gerir lög við Ijód Tómasar Guðmundssonar Þormar Ingimarsson hefur fengist við að semja dægurlög síðustu tíu árin. Hann segir að bunkinn sem hefur hlaðist upp hafi verið farinn aö trufla líf sitt. Því var ekki um nema eitt að ræða: lækka staflann með því að gefa nokkur lög út á plötu. Og tíundi nóvember er einmitt formlegur útgáfudagur fyrstu plötunnar með lögum eftir Þormar. Hún heitir Sundin blá og er með fjórtán lögum við ljóð Tómasar Guðmundssonar. „Ég fór ekki að hugsa um plötuút- gáfú fyrr en fyrir svo sem ári,“ seg- ir Þormar. „Mér fannst rétti timinn vera núna. Það er ákveðið afturhvarf í gangi. Eitt lag af plötunni fór í spilun á útvarpsstöðvunum fyrir nokkrum vikum, í vesturbænum, og miðað við viðtökumar held ég að ég þurfi engu að kvíða.“ Þormar sendi reyndar frá sér annað lag við eigin texta fyrir nokkrum áium, lagið Ljós og skugga, sem kom ekki út á plötu fyrr en fyrir jólin í fyrra. Það hitti einnig í mark og var tíl dæmis eitt mest leikna lagið á Aðalstöðinni sumarið 1991. Þormar brosir þegar það er rifjað upp og segir að texti þess hafi verið hrár bráða- birgðatexti sem hann samdi einhvern tíma í kaffitímanum. Það er Stefán S. Stefánsson sem hafði yfirumSjón með gerð plöt- unnar Sundin blá. Hann annaðist útsetningar og upptökusfjóm auk þess að leika á saxófón og flautu. Aðrir sem spila með eru Bjöm Thoroddsen, Guxmar Hráfhsson, Ásgeir Óskars- son, Jónas Þórir, Dan Cassidy, Eiríkur Öm Pálsson, Vilhjálmur Guð- jónsson, Kristján Edelstein og Pálmi Gunnarsson. Páhni syngur jafnframt flest lög plötunnar, sex talsins. Ríó tríóið syngur þrjú, Guðrún Gunnarsdóttir tvö og Björg- vin Halldórsson, Ari Jóns- son og Guðrún Óla Jóns- Þormar Ingimarsson er að eigin sögn fyrst og fremst gangnamannakofaspilari. dóttir sitt hvert. Ema Þórarins- dóttir, Eva Albertsdóttir og Pálmi sjá um raddir og Þórhildur Örvarsdóttir syngur með Pálma í Japönsku ljóði. Þormar Ingimarsson vill fá orð hafa um spilamennsku sína hingað til, segist aldrei hafa verið í hljómsveit en aðallega leikið í heimahúsum í góðra vina hópi. „Einnig hef ég dálítið f leikið í óbyggðum — í gangna- mannakofum," segir hann, óræður á svip. „Ég ferðast á að giska þúsund kílómetra um óbyggðirnar á hestum á sumrin og þá hef ég hljóðfærið með mér. Við getum orðað það svo að ég sé aðallega gangnamannakofaspilari.“ Hann segist hafa samið lög við ljóö fleiri þjóðskálda en Tómasar Guðmundssonar, svo sem Steins Steinars, og reiknar með að halda þvi áfram nokkur ár í viðbót. Og áhrifavaldamir í lagagerðinni: „Ja, hvað skal segja?“ svarar hann, hugsi. „Ég hef lengi haft dálæti á Nfeil Young. Hann hefur verið aðalgúrúinn minn ásamt Mark Knopfler. Ég féll gjörsamlega fyrir honum þegar ég heyrði Sultans of S wing í Áfangaþætti í ríkisútvarp- inu fyrir meira en hálfum öðrum áratug." -ÁT- i. I • 10. New York — lög — (1 ) Fantasy Mariah Carey ( 2 ) Gangsta's Paradise Coolio Featuring LV (3 ) Runaway JanetJackson ( 4 ) Kiss from a Rose Seal (10) TellMe Groove Theory ( 7 ) Waterfalls TLC ( 6 ) Only Wanna Be with You Hootie & The Blowfish ( 5 ) You Are not Alone Michael Jackson ( • ) Back for Good Take That ( - ) Roll to Me Del Amitri Bretland — plötur og diskar - t 1. ( - ) Different Class Pulp | 2. ( 