Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1995, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1995, Qupperneq 22
34 FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1995 Afmæli Bergur Lárusson Bergur Lárusson, fyrrv. loft- skeytamaður, Vogatungu 87, Kópa- vogi, varð áttatíu og fimm ára í gær. Starfsferill Bergur fæddist á Kirkjubæjar- klaustri í Vestur-Skaftafellssýslu og ólst þar upp. Hann stundaði nám við Héraðsskólann á Laugar- vatni, stundaði nám við Loft- skeytaskólann og lauk loftskeyta- prófl 1940. Bergur stundaði loftskeytastörf um skeið, var loftskeytamaður i af- leysingum hjá Eimskipafélaginu, einkum á Gullfossi. Þá stundaði hann ýmis verslunarstörf og fyrir- tækjarekstur. Bergur hóf, ásamt bræðrum sín- um, fyrstur áætlunarferðir milli Reykjavikur og Kirkjubæjarklaust- urs, sá um rafvæðingu á Kirkju- bæjarklaustri, stundaði bílainn- flutning og hafði þá umboð fyrir Packard-, Simca- og Nissan-bifreið- ar. Þá stundaði hann, ásamt Kristni Guðbrandssyni í Björgun, leit að gullskipinu á Skeiðarár- sandi. Fjölskylda Eiginkona Bergs er Ágústa Jóns- dóttir, f. 3.8. 1927, húsmóðir. Hún er dóttir Jóns Bessasonar og Þó- rönnu Andersen. Börn Bergs og Ágústu eru Elín, f. 1.5. 1961, bankastarfsmaður í Kópavogi, og á hún tvö börn, Berg- lindi og Sigurgeir; Brynja, f. 9.11. 1962, húsmóðir í Kópavogi, og á hún tvö börn, Birnu og Birki Magnús. Börn Ágústu frá því áður eru Kristín Jóhanna, f. 9.4.1953, banka- starfsmaður í Kópavogi, sem er gift Sigurði Konráðssyni og eiga þau tvo syni, Hörð og Atla Þór; Hörður Ágúst, f. 9.9.1955, bOstjóri hjá Vest- fjarðaleið, og á hann einn son, Ágúst. Bræður Bergs eru allir látnir en þeir voru Helgi, f. 1901, verslunar- maður og bóndi á Kirkjubæjar- klaustri, kvæntur Sigurlaugu Helgadóttur; Siggeir, f. 1903, odd- viti og loftskeytamaður á Kirkju- bæjarklaustri, kvæntur Sofflu Kristinsdóttur; Júlíus Helgi, f. 1905, verslunarmaður og bóndi á Kirkjubæjarklaustri, kvæntur Önnu Kristjánsdóttur; Valdimar, f. 1908, verslunarmaður, bóndi og loftskeytamaður á Kirkjubæjar- klaustri, kvæntur Guðrúnu Ólafs- dóttur. Foreldrar Bergs voru Lárus Helgason, f. 8.8. 1873, d. 1.11. 1941, bóndi og alþm. á Kirkjubæjar- klaustri, og Elín Sigurðardóttir, f. 2.8. 1871, d. 4.6. 1949, húsfreyja. Ætt Lárus var bróðir Helga Bergs, forstjóra Sláturfélags Suðurlands, föður Helga Bergs bankastjóra og Jóns Bergs, forstjóra Sláturfélags Suðurlands. Lárus var sonur Helga, b. á Fossi á Síðu, Bergsson- ar, b. þar, Jónssonar. Móðir Bergs var Þorbjörg Bergsdóttir, prests á Prestsbakka, Jónssonar og Katrín- ar Jónsdóttur eldprests Stein- grímssonar. Móðir Lárusar var Halla Lárus- dóttir, b. í Mörtungu, Stefánssonar stúdents Ólafssonar. Móðir Lárus- ar var Halla, systir Ólafs, langafa Þorsteins Erlingssonar skálds. Halla var dóttir Arnbjarnar, ætt- föður Kvoslækjarættarinnar, Eyj- ólfssonar. Móðir Höliu var Ragn- hildur Einarsdóttir, b. í Mörtungu, Einarssonar og Guðrúnar Odds- dóttur, systur Guðriðar, langömmu Kjarvals, Eldeyjar- Hjalta og Jóns i Seglbúðum. Elín var systir Jóhönnu Mar- grétar, móður Páls landgræðslu- stjóra og Runólfs, skólastjóra á Hvanneyri, föður Sveins land- græðslustjóra. Systir Páls og Run- ólfs er Róshildur, móðir Brynju Benediktsdóttur leikstjóra. Elín var dóttir Sigurðar, smiðs á Bergur Lárusson. Breiðabólstað á Síðu, Sigurðsson- ar, b. í Eintúnahálsi, Jónssonar, b. á Fossi á Síðu, Sigurðssonar. Móðir Elínar var Gyðríður