Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1996, Page 18
26
FÖSTUDAGUR 22. MARS 1996
íþróttir
i>v
NBA - staðan
Þegar flest liðin í NBA-deild-
inni eiga eftir að spila 14-17 leiki
eru línur byrjaðar að skýrast um
hver þeirra komast í úrslita-
keppnina. Átta komast áfram úr
Austurdeild (Atlantshafsriðli og
miðriðli) og átta úr Vesturdeild
(miðvesturriðli og Kyrrahafs-
riðli).
Staðan þegar riðlarnir í við-
komandi deildum hafa verið
lagðir saman er þannig:
Austurdeild
Sigrar-töp-hlutfall
Chicago 60 7 89,6%
Orlando 51 17 75,0%
Indiana 40 26 60,6%
New York 38 27 58,5%
Cleveland 38 28 57,6%
Detroit 37 29 56,1%
Atlanta 36 29 55,4%
Charlotte 33 32 50,8%
Miami 33 33 50,0%
Washington 30 36 45,5%
New Jersey 27 39 40,9%
Boston 25 41 37,9%
Miiwaukee 21 44 32,3%
Toronto 17 48 26,2%
Philadelphia 13 53 19,7%
Vesturdeild
Seattle 51 15 77,3%
San Antonio 47 18 72,3%
Utah 46 20 69,7%
LA Lakers 41 24 63,1%
Houston 42 25 62,7%
Phoenix 33 33 50,0%
Portland 32 34 48,5%
Sacramento 29 36 44,6%
Golden State 30 38 44,1%
Denver 28 37 43,1%
LA Clippers 24 42 36,4%
Minnesota 21 45 31,8%
Dallas 21 45 31,8%
Vancouver 11 53 17,2%
Fjögur lið, Chicago, Orlando,
Seattle og San Antonio, eru kom-
in í úrslit og ljóst er að Utah,
Lakers og Houston fara þangað
líka. Indiana, New York, Cleve-
land, Detroit og Atlanta eru með
mjög góða stöðu og Phoenix og
Portland ættu að sleppa.
Baráttan virðist fyrst og
fremst standa á milli Charlotte
og Miami um áttunda sætið í
Austurdeildinni og á milli Gold-
en State, Sacramento og Denver
um áttunda sætið í Vesturdeild-
inni. Það er þó enn nóg eftir af
leikjum til aö breyta þessari
mynd eitthvað. -VS
NBA-deildin í körfuknattleik í nótt:
Chicago hefndi
versta tapsins
- og vann auöveldan sigur á New York
Weah í aðgerð
George Weah, líberíski knatt-
spyrnusnillurinn hjá AC Milan,
þarf að gangast undir aðgerð
vegna handarbrots sem hann
varð fyrir í leiknum gegn Bor-
deaux á þriðjudaginn og er talið
að hann verði frá knattspyrnu-
iðkun næstu þijár vikurnar. Þá
gekkst varnarmaðurinn
Costacurta undir aðgerð á nefi
en hann nefbrotnaði í sama leik.
Costacurta verður fjarrri góðu
gamni vegna þessa í nokkrar
vikur.
-GH
Chicago hefndi í nótt fyrir versta
tap sitt á tímabilinu með því að taka
New York í nefíð, 107-86. Það er
ekki langt síðan New York vann
Chicago með 32 stigum og leikmenn
Chicago voru minnugir þess, sér-
staklega Michael Jordan.
„Það var greinilegt að Michael
ætlaði sér að hefna fyrir tapið og
senda leikmönnum New York skila-
boð um að slíkt myndi ekki gerast
aftur,“ sagði Phil Jackson, þjálfari
Chicago.
„Það kom ekkert annað til greina
en sigur og ég var tilbúinn að fórna
öllu til þess,“ sagði Jordan sem
skoraði 36 stig og tók 11 fráköst.
Scottie Pippen lék á ný með Chicago
eftir að hafa misst úr 5 leiki vegna
meiðsla. Þetta var 41. heimasigur
Chicago í röð og liðið komst með
því einum leik fram úr Orlando en
liðin ná NBA-metinu til skiptis
þessa dagana. Líkurnar á meti í
sigurleikjum aukast líka stöðugt hjá
Chicago. Liðið stefnir á 70 sigra og
þarf til þess að vinna 10 af síðustu
15 leikjum sínum. Það ætti ekki að
reynast erfitt úr þessu.
