Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1996, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1996, Blaðsíða 29
FÖSTUDAGUR 1. MARS 1996 37 DV Örn Árnason og Tinna Gunn- laugsdóttir í hlutverkum sínum. Leigjandinn Þjóðleikhúsið sýnir á Smíða- verkstæðinu í kvöld Leigjand- ann sem er breskt verðlauna- leikrit eftir Simon Burke og hef- ur uppsetning þess hér á landi fengið góðar viðtökur. Sögusvið- ið er lítil borg í Bretlandi. Ung kona með vafasama fortíð kem- ur til borgarinnar í leit að hús- næði og tekur á leigu subbulegt herbergi. Húseigandinn er hlé- drægur náungi og í fyrstu er samband þeirra heldur stirt. Smám saman takast þó nánari kynni með þeim og konan virð- ist eiga möguleika á að hefja nýtt líf. En fortiðin eltir hana miskunnarlaust uppi. Leikhús Tinna Gunnlaugsadóttir leik- ur konuna, Örn Ámason er í hlutverki húsráðandans, Pálmi Gestsson leikur fyrrum sambýl- ismann hennar og Randver Þor- láksson fer með hlutverk vinnu- félaga húseigandans. Auk þeirra leika Anna Kristín Arngríms- dóttir og Stefán Jónsson í leik- ritinu. Leikstjóri er Hallmar Sigurðsson. Sýningar Myndverk úr leir í Stöðlakoti viö Bókhlöðustíg stendur yfir sýning Árdísar Olgeirs- dóttur. Sýnir hún verk úr steinleir með silkiþrykki og verk úr svart- brenndum leir. Myndmálið er sótt í fiskana í sjónum, hreyfingar þeirra og útlit. Þetta er fyrsta einkasýning •Árdísar en áður hefur hún sýnt verk sín á samsýningu Óháöu listahátíðar- innar sem stóð yfir sumarið 1995. Sýning stendur fram yfir helgi. Kolí Borgamesi Hljómsveitin Kol verður á ferðinni um helgina. í kvöld leikur hún í Borgarnesi á veit- ingastaðnum Hreiðrinu og á laugardagskvöld verður hún á Sveitasetrinu á Blönduósi. Mars-festival í tilefhi af því að i dag eru lið- in sjö ár frá þvi bjórinn var lög- leiddur á íslandi hefur Stefnir ákveðið að halda opið hús í sjálfstæðishúsinu í kvöld kl. 21.30. Þar verður krufiö til merkjar hvort tilkoma bjórsins hafi orðið til góðs. Samkomur Laugardagsganga Vikuleg laugardagsganga Hana nú í Kópavogi verður í fyrramálið kl. 10.00. Lagt af stað frá Gjábakka, Fannborg 8. Félagsvist Félag eldri borgara í Kópa- vogu verður með félagsvist að Gjábakka, Fannnborg 8, í kvöld kl. 20.30. Félagsvist og ganga Félag eldri borgara í Reykía- vík verður með félagsvist í Ris- inu kl. 14.00 í dag. Göngu- Hrólfar fara frá Risinu kl. 10.00 í fyrramálið. Antoinie Kamerling leikur ungan mann sem tekur peninga fyrir að vera með miðaldra konum. Svíta 16 Háskólabíó hóf sýningar í gær á erótíska þrillernum Svíta 16 (Suite 16) sem Dominique Derudd- ers leikstýrir en hann vakti at- hygli með Crazy Love sem var sýnd á kvikmyndahátíð Listahá- tíðar fyrir nokkrum árum. Svíta 16 fjallar um Chris, ung- an mann sem tekur peninga fyr- ir að vera með miðaldra konum. Þegar ein þeirra deyr á slysaleg- an hátt í hótelherbergi með hon- um flýr hann inn í fyrsta her- bergi sem hann kemur að, svítu 16. Þar hittir hann fyrir krypp- linginn Glover. Þeir komast að því að þeir geta haft hag hvor af öðrum, sá eldri er moldríkur og fær unga folann til að kaupa Næturgalinn: Sniglabandið Næturgalinn er eini staðurinn í Kópavogi sem býður upp á dans og lif- andi tónlist um helgar en Næturgalinn er að Smiðjuvegi 14. Um þessa helgi er það Sniglabandið sem leikur bæði í kvöld og annað kvöld. Sniglabandið er með reyndari hljómsveitum landsins og hefur