Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1996, Blaðsíða 11
JDIL'^ LAUGARDAGUR 25. MAI 1996
$káku
F
Skákþing Islands hafið í Garðabæ
Keppni í landsliðsflokki á Skák-
þingi íslands hófst í Fjölbrautaskól-
anum í Garðabæ á miðvikudag.
Mótið er betur' skipað en oft áður en
í hópi keppenda eru fimm stór-
meistarar og tveir alþjóðlegir meist-
arar. Teflt er um sæmdarheitið
„skákmeistari íslands 1996“. Núver-
andi íslandsmeistari er Jóhann
Hjartarson.
Jóhann hóf titilvöm sína af krafti
með því að leggja Torfa Leósson að
velli í fyrstu umferð en Torfi er
einn þeirra ungu og efnilegu skák-
manna sem fá nú tækifæri til að
glíma viö stórmennin. í 2. umferð
skildu leikar Jóhanns og Jóns G.
Viðarssonar jafnir eftir 43 leiki. Jó-
hann hefur þá hlotið 1,5 vinninga
ásamt stórmeisturunum Helga
Ólafssyni og Helga Áss Grétarssyni,
Jóni G. Viðarssyni og Magnúsi Emi
Úlfarssyni. Næstir koma Margeir
Pétursson og Þröstur Þórhallsson
með 1 vinning, Sævar Bjarnason
tapaði fyrstu skákinni en gerði jafn-
tefli við Helga Ólafsson í 2. umferð
en Torfi Leósson, Benedikt Jónas-
son og Jón Viktor Gunnarsson hafa
tapað báðum sínum skákum.
Efstur að loknum tveimur um-
ferðum er Hannes Hlífar Stefáns-
son, sem vann Þröst Þórhallsson í
fyrstu umferð og Torfa Leósson í 2.
umferð. Hannes hefur einn „fullt
hús“ vinninga. Sigur hans gegn
Þresti í 1. umferð var mikilvægur
en þegar saxast fór á umhugsunar-
tímann missti Þröstur þráðinn. Sú
skák sem mesta athygli vakti í
fyrstu umferð var þó sigur Helga
Ólafssonar gegn Margeir þar sem
Helgi nýtti sér mjög smekklega van-
hugsaðan hróksleik Margeirs.
Teflt er frá kl. 17 í Fjölbrautaskól-
anum í Garðabæ. í dag, laugardag,
tefla saman Hannes Hlífar og Helgi
Ólafsson, Torfl Leósson og Jón G.
Viðarsson, Benedikt Jónasson og
Jóhann Hjartarson, Helgi Áss Grét-
arsson og Sævar Bjamason, Jón
Viktor Gunnarsson og Margeir Pét-
ursson, Þröstur Þórhallsson og
Magnús Örn Úlfarsson. Frídagar á
mótinu em hvítasunnudagur og
laugardagurinn 1. júní en þá er ekki
teflt vegna aðalfundar Skáksam-
bands íslands. Mótinu lýkur 3. júní.
- fimm stórmeistarár í hópi keppenda
Hvitt: Helgi Ólafsson
Svart: Margeir Pétursson
Sikileyjarvöm.
1. e4 c5 2. c3
Þetta hæglætislega afbrigði valdi
tölvan Dimmbláa gegn Kasparov á
dögunum og vera má að þar hafi
vélin markað tískusporin.
2. - d5 3. exd5 Dxd5 4. d4 Rf6 5.
Rf3 e6
Margeir hefur jafnan haft dálæti
á afbrigðinu sem hefst með 5. - Bg4,
sem Kasparov beitti einnig gegn
tölvunni. Kannski hefur Margeir
viljað bregða út af vananum af þeim
sökum.
6. Bd3 Rc6 7. 0-0 Be7 8. Be3
cxd4 9. cxd4 0-0 10. Rc3 Dd6 11.
a3 b6 12. De2 Bb7 13. Hadl Hfd8
Taflið hefur þróast eftir rólegum
nótum og fram er komin dæmigerð
staða, þar sem hvítur á stakt mið-
borðspeð en frjálsara spil fyrir
menn sína.
14. Bg5 g6 15. Hfel He8 16. Bxf6
Bxf6 17. Re4 De7 18. Rxf6+ Dxf6
19. Be4 He7?
Erfitt var að sjá afleiðingar þessa
leiks fyrir. Betra er 19. - Hac8 en þá
yrði svarið við 20. Re5 Rxd4! o.s.frv.
Svartur ætti að geta leyst vandamál-
in.
20. Bxc6! Bxc6 21. d5 Bb7
Peðið er friðhelgt vegna leppunar-
innar eftir e-línunni.
22. Re5!
Ef hins vegar 22. d6 skýtur svart-
ur inn 22. - Bxf3. Leikur Helga er
snjall; hann ætlar að svara 22. - exd5
með 23. Rg4! De6 24. Dd2 Dd6 25. Dd4
með alvarlegum hótunum eftir
homalínunni.
