Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1996, Síða 30
42
MÁNUDAGUR 13. MAÍ1996
Afmæli
Björn Olafsson
Björn Ólafsson, verkfræðingur
og forstöðumaður þjónustudeildar
Vegagerðarinnar, Neðstabergi 11,
Reykjavík, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Bjöm fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann lauk stúdents-
prófl frá MR 1966, fyrri hluta
prófi í verkfræði við HÍ og seinni
hluta prófi frá Lunds Tekniska
Högskola í Svlþjóð 1971.
Bjöm hóf störf hjá Vegagerð-
inni 1971, var umdæmisverkfræð-
ingur Vegagerðarinnar með aðset-
ur á ísafirði 1973-76, deildarverk-
fræðingur og síðan yfirverkfræð-
ingur Framkvæmdadeildar
1977-89 og forstöðumaður þjón-
ustudeildar Vegagerðarinnar frá
1990. Þá hefur hann verið stunda-
kennari í vega- og gatnagerð við
Tækniskóla íslands frá 1979.
Fjölskylda
Björn kvæntist 1.9.1973 Guð-
björgu Helgu Magnúsdóttur, f.
18.2. 1950, ferðatækni. Hún er dótt-
ir Magnúsar Helgasonar, vélstjóra
í Reykjavík, og Sólveigar Þorleifs-
dóttur húsmóður.
Dóttir Björns frá því áður er
Guðrún Björg, f. 2.5. 1971, verslun-
armaður í Reykjavík, gift Davíð
Jóni Arngrímssyni og er sonur
þeirra Arnar Már.
Börn Bjöms og Guðbjargar
Helgu eru Magnús, f. 20.4. 1973,
líffræðinemi; Anna Sigríður, f. 7.6.
1975, fjölbrautaskólanemi.
Systkini Bjöms eru Sigríður
Ólafsdóttir, f. 7.4.1949, kennari í
Garðabæ; Marta Ólafsdóttir, f.
16.4.1950, líffræðingur í Kópavogi;
Unnur Ólafsdóttir, f. 1.5.1952, veð-
urfræðingur i Reykjavík; Páll
Ólafsson, f. 19.6. 1957, verkfræð-
ingur í Svíþjóð; Kjartan Ólafsson,
f. 18.11. 1958, tónskáld í Reykjavík;
Sveinn Ólafsson, f. 29.3. 1962,
tæknifræðingur í Reykjavík.
Foreldrar Björns eru Ólafur
Pálsson, f. 18.5. 1921, verkfræðing-
ur í Reykjavík, og Anna Sigríður
Bjömsdóttir, f. 5.8. 1921, tónlistar-
kennari.
Ætt
Ólafur er bróðir Einars, fyrrv.
borgarverkfræðings, og Kristínar,
ömmu Eddu leikkonu og Freys
jarðfræðings Þórarinsbarna. Ólaf-
ur er sonur Páls, hrl. og fyrsta
borgarstjórans í Reykjavík, bróð-
ur Guðmundar, afa Þorsteins
ólafssonar tannlæknis, föður
Kristínar fréttamanns og Ólafs
framkvæmdastjóra. Systir Páls
var Jórunn, amma Þuríðar Páls-
dóttur óperusöngkonu og Jórunn-
ar Viðar tónskálds, móður Katr-
ínar Fjeldsted læknis. Páll var
sonur Einars, alþm. á Hraunum í
Fljótum, Guðmundssonar, b. á
Hraunum, Einarssonar, bróöur
Baldvins þjóðfrelsismanns.
Móðir Ólafs var Sigríður, dóttir
Franz Eduard Siemsen, sýslu-
manns í Hafnarfirði, sonar Georgs
Nicolay Eduards Siemsen, kaup-
manns í Reykjavík, og Sigríðar
Þorsteinsdóttur, hreppstjóra og
smiðs í Bráðræði, Bjarnasonar.
Móðir Sigríðar og kona Franz var
Þórunn Árnadóttir Siemsen, dótt-
Björn Ólafsson.
ir Áma Thorsteinsson, landfógeta
og alþm. í Reykjavík, bróður
Steingríms skálds. Árni var sonur
Bjama Thorsteinsson, amtmanns
á Arnarstapa. Móðir Þórunnar
var Soffia Kristjana Hannesdóttir,
f. Johnsen.
Anna Sigríður er kjördóttir
Björns, gjaldkera í Reykjavík Þor-
grimssonar, og Mörtu Valgerðar
Jónsdóttur ættfræðings.
Helgi Ásmundsson
Helgi Asmundsson myndhöggv-
ari, Ljósheimum 22, 7D, Reykja-
vík, er fertugur í dag.
Starfsferill
Helgi fæddist í Reykjavík. Hann
lauk námi frá Höggmyndaskóla
Listaakademíunnar í Kaupa-
mannahöfn og samhliða því
málmsmíði frá tæknisviði Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti.
