Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1995, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1995, Qupperneq 7
MÁNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1995 7 I>V Sandkorn Fréttir Drakúla á förum Sýningum Leik- félags Akureyr- ar á leikritinu um Drakúla greifa er aö Ijúka og virðist Ijóst að sýning- in hefur ekki fengiö þá aö- sókn sem for- svarsmenn fé- lagsins vonuð- ust eftir, þrátt fyrir að opinber um- fjöllun um leikritið hafi verið já- kvæð. Mun hin dræma aðsókn lítið gleðiefni leikhússtjóranum Viðari Eggertssyni sem er sjálfur í hlut- verki greifans og að ljúka ferli sín- um sem leikhússtjóri á Akureyri innan skamms. Hans bíður það verkefni að taka við starfi leikhús- stjóra i Reykjavík en þar mun það því miður ekki hafa verið óalgengt undanfarin misseri ef marka má blaðaskrif að sýningar hafi „fallið" sem kallað er. Auglýst aftur 'Sú ákvörðun formanns Leik- félags Akureyr- ar að sækja sjálf um stöðu leíkhússfjóra á Akureyri og taka við af Við- ari kom mjög á óvart, ekki síst vegna þess að Sunna Borg, sem um ræðir, veitti öðrum um- sækjendum um stöðuna upplýsing- ar. I kjölfarið pískra menn um að Sunna hafi bætt sér í hóp umsækj- enda þegar sýnt var að engir „þungavigtarmenn" voru í hópi um- sækjenda og þannig fengi félagið ástæðu til að framlengja umsóknar- frestinn. Leiðir tveggja af síðustu leikhússtjórum á Akureyri hafa leg- ið til „æðri metorða" sunnan heiða, núverandi leikhússtjóri hjá Leikfé- lagi Reykjavikur var áður leikhús- stjóri á Akureyri og nú fetar Viöar Eggertsson í fótspor hans. Ráðning Viðars til LR hefur reyndar orðið deiluefni í gölmiðlum og þá ekki síst það, að manni virðist, að hann skuli ekki vera kona. . Miðbærinn „skreyttur" Til stendur aö fjórum togurum þýska útgerðar- fyrirtækisins Mecklenburger Hochseef- ischerei verði lagt við bryggju á Akureyri i vetur en skipin eiga einnig að fara í slipp í bænum. Hafnarstjóm hefur sam- þykkt af þessu tilefni að bæta þurfi landtengingar við Torfunefsbryggju og virðist því ljóst að fara eigi með togarana í miðbæinn. Torfunefs- bryggja er nefnilega á miðbæjar- svæðinu, rúmlega 100 metra frá göngugötunni t.d. og telja margir Akureyringar það litla bæjarprýði að hafa skipin þarna i vetur. Hvort það er stefna yfirvalda á Akureyri að gera Torfunefsbryggju að „skipa- kirkjugarði" er ekki ljóst en þar er nú fyrir gamall togari Útgerðarfé- lags Akureyringa sem lagt hefur verið.. Hitað upp Þorvaldur Jónsson, markvörður knattspyrnu- liðs Leifturs i Ólafsfirði, sagði frá því í viðtali á dög- unum aö er hann æfði og lék með liði KA í hand- knattleik á ámm áður hefði upphitun Magnús- ar Gauta Gautasonar, aðalmark- varðar liðsins, vakið athygli sína. Sú upphitun mun hafa farið fram með þeim hætti að Gauti, sem var a.m.k. mikill pípureykingamaður, fékk sér að reykja, barði sér síðan á brjóst og fór svo inn á og varði eins og berserkur. Þetta minnir á tilþrif fyrrnm landsliðsmiðherja okkar í körfuknattleik, Kristins Stefánsson- ar úr KR, en hann „hitaði upp“ meö því að fá sér sígarettu og setjast á ofn í búningsklefanum smástund. Þættu þetta vist ekki merkilegar upphitunaræfmgar í dag þar sem menn teygja og toga alla vöðva áður en gengið er til leiks. Umsjón: Stefán Kristjánsson Þrír milljarðar í skolp- hreinsistöð við Fitjar? Ægir Már Kárason, DV, Suðurnesjum: „Um er að ræða stórt mál. Þvi vilja menn undirbúa það vel og ná fram þeim samningum sem eru við- unandi fyrir báða aðila. Við vonum að það takist sem fyrst og fljótlega verði hægt að heQa framkvæmdir og þeim ljúki fyrir aldamótin," sagði Kristján Pálsson, alþingismað- ur og formaður verkefnisstjórnar frárennslismála Reykjanesbæjar. Nefndin hefur rætt við fulltrúa varnarliðsins um uppsetningu skolphreinsistöðvar við Fitjar í Njarðvík. Fyrirhugað er að setja upp skolpútrásarkerfi, sem dæli öllu skolpi í sjó nokkur hundruð metra frá ströndinni. Bandarískt fyrirtæki gerði úttekt á slíkri framkvæmd og niðurstaðan var sú að hún mundi kosta þrjá milljarða króna. Hins vegar telja ýmsir að hægt sé að vinna þetta fyrir minni pening. Um er að ræða sameiginlega framkvæmd Njarðvíkurhverfis Reykjanesbæjar og varnarliðsins. Umræður um framkvæmdina hófust 1990. Skolpútrás varnarliðsins er í miðri Njarðvík - við ströndina í Fitjum. Skipting kostnaðar stendur í mönnum. Varnarliðið vill ekki borga samkvæmt tölu íbúða og fólksfjölda. Þá væri kostnaður þeirra 75%. - færö allan vinninginn þegar þú vinnur í Gullnámunnil Vinnur þú meö öörum? Þegar þú vinnur í Gullnámunni færðu vinninginn óskiptan. Þú lendir ekki í því að þurfa að deila vinningnum með öðrum, frekar en þú vilt. Það ert þú ein(n~) sem vinnur - þegar þú vinnur. Gullpotturinn nemur aldrei lægri upphæö en 2.000.000 króna og hefur oft náö ab hlaöast upp í 10.000.000 króna og gott betur. Þar fyrir utan eru greiddir vinningar úr happdrættisvélum Gullnámunnar sem eru aö jafnaöi um 80 milljónir króna í viku hverri. Hér eru því á ferðinni fjölmargir „smærri" vinningar aö ógleymdum Silfurpottinum sem dettur aö meöaltali einu sinni á dag og er aldrei lægri en 50.000 krónur en hefur fariö hæst í um 600.000 krónur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.