Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1996, Blaðsíða 23
23
LAUGARDAGUR 25. MAÍ 1996
Ingi Þór Magnússon vill að bróðir sinn sjái að sár:
Tók á sig sök fyrir annan mann
Ingi Þór Magnússon skorar á bróöur sinn, Júlíus Thomassen, aö draga framburö sinn til baka og hætta viö að taka
á sig sök fyrir annan mann í fíkniefnaheiminum. DV-mynd ÞÖK
„Eiturlyf fundust heima hjá ein-
hverjum manni. Júlíus fór niður á
lögreglustöð stuttu síðar og sagðist
eiga alla vega helminginn af þessu
efni. Ég hef enga trú á því að hann
hafi átt það. í fyrsta lagi á hann eng-
an pening, í öðru lagi hefði hann
aldrei farið niður á lögreglustöð og
sagst eiga þau ef hann hefði átt þau.
Líklegast eru einhverjir að borga
honum fyrir að taka á sig sökina
eða gefa honum dóp fyrir greiðann,"
segir Ingi Þór Magnússon sjómaður.
Ingi Þór talar þarna um bróður
sinn, Júlíus Thomassen, sem bráð-
um verður 27 ára gamall, en hann
hefur verið í fikniefnaneyslu í um
tíu ár. Júlíus hefur fengið dóm og
setið inni á Litla Hrauni en verið á
skilorði um nokkurt skeið. Fíkni-
efnalögreglan réðst til inngöngu í
hús í borginni um miðjan febrúar
og lagði hald á 50 grömm af am-
fetamíni og 200 grömm af hassi.
Húsráðandi, sem hlaut fangelsis-
dóm í stóra fikniefnamálinu og var
á reynslulausn, neitaði að eiga efn-
in. Um miðjan apríl gaf Júlíus sig
svo fram niðri á lögreglustöð og
sagðist eiga þau.
Ingi Þór vill ná tU bróður síns, fá
hann til að sjá sig um hönd í fíkni-
efnaneyslunni og hætta við að taka
á sig sökina fyrir annan mann.
Hann hefur samþykkt að veita DV
viðtal í þeirri von að bróðir hans
lesi viðtalið. Þetta er harmsaga
ungs manns sem festist í neti fikn-
innar.
Hálfdauður inni
á Litla-Hrauni
Þegar DV leitaði staðfestingar
lögreglunnar kom fram að efni
fundust í húsi í Þingholtunum um
miðjan febrúar, að húsráðandi hefði
setið í gæsluvarðhaldi í tíu daga og
maður hefði gefið sig fram um miðj-
an aprU og sagst eiga efnin. Rök-
studdur grunur væri fyrir því að
maðurinn ætti ekki efnin en málið
verður sent tU ríkissaksóknara á
næstunni. Það' er nýjung innan
fíkniefnaheimsins að kaupa fikil tU
að taka á sig sök og óttast menn að
ógnunin i fikniefnaheiminum sé svo
mikil að þetta fari vaxandi í fram-
tíðinni.
Ingi Þór telur mjög líklegt að Júl-
ius bróðir sinn sé að reyna að taka
á sig sök því að hann eigi enga pen-
inga tU að fjármagna efnið.
„Það er víst voðalega algengt hjá
þessum stóru köUum að reyna að
kaupa aðra til að taka á sig sökina.
Ég vU að bróðir minn sjái að sér,
taki ekki á sig þessa sök ef hann á
ekkert i þessum efnum og hefur
ekki gert þetta því að hann lendir
miklu verr í því þegar hann er kom-
inn inn,“ útskýrir hann.
„Þeir eru ekkert minna dópaðir á
Litla-Hrauni en hér úti í þjóðfélag-
inu. Þá getur hann eiginlega ekkert
unnið í sínum málum, er lokaður
inni og hálfdauður þar,“ segir Júlí-
us.
Dimmur skuggi
yfir fjölskyldunni
Ingi Þór á fjögur systkini og er
hann elstur en Júlíus næstelstur
þeirra. Júlíus byrjaði að fikta með
áfengi fjórtán eða fimmtán ára gam-
all eða jafnvel fyrr, reykti hass og
leiddist svo smám saman út í piUur
og sterkari efni og segja ættingjar
hans að hann sprauti sig með amfet-
amíni í dag. Fjölskylda hans, sem
býr fyrir vestan, var grandvaralaus
þó aö Júlíus yrði fjarlægur og
áhugalaus sem unglingur og upp-
götvaði fikniefnaneysluna ekki fyrr
en aUtof seint.
Fikniefnaneysla Júlíusar hefur
legið eins og dimmur skuggi yfir
fjölskyldu hans, sambandið hefur að
miklu leyti rofnað enda hefur hann
lítið samband og langtímum saman
er ekkert vitað um dvalarstað hans
þó að stundum hafi hann komið inn
á heimilið og dvalist þar um tíma.
Fjölskyldan hefur reynt aUt sem í
hennar valdi stendur tU að fá hann
til að taka á málum og hætta neysl-
unni. Júlíus hefur margoft farið í
meðferð en ekkert gengið. Hann hef-
ur setið inni en er laus og á skilorði
núna.