Ólafsdóttir, b. á Syðri-Steinsmýri, Ólafssonar og Margrétar Gissurar- dóttur. Jón Gauti Jónsson Jón Gauti Jónsson, ráðgjafi og fyrrv. sveitarstjóri, Hörgatúni 5, Garðabæ, er fimmtugur i dag. Starfsferill Jón Gauti fæddist á fsafirði og ólst þar upp til sex ára aldurs og síðan í Kópavogi. Hann lauk stúd- entsprófi frá MR 1967 og prófi í viðskiptafræði frá HÍ 1972. Jón Gauti var kennari við Iðn- skólann og Gagnfræðaskólann í Vestmannaeyjum 1967-68, sveitar- stjóri Búðahrepps á Fáskrúðsfirði 1972-74, Rangárvallarhepps 1974-78, framkvæmdastjóri Scan- house Ltd í Nígeríu 1978, bæjar- stjóri Garðabæjar 1979-87, fram- kvæmdastjóri Stálvikur hf. 1987-90 og hefur verið ráðgjafi hjá Rekstri og ráðgjöf hf. frá ársbyrjun 1990 auk þess sem hann var sveitar- stjóri Súðavíkurhrepps frá janúar til október 1995. Jón Gauti sat í stjórn Austur- fells hf. 1973^74, stjórnarformaður Samtaks STÁ 1975-78, stjórnarfor- maður Fiskeldis hf. 1980-81, for- maður Launanefndar sveitarfélaga 1986-88 og stjórnarformaður Rekst- urs og ráðgjafar hf. frá 1990. Fjölskylda Jón Gauti kvæntist 29.5. 1966 Hallgerði Pétursdóttur, f. 13.1. 1948, skrifstofumanni. Hún er dóttir Péturs Stefánssonar, f. 1917, d. 1993, lögregluvarðstjóra í Vest- mannaeyjum, og k.h., Sigrúnar Magnúsdóttur, f. 1920, d. 1981, húsmóður. Börn Jóns Gauta og Hallgerðar eru Sigrún, f. 10.10. 1966, flug- freyja í Reykjavik, gift Gunnlaugi Kr. Gunnlaugssyni flugþjóni og eru börn þeirra Benedikt Þór Gunnlaugsson, f. 25.4. 1990, og Friðrik Örn Gunnlaugsson, f. 17.2. 1993; Jón Gauti, f. 8.1. 1974, há- skólanemi; Sólveig Asta, f. 25.7. 1980. Systur Jóns Gauta eru Svan- hildur Erna, f. 16.6.1935, húsmóð- ir og ekkja eftir Birgi S. Bogason framkvæmdastjóra, sem lést 1990; Sigríður Kristjana, f. 30.7. 1936, húsfreyja í Brautarholti, gift Páli Ólafssyni, bónda þar; Þórdís Helga; f. 8.5. 1941, húsmóðir í Berlín, gift Joachim Osterhorn tannlækni; Guðrún Kristin, f. 27.4. 1948, húsmóðir í Garðabæ, gift Hauki S. Bessasyni rafvirkja. Foreldrar Jóns Gauta: Jón Gauti Jónatansson, f. 14.10. 1907, d. 20.2. 1964, rafmagns- og ljós- tæknifræðingur í Kópavogi, og k.h., Guðrún Kristjánsdóttir, f. 4.2. 1909, húsmóðir. Ætt Jón Gauti, faðir afmælisbarns- ins, var sonur Jónatans, bókbind- ara, sjómanns og skósmiðs í Siglu- vík í Svalbarðsstrandarhreppi, Jónatanssonar, b. í Hörgsdal, Jóns- sonar, b. þar, Magnússonar, Tómassonar, b. á Rauðá, Vigfús- sonar. Móðir Jóns var Guðlaug Árnadóttir, b. á Hofsstöðum í Mý- vatnssveit, Illugasonar. Móðir Jón- atans bókbindara var Kristín Tóm- asdóttir, Magnússonar, bróður Jóns í Hörgsdal. Móðir Jóns Gauta Jónatansson- ar var Kristjana Bjarnadóttir, í Meðalheimi, Gíslasonar, og Guð- rúnar Davíðsdóttur. Guðrún, móðir afmælisbarns- ins, er dóttir Kristjáns Alberts, kaupmanns á Suðureyri við Súg- andafjörð, bróður Finnborgar, móður Finnborgar, leikkonu og út- varpsþulu, móður Margrétar leikkonu, Olgu Guðrúnar rithöf- undar og Örnólfs rithöfundar, Árnabarna. Kristján var sonur Kristjáns, útvegsb. á Suðureyri, Jón Gauti Jónsson. Albertssonar, b. á Gilsbrekku, Jónssonar, b. á Tannanesi, Ólafs- sonar. Móðir Guðrúnar var Sigríð- ur Híramína Jóhannésdóttir, hreppstjóra í Botni, Hannessonar. Jón Gauti tekur á móti gestum að Garðaholti í Garðabæ í dag, fóstudaginn 29.12., milli kl. 17.00 og 19.00. Tll hamingju með afmælið 29. desember 85 ára Stefán Þorsteinsson, Miðtúni 14, Höfh í Hornafirði. 