Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1995, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1995
9
PV______________Útlönd
Karl prins fær ráð frá Major:
Varaður við
að kvænast
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, hefur varað Karl Breta-
prins við og tjáð honum að breskur
almenningur muni ekki sætta sig
við að prinsinn kvænist ástkonu
sinni Camillu Parker-Bowles ef
hann skilji við Díönu prinsessu.
Greint er frá þessu í breska blaðinu
Daily Mirror í dag. Hefur blaðið
þetta eftir háttsettum aðilum í
íhaldsflokknum.
1 gær greindi breska blaöið Daily
Express frá því að Camilla vildi ólm
giftast Karli og fá titilinn Hennar
konunglega hátign. Camilla skildi
við eiginmann sinn fyrr á þessu ári.
Blaðið hafði það eftir vinum
Camillu að hún væri ekki reiðubú-
in að vera ástkona prinsins til ei-
lífðar og vildi gera samband þeirra
formlegt.
Aðstoðarmenn Karls og meðlimir
Parker-Bowles fjölskyldunnar vísa
hins vegar þessari frétt á bug í blað-
inu Daily Mail og segja hana fram-
leiðslu auðugs ímyndunarafls.
Díana er fjarri góðu gamni og
dvelur nú á lúxushóteli á eyjunni
Barbuda í Karíbahafi. Fjöldi Ijós-
myndara er sagður kominn til eyj-
Það er trú Majors að almenningur
verði mótfallinn hjónabandi Karls
prins og Camillu. Simamynd Reuter
unnar til að reyna að ná mynd af
prinsessunni en hingað til hefur
henni tekist að vera í friði.
Díana eyddi jólunum ein en synir
hennar dvöldu með föður sínum og
öðrum meðlimum konungsfjölskyl-
dunnar. Reuter
Það er ekki laust við að hann sé feiminn, litli tígrisdýrshvolpurinn í Taronga-
dýragarðinum í Sydney í Ástralíu, þar sem hann horfir framan í heiminn. Litli
tígri, sem hér er með mömmu sinni, henni Seletan, var sýndur almenningi í
fyrsta sinn í gær. Litla skinnið á tvö systkini sem voru fjarri góðu gamni þeg-
ar myndin var tekin. Símamynd Reuter
Drukknuðu við að bjarga
ellefu ára gamalli stúlku
Læknar á Bretlandi reyndu ár-
angurslaust í fimm klukkustundir
að bjarga lífi ellefu ára stúlku og
tveggja karlmanna sem reyndu að
bjarga henni þegar hún féll niður
um vök á ísilögðu stöðuvatni.
Öll þrjú voru þau fost undir ísn-
um í tvær klukkustundir í gær áður
en lögreglunni tókst að ná til þeirra
í almenningsgarði í Kinsley í norð-
urhluta Englands. Hjartað var hætt
að slá í þeim öllum þegar komið var
með þau á sjúkrahús en læknar
reyndu að verma líkama þeirra með
hjartahnoði og með því að dæla í
þau heitiun vökva.
Stúlkan var að elta hund á ísnum
þegar slysið varð. Mennirnir féllu
síðan sjálfir í vatnið hvor á eftir
öðrum þegar þeir komu til bjargar.
Reuter
SAAA5UNG SF-40 faxtœki
ermeðslma, hógœða-
upplausn, 10 númera
minni, tenqjanlegt við
símsvara, Tjósritunar-
möguleikum o.m.fl. ^
Samsung SF-2800 er óvenju-fallegt faxtœki. Það
hefur innbyggðan stafrœnan símsvara,
kirstolsskjá, 80 númera minni, 10 núméra
beinvalsminni, 16 gráskala hágœðaupplausn á
móttöku, Ijósritunarmöguleika, 10 blaðsiðna
arkamatara ogýmislegl leira.
(Kostar innanbœjarsímtal og
vömmar eru sendar samdœgurs)
Grensásvegi 11
Sími: 5 886 886 Fax: 5 886 888
TIL ALLT AO SA MAlVADA V_
.UMWtaak v4AtB*rtÍ
cKea
SAGA-CÍ
STORKOSTLEÚ
NÝ TEIKNIMYND
FRA WALT ; y
DISNEY UM
P O CA H O N TA^
HX
f f''' ^
\
' fj j
InJ
444
AKUREY
ÁLFABAKKA ^
% BÍÓHÖLLIN: Sýnd kl. 1, i, 5 og 7. íslenskt tal.
SAGABÍÓ: Sýnd kl I, 3 og 5. íslenskt tal.
SAGABÍÓ: Sýnd kl. 1, 3, 5, 7, 9 og 11. Enskt tal.
AKUREYRI
Sýnd ld. 3, 5, 7 og 9.
Mcð íslensku tali
KEFLAVIK
Sýnd kl. 3 og 5.
Mcð íslensku tali
f 4^4
^ SNORRABRAUT -;|í
Sýnd kl. 3, 5 og 7. ísl. tal.
Sýnd kl. 9 og II. Enskt tal.