Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1996, Page 38
L'!&
46
íngaspjall
LAUGARDAGUR 9. MARS 1996
Upplýsingamiðstöð í Hinu húsinu:
Menningarvaka í tengslum við námskynninguna
Þriggja daga menningar- og
skemmtidagskrá fyrir ungt fólk í
tengslum við námskynninguna, sem
verður á morgun, hófst í gær og lýk-
ur á morgun í Reykjavík.
Dagskrána hefur Hitt húsið, Aðal-
stræti 2, skipulagt og þar verður
upplýsingamiðstöð.
„Þessi dagskrá er sérstaklega
hugsuð fyrir krakkana utan af landi
en þaðan koma margir hópar. Við
höfum fengið leikhópa og aðra til
þess að setja inn aukasýningar.
Þetta er víða um hæinn, leiksýning-
ar og tónleikar. Við fengum Sam-
bíóin og Landsbankann til að fram-
lengja kvikmyndaviku sína. Henni
átti að ljúka síðastliöinn fimmtudag
en í staðinn lýkur henni ekki fyrr
en á morgun, sunnudag, allar sýn-
ingar verða tvisvar á dag,“ sagði
Markús H. Guðmundsson, aðstoðar-
forstöðumaður í Hinu húsinu. Hann
hefur haldið utan um menningar-
vökuna.
Tónlist, leiklist og
myndlist
í dag, laugarda'g, verða tónleikar
allan daginn í Hinu húsinu. Botn-
leðja og Kvartett Ó. Jónssonar og
Grjóna koma þar meðal annars
fram.
Fleiri dæmi um hvað verður um
að vera á menningarvökunni eru
sýningar Herranætur á leikritinu
Sjálfsmorðingjanum í Tjarnarbíói,
bæði í dag og á morgun, í Loftkasta-
lanum verða sýningar á Cats og
Rocky Horror, einnig verður Fame-
hópurinn þar með margs konar
Frá æfingu Herranætur Menntaskólans í Reykjavík á Sjáifsmorðingjanum.
DV-mynd ÞÖK
Hermóður og Háövör í Hafnarfirði
sýna Himnaríki, Möguleikhúsið
sýnir Ekki svona og myndasýning
verður í Norræna húsinu.
Þá verða á Fógetanum og Kaffi
Reykjavík tónleikar fyrir eldri en 18
ára.
„Svona skemmti- og menningar-
dagskrá hefur ekki verið áður í
tengslum við námskynninguna,"
sagði Markús.
Internetið kynnt í Nor-
ræna húsinu
Kynning á Intemetinu verður í
kjallara Norræna hússins. Hún gæti
verið áhugaverð fyrir unga fólkið.
„Kynningin hefst klukkan 13 á laug-
ardag og stendur til 19 og síðan frá
14 til 17 á sunnudag. Við verðum
með sex Macintosh-tölvur og þetta
er aðallega hugsað fyrir þá sem
kunna ekki neitt á netið. Við sýnum
hvemig hægt er að skoða erlenda
skóla gegnum netið til dæmis,“
sagði Siggeir Valdimarsson sem
ásamt Kjartani Biering leiðir fólk í
allan sannleika um Internetið.
-ÞK
uppákomur. AUur ágóði Fame renn-
ur til Alnæmissamtakanna. Einnig
verður dagskrá í Kaffileikhúsinu,
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti,
in hliðin
Leiðinlegast að gera við bílinn
segir ívar Guðmundsson þáttagerðarmaður á Bylgjunni
Ivar Guðmundsson er búinn að
vera viðloðandi tónlist og útvarp
frá barnæsku. Hann var diskótek-
ari í félagsmiðstöðvum sem ungl-
ingur og starfaði síðan 8 ár sem
plötusnúður á ýmsum veitinga-
stöðum. Hann hefur frá árinu 1989
verið viðloðandi útvarp, sem dag-
skrárgerðarmaður, dagskrárstjóri
og nú aftur sem dagskrárgerðar-
maður á Bylgjunni þar sem hann
sér um síðdegisþáttinn.
ívar Guðmundsson sýnir á sér
hina hliðina að þessu sinni:
Fullt nafh: ívar Guðmundsson.
Fæðingardagur og ár: 29.
mars 1966.
Unnusta:
Anna Lilja
Pálsdóttir.
Börn:
Anna Lín-
ey, 4 ára, og
Andri Krist-
ján, 2 ára.
Bifreið:
Nissan 280.
Starf: Dag-
skrárgerðar-
maöur á
Bylgjunni
og fleira.
Laun:
Þokkaleg.
Áhugamál:
Fótbolti,
Uppáhaldsdrykkur Kók og
mjólk.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag að þínu mati?
Michael Jordan.
Uppáhaldstímarit: Ekkert sér-
stakt en þó les ég Sjónvarpsvísinn.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð?
