Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1996, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1996, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 1. MARS 1996 Stuttar fréttir Umsátrinu lokið Hinu langa umsátri um Sara- jveo lauk formlega í gær þegar lögregla sambandsríkis múslíma og Króata tók við stjórninni í Ili- jas- úthverfinu þaðan sem flestir serbnesku íbúanna voru flúnir. Repúblikanar rífast Bob Dole reyndi hvað hann gat að taka ekki þátt i rifrildi keppi- nauta sinna um forsetaút- nefningu repúblikana- flokksins í sjónvarpskappræðum í Suður- Karólínu I gærkvöldi en Pat Buchanan gaf honum engin grið og sagði hann úr tengslum við almenning. ísraelar varkárir Palestínsku skæruliðasamtök- in Hamas hafa boðið ísraelum skilyrt vopnahlé en fyrstu við- brögð eru í varkárari kantinum. Upp og niður Vinsældir Chiracs Frakk- landsforseta eru á uppleið en Juppé forsætisráðherra er á nið- urleið. Áfram á Haítí Öryggisráð SÞ hefur fram- lengt friðargæslu SÞ á Haítí um fjóra mánuði. Hættið aðstoð Tveir bandarískir öldunga- deildarþingmenn vilja að stjóm- völd hætti allri aðstoð við Kól- umbíu vegna eiturlyfjaspilling- ar. Evrósmokkur til sölu Staölaður smokkur er nú kominn í verslanir í löndum ESB og mun hann einnig verða ráöandi á íslandi. Keating sigurviss Paul Keating, forsætisráð- herra Ástralíu, þykist viss um að sigra í kosningunum á morg- un þótt kannanir bendi til ann- ars. Reuter Utlönd Þúsundir manna misstu heimili sfn þegar kofahverfi í Dhaka, höfuðborg Bangladesh, gereyðilagðist í bruna í gær. Vitað var um eitt barn sem fórst í eldhafinu en margra barna er saknað. Á myndinni róta menn í rústunum en inn- fellda myndin sýnir sálarangist konu sem missti allt sitt í eldinum. Símamynd Reuter Bréf kemur Major í vandræða- lega stöðu Opinberun á bréfi sem eiginkona Michaels Howards innanríkisráðherra skrifaði fyrrum íhaldsþingmanni og konu hans hefur komið John Major forsætisráðherra í vandræöalega stöðu. Bréfiö er stflað á Peter Thurn- ham, þingmann sem sagði sig úr þing- flokki íhaldsmanna í síðustu viku og gerðist óháður, og eiginkonu hans. Bréfið var óvart sent á faxi frá skrif- stofu Thurnhams tfl dagblaðs í Bolton. í bréfinu, sem ráðherrafrúin ritaði án vitundar eiginmanns síns, segir meðal annars: „Ég veit hve ilia hefur verið farið með ykkur. Það er hræði- legt.“ í bréfinu segir einnig að Howardhjónin beri mikla virðingu fyr- ir Thurnham og konu hans og að meirihluti íhaldsmanna beri hlýjan hug til þeirra. Með brotthlaupi Thurnhams hafa vangaveltur aukist um að Major neyð- ist tfl að efna tfl kosninga strax á þessu ári en hann viil fresta þeim tfl vors 1997. Reuter Rúmlega eitt hundrað manns fórst í flugslysi í Andesflöllum: Flakið fannst í gljúfri í 2500 metra hæð Farþegaþota af gerðinni Boeing 737 fórst í aðflugi að flugvellinum í Arequipa í suðurhluta Andesfjalla í Perú í nótt og með henni.allir sem um borð voru, 117 farþegar og sex manna áhöfn. „Það er staðfest. Enginn komst lifs af,“ sagði flugvallarstarfsmaður við Reuters-fréttastofuna. Leitarflokkar fundu flak flugvélar- innar í gljúfri í 2500 metra hæð yfir sjávarmáli, nærri Arequipa sem er þúsund kflómetra suður af Lima, höfuðborg Perú. Fjölmiðlar í Perú sögðu að flugvél- in, sem var í eigu perúska flugfélags- ins Faucett, hefði flogið beint á fjall í þoku en embættismenn gátu ekki staðfest það að sinni og sögðu hugs- anlegt að orðið hefði vélarbilun. „Við vitum í raun ekki hvað gerð- ist,“ sagði Jorge