Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1996, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1996, Page 20
24 ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1996 íþróttir____________________________________________________ íslandsmeistaramótið í júdó yngri en 15 ára 1996: KA-menn sterkir - hirtu helming gullverðlaunanna en öll önnur félög voru með tvö KA-strákamir stóöu fyrir sínu á meistaramóti unglinga í júdó 4. maí en mótið fór fram í FB við Austur- berg. KA hlaut nefnilega helming gull- verðlauna á mótinu, eða alls átta, og verður það að teljast harla gott. Ljóst er að Jón Óðinn Óðinsson, júd- óþjálfari hjá KA, heldur áfram slnu ágæta starfi hjá því ágæta félagi en hann hefur undanfarin ár staðið manna best að uppbyggingu íþrótt- arinnar á Akureyri og hvílíkur ár- angur sem hann og strákarnir hans hafa náð á undanfömum ámm! Öll önnur félög hlutu tvo meistar- atitla. Hinn stórefnilegi Snævar Jónsson, JR, 13 ára, keppti ekki að þessu sinni vegna veikinda en hann hefur verið mjög sigursæll undan- farin ár. Umsjón Halldór Halldórsson Miklar framfarir Það er ljóst að um miklar fram- farir er að ræða hjá unga fólkinu því flestar viðureignirnar voru mjög vel útfærðar og því þræl- skemmtilegar á að horfa og settu KA-krakkamir mjög sterkan svip á mótið meö sinni góðu frammistöðu. Slæm aðstaða félaganna í Reykjavík Bjarni Friðriksson júdómaður var ekki hress með frammistöðu Reykjavíkurfélaganna og kvað að- stööu þeirra í höfuðborginni mjög slæma. „Að sjálfsögðu kemur það niður á árangrinum,“ sagði Bjarni. Tækniverðlaun fyrir árið 1995 Drengir, 7-10 ára: Heimir Kjartansson JR Drengir, 11-14 ára: Snævar Jónsson JR Stúlkur yngri en 15 ára: Magnea Pálmadóttir Tindastóli Keppendur voru um 100 frá eftir- töldum fimm félögum sem mættu til leiks á íslandsmótinu: Júdófélag Reykjavíkur, Ármann, KA, Tinda- stóll og Grindavík. Gekk bara ágætlega Sigríður Einarsdóttir, Ármanni, er aðeins 6 ára og var örugglega meðal yngstu þátttakenda á íslands- mótinu en hún varð í 3. sæti í flokki stúlkna 9-10 ára: „Þetta er fjórða mótið sem ég tek þátt í og mér gekk bara ágætlega. Jú, það er alltaf voða gaman í júdó,“ sagði Sigríður. Svolítið erfitt Katrín Vilhjálmsdóttir, KA, sigr- aði í flokki 9-10 ára: Efnilegir KA-strákar. Margir þeirra unnu til verðlauna á íslandsmótinu. Frá vinstri: Heimir Jóhannesson, 13 ára, Fann- ar Ágústsson, 13 ára, Atli Steinn Stefánsson, 14 ára, Hálfdán Pétursson, 14 ára, Daníel Christensen, 13 ára, Jóhann Helgason, 13 ára og Birgir Ólafur Konráðsson, 12 ára. DV-myndir Hson „Þetta var svolítið erfltt en ég vann samt. Ég hef æft júdó síðastlið- in 4 ár. Stundum hafa strákarnir keppt á móti mér og mér hefur bara gengið bærilega á móti þeim,“ sagði Katrín. „Katrín var sterkari en ég og í lokin vann hún mig með fastataki. Ég er búin að æfa í 6 mánuði og finnst júdó alveg frábær íþrótt," sagði Sandra Jóhannesdóttir, KA, sem varð í 2. sæti í flokki 9-10 ára stelpna. Valgeir var erfiður Hólmar Sigmundsson, KA, 9 ára, sigraði Valgeir Þór Sæmundsson, 9 ára, í Tindastóli, eftir mikla baráttu í undankeppninni: „Valgeir getur verið erfiður stundum og þá ekki hvað síst núna. Það var svolítið leiðinlegt að hann skyldi meiða sig i fallinu þegar mér tókst að sigra hann undir lokin,“ sagði