Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1996, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1996, Síða 9
FÖSTUDAGUR 22. MARS 1996 9 e»v Stuttar fréttir Utlönd Samningaþóf í Bosníu Samningamenn í Bosníu unnu að því langt fram á nótt að reyna að fmna lausn á deilu um hvar draga eigi landamæri milli Serba annars vegar og múslíma og Króata hins vegar i einu út- hverfi Sarajevo. Hróp að Albright Serbneskir uppreisnarmenn hrópuðu ókvæðisorðum að Madeline Albright, sendiherra Bandaríkjanna hjá SÞ, og köst- uðu steinum að bílalest hennar í Vukovar í Króatíu sem Serbar hafa ráðið en Króatíustjóm fær aftur. Buchanan samur við sig Pat Buchanan, stjórnmála- skýrandinn íhaldssamí, var aldeOis ekki á þeim buxunum i gær að slást í lið með Bob Dole, forsetaefhi Repúblikanaflokksins og keppi- nauti sínum, heldur hæddist að honum og gaf til kynna að hann mundi fara í forsetaframboð sem óháður frambjóðandi. Barist í vestri Rússneskir hermenn berjast við uppreisnarmenn Tsjetsjena í vesturhluta Tsjetsjeníu en geng- ur illa. Konsúll í barnasölu Heiðursræðismaður Sri Lanka í Jórdaníu hefur verið handtek- inn vegna gruns um að selja óskilgetin börn stofustúlkna frá Sri Lanka og fyrir nauðgun. Samið hjá GM GM bílaverksmiðjurnar I Am- eríku og samtök verkamanna í bílaiðnaði hafa náð samkomu- lagi eftir 17 daga verkfall. Hvetur til samstöðu Helmut Kohl Þýska- landskanslari hvatti atvinnu- rekendur og verkalýðsfélög til að láta af öllu þrasi og sameinast heldur um að bjarga áætlun stjórnvalda mn fjölgun atvinnu- tækifæra ffá því að veslast upp. Hert innflytjendalög Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti ffumvarp sem herðir allt eftirlit með ólöglegum inn- flytjendum. Gengið gegn glæpum Þúsundir háskólanema og kennara gengu þögulir undir svörtum borðum um götur Var- sjár í Póllandi til að mótmæla morði á félaga sínum og vaxandi ofbeldi. Kosningar ákveðnar John Major, forsætisráðherra Bretlands, hefur ákveðið að kosningar fari fram á Norður-ír- landi þann 30. maí næstkomandi en þær eru undanfari ffiðarvið- ræðna allra flokka. Jeitsín segir nei Borís Jeltsín Rúss- landsforseti hittir Warren Christopher, utanríkisráð- herra Banda- ríkjanna, að máli í dag og er fastlega búist við því að hann lýsi yfir andstööu sinni við áform NATO um aö taka inn ríki Austur-Evrópu. Persson i forsæti Sænska þingið samþykkti Göran Persson, nýkjörinn for- mann Jafhaðarmannaflokksins, sem næsta forsætisráðherra landsins. Reuter Breskir vísindamenn tengja kúariðu við sjúkdóm sem banar mönnum: Veldur andlegri hrörn- un? lömun og dauða - fimm Evrópulönd bönnuðu strax innflutning bresks nautakjöts Gífurlegur ótti greip um si^með- al breskra og evrópskra neytenda í gær þegar upplýst var að 10 ungir Bretar hefðu látist úr nýju afbrigði Creutzfeldt-Jakob sjúkdómsins. og hefðu mögulega sýkst við að neyta kjöts af nautgripum með kúariðu. Staðhæfingar vísindamanna um tengsl kúariðu við hinn banvæna sjúkdóm urðu til þess að fimm Evr- ópulönd, Frakkland, Belgía, Hol- land, Svíþjóð og Portúgal, bönnuðu strax innflutning á bresku nauta- kjöti og Þjóðverjar lögðu til víðtækt bann á sölu þess. Viðbrögð við uppgötvunum vís- indamannanna geta riðið nautakjöts- framleiðslu Breta að fullu. Til að stöðva framgang sjúkdómsins getur þurft að slátra öllum nautgripum á Bretlandseyjum eða 11 milljónum nautgripa. Douglas Hogg landbúnað- arráðherra taldi líkurnar á slíkum aðgerðum þó ekki miklar en þær gætu kostað breska ríkið 2 þúsund milljarða króna í bótagreiðslur. Fréttirnar um kúariðuna urðu til þess að verð á nautakjöti hrapaði um 15 prósent á mörkuðum í gær. Talsmenn breskra matvörubúða og matsölustaða reyndu árangurslítið að róa æsta og hrædda neytendur og var nautakjöt bannað í mötu- neytum margra breskra skóla. Breskir vísindamenn segja að allt að ein milljón Breta geti verið