Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1996, Side 6
LAUGARDAGUR 9. MÁRS 1996
e átlönd
Leiðtogafundur um hryðjuverk í Mið-Austurlöndum:
Búist við áþreif-
anlegum árangri
stuttar fréttir
Andstaðan sigraði
Tveir frambjóðendur stjóm-
arandstöðunnar sigruðu í fyrri
umferö forsetakosninganna á
Kómoreyjum í Indlandshafi þar
sem málaliðar létu til sín taka í
! haust.
Karl undir smásjá
Ýmsirhafa
orðið til þess
upp á
síðkastið að
lýsa áhyggj-
um sínum
I yfir sálræn-
um styrk
: Karls Breta-
I prins og ótt-
ast að eilíft stríð hans við
Díönu muni sannfæra hann um
að hnossið sem hann hefur
þráð svo lengi, breska krúnan,
I sé ekki ómaksins verð.
Fáni brenndur
Vinstrisinnaður þingmaður i
Kólumbíu kveikti í bandaríska
fánanum til að mótmæla því að
Bandaríkin vinna ekki lengur
með Kólumbíu í stríðinu gegn
flkniefnum.
Á hraðferð til jarðar
Kínverskur gervihnöttur er
nú á hraðri og stjórnlausri ferð
í átt til jarðar og gæti hann lent
hvar sem er snemma í næstu
viku, að sögn vísindamanna.
Stalínistar í steininn
Pólskur dómstóll dæmdi tólf
fyrrverandi pólitískar löggur
frá Stalínstímanum í fangelsi
fyrir barsmíðar og pyntingar.
Konur mótmæla
Þúsundir kvenna og barna úr
röðum bosnískra múslíma fóru
í fjöldagöngu í gær til að krefj-
ast aögerða til að finna karla
þeirra sem hafa verið týndir frá
því Serbar lögðu bæinn Srebr-
enica undir sig.
Rússar svæla út
Rússneskir hermenn leituðu
logandi ljósi að uppreisnar-
mönnum Tsjetsjena í Grosní í
gær til að reyna að svæla þá út
og ganga frá þeim.
Chirac vill samvinnu
Jacques
Chirac
Frakklands-
forseti varaði
leiðtoga at-
vinnulífsins
við of mikl-
um sveigjan-
leika á
vinnumark-
Iaði, eins og tíökast í Ameríku,
og sagði að umbætur skyldu að-
eins gerðar í samráði við sam-
tök launþega.
Burt frá Rúanda
Hundruð manna fögnuðu
þegar fáni SÞ var dreginn niður
í höfuðborg Rúanda í gær til
marks um að friðargæsluhlut-
verkinu þar væri lokið.
Reuter
Enn eitt metið í
Wall Street
Að loknum viðskiptum í Wall
Street sl. fimmtudag var Dow Jones
hlutabréfavísitalan rétt undir sögu-
legu meti sem slegið var tveimur
dögum áður. Talan stóð í 5642 stig-
um. Fjárfestar héldu þó að sér hönd-
um á fímmtudag og biðu með stór-
tæk hlutabréfaviðskipti þar til at-
vinnumálakönnun fyrir febrúar var
birt í Hvíta húsinu. Þegar þetta var
skráð í gær hafði skýrslan ekki ver-
ið kynnt en reiknað var með vaxta-
lækkun í kjölfar hennar.
Fjárfestar í Bretlandi voru sömu-
leiðis í biðstöðu eftir því hvort vext-
ir yrðu lækkaðir eftir fund fjármála-
ráðherra og seðlabankastjóra í gær.
Bensínverö á heimsmarkaði
breyttist lítið í vikunni en hráolíu-
tunnan hækkaði, var komin í tæpa
20 dollara á fímmtudag. -Reuter
Bill Clinton Bandaríkjaforseti á von
á því að gripið verði til áþreifanlegra
aðgerða til að stemma stigu við hryðju-
verkum og renna stoðum undir friðar-
ferlið í Mið-Austurlöndum á fundi leið-
toga heimsins í Egyptalandi á miðviku-
daginn kemur.