Helgi hefur starfað sem leik-
myndateiknari við Ríkisútvarpið-
sjónvarp, verið myndmenntakenn-
ari við grunnskóla og stundað al-
menn verkamannnastörf. Hann er
nú leiðbeinandi í listþjálfun við
Landspítalann í Reykjavík.
Helgi hefur haldið þrjá einka-
sýningar hér á landi og auk þess
tekið þátt í samsýningum. Þá
standa eftir hann útiverk í
Reykjavík, m.a. við Málmsmiðju
FB.
Helgi Ásmundsson.
Foreldrar Helga; Ásmundur J.
Ásmundsson og Hanna Helgadótt-
ir
Tll hamingju með
afmælið 13. maí
90 ára Asdis Siguröardottir, Fellsmúla 17, Reykjavík.
Ragna ívarsdóttir, Hringbraut 50, Reykjavík. Gunnhildur Guðmundsdóttir, Hólkoti, Reykdælahreppi. Hulda Valdimarsdóttir,
85 ára Grundargötu 13A, Grundarfirði. Óli Fossberg Guðmundsson, Túngötu 2, Eskifirði.
Sveinn Þorsteinsson, Skógargötu 6, Sauðárkróki.
50 ára
75 ára
Reynir Geirsson, Safamýri 91, Reykjavík. Sigriður Valdimarsdóttir, Kjalarlandi 10, Reykjavík. Jan Agnar Ingimundarson, Bæjarási 5, Mosfellsbæ. Ólafur Jónsson, Arkarholti 7, Mosfellsbæ. Jóhannes Sigurðsson,
Egill Guðmundsson, Króki, Grafningshreppi. Soffía Björnsdóttir, Drápuhlíö 48, Reykjavík. Ólöf Eyjólfsdóttir, Hólmgarði 19, Reykjavík.
70 ára
Aldína Ellertsdóttir, Hólavegi 4, Sauðárkróki. Rolf Markan, Geitastekk 7, Reykjavík. Jón Sandholt, jrafossi I, Grímsneshreppi. Ragnar Haraldsson, Álfheimum 36, Reykjavik. Þórey Pálsdóttir, Sæviðarsundi 25, Reykjavík. Jón Sigurðsson, Kársnesbraut 27, Kópavogi. Jakaseli 9, Reykjavík. Skarphéðinn Magnússon, Stapasíðu 22, Akureyri. Trausti Jóhannsson, Stórholti 8, Akureyri. Hrefna Hektorsdóttir, læknaritari, Síðumúla 21, Reykjavík. Kristján Valur Óskarsson, Illugagötu 32, Vestmannaeyjum. Steingrímur Þorsteinsson, Hóli, Öxarfjarðarhreppi.
60 ára 40 ára
Erna Gestsdóttir, Dölum, Hjaltastaðahreppi. Kristbjörg Ingvarsdóttir, Hólavegi 38, Sauðárkróki. Vilborg Inga Kristjánsdóttir, Austurbergi 38, Reykjavík. Guðrún Guðmundsdóttir, Hátúni 12, Reykjavík. Arna Skúladóttir, Akurgerði 32, Reykjavík. Guðmtmda Jódís Konráðsdótt- ir, Espilundi 2, Garöabæ. Jón Sigurður Valtýsson, Álakvísl 66, Reykjavík. Baldur Jón Helgason, Munkaþverárstræti 38, Akureyri.
Áslaug Hafberg
Áslaug Hafberg, húsmóðir og
kaupkona, Vesturgötu 7 (áður að
Laugavegi 12a), Reykjavík, varð
sjötíu og fimm ára í gær.
Starfsferill
Áslaug fæddist við Bergstaða-
stræti í Reykjavík og ólst upp í
Reykjavík. Hún stundaði nám við
Kvöldskóla KFUM og Húsmæðra-
skólann á Blönduósi. Á unglings-
árunum var Áslaug í kaupavinnu
í sveit.
Auk húsmóðurstarfa stundaði
Áslaug verslunarstörf á Laugavegi
12a, fyrst í konfektverslun föður
síns en starfrækti síðan, ásamt
Margréti Sigurðardóttur, eigin
verslun, barnafataverslunina
Vögguna við Laugaveg.
Aslaug hefur starfað mikið með
KFUK og setið í fjölda ára í basar-
nefnd félagsins. Þá hefur hún mik-
inn áhuga á ættfræði og hefur gef-
ið út bók um móður- og föðurættir
sínar.
Fjölskylda
Áslaug giftist 3.7. 1943 Árna Elí-
assyni, f. 11.4. 1917, d. 6.5. 1995,
skipaviðgerðamanni. Hann var
sonur Elíasar Ámasonar, bónda í
Hólshúsum, og Guðrúnar Þórðar-
dóttur húsfreyju.
