Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1996, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1996, Side 28
36 FÖSTUDAGUR 1. MARS 1996 Fer mikil leikstarfsemi fram í Al- þingishúsinu? Brúðuleik- húsið við Austurvöll „Brúðuleikhúsið hefur tekið til starfa, vinsælasta uppákoman er sögð vera uppfærslan á „Heil- brigðisráðherrann Ragnar Reykás lætur verkin tala“. Guðmundur Þ.B. Ólafsson, um Al- þingi, í Alþýðublaðinu. Þora ekki að daema á Akureyri „Það virðist svo sem dómar- arnir þori ekki að dæma hérna fyrir norðan, þeir guggna þegar Ummæli á hólminn er komiö.“ Ólafur Stefánsson, Val, i Morgun- blaðinu. Forsetaumræðan víkur „Mér finnst hins vegar sem öll umræða sé dottin niður um for- setaframboð í dag. Hún hefur vikið fyrir öðru, því miður.“ Séra Pálmi Matthíasson, í Tíman- Eitthvað að þegar menn eru sammála „Handbolti á að vera skemmt- un sem menn geta rætt um enda- laust og helst að vera aldrei sam- mála síðasta ræðumanni. Þegar menn fara að verða sammála er eitthvað mikið að.“ Gils Stefánsson, í Morgunblaðinu. Miklar tækniframfarir hafa orðið í skurðiækningum á þessari öld. Skurðaðcerðir fyrr á ölaum Fyrsta skurðaðgerðin á mannslíkama, sem vitað er um, var gerð á nýsteinöld (5000-2500 f. Kr.). Var um aflimun að ræða. Að vísu er til enn eldra dæmi um aflimun. Beinagrind af Neanderdalsmanni, sem uppi var fyrir 45.000 árum, fannst í Zagros-fjöllum í írak og vantaði á hana hægri handlegginn. Rannsóknir sýndu að hvorki var um tilviljun né slys að ræða. Krufning Það var krufningum að þakka að rannsóknir í líffærafræði hófust að nýju á 14. öld og skurð- lækningar tóku aö þróast. Talið er að fyrsta krufning á manns- líkama við evrópskan háskóla hafi verið gerð í Bologna 1281. Blessuð veröldin Italski líffærafræðingurinn Mondino di Luzzi hikaði ekki við að lýsa þeim krufningum sem hann framkvæmdi í riti sínu, Anatomia, 1316. Lækna- deildin í Montpellier fékk heim- ild tU krufningar 1375. Hertoginn af Anjou gaf út tilskipun þess efnis að lík einnar manneskju, sem tekin hafði verið af lífl, skyldi fært háskólanum á ári hverju til krufningar. Á Spáni hófust krufningar 1391 og í Vín- arborg 1404. Súld um landið vestanvert Skammt vestur af írlandi er nærri kyrrstæð 1045 millíbara hæð- Veðrið í dag armiðja en við Suður-Grænland er lægð á leið norður. í dag verður suð- vestankaldi eða stinningskaldi, þokuloft og sums staðar súld um landið vestanvert, annars heldur hægari vestanátt og þurrt. Léttskýj- að á Suðaustur- og Austurlandi. Hiti 2 til 8 stig. Á höfuðborgarsvæðinu er suðvestankaldi, þokuloft og súld með köflum. Hiti um 6 stig. Sólarlag í Reykjavík: 18.47. Sólarupprás á morgun: 8.31. Síðdegisflóð í Reykjavik: 17.23. Árdegisflóð á morgxm: 4.59 Heimild: Almanak Háskólans. Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri skýjaö 11 Akurnes léttskýjað 2 Bergsstaðir alskýjað 6 Bolungarvík hálfskýjaó 8 Egilsstaðir hálfskýjað 9 Keflavíkurflugv. skýjað 6 Kirkjubkl. skýjað 6 Raufarhöfn skýjaó 4 Reykjavík þokumóða 6 Stórhöfói þokumóða 6 Helsinki skýjaó -7 Kaupmannah. léttskýjaó -1 Ósló léttskýjað -0 Stokkhólmur snjókoma -2 Amsterdam rign. á síð. kls. 3 Barcelona heiðskírt 6 Chicago heiðskírt -8 Frankfurt snjóél á síó. klst. 1 Glasgow léttskýjaó 3 Hamborg skýjaó 1 London mistur 4 Los Angeles alskýjað 13 Lúxemborg skýjað -0 París hálfskýjaó 4 Róm léttskýjaó 4 Mallorca léttskýjað 1 New York heiöskýrt -3 Nice heiðskírt 7 Nuuk snjókoma -1 Orlando alskýjað 15 Vín skúr á síðst. klst. 3 Washington léttskýjaó -2 Winnipeg léttskýjað -16 > Jéf | :í 11 * Jfy—T' ’ /• 6° 7' ' #5° -• / /j Veðrið kl. 6 í morgun Benedikt Kristjánsson, framkvæmdastjóri Bókamarkaðarins: Þurfti að ræsa út meiri „Þetta hefur gengið vonum framar og betur en ég átti nokkurn tímann von á. Því er ekki að neita að ég var dálítið taugatrekktur áður en opnað var en þær áhyggjur voru alveg ástæðulausar. Ég er búinn að stjórna bókamarkaðinum í tutt- ugu ár og reynslan hefur sýnt að aðsóknin er alltaf mest fyrstu helgina en tiltölulega rólegt í miðri viku og því lét ég ekki nema hluta af því starfsfólki sem var um helgina koma á mánudaginn. Fljótlega þurfti ég samt að ræsa út fólk og tvöfalda mannskapinn og þannig hefur þetta veriö alla