starfað í mörg ár með hléum að vísu, auk þess sem sveitin hefur á sumr- in verið með vinsælan útvarpsþátt þar sem hún leikur í beinni útsendingu lög sem hlustendur biðja um. Skemmtanir Það er ávallt mikið um að vera á svið- inu þegar Sniglabandið er á staðnum og er ekki að efa að það verður mikið fjör á Næturgalanum um helgina. Lagaval Sniglabandsins er fjölbreytt. í Snigla- bandinu í dag eru Björgvin Ploder, Ein- ar Rúnarsson, Jakob S. Magnússon, Pálmi J. Sigurhjartarson og Þorgils Björgvinsson. Sniglabandið leikur á Næturgalanum í kvöld og annað kvöld. Fært um alla helstu vegi Fært er um alla helstu þjóðvegi landsins en nokkur hálka er á veg- um, einkum á heiðum og útvegum. Á Austurlandi er þungfært um Breiðadalsheiði og Vatnsskarð Færð á vegum eystra, þá er snjór og hálka á vegum þar sem liggja hátt. Heliisheiði eystri og Móafjarðarheiði eru ófær- ar. Á Vestfjörðum eru heiðar einnig víða ófærar, má þar nefna Dynjand- isheiði og Hrafnseyrarheiði. Vert er að brýna fyrir ökumönnum sem fara út á þjóðvegi landsins um helg- ina að hafa bíla sína vel útbúna fyr- ir aksturinn. E) Hálka og snjór 0 Vegavinna-aögát @ ðxulþungatakmarkanir ossr*0 © Fært fjallabílum Astand vega Dóttir Angelicu og Hannibals r Litla telpan, sem á myndinni sef- ur vært, fæddist á fæðingardeild Landspítaians 19. febrúar kl. 13.21. Barn dagsins Hún var við fæöingu 2.812 grömm að þyngd og 50 sentímetra löng. Foreldrar hennar eru Angelica Contu Davila og Hannibal Sigur- vinsson. Kvikmyndir vændiskonur upp á hótelher- bergi sitt og fylgist með ásta- leikjunum í gegnum falda myndavél og er hinum unga manni ýtt út á sífellt hættulegri brautir. Með hlutverk Glovers fer Pete Postlewaite, sem hlaut frægð fyr- ir leik sinn í The Name of the Father. Nýjar myndir Háskólabíó: Casino Háskólabíó: Svíta 16 Laugarásbíó: Skólaferðalagið Saga-bíó: Dumbo-aðgerðin Bíóhöllin: Bréfberinn Bíóborgin: Heat Regnboginn: Forboðin ást Stjörnubíó: Jumanji Gengið Almennt gengi LÍ nr. 45 1. mars 1996 kl. 9,15 Eininq Kaup Sala Tollqenni Dollar 66,230 66,570 65,900þþ Pund 101,230 101,750 101,370þþ Kan. dollar 48,380 48,680 47,990þþ Dönsk kr. 11,6010 11,6630 11,721 Oþ Norsk kr. 10,2970 10,3530 10,39l0þ- Sænsk kr. 9,8030 9,8570 9,9070þ Fi. mark 14,5190 14,6050 14,6760þ Fra. franki 13,0730 13,1480 13,21 lOþ Belg. franki 2,1790 2,1921. 2,2035þ Sviss. franki 54,9200 55,2200 55,6300þ Holl. gyllini 40,0100 40,2500 40,4700þ Þýskt mark 44,8100 45,0400 45,3000 þ jf. líra 0,04239 0,04265 0,04275 Aust. sch. 6,3670 6,4070 6,4450 þ Port. escudo 0,4321 0,4347 0,4364 þ Spá. peseti 0,5323 0,5356 0,5384þ Jap. yen 0,62660 0,63040 0,63330 írskt pund 104,110 104,760 104,520þþ SDR 96,76000 97,34000 97,18000 ECU 82,8400 83,3400 Símsvari vegna gengisskráningar 5623270 Krossgátan T~ T~ 2 * r 8 lO ‘‘ ll TT" ■■■■ nr TT 1 r 3iP Zl J w Lárétt: 1 dans, 6 féll, 7 aur, 8 lána, 10 barði, 11 jarðvinnslutæki, 12 eyð- ast, 14 lognið, 15 stök, 16 viðbrennd, 17 tungl, 18 róti. Lóðrétt: 1 ólykt, 2 hroki, 3 glugg- inn, 4 hryssu, 5 reið, 6 ófríðan, 9 freki, 13 léleg, 14 er, 16 átt. Lausn á síðustu krossgátu. Lárétt: 1 kind, 5 áss, 8 ála, 9 urt, 10 smuga, 11ÍR, 12 soðning, 15 akka, 17 lak, 19 sauðina, 21 ár, 22 lónar. Lóðrétt: 1 kássa, 2 ilm, 3 kvabb, 4 dugnað, 5 ára, 6 Stína, 7 sorg, 13 ok- ar, 14 ilin, 16 kul, 18 kar, 19 sá, 20 na.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.