Börn Áslaugar og Áma eru Elí-
as Árnason, f. 25.12.1943, verslun-
armaður í Reykjavík, kvæntur
Jette Svövu Jakobsdóttur þjón-
ustufulltrúa og eiga þau þrjú börn
og fimm barnabörn; Helgi Sigur-
geir Hafberg Árnason, f. 9.9. 1946,
d. 18.9.1994, starfsmaður Kjarvals-
staða, var kvæntur Guðlaugu
Björgu Bjömsdóttur lyfjafræðingi
og eiga þau eitt barn og tvö barna-
börn; Gunnar Viðar Hafberg
Árnason, f. 18.3. 1951, lagerstjóri í
Reykjavík, kvæntur Bjarnveigu
Valdimarsdóttur og eiga þau sam-
an eitt barn auk þess sem Bjarn-
veig á tvö börn og fjögur barna-
böm; Bjarney Anna Arnadóttir, f.
18.1. 1955, húsmóðir á Seltjarnar-
nesi, gift Friðfinni Halldórssyni
bifvélavirkja og eiga þau þrjú
börn.
Systkin Áslaugar: stúlka sem dó
þriggja mánaða; Alfreð Marteins-
son Sigurðsson, f. 30.4. 1918, d. 6.5.
1926 (kjörbróðir); Ingólfur Einar
Jens Helgason Hafberg, f. 7.1. 1920.
Uppeldisbróðir Áslaugar: Þórar-
Áslaug Hafberg.
inn Hafberg, f. 7.1. 1915, nú látinn,
verkstjóri í Reykjavík.
Foreldrar Áslaugar voru Helgi
Sigurgeir Einarsson Hafberg, f.
2.11. 1896, d. 6.6. 1948, kaupmaður
og sælgætisgerðarmaður, og k.h.,
Bjarney Anna Guðmundsdóttir
Hafberg, f. 26.7. 1895, d. 20.2. 1938,
húsmóðir
Kristján Erlendur Haraldsson
Kristján Erlendur Haraldsson,
forstöðumaður Húsnæðisnefndar
Kópavogs, til heimilis að Nóatúni
18, Reykjavík, varð sextugur í
gær.
Starfsferill
Kristján fæddist i Uppsölum í
Sandgerði og ólst upp í Sandgerði
og í Reykjavík. Hann lauk gagn-
fræðaprófi frá Gagnfræðaskóla
Austurbæjar í Reykjavík, stundaði
síðan almenn störf til sjós og
lands, hóf nám í múrsmíði 1955,
lauk sveinsprófi 1958 og lauk prófi
frá Meistaraskólanum 1959.
Kristján stundaði múrsmíði til
1973, hóf störf hjá Múrarafélagi
Reykjavíkur 1973 og var fram-
kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs múr-
ara 1974-94 er sjóðurinn var sam-
einaður Sameinaða lífeyrissjóðn-
um og hefur verið forstöðumaður
Húsnæðisnefndar Kópavogs frá
1993. Kristján átti heima i Kópa-
vogi á árunum 1956-91 er hann
flutti til Reykjavíkur.
Kristján sat í framkvæmda-
stjóm Verkalýðsráðs Sjálfstæðis-
flokksins um árabil, var formaður
Baldurs, félags sjálfstæðismanna í
verkalýðsstétt í Kópavogi, og hef-
ur gegnt fleiri trúnaðarstörfum
fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Fjölskylda
Kristján kvæntist 26.11. 1955
Erlu Hjartardóttur, f. 21.11. 1936,
húsmóður. Hún er dóttir Hjartar
Björgvins Helgasonar, kaupfélags-
stjóra, bónda og útgerðarmanns á
Melabergi, og k.h., Sveinbjargar
Jónsdóttur húsfreyju.
Börn Kristjáns og Erlu eru Sig-
rún, f. 1.8. 1955, húsmóðir í Kópa-
vogi; Haraldur, f. 25.3. 1961, nemi í
Kópavogi; Sveinbjörn, f. 31.8.1966,
iðnrekstrarfræðingur í Reykjavík,
en kona hans er Anna Vigdís
Gísladóttir; Kristján Ragnar, f. 9.1.
1976, nemi í Reykjavík.
Foreldrar Kristjáns voru Har-
aldur Kristjánsson, f. 1.4. 1905, d.
23.6. 1980, vélstjóri, skipstjóri og
útgerðarmaður i Sandgerði, og
Ragnheiður Sigríður Erlendsdótt-
ir, f. 9.3. 1896, d. 16.1. 1977, hús-
móðir.
Kristján Erlendur Haraldsson.
Ætt
Haraldur var sonur Gísla Krist-
jáns Þórðarsonar, bónda og bú-
fræðings, og Elínar Jónsdóttur.
Ragnheiður var dóttir Erlends
Erlendssonar bónda og Margrétar
Guðmundsdóttur húsfreyju.
Kristján og Erla eru að heiman
á afmælisdaginn.
T///////////////Z
staðgreiðslu- og greiðslukortaafsláttur og
stighækkandi birtingarafsláttur
Smá-
augiýsingar
Œ
V
ctiLUi uy
55$ 5000