Clinton og Hosni Mubarak Egypta-
landsforseti verða í forsæti fundarins
sem stendur í einn dag og hefur hlotið
heitið „leiðtogafundur friðflytjend-
anna“. Borís Jeltsín verður meðal þátt-
takenda frá löndum utan heimshlutans.
Fundurinn er haldinn í kjölfar
„Hann fékk erfingja, drottningu
og engin röskun varð á ástalífi
hans. Hún fékk titil, konungleg
böm og ástalífi hennar var slegið á
frest. Áður gekk þetta kerfi mjög vel
upp. Innan breska aðalsins eru nú
margir afkomendur óskilgetinna
barna konunga og kvennanna sem
þeir elskuðu og þráðu. Annaðhvort
lagði enginn Díönu reglurnar eða þá
að hún heyrði þær ekki almenni-
lega og hafði ekki lesið söguna. Eða
þá, sem líklegast má telja, að sál-
fræðingar hennar hafi talið henni
trú um að reglurnar væru svívirði-
legar.“
Þannig kemst breska skáldkonan
Fay Weldon að orði í grein i blaðinu
International Herald Tribune þar
sem hún fjallar um raunir bresku
sprengjuherferðar palestínsku skæru-
liðahreyfingarinnar Hamas í ísrael sem
hefúr orðið 57 manns að bana á undan-
fómum tveimur vikum. Tilræðin hafa
grafið undan stuðningi viö Símon Per-
es, forsætisráðherra ísraels, og Yasser
Arafat, forseta Palestínumanna, og
stefnt friðarviðleitninni í hættu.
Warren Christopher, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði að leiðtoga-
fundurinn, sem þeir Peres og Arafat
óskuðu eftir að yrði haldinn, mundi
einkum snúast um að koma friðarum-
leitunum aftur á réttan kjöl, um for-
konungsfjölskyldunnar hin síðari
misserin.
Skáldkonan bendir á að hér í eina
tíð hafi það verið skylda drottning-
arinnar eða verðandi drottningar að
ala manni sínum erfmgja. Þegar
hún hafði innt það af hendi hefði
ekki verið hægt að ætlast til þess að
eiginmaðurinn væri konu sinni
trúr, ekki fremur en aðrir menn í
sömu stöðu undanfarin árhundruð.
Svo kom Díana fram á sjónarsviðið
og krafðist þess að fá að vera ham-
ingjusöm. Þar með rauf hún þann
samning sem er undirskilinn í öll-
um konunglegum hjónaböndum.
„Enda þótt hún hefði gifst prinsi
átti hún rétt á trúum eiginmanni.
Það voru réttindi hennar sem
manneskju," segir Fay Weldon í
dæmingu á hryðjuverkum og um leit aö
leiöum til að fást við hryðjuverkamenn.
„Bandaríkin munu standa með ísrael
og öðrum friðargjörðarmönnum á svæð-
inu tO að tryggja að hryðjuverk muni
ekki gera út af við friðarferlið. Ég tel að
áþreifanlegar lausnir muni nást á ráð-
stefiiunni," sagði Christopher.
Auk Clintons, Mubaraks og Jeltsíns
verða meðal þátttakenda þeir Peres og
Arafat, Hussein Jórdaníukóngur og
Jacques Chirac Frakklandsforseti og
fulltrúar á annars tugs landa til viðbót-
ar. Reuter
grein sinni.
Höfundurinn segir að í samræmi
við tíðarandann hafi Díana ekki að-
eins viljað „finna sjálfa sig“ heldur
einnig deila leit sinni að tilfmninga-
legum þroska með hverjum sem
vildi á hlusta.
Undir lok greinar sinnar segir
Weldon að kvensamur konungur sé
ekkert nýnæmi enda sé það ekki
hlutverk kóngaliðsins að vera fyrir-
mynd annarra í siðferðisefnum.
