Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1996, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1996, Page 7
MÁNUDAGUR 18. MARS 1996 7 Fréttir 20 metra langur reyðarhvalur: Lónar í hringi í Seyðisfirði DV, Seyðisfirði: Stórhveli hefur sést í utanverðum Seyðisfirði undanfarna daga. Sjó- menn sem átt hafa leið um fjörðinn hafa séð til hans og eins hefur fólk á bæjunum við norðanverðan fjörð- inn fylgst með ferðum hans. Hvals- ins varð fyrst vart fyrir rúmri viku og hefur hann haldið sig skammt frá landi fram undan bæjunum Dvergasteini og Selstöðum. Veður hefur verið mjög leiðinlegt þarna tvo síðustu sólarhringana, hvass- viðri og úrkoma. Á miðvikudag fóru menn að skoða hvaiinn og er talið að um reyðarhval sé að ræða - ekki minna en 20 metra langan. Hann var róleg- ur og hreyfði sig litið en lónaði í hringi í sjólokunum. í bókinni Seyð- firskir hernámshættir segir frá steypireyði sem flæktist í leifum kafbátaneta og víraflækjum vorið 1948 og var sá hvalur lagður að velli eftir harðan atgang, dreginn að bryggju á Seyðisfirði og nýttur. Annað stórhveli sást í firðinum skömmu síðar og héldu menn að þar væri á ferð maki hvalsins sem svo ill endalok hlaut. -JJ TOKUM VIRKAIM ÞATT í reyklausa deginum! Á reyklausa daginn verdur tekid á móti öskubökkum í öllum apótekum... ...einnig hjá Krabbameinsféiaginu í Reykjauík og á Akureyri og hjá íslenska útvarps- félaginu ad Lynghálsi 11. Spennandi verdlaun í bodi. Allir geta verid med! Gangi ykkur veU TÓBAKSVARNANEFND Hvolsvöllur: Stálu bíl kaupfélagsstjórans Þrjú ungmenni af höfuðborgar- svæðinu urðu strandaglópar um 4 km austan við Hvolsvöll í gær- morgun þegar dekk sprakk á bíl þeirra. Þau gengu inn í bæinn og reyndu að verða sér úti um far til Reykjavíkur en þegar það gekk ekki ákváðu tvö þeirra, strákur og stelpa, að stela bíl til fararinnar. Stúlka sem með þeim var vildi ekki taka þátt í gjömingnum og varð því eftir. Fyrir valinu varð bíll kaupfé- lagsstjórans á staðnum, nýleg Mazda 323, og það varð síðan hlut- verk Reykjavíkurlögreglunnar að stöðva fólkið í Lögbergs- brekkunni, rétt utan við bæinn, um klukkan hálftólf í gærmorgun. Fólkið veitti enga mótspyrnu og er rannsókn málsins lokið. -sv ecco - Skór RÝMIN6ARSALA • Barnaskór kvenskór • herraskór xSkóverslun ÞÓRÐAR GÆÐI & ÞJÓNUSTA Laugavegi 40 • S. 551 3570 l> I I I I Láltu fraistast Sóluaðili: Freyia HF

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.