80 ára Sigríður Jónsdóttir, Sauðá, Kirkjuhvafnmshreppi. Jakobína Jónsdóttir, Búðavegi 55, Fáskrúðsfirði. Sigrún Högnadóttir, Borgarhrauni 2, Grindavík. Sigrún er að heiman. Jóhann Ármann Kristjánsson, fyrrv. aflestrarmaður, Bessastíg 10, Vestmannaeyjum. Hann er að heiman. 70 ára Hinrik Hinriksson, Aðalstræti 6, Akureyri. Reynir Böðvarsson, Breiðabóli við Eyrargötu, Eyrar- bakka. 60 ára Ingólfur Þormóðsson, Þórunnarstræti 134, Akureyri. Sigurbjörg Guðnadóttir, Brekkugötu 5, Vestmannaeyjum. 50 ára Soffía Anna Jónsdóttir, Hraunstíg 4, Hafnarfirði. Guðmundur Sigursteinsson, Skúlagötu 64, Reykjavík. Sigrún Vilbergsdóttir, Skógarlundi 19, Garðabæ. Ingimar Ilalldórsson, Mánagötu 8, Reykjavík. Gylfi Valberg Óskarsson, Hlíðarendavegi 1B, Eskifirði. Geir Gunnarsson, Hringbraut 74, Keflavík. Jóhann Karl Benediktsson, Engjavegi 12, ísafirði. 40 ára Guðrún H. Guðmundsdóttir, írabakka 20, Reykjavík. Ómar Sigurðsson, Suðurgötu 53A, Hafnarfirði. Þórður Anton Víglundsson, Hlíöargötu 9, Neskaupstað. Arndís Jónsdóttir Arndis Jónsdóttir vígslubisk- upsfrú, Skálholti, er fimmtug í dag. Starfsferill Arndís fæddist í Nýjabæ í Garðahverfi en ólst upp í Grund I Garðahverfi. Hún lauk kennara- prófi frá KÍ 1967, sótti námskeið í ensku og handmennt við Princeton í Bandaríkjunum veturinn 1980-81 og stundaði nám í námsorlofi við KHÍ veturinn 1988-89. Arndís var kennari við Öldutúnsskóla í Hafnarfirði 1966-73 og við Sólvallaskóla á Sel- fossi 1973-94. Arndís sat í stjórn kvenfélags Fríkirkjunnar í Hafnarfirði og stjóm kvenfélags Selfosskirkju um árabil, í stjórn Prestskvennaífélags- ins um skeið, hefur setið í stjóm- um sjálfstæðisfélags Árnessýslu og sjálfstæðisfélagsins Óðins á Sel- fossi, var varabæjarfulltrúi á Sel- fossi og sat þar í skólanefnd og fé- lagsmálaráði, sat fyrst kvenna í stjóm kjördæmisráðs Sjálfstæðis- flokksins á Suðurlandi, var vara- þingmaður flokksins á Suðurlandi 1987-95, sat í stjórn Landssam- bands sjálfstæðiskvenna 1986-95 og formaður þess 1991-95 og hefur setið í framkvæmdastjórn Sjálf- stæðisflokksins frá 1991. Fjölskylda Arndís giftist 30.6. 1973 Sigurði Sigurðarsyni, f. 30.5. 1944, vígslu- biskupi. Hann er sonur Sigurðar Pálssonar, vígslubiskups á Sel- fossi, og k.h., Stefaníu Gissurar- dóttur húsmóður. Börn Arndísar og Sigurðar eru Stefanía Sigurðardóttir, f. 21.5. 1974, nemi, og er sonur hennar Sig- urður Edgar Andersen; Jón Magn- ús Sigurðsson, f. 7.11. 1977, nemi. Systkini Arndísar em Ragnheið- ur, f. 23.2.1947, húsmóðir í Nýjabæ í Garðabæ; Gerður Helga, f. 5.12. 1955, hárgreiðslumeistari í Kópa- vogi; Guðmundur, f. 4.10.1957, við- skiptafræðingur í Hafnarfirði; Jón Halldór, f. 30.7. 1960, rafvirkja- meistari í Hafnarfirði; Dóra Björg, f. 6.8. 1967, bankastarfsmaður, bú- sett í Kópavogi. Foreldrar Amdísar voru Jón M. Guðmundsson, f. 20.1. 1926, d. 4.10. 1984, bifreiðarstjóri á Grund i Garðabæ, og Laufey Árnadóttir, f. 11.11. 1927, d. 7.8. 1969, húsmóðir. Ætt Jón var sonur Guðmundar, kaupmanns og sláturhússtjóra í Hafnarfirði, Magnússonar, í Hjörs- Arndís Jónsdóttir. koti á Hvaleyri við Hafnarfjörð, Benjamínssonar. Móðir Guðmund- ar var Guðbjörg Þorkelsdóttir. Móðir Jóns var Ragnheiður, systir Jónasar í Stardal. Ragnheið- ur var dóttir Magnúsar í Stardal Sigurðssonar og Þorkefínu Þor- kelsdóttur. Laufey var dóttir Árna frá Nýja- bæ, Magnússonar, og Jóhönnu Jó- hannsdóttur. Arndís tekur á móti gestum á heimili sínu í Skálholti í dag, 29.12., eftir kl. 17.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.