Hólmar. Það er slæmt að fá refsistig Valgeir Þór Sæmundsson, Tinda- stóli, varð að láta í minni pokann fyrir Hólmar Sigmundssyni, KA, í undankeppninni: „Ég fékk refsistig í viðureigninni gegn Hólmari og það er mjög slæmt því það getur verið svo erfitt að vinna sig út úr því. í lokin kom ég mjög illa niður og meiddi mig svo- lítið, en það var bara smávegis og ég var fljótur að jafna sig. Mér finnst mjög gaman I júdó og ætla að halda áfram að æfa og keppa en ég byrjaði fyrir ári,“ sagði Valgeir. Frá vinstri, Hólmar Sigmundsson, KA, 9 ára og Valgeir Þór Sæmundsson, 9 ára, íTindastóli. Viðureign þessara stráka var mjög skemmtileg. Þessir þrír strákar voru fremstir í flokki 7-8 ára, í -25 kílóa flokki. Frá vinstri: Kristján Valdimarsson, KA (2. sæti), Óskar Kjartansson, Ármanni (1. sæti) og Steinar Rúnarsson, KA (3. sæti). Þrjár góðar, enda bestar í fiokki stelpna 9-10 ára. Frá vinstri: Katrín Vil- hjálmsdóttir og Sandra K. Jóhannesdóttir. Fyrir framan er Sigríður Einars- dóttir, Ármanni, sem varð í 3. sæti. íslandsmótið 1996 Júdóúrslit íslandsmeistarámótið í júdó, yngri flokkum, fór fram í FB við Austurberg 4. maí. Helstu úrslit urðu sem hér segir: Drengir, 7-8 ára -25 kg 1. Óskar Kjartansson.......Á 2. Kristján Valdimarsson. . . KA 3. Steinar Rúnarsson....KA -30 kg 1. Haraldur Haraldsson....Á 2. Guðm. Hallgrímsson ... . KA 3. Hafsteinn A. Torfason . ... A +30 kg 1. Konráð Þorleifsson.... Tind. 2. Hákon Stefánsson.....KA 3. Hjálmar Friðriksson....Á Drengir, 9-10 ára -26 kg 1. Einar Helgason .. .Grindav. 2. Hergeir Rúnarsson....KA 3. Friðrik Gautason .....Á 3. Aron Kjartansson.....KA -30 kg 1. Róbert Davíðsson.....KA 2. Svanur Steindórsson . . .KA 3. Guðvin Haraldsson Grindav. 3. Elmar Sveinsson .....KA -35 kg: 1. Heimir Kjartansson...JR 2. Júlíus Guðjónsson....JR 3. Oddur Brynjólfsson ... .KA 3. Valur Svavarsson.......Á +35 kg: 1. Ingólfur Gunnarsson .. .KA 2. Helgi Einarsson . .Grindavík 3. Benedikt Gröndal....Grv. 3. Sigurður Ólafsson ...KA Stúlkur, 9-10 ára -30 kg 1. Katrín Vilhjálmsdóttir. . . KA 2. Sandra Jóhannesdóttir. . . KA 3. Sigríður Einarsdóttir....Á Drengir, 11-12 ára -35 kg 1. Daði S. Jóhannesson . . . Grv. 2. Tómas Hallgrímsson ... . KA 3. Ólafur Sigurgeirsson .... KA 3. Ásgeir Matthíasson .... Grv. -40 kg 1. Karl Ólafsson...........KA 2. Jósef Þórhallsson.......JR 3. Gísli Rúnarsson.........JR 3. Davíð H. Júlíusson....KA -45 kg 1. Magnús Gíslason.....Tind. 2. Gunnar Gunnarsson . . . . KA +45 kg 1. Jóhannes Proppé..........Á 2. ívar Þ. Guðmundsson......Á Stúlkur, 11-12 ára -10 kg 1. Ingibjörg Guðmundsd......Á 2. Elísabet Halldórsd.......Á Drengir, 13-14 ára -40 kg 1. Ómar Ö. Karlsson......KA 2. Ágúst F. Ágústsson....KA 3. Helgi Bjarnason..........Á -46 kg .1. Bjöm Harðarson.........KA 2. Óskar Jónsson...........JR 3. Eyþór Kristjánsson......JR -53 kg 1. Þormóður Jónsson........JR 2. Daníel Christensen....KA 3. Atli Leósson............JR 3. Jón Helgason............KA +53 kg 1. Atli S. Stefánsson......KA 2. Hálfdán Pétursson.....KA 3. Birgir Ó. Konráðsson. .. . KA Tækniverðlaun f/1995 Drengir, 7-10 ára Heimir Kjartansson.........JR Drengir, 11-14 ára Snævar Jónsson.............JR Stúlkur yngri en 15 ára Magnea Pálmadóttir.....Tind.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.