Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1996, Síða 16
16
MÁNUDAGUR 20. MAÍ 1996
Fréttir
• Flugu kastað fyrir laxa í Álftá á Mýrum sem gefið hefur vei af fiski á hverju
sumri, bæði laxi og silungi. DV-mynd GFR
„Ætla að veiða
vænan lax í
Sandá“
„Við hjónin byijum sumarið í
Norðurá með Fjaðrafokinu í Jóns-
messustraumnum og það gæti orðið
góður veiöitúr," segir Anna K. Sig-
þórsdóttir.
„Síðan verður farið í Sandá í
Þistilfirði og þar stendur vel á
straumi. Ég ætla að veiða vænan
lax því þeir eru til stórir þar í hylj-
um árinnar. Svo endum við sumar-
ið í Stóru- Laxá i Hreppum. Við vor-
um með Orra Vigfússon, Jón Inga
Ágústsson og Kristján Guðjónsson í
stærri veiðibúð hjá okkur fyrir
skömmu en við vorum að stækka
búðina hjá okkur í Sportkringl-
unni,“ sagði Anna enn fremur.
* Anna K. Sigþórsdóttir.
„Reyðarlækurinn verður reyndur vel“
• Magnús Pétursson.
„Eg fer eitthvað með pabba í sum-
ar og Hannesi bróður mínum. Ætli
það verði ekki mest reynt hérna í
kringum Hvammstanga,“ sagði
Magnús Pétursson.
„Reyðarlækurinn verður reyndur
vel í sumar en þar hef ég veitt fiska
og reynt þar nokkrum sinnum.
Kannski fær ég leyfi til fara með í
laxveiði í Miðá i Dölum snemma í
sumar. Þar gætum við veitt bæði lax
og bleikju," sagði Magnús í lokin.
H ið£*J
iEa
Lögregian
SP og,
Þakka öllum þeim krökkum sem sendu inn
sögur í smásagnasamkeppnina Tígri í
umferðinni fyrir góðar og skemmtilegar
sögur.
Alls bárust um 2000 sögur og verða úrslit
samkeppninnar tilkynnt í byrjun júní.
Allir þátttakendur fá send teinaglit á
reiðhjólin sín í pósti í júní. ##
Við biðjumst
velvirðingar á því
hvað teinaglitin
berast seint en hjá
því verður ekki
komist. _
Munið að
fara varlega
íumferðmm!
$
.
Laxveiðisumarið 1996:
Gæti orðið mik-
ið þurrkasumar
Fiskifræðingar voru bjartsýnir
fyrir sumarið með laxveiðina en
snjóleysi og mikil hlýindi ætla held-
ur betur að setja strik í reikninginn.
Margar veiðiár eru orðnar vatns-
lausar þessa dagana enda snjór í
fjöllum jafn sjaldséður og hvítir
hrafnar.
En veiðimenn eru með bjarsýnni
mönnum þessa lands, að minnsta
kosti sumir, og þeir láta sér ekki
allt fyrir brjósti brenna. Þeir segja
að það verði rigningasumar þetta
árið og ég trúi þeim alveg.
-G.Bender
„Það verður veitt
töluvert í sumar“
- segir Rögnvaldur Guðmundsson
„Það verður töluvert veitt í sum-
ar í laxinum en ég byrja í Laxá í
Dölum í júlí, síðan koma Víðidalsá i
Húnavatnssýslu, Grímsá í Borgar-
firði, Hítará á Mýrum, Laxá í Aðal-
dal og vestur í Hvolsá og Staðar-
hólsá í Dölum,“ sagði Rögnvaldur
Guðmundsson.
„Laxveiðin gæti orðið góð í júní
og júlí en síðan dottið niður vegna
vatnsleysis í ágúst. Það er að
minnsta kosti ekki mikill snjór i
fjöllum þessa dagana," sagði Rögn-
valdur.