D’Acuna, talsmaður Faucett-flugfélagsins. Nokkur fjöldi útlendinga var um borð í vélinni, þar á meðal Argent- ínumenn og Chilebúar, en ekki er vitað með vissu hversu margir þeir voru. Flugvélin fór frá Lima laust eftir miðnætti að íslenskum tíma í nótt og fórst rúmum klukkutíma síðar, að- eins fimm mínútum áður en hún átti að lenda á flugveflinum í Arequipa. Sjónvarpsstöð skýrði frá því að flugmaðurinn hefði séð reyk koma úr öðrum væng vélarinnar áður en hún fórst. Þyrla flaug yfir flugvélarflakinu til að vísa björgunarsveitarmönnum frá Arequipa veginn. Tugir örvæntingarfulíra ættingja og vina farþeganna söfnuðust þegar í stað saman á flugvöflunum í Lima og Arequipa tfl að leita uplýsinga. Fullorðin kona brast í grát og hrópaði í sífellu: „Af hverju hún? Af hverju hún? Af hverju hún?“ Reuter UPPBOÐ Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Skógarhlíð 6, Reykjavík, sem hér segir, á eft- irfarandi eignum:______________ Álftahólar 4, íbúð á 7. hæð, merkt C, þingl. eig. Vigftís Már Vigfússon og Ingunn J. Sigurðardóttir, gerðarbeið- andi Búnaðarbanki íslands, þriðju- daginn 5. mars 1996 kl. 10.00. Bergþórugata 17, 2. hæð, þingl. eig. Sigurður Richardsson, gerðarbeið- endur Gjaldheimtan í Reykjavík og Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, þriðjudaginn 5. mars 1996 kl. 10.00. Depluhólar 5, þingl. eig. Depluhólar 5 hf., gerðarbeiðendur Gjaldheimtan í Reykjavík, Iðnlánasjóður, íslands- banki hf., höfuðst. 500, og íslands- banki hf., þriðjudaginn 5. mars 1996 kl, 10,00,_____________________ Fannafold 94, 2. hæð, merkt 0202, þingl. eig. Jóhannes Gylfi Jóhannsson og Ása Guðmundsdóttir, gerðarbeið- andi Gjaldheimtan í Reykjavík, þriðjudaginn 5. mars 1996 kl. 10.00. Granaskjól 78, þingl. eig. Pétur Bjömsson og Guðrún Vilhjálmsdóttir, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður rík- isins, þriðjudaginn 5. mars 1996 kl. 13.30._________________________ Grensásvegur 5, 1/2 1. hæð austur- hluta og Grensásvegur 7, götuhæð í norðurenda ásamt öllum vélum og tækjum, þingl. eig. Þómnn Guð- mundsdóttir, gerðarbeiðendur Gjald- heimtan í Reykjavík og Iðnlánasjóður, þriðjudaginn 5. mars 1996 kl. 10.00. Hátún 6B, íbúð 03-03, þingl. eig. Helgi Óskarsson, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og Gjald- heimtan í Reykjavík, þriðjudaginn 5. mars 1996 kl. 10.00. Hraunbær 122, 3. hæð f.m., þingl. eig. Ólafía Nongkran Guðmundsson, gerðarbeiðendur Gjaldheimtan í Reykjavík, Lífeyrissjóður Tæknifræð- ingafél. og Sjóvá-Almennar hf., þriðjudaginn 5. mars 1996 kl. 10.00. Hverfisgata 57A, hluti í kjallara og viðbygging, merkt 0001, þingl. eig. Karólína Hreiðarsdóttir, gerðarbeið- andi Byggingarsjóður ríkisins, hús- bréfadeild, þriðjudaginn 5. mars 1996 kl. 13.30._________________________ Hverfisgata 102, íbúð á efri hæð, merkt 0201, þingl. eig. Albert Eiðsson, gerðarbeiðandi Gjaldheimtan í Reykjavík, þriðjudaginn 5. mars 1996 kl. 13.30.________________________ Krummahólar 10, íbúð á 4. hæð merkt A, þingl. eig. Einar Jóhanns- son, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins, þriðjudaginn 5. mars 1996 kl. 10.00.