Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1995, Qupperneq 64
w
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í
síma 562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er
notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
550 5555
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995
Veðrið á sunnudag og mánudag:
Strekkingur og skúrir
Á morgun verður suðvestanstrekkingur og skúrir eða slydduél við norðurströndina en hægari og bjart með köflum sunnanlands.
Hiti verður 3 til 7 stig, hlýjast suðaustanlands.
Á mánudaginn verður fremur hæg norðlæg eða breytileg átt.
Smáél verða við norðausturströndina en skýjað með köflum annars staðar, hiti 0 til 5 stig.
Veðrið í dag er á bls. 69.
Launanefndin:
er um að
taka upp kjaraviðræður
- segir Benedikt Davíðsson, forseti Alþýðusambandsins
;,Þaö var ákveðið á fundi launa-
nefndar á fimmtudaginn að halda
viðræðum áfram og ræða stöðuna,
hvaða möguleikar eru í henni. Við
berum það svar inn á furid for-
manna landssambanda ASÍ, næst-
komandi mánudag, að vinnuveit-
endur séu tilbúnir til að ræða við
okkur um hugsanlegar breytingar
varðandi launin eða kaupmáttinn,
umfram það sem er skrifað inn í
samninginn í dag,“ sagði Benedikt
Davíðsson, forseti Alþýðusam-
bands Islands, í samtali við DV í
gær.
Þetta er alveg í samræmi við
mat DV á stöðunni eftir samtali
við Þórarin V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóra Vinnuveitendasam-
bandsins, í síðustu viku.
Umrædd launanefnd, sem skip-
uð er þremur fulltrúum frá verka-
lýðshreyfingunni og þremur frá
vinnuveitendum, á aðeins að líta á
vöruverðshækkanir og vlsitölu og
meta út frá þeim hvort forsendur
kjarasamninga hafa breyst þannig
að forsendur þeirra séu brostnar.
Þórarinn benti hins vegar á að
mögulegt væri að taka upp ein-
hverjar viðræður á vettvangi
launanefndarinnar. Hins vegar
taldi hann ekki hægt að taka upp
venjulegar kjarasamningaviðræð-
ur með samninganefndum allra að-
ila.
Benedikt Davíðsson vildi taka
það skýrt fram að allt væri þetta
með „þrjú hundruð fyrirvörum",
eins og hann orðaði það, um að-
ferðafræði og allt annaö sem að
málinu snýr.
„Það mikilvægasta í málinu er
að það er ekki lokað á að ræða
málið, ef flnnst ásættanleg aðferð
eru þeir tilbúnir til viöræðna,"
sagði Benedikt Davíðsson.
Á mánudag funda forménn
landssabanda ASÍ en á þriðjudag
verður aftur fundur í launanefiid-
mni.
-S.dór
Þessir litlu hnoðrar, sem komu í heiminn fyrir sex vikum, eru undan innfluttum border collie hundi frá Englandi, sem
hlotið hefur tvö alþjóðleg meistarastig, og border collie tík ræktaðri á íslandi. Alls voru hvolparnir fjórir í gotinu. Þar
sem þeir eru ákaflega fjörugir var erfitt að láta þá sitja fyrir og var einn horfinn út í buskann þegar smellt var af.
DV-mynd RaSi
Flæmski hatturinn:
Útgerð ræður
fiskifræðing
„Það fer fiskifræðingur á okkar
kostnað á Flæmska hattinn. Mér
_____finnst nauðsynlegt að einhver fræð-
ingur fái að sjá prufur af þessu
svæði og kynna sér þetta af eigin
raun,“ segir Snorri Snorrason, út-
gerðarmaður á Dalvík, sem ráðið
hefur Jón Kristjánsson fiskifræð-
ing til að sinna rannsóknum á
rækjustofninum á Flæmska hattin-
um.
Jón fer til Kanada eftir tvær vik-
ur og verður um borð í Dalborgu
EA, skipi Snorra, fram undir jól.
Það sem þykir tíðindum sæta er að
þrátt fyrir að rækjumiðin á
Flæmska hattinum hafi verið mjög
í umræðunni á íslandi og íslensk
stjórnvöld hafi barist fyrir veiði-
stjórn þarna þá fer ekki sérfræðing-
ur frá Hafrannsóknastofnun til
__^..rannsókna á svæðinu. -rt
Máli sonar á
hendur bana-
manni móður vís-
að heim í hérað
Hæstiréttur hefur ómerkt og vís-
að heim 1 hérað miskabótamáli sem
sonur konu höfðaði á hendur
manni sem banaði henni í Kópa-
vogi fyrir sjö árum. Málið var höfð-
áð á þeim forsendum að missir
móðurinnar hefði haft ýmsa erfið-
leika í för með sér í lífi sonarins.
Stefnandi tapaði málinu í héraði
og áfrýjaði til Hæstaréttar og krafð-
ist þess að banamaðurinn greiddi
2,8 milljóna króna í miskabætur
með vöxtum frá árinu 1988.
Hæstiréttur hefur nú vísað mál-
inu heim i hérað á þeim forsendum
að héraðsdómur fjallaði á sínum
tíma ekki um kröfu málsaðila um
málskostnað með hliðsjón af því að
þeir höfðu báðir fengið gjafsókn og
gjafvörn. Málið verður því að end-
urflytja munnlega og síðan dæma í
héraði. -Ótt
EG TEK OFAN
HATT MINN
FYRIR ÞE5SU!
Tennishöllin
er á barmi
gjaldþrots
Tennishöllin í Kópavogi rambar
á barmi gjaldþrots. Fy'rirtækið, sem
rekur höllina, skuldar um 175 millj-
ónir króna, samkvæmt áreiðanleg-
um heimildum DV, þar af eru rúm-
ar 20 milljónir í vanskilum. Unnið
er að því að skuldbreyta lánum,
auka hlutafé og semja við verktaka
sem unnu að byggingu hallarinnar
en margir þeirra hafa enn ekki
fengið greitt.
Sigurður Geirdal bæjarstjóri í
Kópavogi, fyrir hönd bæjarsjóðs
Kópavogs, á í viðræðum við eigend-
ur hallarinnar en bæjarsjóður
gekkst í tæplega 70 milljóna króna
ábyrgð þegar höllin var byggð.
Ekki náðist í Sigurð Geirdal bæjar-
stjóra í gær.
Gunnar I. Birgisson, formaður
bæjarráðs, sagðist vona að ekki
kæmi til þess að bærinn þyrfti að
kaupa Tennishöllina til að gæta
hagsmuna sinna. Sér vitanlega
væri ekki rætt um að kaupa höllina
á 120 milljónir en rætt hefði verið
um það hvort bærinn væri tilbúinn
til að vera áfram í áþyrgðum.
„Við munum líta jákvætt á það
að uppfylltum ákveðnum skilyrð-
um,“ segir Gunnar. -GHS
Grensásveqi 11
Sími: 5 886 886 Fax: 5 886 888
. Grœnt númer: 800 6 886 J