Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1996, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1996, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 13. MAÍ1996 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aðstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLT111, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLT114,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 6272. Áskrift: 800 6270 Stafræn útgáfa: Heimasíða: httpV/wvvw.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centmm.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., helgarblað 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins i stafrænu formi og i gagnabönkum án endurgjalds. Frati lýst á flokkakerfið Nær fimmtimgur kjósenda í nýju sameinuðu sveitarfé- lagi á norðanverðum VestQörðum lýsti algjöru frati á nú- verandi flokkakerfi í kosningum á laugardaginn. Funk- listinn, listi aðallega skipaður framhaldsskólanemum, fékk tvo menn kjöma í ellefu manna bæjarstjórn hins nýja sveitarfélags. Listinn fékk um 18 prósenta fylgi og meira fylgi en gamalgrónir flokkar eins og Alþýðuflokk- ur og Framsóknarflokkur. Forystumenn Funklistans höfðu gefið um það yfirlýs- ingar fyrir kosningarnar að framboðið væri að jöfnu grín og alvara. Það mátti líka sjá á baráttumálum listans. Pólitískt blað listans ber nafnið Elgurinn enda var það eitt af kosningamálum Funklistans að flytja inn elgi! Þá var markmiðum listans lýst í leiðara fyrrgreinds blaðs. Þar var stefnan að lyfta sveitarfélaginu á hærra og skemmtilegra plan með því að setja gömlu góðu stuðgild- in ofar öllu. Grínframboð sem þetta hafa áður komið fram í kosn- ingum en ekki náð árangri. Munurinn nú er sú stað- reynd að Funklistinn er þriðja stærsta stjómmálaaflið í nýju sameinuðu sveitarfélagi á Vestflörðum, næst á eftir Sjálfstæðisflokki og sameiginlegum lista Óháðra, Alþýðu- bandalags og Kvennalista. En hafi helmingur stefnu hins nýja framboðs verið grín þá var hinn hlutinn alvara. Unga fólkið á lista Funk- listans bauð sig fram gegn þreyttu og stöðnuðu flokka- kerfl og náði árangri. Þrátt fyrir léttúð og spaug funklistamanna í kosning- abaráttunni mátti greina undirtón sem lýsti þreytu, von- leysi og vantrú ungmennanna á getu gömlu flokkanna. Þar kom fram að sama gamla og rispaða platan væri sí- fellt spiluð áfram. Kosningaloforðin væm útjöskuð og margsvikin. Unga fólkið fann til þess að ekki væri á það hlustað og það sniðgengið. Kosningaúrslitin eru því áminning til stjórnmála- manna gamla flokkakerfisins. í þessu tilviki snýr hún að flokkunum sem buðu fram á Vestfjörðum. Þar kunna að ráða sérstök mál að hluta. En aðrir mega einnig taka skilaboðin til sín, hvort sem það em fulltrúar staðnaðs flokkakerfis í sveitarstjómum eða landsmálum. Það að nær fimmtungur kjósenda í þessu sveitarfélagi gefur gömlu flokkunum langt nef hlýtur að vera þeim umhugsunarefni og tilefni til innri skoðunar. Gömlu flokkamir töpuðu allir fylgi til Funklistans miðað við síðustu sveitarstjórnarkosningar á ísafirði, sem er lang- stærsta sveitarfélagið í hinu sameinaða. Funklistamenn gleðjast að vonum yfir góðum árangri. Listinn er ótvíræður sigurvegari í þessum kosningum. En vandi fylgir vegsemd hverri. Listinn stendur nú frammi fyrir þeirri ábyrgð að standa sig í bæjarstjórn- inni. Þar ber honum að vinna að bættum hag íbúanna. Sjálfsagt verður einhver bið á því ,að elgir eigri um á Vestfjörðum enda kemur ekki að mikilli sök þótt það kosningaloforð verði svikið. Kjósendur gera hins vegar kröfu til þess að ferskir vindar fylgi hinum ungu mönn- um í bæjarstjórninni. Einkum hlýtur unga fólkið að líta til þeirra. Enginn flokkur fékk meirihluta í þessum kosningum. Sjálfstæðisflokkurinn getur myndað meirihluta með hverjum sem er hinna. Krafa kjósenda er sú að sigurveg- ari kosninganna, Funklistinn, komi að þeirri meirihluta- stjórn þótt líklegra sé að gamla flokkakerfið sjái um sig og myndi meirihluta með gamla laginu. Jónas Haraldsson Það eru auðvitað forréttindi RÚV, er felast í nauðungaráskriftinni, sem á að afnema, en ekki frjálsar og eðlileg- ar viðskiptatekjur fyrirtækisins, segir greinarhöfundur m.a. Auglýsingabann og tjáningarfrelsi Viðbrögð við hugmyndum nefndar á vegum menntamálaráð- herra um endurskoðun útvarps- laganna munu ugglaust verða nokkuð mismunandi. Þessar hug- myndir eru kynntar sem fyrsta skref í undirbúningi að endur- skoðun útvarpslaga, sem er tíma- bært verkefni. Sem slíkar eru þær athygli verðar og það er lofsvert framtak menntamálaráðherra að láta hefja þetta endurskoðunar- verk. Afnám forréttinda, ekki eðlilegra viðskipta í hugmyndum þeim, sem nefnd menntamálaráðherra hefur nú kynnt, er mjög margt, sem til bóta horfir. Settar eru fram ákveðnar hugmyndir um hagræðingu og endurbætur í rekstri RÚV, svo sem að færa verkefni í auknum mæli út fyrir veggi stofnunarinn- ar. Eitt atriði er þó í hugmyndum nefndarinnar, sem engan veginn fær staðist. Ef það á að reka ríkis- útvarp áfram á annað borð, nær engri átt, að stofnuninni verði í meginatriðum bannað að birta auglýsingar, hún þar með svipt auglýsingatekjum sínum og sett að öllu leyti á ríkisframfæri. 