Úrslitin í nótt:
New Jersey-Denver............97-89
Gilliam 25, Childs 21 - McDyess 20, Ellis
15.
Chicago-New York............107-86
Jordan 36 - Ewing 20.
Houston-Cleveland ...........85-98
Moore 17, Mack 13 - Brandon 27, Hill 17,
Mills 17.
Phoenix-Golden State .......104-96
Barkley 22, Manning 21, Johnson 17 -
Armstrong 25, Willis 21.
Seattle-LA Lakers ..........104-93
Perkins 20, Hawkins 20, Payton 20, Kemp
18 - Van Exel 26, Divac 21, Magic 17.
Vængbrotið lið Houston tapaði
þriðja leiknum í röð, nú fyrir
Cleveland sem styrkti enn stöðu
sína í Austurdeildinni.
Charles Barkley leiddi lið Phoen-
ix til mikilvægs sigur á Golden
State, sem þar með missti Sacra-
mento uppfyrir sig í baráttunni um
8. sætið í Vesturdeildinni. Phoenix
átti frábæran fyrri hálfleik og
breytti þá stöðunni úr 10-21 í 61-36.
Magic Johnson var í fyrsta skipti
í byrjunarliði Lakers en það dugði
ekki gegn sterku liði Seattle sem
vann sitt 22. sigur í 25 leikjum.
Cedric Ceballos missti af flugvél
Lakers og var settur í bann hjá fé-
laginu fyrir vikið. -VS
Michael Jordan var í miklum ham í
nótt þegar Chicago vann stórsigur á
New York.
Svíi setti met
í Portúgal
Sænski kylfingurinn, Klas
Erikson setti í gær nýtt
vallarmet á fyrsta hring á opna
portúgalska meistaramótinu í
golfl.
Erikson, sem ekki hefur unnið
sér inn eins einustu krónu á
tímabilinu á Evróputúrnum, lék
völlinn á aðeins 63 höggum eða 8
höggum undir pari.
-SK
Leiðrétting
í DV í gær var ranglega greint
frá því að eiginkona Tómasar
Holton í Borgarnesi hefði verið
ráðin framkvæmdastjóri lands-
mótsins sem haldið verður í
Borgarnesi á næsta ári.
Hið rétta er að umsóknarfrest-
ur um stöðuna er enn ekki lið-
inn og eru hlutaðeigandi aðilar
beðnir velvirðingar á mistökun-
um.
-DÓ
Óvenjuleg ástæða fyrir sekt þjálfarans
Doug Collins, þjálfari
NBA-liðsins Detroit Pi-
stons, hefur verið dæmd-
ur til að greiða um 330
þúsund krónur í sekt eft-
ir leik Detroit gegn Or-
lando Magic á dögunum.
Ástæðan fyrir sektinni
er óvenjuleg. Þegar 2,7
sekúndur voru til
leiksloka og Orlando 20
stigum yflr, sagði Collins
leikmönnum sínum að
sleppa vörninni og yfir-
gáfu leikmenn Detroit
leikvanginn áður en
leiknum lauk. Forráða-
menn NBA-deildarinnar
líða ekki slíkt og sektuðu
þjálfarann. -SK
NBA - skotnýting
Gheorghe Murasan, Wash. . . 59,1%
Shaquille O’Neal, Orlando . . 57,6%
Shawn Kemp, Seattle ...........56,7%
Matt Geiger, Charlotte.......55,5%
Dale Davis, Indiana ...........55,4%
NBA - stigaskor
Leikir-stig-meðalskor
Michael Jordan, Chicago . . . . . . 66 2.038 31,0
Hakeem Olajuwon, Houston . . . . 65 1.728 26,6
Karl Malone, Utah . . 65 1.702 26,2
David Robinson, San Antonio . . 64 1.617 25,3
Charles Barkley, Phoenix . . 58 1.395 24,1
NBA - fráköst
Leikir-fráköst-meðaltal
Dennis Rodman, Chicago . . . . . . 52 783 15,1
David Robinson, San Antonio . . 64 786 12,3
Shawn Kemp, Seattle . . 62 739 11,9
Charles Barkley, Phoenix , . 58 691 11,9
Dikembe Mutombo, Denver . . . . 63 719 11,4
NBA - stoðsendingar
Leikir-sendingar-meðaltal
John Stockton, Utah . . 65 735 11,3
Jason Kidd, Dallas . . 65 627 9,6
Rod Strickland, Portland .... . . 56 534 9,5
Avery Johnson, San Antonio . . . 64 608 9,5
Damon Stoudamire, Toronto . . . 63 575 9,1
Knattspyrnumótið á Kýpur:
Eyjamenn í úrslitaleikinn
- Skagamenn óhressir með dómarann eftir 3-0 tap gegn Sirius
Eyjamenn leika til úrslita á al-
þjóða knattspymumótinu á Kýpur. I
gær unnu þeir sigur á Flora Tallin,
6-5, í vítaspyrnukeppni en staðan
eftir venjulegan leiktíma og fram-
lengingu var jöfn, 1-1. Leifur Geir
Hafsteinsson skoraði mark ÍBV.