22. - Bxd5 23. Rg4 Dg5
Svartur gæti virst sloppinn. Ef nú
24. Hxd5 exd5 25. Dxe7 Dxg4 o.s.frv.
24. f4! Dxf4 25. g3 Dc4
Eina vonin. Ef 25. - Df3? 26. Hxd5!,
eða 25. - Dg5 26. h4 og nú á drottn-
ingin ekkert griðland.
26. Rf6+ Kf8
Annars kæmi einfaldlega 27. Rxd5
og vinnur mann.
Umsjón
Jón L. Árnason
27. De3! Dc5 28. Hd4
Nú er svartur varnarlaus. Hótun-
in er 29. Dh6 mát.
28. - Kg7 29. De5! Be4 30. Re8+
Kh6 31. Dg7+ Kg5 32. Df6+ Kh6
33. Hxe4
- og Margeir gafst upp. Eftir mis-
tökin í 19. leik átti hann sér ekki
viðreisnar von.
Hvítt: Hannes Hlífar Stefáns-
son
Svart: Þröstur Þórhallsson
Frönsk vörn.
1. e4 e6 2. d3 d5 3. Rd2 Rf6 4.
Rgf3 c5 5. g3 Rc6 6. Bg2 Be7 7. 0-
0 0-0 8. Hel b5 9. e5 Rd7 10. Rfl
Dc7 11. Bf4 b4 12. h4 a5 13. Re3
Db6 14. c4 bxc3 fr.hl. 15. bxc3
Ba6 16. h5 Hab8 17. h6 g6 18. c4
dxc4 19. Rxc4 Bxc4 20. dxc4 Rd4
21. He4 Rxf3+ 22. Dxf3 Dc7 23.
Dc3 Hb4 24. a3 Hbb8 25. Heel a4
26. Habl
26. - g5?!
Frá og með þessum leik leggur
Þröstur of mikið á stöðuna í þeirri
von að næla sér í peð. Traustara er
t.d. 26. - Hfd8.
27. Bd2 Hxbl 28. Hxbl Dxe5?!
Enn er ekki of seint að leika 28. -
Hb8 og andæfa á línunni.
29. Bc6! Bf6?
Besti kosturinn er 29. - Dxc3 30.
Bxc3 BfB! 31. BxfB RxfB 32. Bxa4 Rg4
og ef 33. Bb5 Rxh6, eða 33. Bc6 Re5.
Þótt biskup hvits og frelsinginn á a-
línunni séu svörtum vitaskuld
nokkurt áhyggjuefni eru vonir hans
um að bjarga taflinu allgóðar. En nú
er tímahrakið farið að segja til sín.
30. Df3 Rb8 31. Bxa4 Hd8? 32.
Ba5! Hc8? 33. Db7 HfB 34. Bc7!
Df5 35. Dxb8! Bd4 36. DxfB+- og
Þröstur gafst upp. Ef hann þiggur
drottninguna verður hann mát.
-JLÁ
VERÐLÆKKUIU
A BRETTAKOIIITUM
íslenskir og amerískir brettakantar á jeppa.
Einnig mikið úrval af pallbílahúsum á góðu verði.
Dæmi um verð:
Brettakantar Toyota D/Cab 31"-33" 13.900.- stgr.
Brettakantar Toyota D/Cab 35"-38" 24.500.- stgr.
Brettakantar Suzuki 33" 29.665.- stgr.
Brettakantar Nissan D/Cab 33" 33.915.- stgr.
Brettakantar Dodge Ram 33"-35" 29.900.- stgr.
Þar sem allt fæst í jeppann
Vagnhöfða 2 - Sfmi 587-0-587
liApple-umboðið
Skipholti 21
Simi 511 5111
Heimasiðan
http://www. apple
600 tölvur á
45 dögum!
Örgjörvi: PowerPC 603 RISC
Tiftíðni: 75 megarið
Vinnsluminni: 8 Mb
Skjáminni: 1 Mb DRAM
Harðdiskur: 800 Mb
Geisladrif: Apple CD600Í (fjórhraða)
Hátalarar: Innbyggðir tvíóma hátalarar
Skjár: SambyggðurApple 15" MultiScan
Diskadrif: Les gögn af Pc disklingum
Fylgir með: Sjónvarpsspjald sem gerir kleift
að horfa á sjónvarpið í tölvunni
auk þess sem hægt er að tengja
við hana myndbandstæki eða
upptökuvél, taka upp efni, vinna
með það og setja eigin myndir í
mismunandi skjöl.
Composite og S-VHS inngangar.
Fjarstýring
Mótald með faxi og símsvara
Apple Design Keyboard
System 7.5.1 sem að sjálfsögðu
er allt á íslensku
Hið fjölhæfa ClarisWorks 3.0
sem einnig er á íslensku.
í forritinu er ritvinnsla, töflureiknir,
tvö teikniforrit, gagnagrunnur
og samskiptaforrit