Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1995, Qupperneq 41
MÁNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1995
53
Jón Sigurbjörnsson og Þóra
Friðriksdóttir líta yfir textann
sem þau leiklesa í Leikhúskjall-
aranum í kvöld.
Arthur
Miller og
verk hans
í kvöld verður dagskrá Lista-
klúbbsins helguð Arthur Miller,
einu þekktasta leikskáldi sam-
tímans, en hann á einmitt átt-
ræðisafmæli um þessar mundir
og á föstudaginn frumsýndi
Þjóðleikhúsið nýjasta leikrit
hans, Glerbrot.
Dagskráin í kvöld hefst með
umfjöllun Hávars Sigurjónsson-
ar, leiklistarráðunautar Þjóð-
leikhússins, um Miller og verk
hans. Leikararnir Jón Sigur-
björnsson og Þóra Friðriksdóttir
leiklesa leikritið, Ég man ekki
neitt, í leikstjórn Péturs Einars-
sonar en leikrit þetta var áður
flutt í útvarpi árið 1991 og þá í
Sýningar
flutningi Þóru og Jóns. Að lok-
um munu tveir leikarar úr Gler-
brotum, Arnar Jónsson og Lilja
Guðrún Þorvaldsdóttir, leika at-
riði úr leikritinu og ÞórhUdur
Þorleifsson leikstjóri fjalla um
sýninguna. Dagskráin hefst kl.
20.00.
í minningu Ein-
ars Sveinssonar
í kvöld kl. 20.00 verður dag-
skrá á Kjarvalsstöðum í tengsl-
um við sýningu á verkum Einars
Sveinssonar arkitekts. Verða
flutt fjögur stutt erindi.
Barnaheimspeki - um-
hverfissiðfræði
Hreinn Pálsson heimspeking-
ur fjallar um barnaheimspeki og
umhverfissiðfræði í kvöld kl.
20.30 í Alviðru í Ölfusi.
Námskeið um fjölskyldu-
mál
Fjölskyldufræðslan, Aðal-
stræti 4b, stendur fyrir nám-
skeiði um fjölskyldumál í dag og
á morgun með norsku hjónunum
Kari og Ole Magnus Olafsrud.
ITC-deildin Kvistur
heldur kynningarfund að
Litlubrekku (Lækjarbrekku),
Bankastræti 2, í kvöld kl. 20.00.
Fundúrinn er öllum opinn.
Samkomnr
Kvenfélag Grensássóknar
Fundur verður í kvöld í félags-
heimilinu kl. 20.00. Konur frá
Langholtssöfhuði koma í heim-
sókn.
-leikur að Itera!
?
I
I
!
E
Vinningstölur 11. október 1995
4*7*9«13*14*16*22
Eldri úrslit á símsvara 5681511
Jet
Jet Black Joe leikur á Gauki á
Stöng í kvöld og annað kvöld. Hljóm-
sveitin hefur verið einhver vinsæl-
asta hljómsveit á íslandi undanfarin
ár og má segja að í hvert skipti sem
hún hefur geQð út plötu hafi lag meö
henni farið í hæstu hæðir vinsælda-
lista hér á landi. Nú fer tækifærum að
fækka fyrir aðdáendur hljómsveitar-
innar hér á landi, að fá að berja goð-
in sín augum, þar sem þeir hyggja á
flutning til Englands á næstunni. Þar
Skemmtanir
á að reyna fyrir sér á einhverjiun erf-
iðasta markaði í heiminum.
Jet Black Joe hefúr verið að koma
sér inn á markaðina á meginlandi
Evrópu og hefur það gengið bæri-
lega og er hljómsveitin þegar orðin
nokkuð þekkt í Hollandi og Þýska-
landi og nú á sem sagt að halda til
Englands þar sem hún mun dvelja
nokkurn tima Jet Black Joe leikur á Gauknum í kvöld og annaö kvöld.
Reykjavík:
Ný útilistaverk
Það fer ekki fram hjá neinum sem
ekur um eða ferðast á annan máta
um Reykjavik að til fegrunar borg-
inni eru mörg útilistaverk, bæði á
víðavangi og í görðum. Nú hafa tvö
verk sem settu svip á bæinn verið
endurgerð og sett á sína upprunalegu
staði.
Umhverfi
Það er Garðyrkjudeild Reykjavík-
ur sem kom fyrir þessum tveimur
útilistaverkmn í Reykjavík. Annars
vegar er það Kona og bam eftir Tove
Olafsson, sem komið var fyrir við
Fæðingarheimili Reykjavíkur, og
hins vegar verkið Barn og fiskur eft-
ir Ásmund Sveinsson sem sett var
upp við Laugamesskóla í Reykjavík.
