Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1996, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1996, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 1. MARS 1996 7 DV Sandkorn Matreiðslubókin í mörgum bókabflðum er auglýst fagleg ráðgjöf fyrir viöskiptavini. Einhver mis- brestur mun nu vera á að hún sé alltaf eins og til er ætlast. Ekki alls fyrir löngu var maður einn að leita að bókinni Sulttir eftir þann kunna norska rithöfund, Knut Hamsun. Sultur er án efa ein frægasta bók þessa mikla rithöfundar. En það var sama hvað maðurinn leitaöi í hillum bókabúðarinnar, hann fann bókina ekki. Hann snei sér þá til nærstaddr- ar afgreiðslustúlku og spurði hana hvort bókin væri til. Stúlkan sagðist ekki vita það, sneri sér tii annarrar afgreiöslustúlku og spurði hana hvort hún vissi eitthvað um þessa bók og hvort hún væri til. „Segðu honum að leita þar sem matreiðslu- bækurnar eru þama i hominu,“ svaraði stúlkan. Ástardrykkur I héraðsfirétta- blaðinu Austra er sagt frá því að á fjörur blaðsins hafi rekiö uppskrift að ástardrykk sem sagður er hafa reynst afar vel og skilað allt að þvi hundrað prósent ár- angri. Upp- skriftin er á þessa leið: Ein app- lesína, 44 kafiibaunir, tíndar í tungs- ljósi af hreinni mey á kaffiekrum Kólumbíu, 44 sykurmolar og einn lítri af landa. Kaffibaununum er stungið í appelsínuna, sykurmolarn- ir leystir upp í landanum sem síöan er hefit yfir. Lögurinn er geymdur í góðu íláti í 44 daga og er hann þá til- búinn til notkunar. Drykkurinn brúkast jafnt af báöum kynjum en æskilegt er að hefja töku hans á fullu tungli. Hæfilegur dagskammtur er ein matskeið. í Austra er einnig skýrt frá því aö á Húsavík sé maður að nafni Hörður Jónsson og sé hann orðhag- ur. Hann hefur það að tóm- stundastarfi að finna upp ný- yi’ði yfir ýmis fyrirbæri sem ekki hafa feng- ið íslenskt heiti. Hann mun til að mynda hafa fundið upp orðið flkill á sínum tíma. Þaö orð hefur nú unnið sér fastan sess i málinu. Sem kunn- ugt er hefur svo nefht karaoke notið mikilla vinsælda víöa um land síð- ustu árin. Nýjasta hugmynd Harðar er íslenskt orð yfir karaoke og er það tónhjarl. Svo er bara að vita hvort orðið festist í málinu, segir Austri. Niðurskurðardeild Um fátt var meira rætt í haust og vetur en þann mikla niðurskurð sem á að eiga sér stað og hefúr átt sér stað í heil- brigðiskerfmu, Þar hefur lokun ýmissa deilda uppvakið mikl- ar deilur, sem og ýmislegt ann- að sem lent hefur undir niðurskurðar- hnifhum. í byrjun febrúar birtist frétt í Degi um að upp væri risin og að sperr- ur hefðu verið reistar á viöbyggingu við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. í fréttinni kom fram að byggingin væri 4.000 fermetrar i heild. I tilefni þessa orti Bjöm Þórleifsson á Akureyri. Byggingin er fjögur þúsund fer metrar í heild, og fé í hana ríkið þurfti að moka. Því vakna hlýtur spurning hvort verði þarna deild sem vegna niðurskurðar þarf að loka. Umsjón Sigurdór Sigurdórsson Tónhjarl Fréttir Hundaskilti enn brotin í Öskjuhlíð: Sama hvað við setjum upp mörg - segir hundaeftirlitsmaður Skemmdarverk hafa að undan- förnu verið unnin á sérstökum hundaskiltum sem komið hefur ver- ið fyrir á svæðinu í Öskjuhlíð. Hafa skiltin verið brotin af staurum og einhverjir því orðið fyrir ónæði af hundum í lausagangi. Hundaeigend- um er að jafnaði bannað að láta hunda sína ganga lausa í Öskjuhlíð- inni nema á þar til gerðum svæð- um, t.d. fyrir neðan hlíðina þar sem gamla braggahverfið var. Að sögn hundaeftirlitsmanns er talsvert álag á Öskjuhlíðarsvæðinu, sérstaklega um helgar eða þegar eitthvað mikið stendur tU í ná- grenninu, t.d. i Perlunni. Fáar kvartanir hafi þó borist þaðan að undanförnu. Sex skiltum hafi verið komið fyrir á