Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1996, Qupperneq 19
MÁNUDAGUR 20. MAÍ 1996
31
vistasí..
AI/éthi(t\Viikhiiliti^inn 'IkU
Ivliui k(ltUÍHí‘llltkri‘i)ti
Fréttir
Sigurður sóknarprestur vígir skýlið.
DV-myndir Júlfa
Neyðarskýli við
Hornafjarðarós
DV, Höfn:
Sett hefur verið upp neyðarskýli
á Suðurfjörum og var því valinn
staður á eyjunni Hvanney við
Hornafjarðarós. Skýlið kostaði 850
þúsund krónur. Slysavarnadeildirn-
ar á Höfn greiddu 650 þúsund krón-
ur en Slysavarnafélag íslands 200
þúsund krónur ásamt dýnum í skýl-
ið.
Vilborg Jóhannsdóttir, formaður
slysavarnadeildarinnar á Höfn,
sagði við fréttamann DV að búið
væri að koma fyrir teppum og ullar-
fatnaði í skýlið en eftir væri að fá
prímus eða gastæki til hitunar.
Einnig neyðarkost.
Vígsluathöfnin fór fram í blíð-
skaparveðri. Farið var með lóðs-
bátnum Birni lóðs að skýlinu og þar
vígði sóknarpresturinn á Höfn, Sig-
urður Kr. Sigurðsson, það. Krist-
björn Óli hjá Slysavarnafélagi ís-
lands afhenti Vilborgu gestabók
sem vera á í skýlinu. Vígslugestir
voru beðnir að rita nöfn sín í bók-
ina. -JI
Farið var með lóðsbátnum út í Hvanney.
Söngmennt
blómstrar á Héraði
DV, Egilsstöðum:
Mikil gróska hefur verið í sönglíf-
inu á Héraði í vetur. Hjónin Julian
og Rosemary Hewlet hafa verið
óþreytandi að æfa íjölda kóra og
sönghópa og laugardaginn 4. maí
kom árangurinn í ljós.
Þá héldu fimm kórar tónleika i
Hótel Valaskjálf undir stjórn og í
sumum tilfellum með þátttöku
þeirra hjóna. Þar komu fram
Kirkjukór Valla- og Skriðdals, Norð-
ur-Héraðskórinn, kór og bamakór
Egilsstaðakirkju og söngkvartettinn
„Hjá Geira“. Sungu þeir nokkur lög
hver og að síðustu sungu allir kór-
arnir, um 100 manns, saman nokkur
lög.
Þarna voru frumflutt tvö lög eftir
Héraðsmenn. Lag eftir Vilhjálm
Einarsson, fyrrum skólameistara
ME, við textann Konan sem kyndir
ofninn minn og lag eftir Braga
Gunnlaugsson á Setbergi, Kaupa-
konusamba.
Tónleikarnir voru afar vel heppn-
aðir og voru kórarnir hver öðrum
betri. Húsfyllir var enda þótt sex
tónleikar hefðu verið á Egilsstöðum
vikuna á undan. Þau Julian og Ros-
emary hafa sannarlega unnið gott
og mikið starf í vetur. Þau eru frá
Bretlandi og hafa verið hér á landi í
átta ár en komu austur á Hérað frá
Skagaströnd haustið 1994. -SE
Barnakór Egilsstaða syngur undir stjórn Rosemary. DV-mynd Sigrún
Afmælistónleikar í Reykjavík auqlýstir síðar
:
22. mið. Keflavík, Félaqsbíó kl. 21 !
Forsala aðqönqumiða í Hljómval
24. fös. Hafnarfiörður, Bæiarbíó, tónleikar kl. 21 1
Forsala aðaönaumiða í A Aúsik ocnnyndii^Hafnarfirðn
25. lau. Akranes, Bíóhöllin k .21