Gaukur a Stöng:
Black Joe
Bróðir
Bjarnleifs Smára
Litli myndarlegi drengurinn á
myndinni fæddist á fæðingardeild
Landspítalans 30. október kl. 17.42.
Barn dagsins
Hann var við fæðingu 4520 grömm
og 54 sentímetra langur. Foreldrar
hans em Þórdís Bjarnleifsdóttir og
Heiðar Már Guðnason. Hann á einn
bróður, Bjarnleif Smára, sem er sjö
ára.
Hér hefur iögreglan náð að góma
Söndru Bullock.
Netið
Stjömubió og Saga-bíó sýna
um þessar mundir nýjustu kvik-
mynd Söndru Bullock, Netið
(The Net). Hefur hún hlotið góð-
ar viðtökur hér sem annars stað-
ar. Bullock leikur tölvufræðing-
inn Angelu Bennett sem vinnur
við að uppræta tölvuvírusa sem
leynast í hinum og þessum tölvu-
forritum og leikjum fyrirtækis-
ins sem hún vinnur hjá. Bennett
er ánægð með starf sitt en er ein-
mana og á fáa að. Það er þó til-
breyting fram undan'hjá Bennett
þar sem hún er á leið til Mexíkó
í frí en disklingur, sem hún fær
til athugunar, á heldur betur eft-
ir að breyta lífi hennar.
Leikstjóri The Net er Irwin
Kvikmyndir
Winkler sem var, áður en hann
sneri sér að leikstjórn, einn virt-
asti framleiðandi kvikmynda í
Bandaríkjunum og meðal mynda
sem hann hefur framleitt eru
Rocky, Raging Bull, The Right
Stuff, GoodFellas og The Shoot
Horses, Don’t They?
Nýjar myndir
Háskólabíó: Clueless
Laugarásbíó: Apollo 13
Saga-bíó: Vatnaveröld
Bíóhöllin: Hættuleg tegund
Bíóborgin: Sýningarstúlkurn-
ar
Regnboginn: Leynivopnið
Stjörnubíó: Netid
Gengið
Almenn gengisskráning Ll nr. 267.
10. nóvember 1995 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 64,300 64,620 64,690
Pund 101,480 102,000 101,950
Kan. dollar 47,480 47,770 48,430
Dönsk kr. 11,7410 11,8040 11,8280
Norsk kr. 10,3200 10,3770 10,3770
Sænsk kr. 9,6420 9,6950 9.7280
Fi. mark 15,1600 15,2490 15,2030
Fra. franki 13,1890 13,2640 13,2190
Belg. franki 2,2150 2.2283 2,2311
Sviss. franki 56,5600 56,8700 56,8400
Holl. gyllini 40,6700 40,9200 40,9300
Þýskt mark 45,5700 45,8000 45.8700
Ít. líra 0,04032 0,04057 0,04058
Aust. sch. 6,4730 6,5130 6,5240
Port. escudo 0,4329 0,4355 0,4352
Spá. peseti 0,5277 0,5309 0,5296
Jap. yen 0,63800 0,64180 0.63480
Irskt pund 103,750 104,390 104,670
SDR 96,47000 97,05000 96,86000
ECU 83,3900 83.8900
Slmsvari vegna gengisskráningar 5623270.
Krossgátan
r~ T~ T~ n r
I
>ö JT \ TT
VI rr
I *
2ö 21
Lárétt: 1 ögra, 8 ári, 9 stefna, 10
tryllist, 11 umdæmísstafir, 12 bolarn-
ir, 14 bekk, 16 rispa, 18 píndir, 20
leðja, 21 andi.
Lóðrétt: 1 tungumál, 2 ferðir, 3
klampi, 4 meltingarfæris, 5 glaðir, 6
bardagi, 7 viðlag, 11 röski, 13 fjær, 15
formóður, 17 stía, 19 rot.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 hnjóta, 8 lauf, 9 ært, 10 ögr-
ar, 11 mó, 12 sæt, 14 gaur, 16 strunsa,
19 æla, 20 rolu, 22 fast, 23 kar.
Lóðrétt: 1 hlöss, 2 nag, 3 jurt, 4 ófag-
urt, 5 tæran, 6 arm, 7 stór, 13 ætla, 15
usla. 17 ras. 18 aur. 19 æf, 21 ok.