helstu leiðum en alltaf séu einhverjir á ferli sem eyðUeggi þau með því að brjóta þau og juða i sundur. í raun eigi að vera auðvelt fyrir hundaeigerfdur að fara um svæðið án þess að valda öðrum óþægindum en vegna skemmdar- verkanna hafi einhverjir augljós- lega ekki gert sér grein fyrir hvar hundar þeirra mættu ganga lausir og hvar ekki. „Það er í raun alveg sama hvað við setjum upp mörg skUti, það eru ailtaf einhverjir sauðir sem þurfa að láta ljós sitt skína,“ segir hundaeft- irlitsmaður hjá Reykjavíkurborg. „Við vinnum um helgar ef við teljum ástæðu til þess, t.d. þegar veðrið er sérstaklega gott og margir eru á ferli með hundana sína. Við reynum að sinna neyðartUfeUum ef þau koma upp og erum mjög oft á símavakt, nema þegar við tökum frí af persónulegum ástæðum. Fólki ber einnig að beina svona málum tU lögreglunnar." -BH Hornafjörður reynslusveitarfélag: Mikið í húfi að vel takist til og sjúkra eins og kostur er,“ segir í frétt frá bæjarstjórninni. J.I. TOPP RM a 544 2323 Líkamsrækt fyrir venjulegt fólk. Aerobic-pallar fyrir konur og karla. Hin vinsælu 8 vikna fitubrennslunámskeið hefjast 5. mars. Lokaðir hópar fyrir konur (sem vilja losna við 10-30 kg). Sértímar fyrir karla. Opnir og blandaðir hóptímar fyrir fjörugt og hresst fólk (sem vill losna við 0-15 kg). Átaksklúbbur 20. aldar. Barnagæsla 9-15.30. Morguntímar - hádegistímar - miðdegistímar - kvöldtímar. Ljós- og nuddstofa. Konutímar - karlatímar - unglingatímar - par- hópar - frúartímar. Vigtun og mæling - Matarlistar - Fyrirlestrar. Kynningar sjá um: Snyrti- og hárgreiðslustofan Saloon Ritz Heiðar Jónsson snyrtir Verslunin Stórar stelpur. iJiuc/io- JTlöanu/ SMIÐJUVEGI 1 KÓPAVOGI, SÍMAR 544 2323 - 551 3066 OG 895-0795 Hornafjörður er eitt af 12 reynslu- sveitarfélögum landsins og þau reynsluverkefni sem bæjarstjórn Hornafjarðar sótti um voru heil- brigðis- og öldrunarmál, atvinnu- mál, rekstur framhaldsskóla, gæða- eftirlit með þjónustu bæjarfélagsins og félagslegt íbúðarhúsnæði. Af þessum málaflokkum eru heil- brigðis- og öldrunarmálin lengst á veg komin og hefur samningur þess efnis verið undirritaður af Stur- laugi Þorsteinssyni, bæjarstjóra á Höfn, og ráðherrunum Ingibjörgu Pálmadóttur heilbrigðisráðherra og Páli Péturssyni félagsmálaráðherra. Þetta er fyrsta reynsluverkefnið sem sveitarfélagið tekur að sér og nær það yfir rekstur heilsugæslu- stöðvar, hjúkrunarheimilis, elli- heimilis, heimahjúkrunar og heim- ilisþjónustu. Samið hefur verið um að bæjarfé- lagið fái fasta grunnfjárhæð á hverju ári til að geta staðið við skuldbindingar samningsins. Samningurinn gildir frá 1. jan. 1996 til 31. des. 1999. Gert er ráð fyr- ir að óháður aðili, Hagvangur hf., fylgist með framgangi verkefnisins. Með því að gera þennan samning vill bæjarstjórn Hornafjarðar ná eft- irfarandi markmiðum: Að tryggja eins og kostur er þá þjónustu sem upp á er boðið í dag og auka við hana eftir þvi sem þörf krefur og fjármagn leyfir; að gera stjórnun í málaflokkum skUvirkari og að nýta fjármagn eins vel og kostur er. HeU- brigðis- og öldrunarráð Austur- SkaftafeUssýslu mun, í umboði bæj- arstjórnar Hornafjarðar, gegna hlut- verki rekstrarstjórnar. Fram- kvæmdaráð skipa Máni Fjalarsson yfirlæknir, Anna Sigurðardóttir framkvæmdastjóri og Guðrún Júlía Jónsdóttir hjúkrunarforstjóri. „Hér er um merkilega tilraun að ræða sem verður leiðbeinandi fyrir ríki og sveitarfélög um fyrirkomu- lag í málaflokkum. Mikið er í húfi að vel takist að tryggja hag aldraðra ÓJHLii HflTIÐ Föstucfeg 1. mar s og Laugardag 2. irars Eriar rMtirrpr í bo>i, ElcMBka, Bssk' s og Jíl fusar P. Gu>jcnsscnar íétí>in befst kL. 1300 og staxbr til kl. 2100, bá>a cfegana

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.