Grein sinni lýkur hún með þessum
orðum: „Við skulum vona að kon-
ungdæmið lifi af barsmíðar fagurra
handa Díönu á kastaladyrnar og
ógæfusöm hróp hennar: Hleypið
mér út, hleypið mér út! Ég vil vera
elskuð."
Járnfrúin minn-
ist járntjalds-
ræðu Churchills
| Margaret
Thatcher, fyrr-
um forsætis-
ráðherra Bret-
lands, sem
hlaut viður-
nefnið járnfrú-
Iin, ætlar að
minna um-
heiminn á arf-
leifð Winstons Churchills við at-
höfn til minningar um svokallaða
jámtjaldsræðu hans í dag.
Þann 5. mars 1946 lýsti
Churchill yfir því að járntjald
hefði risið upp milli Stettín við
Eystrasaltið og Trieste við Adría-
hafið og skildi þáverandi Sovétrík-
in frá öðrum löndum Evrópu.
Minningarathöfnin fer fram í
Westminster College í Fulton í
Missouri og verður heimsókn
Thatcher hápunkturinn á þriggja
daga hátíðahöldum.
Einn ítölsku
„alnæmisbóf-
anna“ látinn
í Tórínó
Ferdinando Attanasio, einn fé-
lagi i svokölluðu „alnæmisgengi",
sem framdi bankarán um hábjart-
an dag án þess að dulbúast þar
sem samkvæmt lögum var ekki
t hægt að senda þá í fangelsi af því
þeir voru dauðsjúkir, lést á sjúkra-
húsi i Tórínó á fimmtudagsmorg-
Íun.
„í marga mánuði verndaöi al-
næmi þá en núna hefur sjúkdóm-
!! urinn náö ffarn hefhdum," sagði í
blaðinu La Stampa.
Blaðið sagði að Attanasio hefði
verið í stofufangelsi en hann hefði
síðar á fimmtudag átt að mæta
með lögffæðingi sínum til dómara
til að svara spurnmgum um eitt af
mörgum ránum hópsins.
Margar konur á
vinnumarkaði
Ihafa þaðskítt
Konur eru næstum helmingur
alls vinnuafls heimsins en samt búa
margar þeirra við vinnuskilyrði
sem líkja má við martröð og þræla-
hald, segir í skýrslu samtaka
frjálsra verkalýðsfélaga sem gefin
var út á alþjóðlega kvennadeginum
i ígær.
Konur fá þau störf þar sem
■ minnst þörfin er á sérhæfðu starís-
; folki, þær eru helstu förnarlömb at-
t vinnuleysisins og eru 70 prósent
i þeirra 1,25 milljarða manna sem
búa viö fátækt.
j Samtökin sögðu að verkalýðsfe-
I lög yröu að vinna aö bættum hag
; kvenna.
Dole reiknar
ekki með upp-
gjöf á næstunni
Bob Dole,
> sem hefur tek-
i ið ótvíræða
forustu i kapp-
| hlaupinu um
I aö verða for-
Isetaefiii
repúblikana-
flokksins, á
ekki von á því
að helstu keppinautar hans muni
draga ffamboð sín til baka á næst-
unni.
„Ég tel aö tími sé kominn til
þess að flokkurinn okkar standi
saman og fari að beina sjónum sín-
um aö raunverulegu pólitísku
skotmarki okkar, Bill Clinton, til
þess aö við getum sigraö hann í
nóvember," sagði Dole í gær.
Dole sigraði meö miklum yfir-
| burðum í forkosningum í New
York á fimmtudag og fékk alla 93
fúlltrúa fylkisins á flokksþingiö í
sumar. Dole hefur nú 382 fulltrúa
á bak viö sig en þarf 996 tíl að
hljóta útnefningu. Reuter
|
Þessi einmanalega dúfa slapp undan dúfnaþjófnum sem hefur látið til sín taka á hinu fræga Trafalgartorgi í Lundún-
um þar sem fuglar þessir hafa skemmt gestum og gangandi um langa hríð. Talið er að þjófurinn hafi jafnvel ætlað
að selja þær í matinn. Símamynd Reuter
Díana vildi meira en ala börn