Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1996, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1996, Blaðsíða 32
1« wmmim§jmsr Verta viðbúin(n) vinnmgi Fimmtudagur 29.2/96 23)(26)(27) KIN FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö I DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið . í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FOSTUDAGUR 1. MARS 1996 Helgarblað DV á morgun: Konurnar tala Þrjár konur sem sakað hafa bisk- * ' up íslands um kynferðislega áreitni segja sína sögu í opinskáu viðtali við DV á morgun. Að venju er helgarblaðið fullt af skemmtilegu efni. Má þar nefna heimsókn á heimili í Mjölnisholtinu þar sem löggan brýtur upp dyrnar en bankar ekki þegar hún lítur inn. Þá er litið á skemmtistaðinn Bó- hem í tilefni af ársafmæli samfellds nektardans á íslandi og rætt við Jó- hann Örn Héðinsson hjá SÁÁ um spilafíkn, svo fátt eitt sé nefnt. Forðaðist alla bæi Leitarmenn í Skagafirði fundu um hádegið í gær Grænlendinginn sem saknað hafði verið í nær tvo sólarhringa. Haföi hann gengið um 25 kílómetra frá Sauðárkróki og forðast alla bæi á leið sinni til fjalla. Sporhundar röktu slóðina en hún var mjög krókótt vegna þess að maðurinn virðist hafa forðast alla mannabyggð. Hann er nú á sjúkra- húsinu á Sauðárkróki, sæmilega vel haldinn, en hefur enn enga skýr- ingu gefið á ferðalagi sínu. -GK Stakk félag- ann í rassinn með skærum Deilum tveggja manna um vín og víf lauk svo í gærkvöld að skæri voru hafin á loft og fékk annar mannanna stungu í rassinn. Stöðvuðust skærin á mjaðmahnú- tunni og var hinn stungni fluttur á Borgarspítalann þar sem gert var að sárum hans. Fékk hann við svo búið að fara heim. Stungumaðurinn var tekinn í ’ yfírheyrslu hjá lögreglunni. Félag- arnir munu sáttir þrátt fyrir þetta litla sem út af bar. -GK Hryggbrotnaði þegar tjakkur á vörubíl sprakk við vegavinnu: Hryggurinn mol- aöist þegar tólf tonna hlass féll - þriðja slysið sem verður á þessum bíl á skömmum tíma „Höggið var svo mikið þegar pallurinn féll að einn hryggjarlið- urinn einfaldlega molaðist þótt maðurinn sæti bara í bílstjóra- sætinu," segir Magnús Bárðars- son, verkstjóri við vegagerð á Skálholtsafleggjaranum, í samtali viö DV. Slysið varð þegar verið var að sturta 12 tonna hlassi af bílnum sem er af gerðinni Mercedes Benz. Svo virðist sem tjakkurinn hafi farið í sundur þegar hann var kominn í toppstöðu og féll bii- pallurinn niður af miklum þunga. Bíistjórinn er ungur maöur og var hann fyrst fluttur á sjúkra- húsið á Selfossi og þaðan á Land- spítalann. Maðurinn fór í aðgerð og sleppur við mænuskaða en einn hryggjarliður er illa brotinn. Þetta er ekki fyrsta slysið sem verður viö notkun á vörubílnum. Skömmu fyrir áramótin valt bíU- inn og slasaðist bílstjórinn, sem þá ók bílnum, alvarlega. Hann tvíhandleggsbrotnaði og afltaug slitnaði i öxl. Síðasta sumar valt billinn einnig en þá án þess að al- varleg meiðsli hlytust af. Magnús Bárðarson sagði að tjakkurinn, sem gaf sig í gær, hefði verið nýr þótt bíllinn væri gamall. Hallast menn helst að því að galli hafl verið í tjakknum en rannsókn á slysinu er ekki lokiö. „Þetta er átta þrepa tjakkur og svo virðist sem þrjú efstu þrepin hafi brotnað af þegar tjakkurinn var í toppstöðu. Þetta var gríðar- legt högg og fúrða að maðurinn skyldi ekki slasast meira,“ sagði Magnús. -GK „Við höldum henni vegiega afmælisveislu um aldamótin þegar hún verður „eins“ árs,“ segir Lára G. Gunnarsdóttir, móðir hlaupársbarns sem fæddist í gær. DV-mynd GS Síldarsamningarnir: Svartsýnn - segir Þorsteinn Pálsson „Nei, ég er ekki bjartsýnn á lausn deilunnar á þessari stundu,“ sagði Þorsteinn Pálsson sjávarút- vegsráðherra um síldarsamningana við Norðmenn, í samtali við DV í morgun . Hann var spurður hvort það út- spil Norðmanna að bjóða íslending- um að veiða ótiltekið magn af síld innan norskrar landhelgi gæti leyst deiluna. „Það hefur alltaf verið mikilvæg- ur þáttur í öllu þessu að það komi til að einhverju leyti gagnkvæmni í veiðiheimildum í landhelgi ríkj- anna. En það eitt og sér leysir ekki deiluna. Aðalatriðið nú er hvort það tekst að ná samstöðu um að minnka heildarveiðina og í því sambandi verða allir að leggja eitthvað af mörkum," sagði Þorsteinn. -S.dór VÍS boðar hækkun vegna dóms Vátryggingafélag Islands segir í yfirlýsingu vegna dóms Hæstaréttar í gær í bótamáli Málfríðar Þorleifs- dóttur að niðurstaðan valdi því að iðgjöld lögboðinna ábyrgðatrygg- inga dráttarvéla hljóti að hækka. Samkvæmt dómnum sé gildissvið þeirra víðara en félagið hafði geng- ið út frá fram að þessu - þ.e. slys sem orsakist af notkun dráttarvéla sem kyrrstæðs aflgjafa hleðsluvagns sé nú bótaskylt. VÍS segir að tilfinn- ingaleg afstaða hafi nokkuð mótað skoðanir þeirra sem hafa fjallað um mál af þessu tagi. -Ótt Hlaupársdagsbörn: „Eins“ árs um aldamótin „Það breytir engu þó að dóttir mín hafi fæðst í gær, hlaupársdag, mér finnst það bara skemmtilegt," sagði Lára Guðrún Gunnarsdóttir, móðir 14 marka stúlkubarns sem kom í heiminn á hlaupársdag, í spjalli við DV aðeins rúmum 4 klukkustundum eftir fæðingu. Stúlkan, sem ekki hefur enn hlot- ið nafn, var hraustleg að sjá og greinilega fegin að vera komin á meðal manna og lét vel í sér heyra. „Hún verður ekki „eins árs“ fyrr en um aldamótin og þá verðum við að halda svaka veislu," sagði Lára en litla stúlkan er annað barn henn- ar og eiginmanns hennar, Lárusar Inga Kristjánssonar. Þegar DV heimsótti fæðingar- deild Landspítalans í gær höfðu 6 hlaupársdagsbörn litið dagsins ljós og tvö voru á leiðinni. -brh ÞETTA ERU GREINILEGA SKÆRUUÞAR! Veðrið á morgun: Hlýtt áfram Veðurstofan gerir ráð fyrir vestlægri átt, stinningskalda, og dálítilli þokusúld við vestur- ströndina. Ánnars staðar er bú- ist við þurru veðri og mjög víða léttskýjuðu og að hitinn verði 5-12 stig. Veðrið í dag er á bls. 36 Sími 533 2000 Ókeypis heimsending 1 K tf J KÚLULEGUR Poulsett JuðurlanasDraut 10. S. 563 6499

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.