Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1996, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1996, Blaðsíða 36
Fjöldl vinnlnga Vinnlngar Vinningstötur fflrmmimy/stiiflliiiiir ImiQnrrfrifjinn 11.5/96 2 9 30 f$$T VinningsuppliæB 3.788.606 189.180 1Q.69Q Heildarvinningsupphseo 6.330.306 FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Frjálst,óhað dagblað MÁNUDAGUR 13. MAÍ1996 Skaut úr hagla- byssu í hönd sér Tvítugur maður liggur á Sjúkra- húsi Reykjavíkur eftir að hann skaut úr haglabyssu í höndina á sér á laugardagskvöld. Atvikið átti sér „ ^stað innanbæjar á Höfn í Hornafirði og er engar skýringar að finna á at- hæfi mannsins sem var ölvaður. Hann mun hafa verið með hagla- byssu bróður síns og hleypti fyrst af einu skoti upp í loftiö og því næsta í höndina á sér. Maðurinn mun hafa misst tvo fingur en hann var fluttur á heilsu- gæslustöðina um leið og ljóst var hvað gerðist. Þaðan var hann flutt- ur í Sjúkrahús Reykjavíkur. Hann gekkst undir aðgerð í gær og eru áverkarnir mjög alvarlegir eins og gefur að skilja. Of snemmt er að segja til um hvernig aðgerðin heppnaðist. -pp Félag leiðsögumanna hugsar sér til hreyfings úr ASÍ: Stjórn félagsins samþykkir að kanna vilja félags- manna til úrsagnar - eigum samleið með fæstum ASÍ-félögum segir formaðurinn Áhugi er meðal félagsmanna í Félagi leiðsögumanna að segja sig úr Alþýðusambandinu og hefur stjóm félagsins þegar ákveðið að kanna vilja félagsmanna tO máls- ins. „Án þess að ég vOji kasta rýrð á aðra starfshópa innan ASÍ þá er menntunarstaða leiðsögumanna langt ofan þess sem krafist er af þeim sem eru í öðrum félögum innan ASÍ. Stór hluti félagsmanna okkar er meö háskólamenntun þannig að á þeim grunni eigum við ekki samleið. Þetta teijum við meðal annars hafa valdið því að laun okkar em ekki betri en þau eru í dag,“ segir Þórarna Jónas- dóttir, formaður Félags leiðsögu- manna. Þórarna segir að ekki hafi ver- ið tekin ákvörðun um hvort félag- ið muni æskja inngöngu í önnur samtök, t.d. háskólamanna, eftir hugsanlega útgöngu úr ASÍ, enda málið ekki komið á það stig að hægt sé að ákveða slíkt. Eftir sé að leggja úrsögnina fyrir almenn- an félagsfund sem tekur ákvörðun um allsherjaratkvæðagreiðslu i félaginu þar sem niðurstaða fæst en samkvæmt lögum ASÍ þarf málið að ganga á þann hátt fram. Virkir félagsmenn í Félagi leið- sögumanna eru nálægt 200 á hverjum tíma en annatími leið- sögumanna er yfir ferðamanna- tímann um sumarmánuðina. Yfir vetrartímann eru verkefni fá og aðeins einn ferðaþjónustuaðili í landinu er með leiðsögumenn í starfi allt árið. -SÁ Anna Mjöll Ólafsdóttir var að æfa danssporin við Sjúbídú ásamt bakraddasöngvurum þegar DV kíkti inn á æfingu í gær. Við hlið hennar er Jóhann Örn Ólafsson danshöfundur en fyrir aftan þau, frá vinstri, eru Ross Bolton, Rick Pal- ombi, Daniel O’Briem og Michael Maher, allt atvinnusöngvarar í Bandaríkjunum. Rick syngur m.a. með Ami Grant. DV-mynd GS Leitin að Angelu: Málið hið undarlegasta - segir aðalvarðstjóri Leitin að Angelu Cseho, tvítugri ungverskri stúlku sem saknað hefur verið frá því á fostudagskvöld, hafði engan árangur borið í gærkvöld. Um 200 manns á 80 bílum leituðu Angelu á laugardag og óku alla að- alvegi frá Gilsfirði í vestri tO Hornafjarðar í austri. í gær leitaði síðan þyrla Angelu án árangurs. Að sögn Geirs Jóns Þórissonar, aðalvarðstjóra hjá lögreglunni í Reykjavík, er málið hið undarleg- asta þegar haft er í huga að engar haldbærar vísbendingar hafa borist um ferðir hennar né bOs sem hún ók, rauðs Nissan Sunny, árgerð 1985, 4 hurða, með skrásetningar- númerið Y-15733. Hann sagði í gær- kvöld að fundað yrði um málið í dag og ákvörðun tekin um framhald leit- arinnar. Síðast heyrðist í Angelu, sem kom hingað tO lands sem nektar- dansmær, í síma fostudagskvöldið 3. maí en þá var hún stödd á Selfossi. Rætt hefur verið við fjölda manna vegna hvarfsins en með litlum ár- angri til þessa. -pp Hestamaður slasast Hestamaður slasaðist iOa í fyrra- kvöld I Hvolhreppi þegar hestur sem hann var á tók á stökk. Maður- inn mjaðmargrindarbrotnaði og einnig skaddaðist ristOlinn í hon- um. Hann var fluttur í sjúkrahúsið á Selfossi og þaðan í Sjúkrahús Reykjavikur. -pp Anna Mjöll til Óslóar: Verð í einu af sætunum 23 „Þetta leggst vel í mig. Hópurinn er skemmtOegur og samhentur. Við lofum íslendingum að lenda í einu af sætunum 23. Ég svík ekki loforð og þetta get ég staðið við,“ sagði Anna MjöU Ólafsdóttir söngkona við DV í gærkvöldi, skömmu áður en hún lagði af stað til Óslóar til að taka þátt í Eurovision-söngvakeppn- inni 18. maí fyrir hönd íslands með lagið Sjúbídú. Með Önnu fer fríður hópur; fjórir bandarískir bakraddasöngvarar, Ól- afur Gaukur, sem mun stjórna hljómsveitinni, Rut Danelíusdóttir, hárgreiðslu- og fóðrunardama, Jó- hann Örn Ólafsson danshöfundur og Þorgeir Gunnarsson frá Ríkis- sjónvarpinu. Jakob Frímann Magn- ússon mun slást í hópinn í Ósló og sjá um blaðamannafund á fimmtu- daginn. Cosmo hefur stutt Önnu til fararinnar og fyrirtækin íslensk matvæli og Viking Brugg bjóða ís- lenskt hnossgæti á blaðamanna- fundinum. -bjb ÞEIR ÆTTU AÐ RATA HJÁLPARLAUST ÚT! Veöriö á morgun: Allvíða létt- skýjað Á morgun verður hæg breyti- leg eða norðlæg átt, þurrt um allt land og allvíða léttskýjað, eink- um sunnanlands. Hiti verður 6 til 13 stig yfir daginn. Veðrið í dag er á bls. 44 10° 10° !|| 11° 0 ■; 13° 12° 0 0 11° (3 9° 10° V''j » góðmálma sími: 581-4757 Nhringrashf. ENDURVINNSLA brother. Litla merkivélin loksins með Þ og Ð Nýbýlavegi 28, sími 554 4443

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.