____________________________ Neðstaleiti 26, 60% hluti, þingl. eig. Sigríður Ársælsdóttir, gerðarbeiðend- ur Landsbanki íslands, Höfðabakka, og Lífeyrissjóður Sóknar, þriðjudag- inn 5. mars 1996 kl. 10.00. Skipasund 21, kjallari, þingl. eig. Ás- mundur Þórisson, gerðarbeiðandi Landsbanki íslands, þriðjudaginn 5. mars 1996 kl. 10.00. Skólavörðustígur 20A, þingl. eig. Bú- seti svf., húsnæðissamvinnufél., gerð- arbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins, þriðjudaginn 5. mars 1996 kl. 10.00. Unufell 35, íbúð á 1. hæð t.v., merkt 1- 1, þingl. eig. Vilhjálmur Hjartarson, gerðarbeiðendur Sparisjóður Hafn- arfjarðar og Sparisjóður Reykjavíkur og nágr., þriðjudaginn 5. mars 1996 kl. 10.00._________________________ Vallarás 4, íbúð á 2. hæð og geymsla á 1. hæð, þingl. eig. Júlía B. Árnadóttir, gerðarbeiðandi Kaupþing hf., þríðju- daginn 5. mars 1996 kl. 10.00. Vesturfold 34, þingl. eig. Símon Sverrisson, gerðarbeiðandi Gjald- heimtan í Reykjavík, þriðjudaginn 5. mars 1996 kl. 10.00. SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK UPPBOÐ Framhald uppboös á eftirfarandi eignum veröur háö á þeim sjálf- um sem hér segir: Fífurimi 24, hluti í íbúð nr. 3 frá vinstri á 1. hæð, þingl. eig. Eggert Guðmundsson, gerðarbeiðendur Gjaldheimtan í Reykjavík og Kredit- kort hf., þriðjudaginn 5. mars 1996 kl. 15.30. Frostafold 153, hluti í íbúð á 2. hæð, merkt 0201, þingl. eig. Valgarður Sig- urðsson, gerðarbeiðandi Blossi sf., varahlutaverslun, þriðjudaginn 5. mars 1996 kl. 16.00. Skeifan 17, 3. hæð t.v. (ehl. 4,38%), ásamt tilh. Ióðarréttindum, þingl. eig. Tölvukaup hf., gerðarbeiðendur Gjaldheimtan í Reykjavík, Iðnþróun- arsjóður, íslandsbanki hf., höfuðst. 500, Lífeyrissjóður rafiðnaðarmanna og Sparisjóður Kópavogs, þriðjudag- inn 5. mars 1996 kl. 14.00. Stigahlíð 46, íbúð á 2. hæð og bílskúr fjær húsi, þingl. eig. Ólöf Ingibjörg Jónsdóttir, gerðarbeiðendur Búnaðar- banki íslands, Byggingarsjóður ríkis- ins, Lífeyrissjóður verslunarmanna og Samvinnulífeyrissjóðurinn, þriðjudaginn 5. mars 1996 kl. 13.30. SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK Morðingi föður Jordans dæmdur Kviðdómur í Norður- Karólínu- ríki í Bandaríkjunum komst að þeirri niðurstöðu í gær að 21 árs maður að nafni Daniel Green væri sekur um að hafa myrt föður körfu- boltasnillingsins Michaels Jordans í misheppnuðu vegaráni í júlí 1993. Kviðdómur komst að niðurstöðu sinni eftir fimm klukkustunda fund en á eftir að ákveða hvort refsingin verður lífstíðarfangelsi eða dauða- dómur. Saksóknari sagðist mundu hvetja til dauðadóms. Green, sem breytti nafni sínu i U’allah í fang- elsi, var einnig fundinn sekur um vopnað rán og fyrirætlanir um vopnað rán. Green var svipbrigða- laus meðan dómur var upp kveðinn og sagði við blaðamenn á eftir að þegar spurt væri um líf eða dauða skipti ekkert máli. Lik James Jordans, 53 ára, fannst í skurði nærri ránsstaönum eftir að hans hafði verið saknað. Hann hafði stöðvað bíl sinn við vegkantinn til að fá sér kríublund þegar Green kom við annan mann og skaut hann í brjóstið. Réttarhöldin stóðu í átta vikur og einkenndust af ásökunum á báða bóga. Saksóknari byggði málflutn- ing sinn á framburði Larrys Dem- erys, sem viðurkenndi aðild sína að ráninu í þeirri von að sleppa við dauðadóm. Demery sagðist hafa hjálpað Green að losna við líkið af Jordan eldri eftir að Green hafði skotið hann. Verjendur Greens héldu því hins vegar fram að Dem- ery hefði tekið í gikkinn. Demery sagði Green einnig hafa stolið veski og skartgripum sem Jordan hefði Moröingi föður Michaels Jordans hefur verið dæmdur. Símamynd Reuter fengið að gjöf frá syni sínum. Kveðinn verður upp dómur í máli Demerys síðar og stefnir saksóknari á að fá hann dæmdan til dauða. Enginn af skyldmennum Jordans var viðstaddur dómsuppkvaöning- una. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.