• Rögnvaldur Guðmundsson
„Ofsalega
bjartsýnn"
- segir Bjarni Júlíusson
„Ég er alveg ofboðslega bjartsýnn
á laxveiðina í sumar. Júní og júlí
gætu orðið mjög góðir mánuðir fyr-
ir veiðimenn. Stórlaxinn gæti látið
sjá sig í miklum mæli í Borgarfirð-
inum þetta árið,“ sagði Bjarni Júlí-
usson.
„Veiðisumarið byrjar hjá mér í
Norðurá í Borgarfirði með opnun
hennar. Síðan á að fara á bakka
Kjarrár í Borgarfirði og þar gæti
orðið veisla. Það er oft gott þar þeg-
ar sumrar eins og núna. Við erum á
fullu í kringum Stangaveiðifélag
Reykjavíkur með ýmislegt nýtt og
þá sérstaklega í silungsveiðinni.
Bama- og unglingastarfið verður
líka mikið hjá okkur þetta árið með
ýmsum nýjungum fyrir unga og
efnilega veiðimenn,“ sagði Bjarni.
• Bjarni Júlíusson.
„Þetta verður
dúndursumar"
- segir Jón Þ. Jónsson
„Veiöisumarið byrjar hjá mér í
Norðurá á Munaðarnessvæðinu 1.
júní með Jóni Árnassyni og við eig-
um von á góðri laxveiði þá. Það
verður allt reynt til að veiða fyrsta
lax sumarsins þar í ánni á þessum
degi,“sagði Jón Þ. Jónsson.
„Júní gæti orðið meiriháttar góð-
ur fyrir veiðimenn enda stór-
straumur 17. júní og þá gæti smá-
laxinn hellst inn og stórlaxinn líka.
Næst verður farið í Laxá á Ásum og
þar eru góðar horfur á miklum
göngum af tveggja ára laxi. Rækju-
sjómaður sem ég ræddi við í fyrra-
dag sagði skilyrði mjög góð fyrir
Norðurlandinu núna. Allt væri
þremur, fjórum vikum á undan. Ég
held að þetta verði dúndursumur í
veiðinni," sagði Jón í lokin.
• Björn K. Rúnarsson.
„Opna Rang-
árnar"
- segir Björn K. Rúnarsson
„Þetta verður mjög gott sumar
fyrir veiðimenn, nema kannski á
Vesturlandi. Þar gæti veiðin reynd-
ar orðið slöpp,“ sagði Bjöm K. Rún-
arsson.
„Það verður spennandi að sjá
hvað gerist í Vatnsdalnum þar sem
veiðimenn munu sleppa laxinum
stóran hluta sumars. Ég mun byrja
sumarið með opnun Rangánna og
það gæti orðið góð opnun þetta sum-
arið, eins og reyndar ég held að
veiðin verði þar í sumar,“ sagði
Björn enn fremur.
Góð vötn
í kringum
Blönduós
- segir Guöráður Jóhannsson
„Veiðiskapurinn hefur verið tölu-
verður það sem af er sumri enda
hefur verið einmuna blíða hérna
fyrir norðan. Við höfum veitt á
nokkrum stöðum silung, við Jóhann
Örn, það sem af er veiðitímanum,"
sagði Guðráður Jóhannsson í við-
tali við blaðamann DV I gær.
„Ég held að silungurinn verði
vænn eftir þennan góða vetur. Við
erum með mörg góð vötn hérna í
kringum Blönduós og heilmikið
svæði sem á eftir að kanna betur
þegar líður á sumarið. Það er hægt
að veiða væna bleikju hérna eins og
t.d. í Syðri-Tjöminni í Vatnahverf-
inu. Laxveiðiámar em líka margar
og fjölbreyttar á þessum slóðum,"
sagði Guðráður ennfremur.
G.Bender
* Guðráður Jóhannsson
• Jón Þ. Jónsson.