Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1996, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1996, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 1. MARS 1996 33 I I Menning r ' ' 1 ^ $ Björk Jónsdóttir, Gerrit Schuil og Signý Sæmundsdóttir voru með skemmtilega tónleika í Borgarleikhúsinu. DV-mynd GS A Ijufum notum Sópransöngkonurnar Björk Jónsdóttir og Signý Sæ- mundsdóttir komu fram ásamt pianóleikaranum Ger- rit Schuil á þriðjudagstónleikum Borgarleikhússins í vikunni. Það er ekki oft sem maður er þess aðnjótandi að fá að heyra tvísöng á tónleikum en ef marka má efnis- skrá þessara tónleika þá er enginn hörgull á frábær- um tvísöngslögum. Tónleikarnir hófust á þrem lög- um eftir Henry Purceli, Let Us Wander, My Dearest, My Fairest og Sound the Trumpet en síðan komu lögin Saper vorrei sem m’ami (Ég yildi ég vissi hvort þú elskar rriig) og Guarda qui che lo vedrai (Horfðu hingað svo þú sjáir það) eftir Joseph Haydn. Þetta eru sannkölluð ljúflingslög og öll eru þau frá- bærlega vel og skemmtilega samin við texta sem allir fjalla um ástina en raunar má segja að allir textar lag- anna á þessum tónleikum fjalli á einn eða annan hátt um það efni. Þær Signý og Björk hafa fyrir löngu haslað sér völl sem frábærar söngkonur og samstarf þeirra á þessum tónleikum var bæði í hæsta gæðaflokki og bráð- skemmtilegt. Ekki má gleyma hlut Gerrit Schuils en hann fór yfirleitt á kostum með fíngerðum, næmum og sérlega músíkölskum leik. Signý söng síðan þrjú lög eftir Haydn. Tvö þau fyrstu voru örlítið tregablandin en mjög falleg og það síðasta kímið. Fór Signý einkar vel með lögin en ekk- ert má út af bera í þessari viðkvæmu tónlist ef hún á að njóta sín. Við fengum þá fjögur skosk þjóðlög og einnig þar fór tónlistarfólk kvöldsins á kostum. Rómantíska tímabilið tók við með lögum eftir Schumann og Brahms og fyrir undirrituðum voru þau hápunktur tónleikanna enda fóru flytjendurnir þrír á flug í flutningnum. Björk söng síðan tvö lög eftir Bizet og einkum í því síðara, Les Adieux de l’Hotesse Arabe (Arabísk kona kveður gest sinn) sýndi hún frábæra takta. Það voru síðan þeir Dvorák og Rossini sem áttu síð- ustu lögin. í La Regata Veneziana (Kappróðurinn í Feneyjum) eftir Rossini stukku þær m.a. hvað eftir annað úr brjósttónum upp í höfuðtóna og fóru bæði létt og einkar vel með. Þetta voru skemmtilegir tón- leikar. Tónlist Áskell Másson Fréttir Undirbúningur fyrir komu 25 flóttamanna frá fyrrum Júgóslavíu: Beðið eftir grænu Ijósi frá Flóttamannastofnuninni „Við höfum verið að þrýsta á um . svör frá Flóttamannastofnun Sam- ’ einuðu þjóðanna um það hverjir það verða úr hópum flóttamanna frá ríkjum fyrrum Júgóslavíu sem ( koma hingað til lands. Það er ákveð- ið að 25 komi til íslands og það verð- ur reynt að velja þá sem eiga hvað erfiðast uppdráttar, fólk úr blönduð- um hjónaböndum þar sem t.d. Serbi er giftur Króata. Rauði krossinn mun að sjálfsögðu aðstoða okkur við valið en það ríkir enn talsverð óvissa um þessi mál og menn hafa verið hikandi