Demi
Moore.
Ertu
hlynntur
ívar Guðmundsson, dagskrárgerðarmaður á Bylgjunni, sýnir á sér hina hliðina
að þessu sinni.
kvikmyndir og fjölmiðlun.
Hefur þú imnið í happdrætti
eða lottói? Hef fengið 3 tölur rétt-
ar í lottóinu og unnið í Gull-
námunni fyrir 2 árum.
Hvað finnst þér skemmtilegast
að gera? Borða góðan mat og eiga
góða kvöldstund heima við.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Gera viö bílinn og flytja en
þá þarf að mála og svo framvegis.
Uppáhaldsmatur: Japanskur
steiktur matur.
eða andvígur ríkisstjóminni?
Hlynntur.
Hvaða persónu langar þig mest
að hitta? Michael Jackson og
hrista tepruna úr honum.
Uppáhaldsleikari: Robert De
Niro.
Uppáhaldsleikkona: Demi
Moore.
Uppáhaldssöngvari: KK. Hann er
svo orðheppinn textasmiöur.
Uppáhaldsstjómmálamaður:
Davið Oddsson.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Fred Flintstone og Simbi í Kon-
ungi ljónanna sem bömin mín
horfa á einu sinni á dag.
Uppáhaldssjónvarpsefhi:
Skemmtiþættir Jay Leno og David
Letterman.
Uppáhaldsmatsölustaður:
Argentína og Benihana sem er
japönsk veitingahúsakeðja um all-
an heim.
Hvaða bók langar þig mest að
lesa? Söngva satans því mig lang-
ar að vita hvað það var sem olli
slíku uppnámi meðal
strangtrúaðra
múslíma.
Hver útvarps-
rásanna finnst
þér best? Þarf
að spyrja?
Uppáhaldsút-
varpsmaður:
Ómögulegt að
svara þessu.
Á hvaða sjón-
varpsstöð
horfir þú
mest? Stöð 2.
Uppáhalds-
sjónvarps-
maður: Stefán
Jón Hafstein
og Þórir Guö-
mundsson.
Uppáhaldskrá:
DV-mynd
Skuggabarinn og Astro
Uppáhaldsfélag í íþróttum:
Fram og Liverpool.
Stefnir þú aö einhverju sér-
stöku í framtíðinni? Bæta mig
sem dagskrárgerðarmaður og eyða
meiri tíma með fjölskyldunni.
Hvað ætlar þú að gera í
sumarfríinu? Síðustu ár hef ég
ekki haft tíma til að fara í sumar-
fríi en nú er stefnt að utanlands-
ferð.
-PP
Siggeir Valdimarsson, standandi, og Kjartan Biering verða til leiðbeiningar
um Internetið í kjallara Norræna hússins um helgina. DV-mynd GS
Sjómannaskólinn, Háskólinn og hús listaskólanna í Laugarnesi:
Árleg námskynning á fram-
haldsskólastigi á morgun
Þeir sem eru að ljúka námi í 10.
bekk standa á krossgötum, grunn-
skólinn er að baki og komið að því
að ákveða hvert stefna skal.
Til að koma til móts við ungling-
ana og aðstoða þá við að velja sér
framhaldsnám sameinast allir aðil-
ar menntakerfisins á hveiju ári um
námskynningu á framhaldsskóla-
kerfinu.
Kynningin í ár verður á morgun,
sunnudaginn 10. mars, frá klukkan
13-18 á þremur stöðum, í Sjómanna-
skólanum, á Háskólalóöinni og í
húsi listaskólanna í Laugamesi.
Fyrir þremur árum var tekin
ákvörðun um breytta stefnu í kynn-
ingu á námi hér á landi. Fallið var
frá þeirri hefð að kynna hvern skóla
fyrir sig en þess í stað ákveðið að
leiða saman greinar sem tengjast
með einhverjum hætti. Kynningar-
kjarnamir eru níu.
í Sjómannaskólanum verður
kynning á heilbrigðisgreinunum, fé-
lagsfræði- og uppeldisgreinunum. I
húsnæði Háskólans verða kynntar
hagfræði-, viðskiptafræði og tækni-
greinar, iðnnám og raungreinar og
nám fyrir fatlaða, enn fremur nám
erlendis, svo sem lýðháskólar og
sumarskólar fyrir tungumálanám.
Einnig verður þar fræðsla í sam-
bandi við fíkniefnin. í húsi lista-
skólanna í Laugarnesi verða kynnt-
ar lista- og handverksgreinar.
Þyrla Landhelgisgæslunnar mun
fljúga yfir öll kynningarsvæðin og
Rauði krossinn verður með bílana
sína á ferðinni.
Upplagt er fyrir foreldra að
kynna sér framtíðarmöguleika
bama sinna á námskynningunni.
-ÞK