2 ) (What’s the Story) Morning Glory? Oasis t 3. ( - ) Welcome to the Neighbourhood Meat Loaf # 4. ( 1 ) Liíe Simply Red | 5. ( 3 ) Vault - Greatest Hits 1980_1995 Def Leppard t 6. ( - ) Power of a Woman Etemal | 7. ( 6 ) Design of a Decade 1986/1996 Janet Jackson # 8. ( 5 ) Don't Bore Us Get to... - Greatest... Rosette # 9. ( 8 ) Stanley Road Paul Weller # 10. ( 7 ) The very Best of Robert Palmer Bandaríkin — plötur og diskar- ) 1. (1 ) Daydream Maríah Carey | 2. ( 2 ) Jagged Little Pill Alanis Morrissette t 3. ( - ) Design of a Decade 1986/1996 Janet Jackson | 4. ( 4 ) Cracked Rear View Hootie and The Blowfish # 5. ( 3 ) Dangerous Minds Úr kvikmynd t 6. ( - ) Insomniac GreenDay | 7. ( 7 ) GreatestHits 1985-1995 Michael Bolton ) 8. ( 8 ) Crazysexycool TLC # 9. ( 6 ) Alll Want Tim McGraw $10- (10) The Woman in Me Shania Twain Halli Reynis: Lagið Streets of London lertaöi svo á hann að hann geymdieitt af sínum og hafði það með. Ljósm. Einar Óli Einarsson Halli Reynis fer hring eftir hring „Ég er núna í miðri sautján daga lotu, fæ svo frí í þijá daga og síðan tekur annríkið við aftur. Ég reikna með að spila svona stíft alveg fram að jólum og ætla að reyna að komast á sém flesta staði landsins en síðan get ég farið að taka lífinu með aðeins meiri ró,“ segir Haraldur Reynisson — Halli Reynis — sem sendi á dögunum frá sér plötuna Hring eftir hring. Áður ’nafði hann gefið út plötima Undir hömnmum háu. Hún kom út fyrir jólin 1993. „Ég ætlaði reyndar að senda frá mér plötu í fyrra og var með allt klárt þegar ég hætti við,“ segir Halli. „Ástæðan? Ja, mér fannst ég ekki vera tilbúinn. Ég viðurkenni að ég var hræddur við plötu númer tvö. Mig langaði að sýna framför frá fyrri plötunni en þegar á hólminn var komið sýndist mér að svo yrði ekki. Næstu mánuðina eftir að ég tók þessa ákvörðim samdi ég tugi laga og hafði þar af leiðandi úr miklu að velja þegar ég réðst í Hring eftir hring." A nýju plötunni eru tíu lög, öll frumsamin nema eitt, hið gamal- kunna Streets of London. Halli segir að það hafi upphaflega ekki átt að vera með. „Ég hef lengi haft Streets of Lon- don á efnisskránni og þá með sínum hefðbundna enska texta. Ég heyrði Bubba Morthens hins vegar einhvem tíma syngja lagið með ís- lenskum texta og þegar sú hugsun fór að leita mjög stíft á mig að hafa það með baö ég Bubba að leyfa mér að nota textann. Þá kom hins vegar í ljós að Ómar Ragnarsson hafði samið hann og það var auðfengið að fá að nota hann. Því er lagið héma með. Annars á ég alla texta á plötunni sjálfur nema einn. Það er ljóðið Friðlausi fuglinn eftir Davið Stefánsson sem ég samdi lag við.“ Platan Hring eftir hring er búin að vera á markaðinum í réttan mánuð. Halli segist ekki geta kvartað yfir viðtökunum: „Þremur dögum eftir útkomuna var ég búinn að heyra níu lög af henni leikin í útvarpsþáttum," segir hann. „Eina lagið sem ég hafði ekki heyrt var það sem ég bjóst við að yrði mest spilað! Útgáfutónleikarnir gengu sömuleiðis mjög vel. Þeir voru á Fógetanum og þangað komu um tvö hundruð manns til að hlusta. Það hefur komið til tals að útgáfu- tónleikarnir verði endurteknir og það verður væntanlega af því ein- hvem næstu daga.“ -ÁT-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.