Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1996, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1996, Side 2
LAUGARDAGUR 9. MARS 1996 DV fréttir Fermingarbarnamót á Löngumýri í Skagafirði: Presturinn og 28 börn fengu niðurgang - sterkur grunur á matareitrun af kjötbollum eða hakkrétti Sterkur grunur leikur á að 28 af 55 fermingarbömum frá Sauðárkróki hafi fengið matareitrun í vikunni þegar heim kom af fræðslusamkomu á Löngiunýri í Skagafirði sem haldin var á mánudag og þriðjudag. Prestur- inn veiktist sömuleiðis og þrír af fjór- um fullorðnum fararstjórum sem voru með í fór. Fermingarbömin hafa meira og minna verið frá skóla vegna matareitrunarinnar en enginn hefur lagst á sjúkrahús vegna þessa. Vitað er um fleiri böm en þessi 28 sem hafa fengið snert af matareitrun. Orsök veikindanna liggur ekki fyr- ir. Sigurjón Þórðarson, heilbrigðis- fulltrúi Skagaflarðar, staðfesti í sam- tali við DV að saursýni hefðu verið tekin og sett í ræktun. Hann sagði rökstuddan grun vera fyrir matar- eitrun en litlar líkiu væra á salmon- ellusýkingu. Veikindin hafa einkum lýst sér sem niðurgangur, uppköst og ógleði og i verstu tilfellum þrálátir magaverkir. Sigurjón sagðist ekki hafa heyrt um að bömin hefðu feng- ið hita en hár hiti er einmitt algengt einkenni salmonellusýkingar. Sigur- jón reiknaði með niðurstöðu úr rækt- uninni fljótlega. Fermingarbömin borðuðu tvær heitar máltíðir í ferðinni. í fyrra skiptið yora kjötbollur á boðstólum og í seinna skiptið hakkréttur sem innihélt pylsubita. Ekki liggur fyrir hvor rétturinn olli matareitrun. Þó liggur fyrir að sá fararstjóranna sem ekki veiktist sleppti seinni réttinum þannig að hakkið eða pylsurnar liggja mest undir grun. í samtali við DV viðurkenndi sr. Gísli Gunnarsson í Glaumbæ, sem sinnir Sauðárkróksprestakalli i fjar- veru Hjálmars Jónssonar, að hafa fengið niðurgang skömmu eftir að hann kom heim frá Löngumýri. Hann vildi að öðra leyti ekki tjá sig um málið fyrr en ljóst væri hvað olli veikindunum hjá honum og ferming- arbömunum. -bjb Fundur NEAFC í London: Engin niöur- staða enn Lítið gekk á fundi NEAFC, Norðaustur-Atlantshafs-fisk- veiðinefndarinnar í London í gær um að ná samkomulagi um stjóm veiða á úthafskarfa. Að sögn Jóns B. Jónassonar, skrifstofustjóra í sjávarút- vegsráðuneytinu, síðla dags í gær myndi þaö veröa ljóst með kvöldinu hvort einhvers konar samkomuiagsgrund- völlur skapaðist. í fyrradag kom fram mála- miðlunartillaga en samkvæmt henni gæti ísland fengið 40-45 þúsund tonna kvóta. Formað- in- íslensku sendinefndarinn- ar, Guömundur Eiríksson, lagði í gær fram nýja tillögu og fleiri tillögur komu fram. íslenska sendinefndin lýsti sig reiöubúna til þess aö halda viðræðum áfram fram á kvöld i gærkvöldi og um helgina. Guðmundur hefur lýst því yfir að síðustu forvöð séu að ná samningum nú þar sem aukaársfundur NEAFC standi fyrir dyrum þar sem ákveða verður kvóta áður en karfa- vertíð hefst. Takist það ekki verði veiðarnar stjórnlausar. -SÁ .- j m Fagur fiskur o* m ur sjo Hér eru Jóhann Helgi Jóhannesson og Rúnar Marvinsson á veitingastaðnum Við Tjörnina þess albúnir að eida þenn- an mjög svo sjaldgæfa fisk sem Jóhann heldur á. Hann heitir fagurserkur og togarinn Engey veiddi hann við Azor- eyjar. Óli Jónsson, starfsmaður á veitingastaðnum, sem hafði smakkað fiskinn, sagði að hann væri mildur á braðið en mjög góður og líktist helst sjóbirtingi. DV-mynd S Skilaöi athugasemdalaust inn 83 fölsuöum innskattsskýrslum til skattayfirvalda: Sveik út 12,6 milljónir á sama hátt og Vatnsberinn - fær árs fangelsi og á aö greiða ríkissjóði tæpar 20 milljónir 39 ára Reykvíkingur, Davíð Geir Gunnarsson, hefur verið dæmdur í eins árs fangelsi og til að greiða rík- issjóöi samtals 19,6 milljónir króna í sekt vegna stórfellds skattsvika- máls sem hann varö uppvís