Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1996, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1996, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 18. MARS 1996 Fréttir Átök í uppsiglingu um forseta Alþýöusambandsins: Lagt að Benedikt að gefa kost á sér áfram - Verkamannasambandsmenn vilja að forsetinn komi úr þeirra röðum Svo virðist sem að það stefni i átök, bæði pólitísk og fagleg, um hver verði næsti forseti Alþýðusambands íslands, en þing þess verður haldið eftir tvo mánuði. Verkamannasambandsmenn fara ekkert leynt með það að þeir vilja að næsti forseti komi úr þeirra röðum. Þeir leggja að Kára Amóri Kárasyni, framkvæmdastjóra lífeyrissjóðs Norð- urlands og fyrrverandi formanni verkalýðsfélagsins á Húsavík, að gefa kost á sér. Iðnaöarmenn vilja að for- setinn verði áfram úr þeirra röðum og eru þeir famir að þrýsta á Benedikt Davíðsson, forseta ÁSÍ, að gefa kost á sér áfram. Benedikt sagði í samtali við DV fyr- ir skömmu að ákvörðun hans um að sitja bara þetta eina kjörtímabil væri óhögguð. Þá ákvörðun er auðvitað hægt að endurskoða ef fast er þrýst á. „Ég hef ekki ákveðið það hvort ég gef kost á mér en það líður að því að mað- ur taki ákvörðun í málinu," sagði Kári Amór Kárason í samtali við DV i gær. Nafn Haildórs Grönvold, skrifstofu- stjóra Alþýðusambandsins, er æ oftar nefnt þegar rætt er um væntanlegan forseta sambandsins. „Ég kannast við að þetta hafi veriö nefnt við mig. Það eina sem ég vil segja um þetta er að ég er ekki í fram- boði,“ sagði Halldór í samtali við DV í gær. Fyrir utan deilur milli fagsambanda innan ASÍ um næsta forseta sam- bandsins þá mun flokkspólitík einnig spila inn í málið. Þannig hefur það alltaf verið. -S.dór 1500 sóknarbörn i Langholtssókn vilja losna við prestinn sinn: Ætla að leita ráða hjá vígslubiskup- unum - segir séra Flóki Kristinsson um fyrstu viðbrögð sín „Ég ætla að leita ráða hjá báðum vígslubiskupunum um hvernig best er fyrir mig að bregðast við þessari niðurstöðu," sagði séra Flóki Krist- insson, sóknarprestur í Langholts- sókn, í samtali við DV í gær. í síðustu viku stóð hópur manna í sókninni fyrir söfnun undirskrifta til stuðnings því að séra Flóki láti af störfum. Um 1500 manns skrifuðu undir en það eru um 40% sóknar- barnanna. Óljóst er enn hvað gert verður við undirskriftimar þótt líklegast sé að þær veröi afhentar kirkjumálaráö- herra. Guðmundur E. Pálsson, formaður sóknarnefndar, segir að þessi niður- staða sé góður stuðningur við meiri- hluta nefndarinnar. „Þetta sýnir að við í meirihlutan- um höfum verið að tala fyrir munn flestra sóknarbarnanna," sagði Guð- mundur. Hann tók þó fram að söfn- un undirskriftanna hefði ekki verið gerö að undirlagi sóknamefndar- innar. Séra Flóki sagði að vel mætti túlka niðurstöðuna svo að 60% sóknarbarnanna vildu ekki skrifa undir þótt „gengið hefði verið fram með offorsi við söfnunina", eins og séra Flóki orðaði það. Séra Bolli Gústavsson vígslubisk- up hefur nú biskupsvald til að úr- skurða í Langsholtsdeilunni. Búist er við úrskurði hans nú í vikunni. -GK slarsögumyndir a fö Listasafn Hallgrímskirkju hefur boðið Magnúsi Kjartanssyni myndlistarmanni að sýna málverk f kirkjunni núna á föstunni. Verða verkin til sýnis fram yfir páska. Sýnd verða tvö stór verk sem Magnús málaði á árunum 1992-1993 og tengjast píslarsögu Krists. Hér er Magnús að koma upp öðru verkanna ásamt tveimur aðstoðarmönnum í Hall- grímskirkju fyrir helgi. DV-mynd S Dagfari Miskunnsami Samverjinn Menn kannast við það úr bíó- myndunum að þar takast yfirleitt á vondi maðurinn og