1 þessari hugmynd felst einfaldlega þetta: Auglýsingatekjur RÚV verði af- hentar öðrum fyrirtækjum, og al- Kjallarinn Hörður Einarsson hæstaréttarlögmaður menningur verði látinn borga brú- sann í hækkuðum sköttum! Auglýsingatekjur RÚV eru einu fjármunirnir, sem viðskiptalífíð og almenningur i landinu greiðir til stofnunarinnar af fúsum og frjálsum vilja, og þá fjármuni láta menn sér helst tii hugar koma að taka af henni. En gjaldið fyrir nauðungaráskriftina á að hækka. Það eru auðvitað forréttindi RÚV, er felast í nauðungaráskrift- inni, sem á að afnema, en ekki frjálsar og eðlilegar viðskiptatekj- ur fyrirtækisins. Stjórnarskrárbrot Til viðbótar því, hversu óheil- brigð þessi hugmynd er, verður að draga það mjög í efa, að fram- kvæmd hennar stæðist lög. Leiða má sterk rök að þvi, að bann við auglýsingum í ríkisútvarpinu væri brot gegn hinum nýsettu ákvæðum stjórnarskrárinnar um tjáningarfrelsi og ákvæðum Mann- réttindasáttmála Evrópu um sama efni, sem nú hafa verið lögfest hér á landi. Með hinum nýju lagaákvæðum hefur tjáningarfrelsið fengið stór- aukna vernd hér á landi. Það er ekki einungis, að bætt hafi verið réttarstaða þeirra, sem vilja láta stjórnmálamenn og embættis- menn fá orð í eyra, heldur njóta t.d. einnig auglýsendur góðs af þessari réttarbót. Lokun eins helsta ijölmiðils þjóðarinnar, sem hefur tO umráða verulegan hluta ljósvakans, fyrir auglýsingum viðskiptalífsins, fær naumast staðist vegna þeirrar skerðingar á tjáningarfrelsi, sem af þeirri ákvörðun leiddi. Sú hugmynd útvarpslaganefnd- arinnar, sem hér hefur verið gerð sérstaklega að umtalsefni, á örugg- lega rætur að rekja til góðs vOja til þess að bæta aðstöðu einkarek- inna útvarpsstöðva og góðs hugar til ríkisútvarpsins. Eins og alltaf, þegar reynt er að þjóna tveimur herrum, er útkoman Vcmdræða- gangur. Vona verður, að í því starfi, sem framundan er við endurskoðun út- varpslaganna, beri þeir, sem ábyrgðina axla, gæfu tO þess að rata þá leið, sem farsælust og út- látaminnst er fyrir almenning í landinu. Það er meira virði heldur en einhver málamiðlun milli einkaútvarps og rikisútvarps á kostnað skattborgaranna. Hörður Einarsson „Auglýsingatekjur RÚV eru einu fjármun- irnir sem viðskiptalífið og almenningur í landinu greiðir til stofnunarinnar af fús- um og frjálsum vilja, og þá fjármuni láta menn sér helst til hugar koma að taka af henni.“ Skoðanir annarra Opinberir starfsmenn „Svonefndir opinberir starfsmenn eru hluti þess fjölmenna hóps sem sinnir ákveðnum störfum, inn- an samfélagsins . . . Sú ranga skoðun hefur komið fram meðal hluta þessara opinberu starfskrafta, að þeir geti ráöskast með þær stofnanir sem þeir vinna við, jafnvel að þeir eigi viðkomandi stofnanir . .. Þá gleyma þessir forustumenn þeirri starðreynd, að þeir eru ekki löggjafinn, og þeim ber aö hlýöa kjörn- um löggjöfum þjóðarinnar og síðast en ekki síst, þeir eiga ekki rikisfyrirtæki sem þeir vinna við.“ Siglaugur Brynleifsson í Mbl. 10. maí. Kallið er komið „Samtökin Sjávamytjar hafa í auglýsingum í blöð- um og víðar skorað á Aiþingi að hefja hvalveiðar strax i sumar . . . Spurningin er þá i raun hvort ís- lendingar geti verið tilbúnir í þennan slag nú i sum- ar. Svariö er bæði jákvætt og neikvætt . . . Slíkar veiðar gætu í það minnsta hafist í tilraunaskyni, jafnvel þó í litlum mæli væri. Veiðarnar myndu vissulega framkalla sterk viðbrögð, en á meðan menn hafa rökin um skynsamlega nýtingu í höndum ætti vörnin að halda. Kallið getur komið í sumar, því íslendingar eru nægjanlega tilbúnir." Úr forystugrein Tímans 10. maí. Hvalfjarðargöngin „Þegar litið er til þeirra sem munu njóta góðs af þessum framkvæmdum hefir fyrst og fremst verið horft á núverandi vegfarendur. Hreinn ábati þeirra er metinn sem sá sparnaður sem verður vegna minni eldsneytiseyðslu og lækkun á öðrum rekstrar- kostnaði, að meðtöldu viðhaldi, viðgerðum, afskrift- um ökutækis, kostnaði vegna slysa og síðast en ekki síst tíma ökumanns og farþega . . . Göngin eru því einhver arðbærasta framkvæmd sem völ er á um þessar mundir svo framarlega að verkfræðilegar for- sendur um kostnað og leka standast.“ Kristjón Kolbeins í 16. tbl. Vísbendingar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.