sýkt riðuveirunni sem éyðileggur heila- frumur, veldur andlegri hrörnun, hreyfihömlun og loks dauða. Stjórn- völd gera reyndar lítið úr hættunni og fullyrða að þeir 10 sem látist hafa úr Creutzfeldt-Jakob sjúkdómnum hafi sýkst fyrir 1989, þegar strangar reglur voru settar sem hindra eiga að riðuveirur berist í fæðukeðju manna. Jacques Santer, forseti fram- kvæmdastjórnar Evrópubandalags- ins, sagði að ákvörðun fimm landa um að banna innflutning á bresku nautakjöti væri eðlileg viðbrögð en Bretar sögðu að innflutningsbannið bryti líklega í bága við lög sam- bandsins. Bresk nautakjötsframleiðsla velt- ir árlega um 2 þúsund milljörðum króna. Um 350 þúsund manns hafa beina og óbeina atvinnu af nauta- kjötsframleiðslunni. Bretar fluttu út 240 þúsund tonn af nautakjöti i fyrra, þar af 100 þúsund tonn til Frakklands. Kúariða hefur drepið 110 þúsund nautgripi í Bretlandi slðastliðin 10 ár en sjúkdómstilfeil- um hefur fækkaö mjög síðan 1992. Hefur einungis veriö tilkynnt um örfá riðutilfelli meðal nautgripa i öðrum Evrópulöndum. Þrátt fyrir að stjórnvöld hafi full- vissað almenning um að neysla nau- takjöts væri hættulaus hefur breska ríkisstjórnin beðið hóp vísinda- manna um að rannsaka málið og koma með tillögur í næstu vjku um hvort böm eigi að halda neyslu nautakjöts áfram. Reuter íbyggnir breskir bændur virða fyrir sér nautgrip á markaði í Banbury daginn eftir að stjórnvöld viðurkenndu að kúariða gæti borist með nautakjöti í menn og valdið hinum banvæna Creutzfeldt-Jakob sjúkdómi. Símamynd Reuter Bresk stjórnvöld veita sakar- uppgjöf fyrir ólöglegar byssur Bresk stjómvöld tilkynntu í gær um sakaruppgjöf vegna óiöglegra skotvopna sem eigendurnir vilja losa sig við, átta dögum eftir að sextán ung skólabörn og kennari þeirra voru skotin til bana í skoska bænum Dunblane. „Sakaruppgjöf hefur verið sam- þykkt. Verið er að ganga frá út- færslu hennar og verður þingheimi kynnt niðurstaðan svo fljótt sem auðið er,“ sagði John Major, forsæt- isráðherra Bretlands, á þingi í gær. Embættismaður á skrifstofu for- sætisráðherrans sagði að hugmynd- in að sakaruppgjöfinni hefði komið fram fyrir íjöldamorðin í Dunblane í síðustu viku. Hann sagði að ekki þyrfti að setja ný lög vegna þessa. Einfarinn Thomas Hamilton var með fjórar byssur, sem hann hafði leyfi fyrir, þegar hann réðst inn í leikfimisalinn í Dunblane og hóf skothríð á börnin. Hann skaut sjálf- an sig til bana á eftir. Bömin voru jarðsett í vikunni og skólinn verður opnaður aftur í dag. Sakaruppgjöf vegna ólöglegra skotvopna var síðast veitt árið 1988 í kjölfar þess að 27 ára gamall mað- ur, Michael Ryan, drap eða særði lífshættulega 16 manns áður en hann tók eigið líf. Vestur í Bandaríkjunum glímir Bill Clinton forseti við annars kon- ar byssuvanda. Hann hefur harð- lega gagnrýnt tilraunir repúblikana á þingi til að afnema lög um bann við árásarvopnum og segist mundu beita neitunarvaldi sínu til að vernda bæði lögreglu og almenning. Reuter nSKIiUJGlJ L Verðáður 17.500 Tilboð: 14.875.-stgr. AT&T3245 NetturGSM- simi-en ótrúlega öflugur! Aðdáandi Kermits frosks tekur gísl Tuttugu og eins árs gamall maður á Nýja-Sjálandi tók útvarpsstjóra í gíslingu í morgun af því að hann vildi heyra lagið Rainbow Connect- ion með froskinum Kermit úr Prúðu leikurunum. Maðurinn vildi einnig fá aðgang að hljóðnema til að ávarpa hlustendur. Lögregla hand- tók manninn eftir nokkurt þóf og verður hann ákærður fyrir mann- rán. Sprengja sem hann sagðist vera með reyndist plat. Reuter Viðskipta- og tölvuskólinn býður kvöld- námskeið (12 klst) fyrir aðeins kr. 9.000 •UJ | J Word 1 Hringdu og fáðu nánari upplýsingar í síma 569 7640 Vertuskrefiáundan meðokkur! VIÐSKIPTA- OG TÖLVUSKÓLINN <Q> A JÝHERJI mST’ Ánanaustum 15 101 Reykjavlk sími 569 7640 Símbréf 552 8583 skoli@nyherji.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.