Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1996, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 18. MARS 1996
13
dv Fréttir
Aflahrota á Halamiðum:
Tonn á
togmínút-
una
Mjög góður þorskafli hefur verið
á helstu veiðislóðum íslenska flot-
ans að undanfornu. Þannig hafa tog-
arar á Vestfjarðamiðum verið að fá
í kringum tonn á togmínútuna en
það kallast gott að fá 4-5 tonn á tog-
tímann. Þannig voru togarar að fá
10-35 tonn eftir að hafa togað í 10-20
mínútur. DV hefur spumir af því að
aflatölur í togararallinu nú séu
verulega betri en í fyrra en auk þess
sé fiskurinn mun betri.
Ólafur Karvel Pálsson, fiskifræð-
ingur og leiðangursstjóri togar-
arallsins, vildi ekki staðfesta mun
meiri afla nú en í fyrra og sagðist
ekki hafa tekið tölur saman enn.
Rallið gengi hins vegar ágætlega og
væri nú um það bil hálfnað þannig
að of snemmt væri að draga álykt-
anir. Nokkurs fisks hefði orðið vart
fyrir Norðausturlandi og meira virt-
ist vera fyrir Norðurlandi en undan-'
farið og í rallinu í fyrra en þá hefði
verið dauður sjór þar.
„Við höfum svo sem orðið varir
hér á Vestfjarðamiðum líka en það
er eftir að reikna út magnið. Menn
hafa síðan verið að fá heilmikinn
fisk hér á Halasvæðinu og við höf-
um fengið þar kropp, en ekki þetta
mikla magn sem þeir hafa verið að
tala um,“ sagði Ólafur Karvel,
stjórnandi togararallsins 1996. -SÁ
^ Alþingi:
Avíturnar
virkuðu
Ólafur G. Einarsson, forseti Al-
þingis, ávítaði þingmenn við upphaf
þingfundar í gærmorgun fyrir
slæma mætingu en aðeins 13 þing-
menn af 63 mættu til vinnu. Hann
sagðist ætla að banna fastanefndum
þingsins að halda fundi á sama tíma
og þingfundir fara fram. Daginn
áður höfðu tvær þingnefndir farið
austur á Hótel Örk í Hveragerði,
haldið þar furid, setið veislu og gist
á hótelinu um nóttina og voru ekki
komnar til fundar í gærmorgun.
Þessar ávítur virkuðu, því síðdeg-
is var 51 þingmaður mættur til
fundar og þar af 9 ráðherrar. Það er
afar sjaldgæft að Sjá svo marga ráð-
herra í þingsalnum í einu. -S.dór
Salmonellan:
Sýnin kostuðu
1,5 milljónir
Sýnatökur vegna salmonellusýk-
ingarinnar á ríkisspítölum á dögun-
um hafa kostað nálægt 1,5 milljón-
um króna, að mati Jóns Gíslasonar,
forstöðumanns Hollustuverndar.
Sýnin hafa verið tekin og unnið
úr þeim á vegum þriggja aðila, þ.e.
Landspítala, Hollustuverndar og
embættis yfirdýralæknis. Kostnað-
ur Landspítala og Hollustuverndar
hvors um sig er um 600 þúsund kr.
og yfirdýralæknis um 300 þúsund.
-SÁ
Lágheiðin fær
DV, Fljótum:
Lágheiðin milli Fljóta og Ólafs-
fjarðar er orðin fær eftir að snjó var
rutt af veginum nú i vikunni. Snjór
er með minnsta móti á heiðinni
miðað við árstíma og var því ekki
mikið mál að opna veginn.
Það er afar fátítt að Lágheiðin sé
opnuð i marsmánuði en þó ekki
einsdæmi. Við opnun vegarins er
vegalengdin milli Akureyrar og
Siglufjarðar 120 km en með því að
aka um Öxnadalsheiði milli bæj-
anna er vegalengdin rúmlega 200
kni. -ÖÞ
Ótrúlegur 10.000 kr.
a^láttur!
Enn einu sinni slær aiuia í gegn með
ævintýralegu tilboði á enn öflugri hljómtækjum
í tilefni ferminganna er boðinn sérstakur 10.000 kr. afsláttur
af þessum einstöku tækjum.
NÚ kr. stgr.
aili/a NSX-V8 84 vött
Þessi 49.900 kr. stæða er nú boðin á sérstöku tiiboðsverði,
Fullkominn geislaspilari, tónjafnari með rokk/popp/djass,
karaoke kerfi með radddeyfi, super bassi, útvarp með 32
stöðva minni, tvöfalt segulband, klukka/timer, fjarstýring.
NÚ kr. 49■900 stgr.
aili/a NSX-V30 90 vött
Þessi 59.900 kr. stæða er nú boðin á sérstöku tilboðsverði.
3 diska geislaspilari, útvarp með 32 stöðva minni, tvöfalt
segulband, tónjafnari með rokk/popp/klassík, super T-bassi,
hátalarar, fjarstýring.
aiura nsx-vso 130 vðtt
Þessi 69.900 kr. stæða er nú á sérstöku tilboðsverði.
3 diska geislaspilari, Front Surround hátalarar, 3S hljómkerfi,
7 banda tónjafnari með rokk/popp/klassík, útvarp með 32
stöðva minni, super T-bassi, karaoke kerfi með radddeyfi,
tvöfait segulband, segulvarðir hátalarar, fjarstýring.
NÚ kr. 69.9CMS) stgr.
aiu/a NSX-V70 250 vött
Þessi 79.900 kr. stæða er nú á sérstöku tilboðsverði.
3 diska geislaspilari, Front Surround hátalarar, DSP hljómkerfi,
9 banda tónjafnari með rokk/popp/klassík, útvarp með 32 stöðva
minni, super T-bassi, BBE hljómkerfi, karaoke kerfi með radd-
deyfi og digital echo, tvöfalt segulband, segulvarðir hátalarar,
• fjarstýring.
Það er ekki spurning um yfirburði,
heldur hversu mikla yfirburði sum
hljómtæki hafa framyfir önnur
ÉftiIÉfíÉÉgaÍM
Ármúla 38 (Selmúlamegin), 108 Reykjavík
Sími 553 1133 • Fax 588 4099