Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1996, Page 35
„Ég hef alltaf hugsað mér sjálfan
mig dansandi og syngjandi,“ segir
leikarinn Tony Danza.
við þætti sína.
Það eru kannski ekki margir sem
vita að lagið, sem heyrist í enda
þáttanna um Fraiser, er flutt af Fra-
iser sjálfum, það er að segja leikar-
anum Kelsey Grammer.
Leikarinn Tony Danza segist hafa
unun af að syngja.
„Ég er ítali og allir ítalir eru
söngvarar. Látið mig bara hafa
hljóðnema, stólkoll, ljóskastara og
lag og ég skal syngja,“ segir Danza
eldhress.
JLlV LAUGARDAGUR 9. MARS 1996
sviðsljós «
Andrew Shue, sem leikur í Melrose Place, þykir líkjast hinum frægu
Kennedy-bræðrum.
Syngjandi
og spilandi
leikarar
Andrew Shue í Melrose Place:
Það er vitað að marga langar að
gera annað en það sem þeir eru
frægir fyrir enda ólíklegt að menn
séu bara fæddir til að sinna einu
starfi alla ævi.
Fjölda leikara langar að leikstýra
eins og til dæmis Robert Redford og
Mel Gibson. Einnig eru dæmi um að
fyrirsætur fari bak við myndavélina
þegar þær hætta að sitja fyrir eins
og María Guðmundsdóttir gerði.
Þá eiga sjónvarpsstjörnur það til
að semja og flytja kynningarlögin
Kelsey Grammer við píanóið sem
hann grípur gjarnan í.
■hhhhhhh
hreina tilviljun
Andrew Shue, sem leikur Billy
Campbell, er mjög ánægður með að
hafa fengið hlutverk í þáttunum
Melrose Place. „Þetta var einstök
heppni og virkilega það sem mig
langar að gera,“ segir þessi 29 ára
gamli hjartaknúsari sem býr í hús-
næði í spönskum stíl í Hollywood og
hefur sundlaug í garðinum.
Það var alger tilviljun að hann
varð leikari. Hann var ásamt Elisa-
beth systur sinni viðstaddur verð-
launaafhendingu í Hollywood vegna
myndar-
innar Back
to the Fut-
ure Part II
sem hún
lék i. Þess
má geta að
Elisabeth
Shue er nú
tilnefnd til
óskars-
verðlauna
fyrir leik
sinn í
myndinni
Leaving
Las Vegas.
Það var
hins vegar
árið 1989
sem þau
systkinin
komu sam-
an til verð-
launaafhendingarinnar afdrifaríku.
Andrew þótti ekki undarlegt að ver-
ið væri að taka myndir af þeim eða
öllu heldur henni. Þetta breytti
samt lífi hans vegna þess að mynd-
irnar urðu til þess að hann var upp-
götvaður.
Andrew hafði aldrei látið sér
detta í hug að verða leikari, hann
hafði alltaf haldið aö hann yrði lög-
fræðingur eins og faðir hans.
Eldri bróðir Andrews hafði farist
af slysförum árið áður. en þetta
gerðist og það varö Andrew mikið
áfall. Hann ákvað, skömmu eftir að
myndirnar voru teknar af honum
og systur hans, að eyða einu ári í
Zimbabwe til að átta sig á hlutun-
um.
Systir hans fór að fá fyrirspurnir
um þennan dökkeyga, unga mann
með vanga-
svip Kenn-
edyanna,
sem var
með henni á
ljósmyndun-
um, og var
spurð hvort
hann væri
leikari. Hún
sagði já þó
að það væri
ekki satt,
skrifaði í
skyndingu
bréf til
Zimbabwe
og sagði
bróður sín-
um hvað hún
hefði gert og
sagðist viss
um að hann
hefði hæfi-
leika til að leika.
„Þegar við vorum að alast upp í
South Orange N.J. vorum við alltaf
að taka kvikmyndir á litla vél
heima. Andrew var langfrjálslegast-
ur fyrir framan kvikmyndavélina,
miklu frjálslegri en ég,“ sagði Elisa-
beth Shue.
Hér er Andrw ásamt systkinum sínum, John
og Elisabeth.
Þegar Andrew Shue kom heim frá
Afríku fékk hann fljótlega hlutverk
Billys Campbells í Melrose Place, og
það er í raun eina fasta starfíð sem
hann hefur gegnt. „Hann hefur svo
yndislega sakleysislegt útlit,“ segir
Aaron Spelling, framleiðandi Mel-
rose Place þáttanna. Shue er nú
meðal vinsælustu karlleikaranna í
þáttunum.
Ungu stúlkunum til hryggðar
skal tekiö fram að Andrew Shue
kvæntist fyrir fimm mánuðum. Sú
heppna heitir Jennifer Hageney og
eiga þau von á sínu fyrsta barni í
ágúst.
Uppgötvaður fyrir