að. Greiði sakborningurinn ekki 7 milljóna króna sektargreiðslu inn- an fjögurra vikna frá uppkvaðn- ingu dómsins er honum gert að sæta eins árs fangelsi til viðbótar. Auk þess er honum gert að greiða þær 12,6 milljónir króna til baka sem hann sveik út úr skattayfir- völdum. Málið hefur um margt minnt á mál Vatnsberans svokallaöa enda náði Davíð Geir á árunum 1992-1995 í 83 skipti að skila til- hæfulausum innskattsskýrslum til skattayfirvalda. Þannig sveik hann út 12,6 milljónimar meö því að telja skattayfirvöldum trú mn að hann stundaði rekstur, fiskverkun og fiskútflutning, sem ekki reyndist fótur fyrir. Þetta gerðist með því að hinum margumtöluðu innskatts- seðliun var skilaö inn með röngum upplýsingum á án þess að gerðar væru við það athugasemdir. Davíð Geir var framkvæmdastjóri hlutafé- lagsins Fangs hf. í Reykjavík. Til samanburðar þessu máli var Vatnsberamaðurinn dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að svíkja út um 38 milljónir króna með 112 folsuðum innskattsskýrsl- um. Hann var einnig dæmdur til að greiða 20 milljónir króna í sekt. í Vatnsberamálinu neitaði sak- bomingurinn, Þórhallur Ölver Gunnlaugsson, sakargiftum þrátt fyrir að fyrir iægju gögn og fram- burðir sem dómstólar töldu full- sanna málið. í máli Davíðs Geirs lá skýlaus játning hins végar fyrir þannig að dómsyfirheyrslur þurftu ekki að fara fram á sama hátt og í fyrrgreinda málinu. Dómurinn mat það við refsiá- kvörðun að sakbomingin-inn viður- kenndi brot sín greiðlega en taldi þau engu að síður stórfelld. Hjörtur O. Aðalsteinsson, héraðsdómari í Reykjavík, kvað upp dóminn. -Ótt Þú getur svaraö þessari spurningu meö því aö hringia í síma 904-1600. 39,90 kr. mínútan. ,r ö d d FOLKSINS 904-1600 Á að taka á ný upp Geirfinnsmálið fyrir dómstólum? Já jJ Nel 2] Blaöamannafélagið: Krefst afsökun- arbeiðni af lög- manni biskups Blaðamannafélag íslands sam- þykkti í gær eftirfarandi ályktun vegna yfirlýsinga Ragnars Aðal- steinssonar, lögmanns biskups: „Sfjóm Blaðamannafélags íslands lýsir undrun sinni og fúrðu á yfir- lýsingum Ragnars Aðalsteinssonar, lögmanns biskups, í garð fjölmiðla í útvarpsfréttum og vísar þeim alfar- ið til foðurhúsanna. Yfirlýsingar um að fjölmiðlar flytji vísvitandi rangar fregnir er alvarleg aðför að starfsheiðri blaða- og fréttamanna og hreinn atvinnurógur. Stjóm Blaðamannafélagsins ætl- ast til að hæstaréttarlögmaðurinn Ragnar Aðalsteinsson taki aftur orð sín og biðjist velvirðingar á þessum ummælum sínum í garö blaða- og fréttamanna.“ stuttar fréttir Skeljungsgróði Ársreikningur Skeljungs fyr- ir árið 1995 var afgreiddur á stjómarfundi í gær. Þar kom fram að hagnaður ársins nam 145 milljónum króna sem er f besta afkoma félagsins í langan I tíma. TVG og Zimsen í eitt Skipaafgreiðsla Jes Zimsen hf. og Tollvörageymslan, TVG, I hafa ákveðið að sameinast í eitt fyrirtæki. í kjölfarið hefur Eim- j skip gert hluthöfum TVG tilboö í hlutabréf þeirra. Lækkað raforkuverð * Sökum góðrar afkomu hefúr j stjóm Hitaveitu Suðurnesja ákveðið að lækka raforkuverð til heimila um 12,5% þann. 1. ^ apríl. Landsbankinn hagnast Landsbanki íslands skilaði | tæplega 177 milljóna króna hagnaði á síðasta ári. Þetta " kom fram á ársfundi bankans í gær. Framlög á afskriftareikn- ing námu 1,3 milljörðum sam- anborið við 2 milljarða árið 1994. Bakarí biðst forláts j Forráðamenn Samsölubak- arís hafa sent frá yfirlýsingu þar sem viðskiptavinir eru beðnir afsökunar á salmonellu- sýkingimni sem upp kom í j rjómabollum frá bakaríinu. { Bakaiúið ætlar að herða dagleg- | ar vinnureglur í öllu eftirliti. Brenndir í bekkjum Fjórir Islendingar hafa skað- j brennst í ljósabekkjum á síð- J ustu vikum. Þetta kemur fram í ; bréfi sem félag húðlækna hefur | sent landlækni. Þetta kom fram j á Bylgjunni. -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.