Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1996, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1996, Blaðsíða 19
FÖSTUDAGUR 1. MARS 1996 27 Viðar Eggertsson og leikhúsráð komust að samkomulagi: Tillögur um starfslok leikara afturkallaðar andi lögfræðiálit um hvort leikhús- stjóri þurfi að bera leikaraval undir leikhúsráð og hvort meirihluta leik- húsráðs hafi verið stætt á að afsala sér rétti til afskipta af uppsögnum og ráðningum á fundi í janúar sl. Sú ákvörðun var einmitt mjög gagn- rýnd af leikurum. DV barst afrit af einu lögfræðiá- litanna sem unnið var fyrir Þor- stein Gunnarsson leikara. Þar segir að samkvæmt lögum LR þurfi sam- þykki leikhúsráðs fyrir fastráðn- ingu og uppsögnum starfsmanna og leikhússtjóri sé ekki einn valdbær. Viðar sagði að í öðru lögfræðiáliti hefði hið gagnstæða komið fram. -bjb Hafnarfjarðarleikhúsið Hermóður og Háðvör: Himnaríki á tvær hátíðir Nemendur Menntaskólans á Laugarvatni frumsýndu um síðustu helgi leikritið Ég vil auðga mitt land eftir Þórð Breið- fjörð. Þórður er dulnefni „Matthildinganna" Davíðs Oddssonar forsætisráðherra, Hrafns Gunnlaugssonar kvik- myndaleikstjóra og Þórarins Eldjárns rithöfundar. Davíð og Hrafn voru viðstaddir frumsýninguna og eru hér hylltir að lokinni vel heppnaðri sýningu ásamt Brynju Benediktsdóttur leikstjóra sem einnig setti verkið upp þegar það var fyrst sýnt í Þjóðleikhúsinu fyrir rúmum 20 árum. Tónlist er eftir Atla Heimi Sveinsson. Menntskælingar munu sýna tvisvar á Selfossi í dag og nk. sunnudag verða tvær sýningar í Loftkastalnum í Reykjavík, klukkan 5 og 9. -bjb/DV-mynd: Rannveig Pálsdóttir „Ég tilkynnti leikhúsráði að ég muni draga til baka starfslokasamn- inga sem ég hafði áður kynnt leik- urum og lít svo á að það mál sé úr sögunni. Allar tillögur sem ég bar upp um skipan fastráðins leikhóps næsta leikár voru samþykktar. I því felst að tillögur mínar um uppsagn- ir og ráðningar voru samþykktar. Þannig að ég er mjög vel sáttur við þennan fund og get farið að einbeita mér að undirbúningi næsta leik- árs,“ sagði Viðar Eggertsson, leik- hússtjóri Leikfélags Reykjavíkur, í samtali við DV eftir fund með leik- húsráði félagsins í Borgarleikhús- inu í gærmorgun. Aðalmál fundar- ins var samþykkt félagsfundar LR frá þriðjudagskvöldi þess efnis að Hafnarfjarðarleikhúsið Hermóð- ur og Háðvör hefur þekkst boð um að koma á tvær stórar og virtar leiklistarhátíðir erlendis i sumar með leikritið Himnaríki eftir Árna Ibsen. Um er að ræða hátíðir í Stokkhólmi í byrjun maí og í Bonn í Þýskalandi í byrjun júni. Að sögn Þórhalls Gunnarssonar hjá Hafnar- fiarðarleikhúsinu komu bæði boðin í kjölfar heimsókna fulltrúa hátíð- anna til Islands þar sem verk at- vinnuleikhúsanna voru skoðuð. Þórhallur sagði að boðin væru óneitanlega mikil viðurkenning fyr- ir leikhúsið og leikrit Árna. Himnaríki hefur slegið í gegn í vetur í Bæjarútgerðinni í Hafnar- firði. Að baki eru 49 sýningar fyrir troðfullu húsi þannig að um helgina fer fram 50. sýning. Óþarft er að taka fram að uppselt er á þá sýn- ingu. Leiklistarhátíðin í Riksteatern í Stokkhólmi er haldin árlega og er ein sú stærsta á Norðurlöndum. Þar er sýnt úrval sænskra leikrita auk valinna verka frá öðrum löndum. Þess má geta að Hafnarfjarðarleik- húsið er nýkomið frá Bergen í Nor- egi þar sem Himnaríki var sýnt við góðar undirtektir. I Bonn verða sýnd bestu nýju leikritin sem setta hafa verið upp í Þýskalandi auk nokkurra leikrita sem aðstandendur hátíðarinnar hafa valið sérstaklega. Alls eru þetta 24 verk. „Við erum mjög stollt. Þetta er endanleg viðurkenning á okkar starfi, ekki síst starfsstyrkurinn frá menntamálaráðuneytinu sem við fengum nýlega til tveggja ára, að til- lögu leiklistarráðs. Hann nemur 16 milljónum króna og gerir okkur kleift að setja upp tvær til þrjár leiksýningar á ári,“ sagði Þórhallur en tvö stór verk hafa verið valin til sýninga næsta vetur og verið er að ganga frá því þriðja þessa dagana. Þórhallur vildi að svo stöddu ekki upplýsa hvaða verkefni þetta eru. -bjb - mismunandi lögfræðiálit lágu fyrir - 50. sýning í Bæjarútgerðinni um helgina Úr uppfærslu Hafnarfjarðarleikhússins Hermóður og Háðvör á leikritinu Himnaríki eftir Árna Ibsen. Leikhúsinu hefur verið boðið á tvær virtar leiklist- arhátíðir í Evrópu í sumar. leikhússtjóri skuli bera uppsagnir og ráðningar leikara