við að gefa okkur svör,“ segir Berglind Ásgeirsdóttir, formaður flóttamannaráðs. Ríkisstjórnin tók í fyrra ákvörð- un um að taka á móti flóttamönnun- um og í kjölfarið barst boð frá ís- firðingum um að veita þeim nauð- synlegt húsnæði og þjónustu. „Það ríkir fullur vilji, bæði af hálfu yfirvalda og annarra, um að taka strax á málinu en það er allt í biðstöðu því við bíðum enn eftir grænu ljósi frá Genf. Við getum ekki sagt til um það hvort fólkinu verður komið fyrir á ísafirði, það veltur á því hversu mörg börn verða í hópnum og hvort t.d. ein- hverjir þurfa á sérhæfðri heilbrigð- isþjónustu að halda. Þó er raunhæft að búast við að hópurinn komi til landsins í vor.“ Undirbúningur af hálfu Rauða kross íslands stendur nú sem hæst og þar er ákvörðunar beðið í þess- um efnum. Lögð verður áhersla á að veita fólkinu andlegan stuðning og áfallahjálp auk þess sem þjónusta ýmiss konar verður tryggð. Boðið verður upp á íslenskukennslu og leitað aðstoðar þeirra Júgóslava sem búsettir eru á íslandi. Tillcynmngar Föstudagur 1. mars Hallgrímskirkja: Kyrrðarstund með lestri Passíusálma kl. 12.15. Langholtskirkja: Aftansöngur kl. 18.00. Lestur Passíusálma fram að páskum. Laugarneskirkja: Mömmumorg- unn kl. 10-12. Markaðsdagur. Nemendur Menntaskólans á Laugarvatni verða á ferðinni um helgina og sýna leikritið Ég vil auðga mitt land á tveimur stöðum. Sjá frekari uppl. á bls. 19. Leikhús LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR SÍMI 568-8000 STÓRA SVIÐ KL. 20.00: ÍSLENSKA MAFÍAN eftir Einar Kárason og Kjartan Ragnarsson Lau. 2/3, fáein sæti laus, föd. 8/3, fáein sæti laus, föd. 15/3, fáein sæti laus. LÍNA LANGSOKKUR eftir Astrid Lindgren Sud. 10/3, fáein sæti laus, sud. 17/3, sud. 24/3. Sýningum fer fækkandi. STÓRA SVIÐ KL. 20: VIÐ BORGUM EKKI, VIÐ BORGUM EKKI eftir Dario Fo Fös. 1/3, uppselt, sud. 10/3, fáein sæti laus, laud. 16/3, fáein sæti laus. Þú kaupir einn miða, færð tvo! Samstarfsverkefni við Leikfélag Reykjavíkur: Alheimsleikhúsið sýnir á Litla sviði kl. 20.00: KONUR SKELFA toilet-drama eftir Hlín Agnarsdóttur. Föd. 1/3, uppselt, laud. 2/3, uppselt, sud. 3/3, uppselt, mid. 6/3, fáein sæti laus, fid. 7/3, uppselt, föd. 8/3, uppselt, sud. 10/3 kl. 16, uppselt, mid. 13/3, fáein sæti laus. Barflugurnar sýna á Leynibarnum kl. 20.30: BAR PAR eftir Jim Cartwright Föd. 1/3, uppselt, laud. 2/3 kl. 23.00, fáein sæti laus, föd. 8/3 kl. 23.00, fáein sæti laus, föd. 15/3, kl. 23.00, fáein sæti laus, 40 sýn. laud. 16/3, uppselt. Tónleikaröð L.R. Á STÓRA SVIÐI KL. 20.30. Þrd. 5/3 Einsöngvarar af yngri kynslóöinni: Gunnar Guðbjörnsson, Hanna Dóra Sturludóttir, Ingveldur Ýr Jónsdóttlr, Sigurður Skagfjörð og Jónas Ingimundarson. Miðaverð 1.000 kr. Höfundasmiðja L.R. laugardaginn 2/3 kl. 16.00. Uppgerðarasi með dugnaðarfasi - þrjú hreyfiljóð eftir Svölu Anrardóttir. Miðaverð kr. 500. Fyrir börnin: Lfnu-ópal, Línu-bolir og Linu-púsluspil. Miðasalan er opin alla daga frá kl. 13-20, nema mánudaga frá kl. 13-17, auk þess er tekið á móti miðapöntunum i sima 