Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1996, Side 36
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 18. MARS 1996
Sauðaþjófnaður:
Fóru í bíltúr
með lembda á
Lögreglan í Reykjavík stöðvaði í
hádeginu í gær fjóra menn í bíl en
þeir höfðu um morguninn brotist
inn í fjárhús í Kópavogi og stolið
þaðan 6 vetra lembdri á. Ökumaður-
inn reyndist allsgáður en sömu sögu
var ekki að segja af samferðamönn-
um hans sem höfðu troðið kindinni
í aftursæti bílsins á milli sín og far-
ið með hana í bíltúr um bæinn.
Mennirnir, sem allir eru tæplega
tvítugir, voru fluttir á lögreglustöð
og yfirheyrðir en vildu ekki gefa
skýringu á athæfi sínu. Þeir voru
því vistaðir I fangageymslu í þeirri
von að þeir myndu sjá að sér.
Kindin komst aftur í hendur eig-
anda síns en grunur leikur á að átt
hafi verið við kynfæri hennar.
Ráðist inn á heimili í Kópavogi og húsráðandi og vinir hans barðir til óbóta:
Saiimuð 40 spor í höfuð
- annar nefbrotnaði og fékk skurði í andlitið
Ráðist var á þrjá menn á heim-
ili eins þeirra í Kópavogi á fóstu-
dagsmorgun og tveir þeirra slasað-
ir alvarlega. Sauma þurfti 40 spor
í höfuð eins þeirra sem ráðist var
á. Annar nefbrotnaði en sá þriðji
slapp minna meiddur.
í samtali við DV sagði einn
þeirra sem ráðist var á að hann og
félagar hans hefðu nýlega verið
komnir heim af dansleik og einn
þeirra verið sofnaður þegar bank-
að var upp á. Viðmælandi blaðsins
fór til dyra og sá þar hóp fólks og
fékk högg í andlitið og féll í gólfið.
Stuttu síðar var ráðist á félaga
hans og hann sleginn í gólfið og
haldið áfram að berja á honum og
sparka í hann þar sem hann lá á
gólfinu. Annar félagi hans var bar-
inn í höfuðið og líkamann með
fatahengi, sem viðmælandi blaðs-
ins sagði hafa verið notað eins og
kylfa.
Pilturinn, sem var sleginn í gólf-
ið í anddyrinu, sá strax að ekki
þýddi að reyna að koma félögum
sínum til hjálpar og hljóp í næsta
hús og hringdi í lögregluna. Þegar
hún kom á staðinn voru árásar-
mennimir á bak og burt. Hinir
slösuðu voru fluttir á slysadeild en
fengu að fara heim stuttu eftir að
gert hafði verið að sárum þeirra.
Fórnarlömbin þrjú eru á aldrin-
um 23 ára til 31 árs og kærðu at-
burðinn strax. Tveir þeirra eru
sjómenn og fóru tO sjós á laugar-
deginum en eru nú aftur komnir í
land. Málið hefur verið sent RLR
til rannsóknar en ekki fengust
upplýsingar um gang þess þar í
gærkvöld. Einhver piltanna
þriggja gat tekið niður bUnúmer á
bO árásarmannanna, auk þess sem
kennsl voru borin á einn þeirra,
en þeir höfðu ekki enn verið hand-
teknir i gærkvöld.
Aðspurðir kunna tveir þeirra
pUta sem urðu fyrir árásinni enga
skýringu á henni. Hún hafi verið
gjörsamlega tUefnislaus enda hafi
þeir ekki þekkt til árásarmann-
anna.
PP
Fegurðardrottning Suðurnesja 1996, Sólveig Liija Guðmundsdóttir. Fyrir aft-
an hana er Brynja Björk Harðardóttir, fegurðardrottning Suðurnesja 1995, að
krýna hina nýju fegurðardrottningu. DV-mynd ÆMK
Fegurðardrottning Suðurnesja:
Líður alveg
ótrúlega vel
DV, Suðurnesjum:
„Mér líður alveg ótrúlega vel. Ég
áttaði mig ekki á þessu alveg strax.
Þetta er alveg æðislegt og mjög góð
tilfinning. Ég átti alls ekki von á
þessu og þetta kom mér rosalega á
óvart,“ sagði Sólveg Lilja Guð-
mundsdóttir, 19 ára Njarðvíkingur,
sem valin var fegurðardrottning
Suðurnesja 1996 í félagsheimilinu
og skemmtistaðnum Stapanum á
laugardagskvöldið.
í verðlaun fékk hún meðal annars
100 þúsund krónur frá Spárisjóði
Keflavíkur og demantshring frá Ge-
org V. Hannah úrsmið. AUs tóku 13
guUfallegar stúlkur þátt í keppn-
inni.
„Ég er búin að fá helling af blóm-
um og gjöfum heim til mín og sím-
inn hefur ekki stoppað," segir Sól-
veig sem mun síðar taka þátt í
keppninni um titilinn Fegurðar-
drottning íslands.
-ÆMK
Ráðist á pitsusendil
- önnur árásin á einni viku
Ráðist var á pitsusendU í húsi í
Árbæ um helgina, hann sleginn og
sparkað í andlitið á honum. Málsat-
vik voru þau að sögn starfsmanns á
Pizza 67, þar sem sendiUinn vann,
að pitsusendillinn kom í hús í Ár-
bænum með pitsu. Kaupendur pit-
sunnar ætluðu sér að greiða fyrir
hana með beiðni, sem var skrifuð á
blað úr stUabók, og þegar sendillinn
neitaði að taka við beiðninni réðust
kaupendurnir á hann með fyrr-
greindum afleiðingum.
Sendillinn fór á slysadeild og fékk
áverkavottorð en að sögn starfs-
manns á Pizza 67 fékkst lögreglan
ekki til að fara á staðinn. Árásin
verður kærð í dag. Þetta er í annað
skiptið á einni viku sem ráðist er á
umræddan sendil og honum veittir
áverkar.
-PP
Sprengjuhótun á Vellinum
Sprengjuhótun barst í Top of the
Rocks klúbbinn á Keflavíkurflug-
velli í fyrrinótt. Klúbburinn var
rýmdur og leitaði sprengjudeild af
Vellinum á staðnum en án árang-
urs. Um gabb mun hafa verið að
ræða sem varð þess valdandi að
gleðskapurinn í klúbbnum stóð
mun skemur en menn ætluðu sér í
fyrstu. -pp
PEIR ERU HALF-
KINDARLEGIR
ÞESSIR!
Veöriö á morgun:
Hvöss
norðaust-
læg átt
Búist er við nokkuð hvassri
norðaustlægri átt á landinu á
morgun. Éljagangur eða snjó-
koma verður austan til en skýj-
að með köflum um landið vest-
anvert. Frostið verður á bilinu
1 til 6 stig.
Veðrið í dag
er á bls. 44
Flexello
Vagn- og húsgagnahjól
Powlsen
Suðurlandsbraut 10. S. 568 6499
Lokað íkvöld vegna
árshátíðar starfsmanna