Eyjamenn voru betri aðilinn í leikn-
um og komust verðskuldað í úrslita-
leikinn.
Eyjamenn mæta sænska liðinu
Sirius i úrslitaleiknum á laugardag-
inn en liðið sigraði Skagamenn, 3-0
í hinum undanúrslitaleiknum.
„Það var alger óþarfi að tapa
þessum leik, því við erum miklu
betri en þetta lið. Við fengum á okk-
ur sjálfsmark i upphafl leiks og síð-
an fékk Sirius tvö mörk á silfurfati
frá hrikalegum slökum dómara.
Hann dæmdi víti á okkur sem var
út í hött og síðan skoruðu þeir púra
rangstöðumark. Viö fengum fullt af
góðum færum en fórum illa með
þau, menn voru pirraðir út í dómar-
ann sem lauk með þvi að Óli Þórðar
fauk út af í seinni hálfleik," sagði
varnarjaxlinn Ólafur Adolfsson, við
DV í gær.
-GH
Evrópukeppni bikarhafa í knattspyrnu:
Evrópudraumur Parma úti
Rapid Vín frá Austurríki, París
SG, Frakklandi, Feyenoord,
Hollandi og Depertivo La Coruna
frá Spánu unnu sér í gær sæti í
undanúrslitum í Evrópukeppni
bikarhafa í knattspyrnu.
í París unnu heimamenn í París
SG, 3-1, á Parma frá Ítalíu og sam-
anlagt, 3-2. Brasilíumaðurinn Rai
skoraði tvívegis fyrir París úr víta-
spyrnum og Partice Loko skoraði
þriðja markið. Eina mark Parma
skoraði Alessandro Melli. Þar með
lauk Evrópudraumi Parma en liðið
hefur farið mikinn á Evrópumót-
unum undanfarin 3 ár, og leikið til
úrslita í þrígang. Frönsk knatt-
spyrna er greinilega á uppleið og
eiga Frakkar lið í undanúrslitum í
öllum þremur keppnunum.
Rapid Vín vann öruggan sigur á
Dynamo Moskva, 3-0, og saman-
lagt, 4-0. Carsten Jancker gerði tvö
marka Rapid og Peter Stöger eitt.
Varamaðurinn Orlando Trust-
full tryggði Feyenoord sigur á
þýska liðinu Borussia
Mönchengladbach með því að
skora eina mark leiksins 6 mínút-
um fyrir leikslok en 2-2 jafntefli
varð í fyrri leiknum.
I einvígi spænsku liðanna komst
Deportivo áfram með því að gera
1-1 jafntefli gegn Real Zaragoza og
vinna samanlagt, 2-1. Fernando
Morientes kom Zaragoza yfir en
Brasilíumaðurinn Bebeto jafnaði
metin.
-GH
DV heiðrað fyrir skrif
um íþróttir unglinga
Knattspyrnuráð Reykjavíkur veitti í fyrrakvöld DV sérstaka viðurkenn-
ingu fyrir góða umfjöllun um íþróttir unglinga undanfarin ár. Það var gert
á aðalfundi ráðsins og fyrir hönd DV tók Halldór Halldórsson við veglegri
styttu sem nefnist „KRR-unglingurinn“. Halldór, sem á sínum tíma var
landskunnur knattspyrnu- og handknattleikskappi og skoraði meðal ann-
ars fyrsta mark íslands í knattspyrnulandsleik á eriendri grundu, hefur
um langt árabil skrifað um íþróttir unglinga í DV. Á myndinni tekur Hall-
dór, til vinstri, við styttunni úr hendi Baldurs Marfussonar, formanns
KRR. DV-mynd Brynjar Gauti