vik- Maður dagsins una,“ segir Benedikt Kristjánsson, framkvæmdastjóri Bókamarkaðar Félags íslenskra bókaútgefenda. Benedikt var spurður af hverju Perlan hefði orðið fyrir valinu í þetta skiptið: „Við höfum verið á hrakhólum með húsnæöi, höfum verið með húsnæði sem er á milli eigenda eða aðeins hægt að leigja í stuttan tíma og i raun höfum við aldrei getað verið vissir um hvar Benedikt Kristjánsson. við yrðum næst. Við vitmn aftur á móti að Perlan er á sínum stað og mun vera þarna í framtíðinni og Perlan hefur verið leigð út til ým- iss konar starfsemi á borð við það sem við erum að gera. Þetta er fal- legt hús og allir vita hvar Perlan er og þótt hún sé eitthvað dýarari en annað húsnæði sem við höfum verið með þá eru kostimir á móti svo margir, meðal annars næg bílastæði. Það er því von mín að nú séum við búnir að finna okkur stað þar sem við getum verið í framtíðinni. Fólk sem hefur komið hingað hefur einnig tekið þessum mannskap stað vel og þeir viðskiptavinir sem koma ár eftir ár og eru orðnir kunningjar mlnir hafa verið að klappa mér á bakið og lýsa yfir ánægju sinni með staðinn." Benedikt sagði að markaðurinn væri með hefðbundnu sniði: „Það sem er öðruvísi er að aldrei hefur verið eins mikið af titlum og úr- valið af barna- og unglingabókum er kannski sérstaklega mikið. Þetta kemur til af því að nú eru settar á markaðinn bækur sem gefnar voru út 1993 en það var mjög stórt ár í bókaútgáfu." Benedikt bjóst við mikilli að- sókn um helgina: „Við erum að undirbúa ýmislegt fólki til skemmtunar um helgina. Ekki er samt allt komið á hreint en ég reikna með að þá verði sælgætis- skynningar og á sunnudaginn verða óvæntar uppákomur. Starf Benedikts við bókamark- aðinn er aðeins tímabundið. Aðal- starf hans er útgáfustjórn hjá Skjaldborg. Eiginkona Benedikts er Rósa Kristjánsdóttir, djákni og hjúkrunarfræðingur, og þau eiga þrjú börn, Kolbrúnu, Kristján og Kristrúnu. -HK Myndgátan Lausn á gátu nr. 1457: „ÞerrA skaltu &OKÐA FY/ZÍf^ Aí> 'OHiýoNASr.f'' -eyþoR,— EVþoft— Meðalsamdráttur Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði. DV Þrír leikir í kvennakörf- unni Það verður mikið um að vera í íþróttum um helgina og nú fara úrslitin að ráðast í deildakeppn- um, bæði í handbolta og körfu- bolta, og við tekur spennandi úr- slitakeppni. Það er hart barist í 1. deild kvenna í körfuboltanum íþróttir og þar ber helst til tíðinda í dag að þrír leikir eru hjá kvenfólk- inu. Keflavík hefur sem fyrr haft forystu I deildinni ásamt Breiða- bliki. Þessi lið léku saman í sautjándu umferð á miðviku- dagskvöld og sigruðu Suður- nesjastúlkur. í kvöld leika ÍA og ÍR á Akranesi, í Hagaskóla leika KR og ÍS og á Sauðárkróki leika Tindastóll og Njarðvík. Allir leikimir hefjast klukkan 20.00. TÓNLISTARKROSSGÁTAN NR. 101 Lausnir sendist til: Rásar 2 Efstaleiti 1150 Reykjavík Merkt: TONLISTARKROSSGÁTAN Bridge Bridgespilurum er löngum tíð- rætt um líkur á því að þessi og þessi lega komi upp við spilaborðið. Um líkurnar á algengustu stöðunum þekkja flestir, einföld svíning gefur yfirleitt 50% líkur, líkur á að 6 spil andstæðinga falli 3-3 eru rúmlega 35% og svo framvegis. Um hinar óalgengari stöður er heldur erfiðara að spá um. Til dæmis eru stjarn- fræðilega litlar líkur á því að sömu spil komi upp á allar hendur tvisvar sinnum í sama leiknum. Á Flug- leiðahátíð í sveitakeppni á dögun- um gerðist það að spilararnir tóku upp eftirfarandi hendur: * ÁD43 V G9 ♦ G93 « ÁD43 * G102 » K862 * K85 * G102 4 986 44 D75 ♦ D764 * 986 Þetta var fyrsta spilið í leiknum. í fimmta spili fengu spilararnir upp eftirfarandi hendur: ♦ ÁD43 V G93 ♦ G9 4 ÁD43 4 K75 44 Á1043 ♦ Á103 * K75 ♦ 986 44 D75 ♦ D764 ♦ 986 4 G102 44 K86 4 K852 * G102 Norður var sá fyrsti sem leit á spilin sín og sagði strax: „Við erum búnir að spila þetta spil.“ Hinir spil- ararnir við borðið skoðuðu sín spil og voru strax sammála norðri. En örfáum spilum síðar uppgötvuðu spilararnir að hendurnar voru ekki nákvæmlega eins og þurftu því að spila spilið. Hendur allra eru nánast eins, hendi suðurs reyndar alger- lega. Hverjar líkurnar eru á því að svona staða komi upp treystir dálkahöfundur sér ekki til að reikna út. ísak Öm Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.