góði maðurinn. Hið góða gegn hinu illa. Töffarinn og miskunnsami Samverjinn. En þetta er ekki bara í bíómynd- unum. Þetta er ekki eitthvað sem kvikmyndaframleiðendur finna upp til að selja myndirnar. Þessi aðferð er lögmál úr lífinu. Við höf- um það daglega fyrir augunum. Biskupinn á móti illu öndunum. Kirkjan á móti fjölmiðlunum. Vondar konur á móti góðum bisk- upi. Það sama gerist í Leikfélagi Reykjavíkur. Vondur leihússtjóri og góðir leikarar. Vondi leikhús- stjórinn segir góðu leikurunum upp. En eins og í öllum bíómyndum, þá sigrar hið góða að lokum. Góðu leikararnir ráku vonda leikhús- stjórann. Biskupinn og kirkjan munu hafa sigur að lokum á móti vondu konunum og illu öndunum. Þannig er lífið gott við okkur og þannig trúum við á hið góða í manninum. Þannig höfðar sagan um miskunnsama Samverjann til okkar. í þeim deilum, sem átt hafa sér stað að undanfornu um breytingar á lögum um opinbera starfsmenn og lífeyrisréttindi þeirra, endur- speglast þessi átök hins góða og illa enn einu sinni og þau átök ná inn í sjálfa ríkisstjórnina. Þar eru líka vondir menn og góðir menn. Friðrik fjármálaráðherra er í hlutverki skattheimtumannsins og hann hefur lagt fram tillögur um skerðingar á bágum kjörum opin- berra starfsmanna og allir opinber- ir starfsmenn hafa verið miður sín að undanfornu vegna þeirrar árás- ar á lífskjörin, sem er ekkert ann- að en atlaga gegn mannréttindum. Opinberir starfsmenn hafa þurft að halda baráttufundi og aðgerða- fundi og mótmælafundi og ástand- ið var orðið illþolandi. Grunn- skólabreytingin var í uppnámi og opinberir starfsmenn sáu fram á að þeir hefðu ekki efni á að verða gamlir og komast á eftirlaun. Fjár- málaráðherra var að klípa cif þeim það litla sem eftir var. En þá kom miskunnsami Sam- verjinn, sjálfur Davíð forsætisráð- herra úr fríi, og sagði að lífeyris- málið yrði sett í salt. Svona gera menn ekki, sagði Davíð. Reyndar var Friðrik fjármálaráöherra líka í fríi, en Davíð kom á undan Frið- riki úr fríinu og tók að sér að vera fjármálaráðherra á meðan. Það var gæfa opinberra starfsmanna og enn og aftur sigraði hið góða hið illa. Enn og aftur kom góði maður- inn og kvað vonda manninn í kút- inn. Ef Friðrik hefði komið úr fríinu á undan Davíð, hefði Davíð ekki getað bjargað opinberum starfs- mönnum. Þannig gripu góðu for- lögin í taumana. Nú er það að vísu ekki þannig að Davíð sé að öllu leyti ósammála Friðriki fjármálaráðherra enda eru þeir saman í ríkisstjórn og saman í flokki og sameiginlega lögðu þeir til að skerða lífeyri opinberra starfsmanna. En þessi samstaða þeirra ráðherranna felur það í sér að Davíð telur sig ekki þurfa að skýra Friðriki frá þeirri ákvörðun sinni að breyta ekki lífeyrinum. Hann veit fyrirfram að Friðrik er sammála og þegar Friðrik var spurður hvort hann væri sammála Davíð, sagði Friðrik að Davíð heföi að vísu ekki talað viö sig og hann vissi ekki betur en að þeir væru fuUkomlega sammála um aö breyta lífeyrinum. Engu að síður gerir Friðrik ekki ágreining við Davíö, þótt Davíð hafi ekki talað við hann, því Friðrik veit ekki betur en þeir séu sammála. Og úr því Davíð hef- ur breytt um skoðun hlýtur Frið- rik að breyta lika um skoðun af því þeir eru saman í ríkisstjórn og saman í flokki og saman um að leggja til að lífeyririnn sé skertur. Þannig hefur hið góða sigrað hið illa, ekki aðeins að Davíð sé mis- kunnsami Samverjinn heldur er Friðrik orðinn líka góður af því að Davíð er góður. Já, aliir eru orðnir góðir og hið góða hefur sigrað einu sinni enn. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.