Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1996, Side 17
ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1996
Jean Posocco myndskreytari með námskeið í myndasöguteikningu:
Myndi vilja sjá menn gefa út
metnaðarfullt myndasögublað
Frakkinn Jean Posocco hefur verið búsettur hér á landi í mörg ár. Hann hef-
ur haldið námskeið í myndasöguteikningu og segir hana vera vaxandi list-
grein hér á landi. Hér situr hann og teiknar á heimili sínu í Hafnarfirði.
DV-mynd S
„Að teikna myndasögur er geysi-
lega erfitt og krefst mikillar fjöl-
hæfni af þeim sem það gerir. í
mörgum tilvikum er teiknarinn líka
að semja söguna, hann þarf að hafa
innsýn í huga þess sem á að lesa
hana og ekki bara að vera næmur á
form og liti héldur líka góður í.let-
urgerð," segir Jean Posocco mynd-
skreytari. Hann hefur haft áhuga á
myndasögum frá því að hann var
lítill patti í Frakklandi og hefur ver-
ið með námskeið í myndasögugerð í
Hafnarfirði.
Jean segist í raun ekkert hafa vit-
að hvort hann fengi yfírhöfuð ein-
hverja nemendur fyrst þegar hann
auglýsti, sex hefðu mætt á nám-
skeiðið og síðan þá hefðu á milli
tuttugu og þrjátíu manns sótt tíma
hjá honum. Hann segir aldurshóp-
inn vera breiðan, lágmarksaldur sé
13 ár og að hann telji iðkendur hér
á landi vera allt að 500 manns.
„Stelpurnar eru færri en strák-
arnir, líklega ein á móti fimm, en
tilfellið er að á námskeiðunum
standa þær sig betur. Þær sýna
meiri áhuga og eru samviskusamari
og vandvirkari. Strákarnir hugsa
bara um hasarblöðin og ofbeldið en
stelpurnar eru meira á heimilisnót-
unum,“ segir Jean.
Jean segir of mikið ofbeldi í
amerískum hasarblöðum og segist
ekki sjá neinn tilgang með því.
Hann segist hafa farið af stað með
námskeiðin til þess að kynna þessa
listgrein fyrir Islendingum.
„Þetta er vaxandi listgrein og ég
vona að við eigum eftir að sjá að
menn geti búið til metnaðarfullt ís-
lenskt myndasögublað, blað sem
skrifað yrði fyrir lesendur en ekki
bara eitthvert einkaflipp þeirra sem
teikna," segir Jean.
-sv
Á yfir fimm þúsund hasarblöð:
Ólafur Guðlaugsson við teikniborðið heima hjá sér. Hann segist
hlakka til samstarfsins því í hópnum sé mikið af mjög hæfileikarík-
um og skemmtilegum teiknurum. DV-mynd GS
„Ég sá fyrsta hasar-
blaðið þegar ég var sex
ára og áhuginn blossaði
upp. í beinu framhaldi af
lestri blaðanna kviknaði
teikniáhuginn og ég hef
verið hasarblaðafíkill síð-
an,“ segir Ólafur Guðlaugs-
son, einn teiknaranna sem
ætla í sameiningu að gefa út
hasarblað á næstunni. Hann á
orðið rúmlega fimm þúsund
hasarblöð en segist vera að hugsa
um að losa sig við þau að mestu.
Ólafur segist vænta mikils af
samstarfi þessa hóps því þar sé mik-
ið af geysihæfileikaríkum strákum.
En hvernig vinnur hann?
„Sagan verður að koma fyrst og
*J&lveran«
* '* #
Sex blöð á ári
- segir Björn Vilhjálmsson hjá Hinu húsinu
„Draumurinn er að gefa út blað
sex sinnum á ári. Fjármagnið er
vandamál en við erum bjartsýnir og
nokkuð vissir um að þegar þetta
verður komið af stað munu menn
sjá ýmsa möguleika í þessari grein
bókmenntanna. Ég lít hiklaust á
þessar myndasöguteikningar sem
hluta af bókmenntum," ségir Björn
Vilhjálmsson hjá Hinu húsinu.
Hann er í forsvari fyrir 15 til 20
manna hópi teiknara á aldrinum 14
til 32 ára sem hyggst á næstu vikum
eða mánuðum hefja útgáfu á
myndasögublaði.
Björn segir Hitt húsið vera ein-
hvers konar regnhlíf fyrir ýmsa
menningarstarfsemi. Hann hafi sem
ungur maður haft áhuga á hasar-
blöðum og þannig sé þetta í hugum
margra, hasarblöðin tilheyri bems-
kunni og menn vaxi síðan upp úr
þeim. Þannig sé þetta ekki í reynd
því þetta sé viðurkennt listform
viöa um heim.
„Ég hef sjálfur mikinn áhuga á
teikniseríum og það varð til þess að
ég ákvað að hóa þessum hópi sam-
an. Við hugsum okkur að blaðið
verði nokkuð fiölbreytt, allt frá því
að sögurnar samanstandi af
nokkrum römmum, t.d bröndurum,
myndskotum af lífínu og tilverunni,
og upp í það að vera nokkurra blað-
síðna sögur. Blaðið gæti orðið þetta
30-40 síður og við erum þegar
komnir með nóg af efni til þess að
fara af stað,“ segir Björn. -sv
hún verður að vera góð. Góð saga er
lykilatriði og án slíkrar sögu verður
allt hitt lélegt. Þetta er eins og með
kvikmynd. Þú getur haft góða leik-
ara, fallega sviðsmynd og allt en
með vondri sögu verður myndin lé-
leg. Ég reyni að hugsa söguna sem
heild og reyni að láta hana flæða
áfram. Sumir einbeita sér að hverj-
um ramma og spá lítið í hreyfing-
una á opnunni t.d. Ég legg kannski
minna upp úr hverjum ramma en
meira upp úr heildinni." Að sögn
Ólafs mun hópurinn ritstýra sér
sjálfur og hann segist ekki óttast
leiðindi þegar farið verði að velja
efnið í blaðið.
„Þetta mun reyna á mannskapinn
og vissulega verður samkeppnin
mikil. Hún mun hins. vegar örugg-
lega skila sér í betra blaði því menn
eru í þessu ánægjunnar vegna.“
-sv
Hér má sjá nokkrar þeirra mynda sem hópurinn hefur verið að vinna og eru hugsaðar í hasarblaðið sem kemur út á næstu vikum eða mánuðum.