568-8000 alla virka daga. Greiðslukortaþjónusta. Gjafakortin okkar - frábær tækifærisgjöf. Leikfélag Reykjavíkur - Borgarleikhús Faxnúmer 568-0383. Tilkynrúngar Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík Verður með sína árlegu merkjasölu um helgina. Merkin verða afhent í húsi deildarinnar, Sigtúni 9, laugar- dag milli kl. 10 og 16. Góð sölulaun. Vorhappdrætti Flugbjörgun- arsveitarinnar í Reykjavík Nú hefur Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík hleypt af stokkunum nýju fjáröflunarverkefni, sem er Vorhappdrætti. Fjöldi góðra vinn- ÞJÓÐLEIKHÖSIÐ STÓRA SVIÐIÐ KL. 20.00: TRÖLLAKIRKJA leikverk eftir Þórunni Sigurðardóttur, byggt á bók Ólafs Gunnarssonar. Tónlist: Hjálmar H. Ragnarsson. Leikmynd: Grétar Reynisson. Búningar: Heiga I. Stefánsdóttir. Lýsing: Elfar Bjarnason. Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson. Leikendur: Anna Kristín Arngrímsdóttir, Arnar Jónsson, Bryndís Pétursdóttir, Eyjólfur Kári Friðþjófsson, Guðrún S. Gísladóttir, Helga Bachmann, Hilmar Jónsson, Ingvar E. Sigurðsson, Jóhann Sigurðarson, Margrét Vilhjálmsdóttir, Róbert Arnfinnsson og Sveinn Þ. Geirsson. Frumsýning í kvöld, örfá sæti laus, 2. sýn. sud. 3/3, 3. sýn. föd. 8/3, 4. sýn. fid. 14/3, 5. sýn. Id. 16/3. ÞREK OG TÁR eftir Ólaf Hauk Símonarson Á morgun, uppselt, fid 7/3; örfá sæti laus, Id. 9/3, uppselt, föd. 15/3, uppselt, sud. 17/3. KARDEMOMMUBÆRINN eftir Thorbjörn Egner Á morgun kl. 14, uppselt, sud. 3/3 kl. 14, uppselt, Id. 9/3 kl. 14, uppselt, sud. 10/3 kl. 14, uppselt, sud. 10/3 kl. 17, uppselt, laud. 16/3, kl. 14.00, nokkur sæti laus, sud. 17/3 kl. 14.00, nokkur sæti laus. LITLA SVIÐIÐ KL. 20.00. KIRKJUGARÐSKLÚBBURINN eftir ívan Menchell Fid. 28/3, sud. 31/3. SMÍÐAVERKSTÆÐIÐ KL. 20.00: Leigjandinn eftir Simon Burke í kvöld, sud. 3/3, föd. 8/3, fid. 14/3, Id. 16/3. Sýningin er ekki við hæfi barna. Ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýning hefst. LEIKHÚSKJALLARINN Ástarbréf með sunnudagskaffinu kl. 15.00. Aukasýning sud. 3/3 kl. 15.00. , Cjafakort í leikhús - sigila og skemmtileg gjöf! Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13.00-18.00 og fram að sýningu sýningardaga. Einnig símaþjónusta frá kl. 10.00 virka daga. Greiðslukortaþjónusta. Fax: 561 1200 SÍMI MIÐASÖLU: 551 1200 SÍMI SKRIFSTOFU: 551 1204 VELKOMIN í ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ! inga er í boði. Dregið verður Sumar- daginn fyrsta, 25. apríl nk. Félag ekkjufólks og fráskilinna Fundur fostudaginn 1. mars kl. 20.30 í Risinu. Nýir félagar velkomnir. Byltingin á Kúbu Málfundafélag alþjóðasinna stendur að kynningu á þókinni „Episodes of the Cuban Revolutionary War“, dag- bók og bréfum Ernesto Che Guevara laugardaginn 2/3 kl. 13.00 að Klapparstíg 26, 2. hæð. Frum- mælandi verður Sigurlaug S. Gunn- laugsdóttir. ÍÞRÓTTIR FYRIR ALLA Ársþing ÍFA verður haldið 28. mars n.k. í íþróttamiðstöðinni í Laugardal, frá kl. 17-19. Dagskrá, venjuleg aðalfundarstörf. STJÓRN ÍFA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.