Fákk samböndin á Vogi
„Ég veit ekki hvar hann heldur
sig núna. Hann er bara einhvers
staðar. Ég hef ekkert heyrt og hann
hefur ekki hringt og látið vita af
sér,“ segir Ingi Þór og bætir við að
bróðir sinn hafi setið inni á Litla-
Hrauni aðallega fyrir umferðarlaga-
brot. Hann hafi aldrei verið tekinn
fyrir innflutning á fíkniefnum eða
sölu eða þvíumlíkt en þó segist
hann vita tU þess að bróðir sinn
hafi verið í ferðalagi í Frakklandi
nýlega. Hvernig hann hafi haft efni
á þvi og í hvaða erindagjörðum veit
hann ekki.
Ingi Þór lýsir bróður sínum sem
góðum strák sem hafi farið Ula á
fikniefnaneyslu. Hann segir að Júl-
íus hafi fyrst kynnst fikniefnum
þegar hann hafi verið sendur inn á
Vog í áfengismeðferð. Þá hafi hann
kynnst fullt af fólki og fengið þau
sambönd sem hafi komið honum í
fikniefnaneysluna. Þá fyrst hafi
hann sokkið á kaf í neysluna.
„Þaðan kom hann útlærður dóp-
ari því að þar lærði hann aUt um
það hvemig hann ætti að nota pUl-
ur. Sennilega hefur honum þótt
spennandi að hitta þetta lið og ná
sér í sambönd. Og hann hefur verið
í fíkniefnaneyslu meira eða minna
síðan," segir Ingi Þór.
Fullur vilji
fyrir hendi
„Ég held að það sé mjög algengt í
fíkniefnaheiminum að borga öðrum
fyrir að taka á sig sakir eða láta vit-
leysinga selja fyrir sig þvi að þeir
sem eiga efnin eru með tak á neyt-
endunum þegar þeir eru komnir í
svona mikla neyslu eins og Júlíus.
Þegar neytendurnir eru komnir í
hönk með einhverja kaUa og skulda
þeim stórar upphæðir þá hafa stóru
kaUarnir gott tak á þeim,“ segir
hann.
Ingi Þór segir að Júlíus hafi farið
í meðferð á göngudeild Landspítal-
ans í vetur en þar sé ekkert og hafi
ekkert verið gert tU að halda honum
eða öðrum fíkniefnaneytendum
inni. Hann hafi vaknað eftir fjóra
daga og farið strax út aftur því að
hann hafi tU dæmis ekki mátt
reykja. Ingi Þór segist vona og telur
reyndar lika að fullur vilji sé fyrir
hendi hjá bróður sínum að koma
sér úr neyslunni. Það sé bara hæg-
ara sagt en gert.
Kominn í of
mikinn skít
„Ég hugsa að viljinn sé fyrir
hendi. Málið er að hann er kominn
í það mikinn skít að hann sér
kannski enga leið tU þess að losna.
Ég veit að hann skuldar mikla pen-
inga út um aUan bæ,“ segir hann en
veit ekki hversu mikla peninga Júl-
íus skuldar eða hverjum hann
skuldar.
„Við höfum reynt allt tU þess að
fá hann tU að hætta í neyslunni og
margbeðið hann um að hætta.
Amma hans og afi eru búin að
reyna aUt, koma honum á Vog og
allt sem þeim hefur dottið í hug. Nú
er hann meira að segja lika hættur
að meika það að hitta okkur þvi að
við erum aUtaf að skammast í hon-
um. Boltinn er hjá honum núna,“
segir Ingi Þór.
„Fjölskyldan er enn að reyna að
standa við bakið á honum og gera
allt sem í hennar valdi stendur.
Vonandi sér hann að sér og hættir,“
segir Ingi Þór að lokum.
-GHS
Vferö stgr. '\
44.500,-j
....■- f Vferðstgr. /" Verdstgr. \
,52.9QO,-y L59.980,-J
índesit
GR 1400
• H: 85 B: 51 D: 56 cm
• Kælir: 140 I.
GR 1860
1 H:117 B: 50 D: 60 cm
1 Kælir: 140 Itr.
Frystir: 45 Itr.
GR 2260
• H:140 B: 50 D: 60 cm
• Kælir:180 Itr.
• Frystir: 45 Itr.
GR 2600
• H:152 B: 55 D: 60 cm
• Kælir: 187 Itr.
• Frystir: 67 Itr.
GR 3300
H:170 B: 60 D: 60 cm
Kælir: 225 Itr.
Frystir: 75 Itr.
.../ elclhúsið og sumarhústaðinn.
BRÆÐURNIR
CflORMSSON
Lágmúla 8 • Sími 553 8820
UmboSsmenn um !cnd csill
Vesturlðnd: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi.Blómsturvellir, Hellissandi. Guðni Hallgrímsson, Grundarfirði. Ásubúö.Búðardal Vestfirðlr: Geirséyrarbúðin, Patreksfirði. Rafverk.Bolungarvík.Straumur.ísafiröi. Norðurland: Kf.Steingrímsfjaröar.Hólmavík.
Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfirðingabúð.Sauöárkróki. KEA byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri.KEA, Siglufirði.Ólafsfirði og Dalvík. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Urð, Raufarhöfn. Austurland: Sveinn Guðmundsson, Egilsstöðum.
Kf.Vopnfirðinga.Vopnafiröi. Stál, Seyðisfiröi. Verslunin Vík, Neskaupsstað. Kf.Páskrúösfiröinga, Fáskrúðsfirði. KASK, Höfn Suðurland: Kf. Rangæinga, Hvolsvelli. Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Jón Þorbergs, Kirkjubæjarklaustri. Brimnes, Vestmannaeyjum.
Reykjanes: Stapafell.Keflavík. Rafborg, Grindavík.