undir leikhús- ráð framvegis. Viðar vildi ekki ræða mál ein- stakra leikara. Þeir starfslokasamn- ingar sem hafa þó verið afturkállað- ir, samkvæmt bestu upplýsingum DV, eru við Valgerði Dan, Sofflu Jakobsdóttur og Jón Hjartarson. Eftir stendur uppsögn Guðmundar Ólafssonar og ákvörðun Þrastar Leós Gunnarssonar að hætta í Borg- arleikhúsinu. Þá hefur Sigurður Karlsson, starfandi formaður leik- húsráðs, sagt sjálfur upp störfum. Ekki náðist í Sigurð í gær til að kanna hvort uppsögnin stæði enn. Fyrir fund félagsmanna LR og leikhúsráðsfund lágu fyrir mismun- Viðar Eggertsson. Ný sagnfræðibók: Konur og vígamenn Sagnfræðistofnun og Háskóla- útgáfan hafa sent frá sér bókina Konur og vígamenn - Staða kynj- anna á íslandi á 12. og 13. öld, eft- ir Agnesi S. Arnórsdóttur. Þar er kannað hvaða áhrif konur höfðu á gang mála á íslandi á síðustu öldum íslenska þjóðveldisins og hver staða kvenna var í ætt, hjónabandi, frillusambandi, stjórnmálaátökum og ófriði. Agnes sækir heimildir sínar einkum í Sturiunga sögu og Grá- gás og sýnir áþreifanlega fram á að miðaldaheimildir okkar eru auðugari af efni um konur en marga mun hafa grunaö. Agnes er nú í doktorsnámi í sagnfræði í Osló en hún lauk BA- prófí í sagnfræði frá Háskóla íslands árið 1984. Hún lauk kandídats- prófi árið 1991 en bókin er unnin upp úr kandídatsritgerð sem skrifuð var við Björgvinjarhá- skóla. Þetta er tólfta bindi í rit- röðinni Sagnfræðirannsóknir sem Sagnfræðistofnun Háskólans hefur gefið út frá 1972. -bjb __________Menning Smásagna- keppni Dags og MENOR Menningarsamtök Norður- lands, MENOR, og dagblaðið Dagur efna í ár í fjórða sinn til samkeppni um bestu frumsömdu smásöguna. Fyrst fór keppnin fram veturinn 1989-1990, næst árið 1992 og síðast árið 1994. Þátt- takan hefur ávallt verið mikil og góð. Þrjár sögur verða verðlaun- aðar og birtar í Degi. Skilafrestur er til 10. apríl og sögumar skal senda tO MENOR, Hrísalundi la, pósthólf 328, 600 Akureyri. Sögurnar mega að há- marki vera 8-10 blaðsíður í A-4 stærð. Dómnefndina skipa Sigur- laug Gunnarsdóttir menntaskóla- kennari, Vigfús Björnsson rithöf- undur og Kristján Kristjánsson dósent. Vaka-Helgafell stofnar tónlistarklúbb Vaka-Helgafell hefur haslað sér völl á nýju útgáfusviði með stofnun tónlistarklúbbs en fyrir- tækið hefur verið kunnara fyrir klúbba sem boðið hafa félögum bækur og tímarit. í fyrstu verður boðið saíh geislaplatna sem hlot- ið hefur heitið Meistarar sígildr- ar tónlistar. Félagar í tónlistarklúbbnum fá senda heim í mánuði hverjum geislaplötu með verkum tón- skálda sem sagan hefur skipað í fremstu röð. Má þar nefna Moz- art, Bach, Beethoven, Vivaldi, Bizet og Schubert. Fyrsta platan er á sérstöku kynningarverði og kostar 298 krónur með sendingar- gjaldi. Hverri plötu fylgja upplýs- ingar á íslenskum um verkin og höfunda þeirra. Forsenda tónlist- arklúbbsins er samningur sem nýlega náðist við bresk-sviss- neska fyrirtækið Masterstone Multimedia um að Vaka- Helga- fell fengi söluumboð fyrir geisla- plötur Masterstone hérlendis. Þjóðminjasafn sendir út spurningalista Þjóðháttadeild Þjóðminjasafns íslands hefur sent frá sér spurn- ingaskrá um náttúruhamfarir og aukaspurningar um Vestur- heimsferðir. Vegna náttúruham- fara er Þjóðminjasafnið að leita eftir hvers konar alþýðufróðleik og arfsögnum um snjófióð, sjáv- arflóð, skriður, jarðskjálfta, eld- gos og ofsaveður. Jafnframt er leitað eftir sögnum sem menn kunna að hafa heyrt í tengslum við náttúruhamfarir, s.s. um álagabletti og huldubyggðir, kveðskap og ljósmyndum eða ábendingum um tilvist ljós- mynda sem efninu tengjast. Aukaspurningar um Vestur- heimsferðir eru til komnar vegna sýningar sem Byggðasafn Skaga- fjarðar ætlar að setja upp á Hofs- ósi um Vesturheimsferðir. Leitað er ailra þeirra upplýsinga sem hægt er að fá hjá eldra fólki eða afkomendum Vesturheimsfara. Leiðrétting á myndatexta Á menning- arsíðu DV sl. þriðjudag var myndatexti rangur með frétt um út- hlutun úr Söngmennta- sjóði Marinós Péturssonar. Þóra Einarsdóttir söngkona, annar styrkþega, var sögð á myndinni en hið rétta er að systir hennar, Gunnhildur, veitti styrknum við- töku þar sem Þóra var stödd í London. Viðkomandi eru beðnir velvirðingar á þessum mistökum um leiö og mynd birtist hér af Þóru Einarsdóttur. -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.