Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1996, Blaðsíða 53
!+
LAUGARDAGUR 25. MAÍ 1996
\m X$ lupBbuoBl
Zorbahópurinn hefur slegið í
gegn á grísku kvöldi í Kaffileik-
húsinu.
Vegurinn er von-
argrænn
Zorbahópurinn hefur nú flutt
grlsku ljóðadagskrána Vegurinn
er vonargrænn fyrir fullu húsi
frá því frumsýnt var 20. janúar.
Nú fara síðustu sýningar í hönd
og er næstsíðasta sýningin í
Leikhús
Kaffileikhúsinu í Hlaðvarpanum
í kvöld. Dagskráin er helguð
hinu heimsfræga grlska ljóð- og
tónskáldi Mikis Þeodorakis og er
hún flutt á íslensku, grísku og ís-
lensku táknmáli.
Þau sem skipa Zorbahópinn
eru: Sif Ragnhildardóttir söng-
kona, sem syngur söngva Mikis
Þeodorakis, Sigurður A. Magnús-
son rithöfundur, sem kynnir tón-
skáldið og litrikan æviferil þess,
Eyrún Ólafsdóttir, kórsrjóri
Táknmálskórsins, sem túlkar og
„syngur" bæði söng og texta á
táknmáli, Þórður Árnason gitar-
leikari, sem leikur á gítar og
bouzouki, og Jóhann Kristinsson
píanóleikari. Leikstjóri er Þór-
unn Sigurðardóttir. Þess má geta
að í sumar mun leikhópurinn
fara með dagskrána út á lands-
byggðina.
Afmælissamkomur
í Fíladelfíu
Hvítasunnukirkjan heldur um
þessar mundir upp á 60 ára af-
mæli safnaðarins og 75 ára af-
mæli starfs hvítasunnumanna. 1
tilefni þessa verða haldnar rað-
samkomur alla helgina og var sú
fyrsta- í gærkvöldi og í kvöld er
sérstök afmælissamkoma í Fíla-
delfiukirkjunni. Sérstakur gestur
er Thomas E. Trask, yfirmaður
stærstu hvítasunnuhreyfingar í
heiminu.
Samkomur
Ráðstefna um Stephan
6. Stephansson
verður haldin í Norræna hús-
inu í dag og hefst hún kl. 13.00.
Fjölmörg erindi verða flutt.
Kammertónlist á kaffihúsum
Þrír kammerhópar koma fram
á kammertónleikum á Sóloni ís-
landusi í dag kl. 16. Þetta eru
klarínetttríóið Seffes, Júra
strengjakvartettinn og Míó tríó.
Hóparnir koma einnig fram á
tónleikum á Kaffi París á mánu-
dag.
Gengið
Almennt geni
24. maí 19^
ií Ll nr. 103
6 kl. 9.15
Eininq
Kaup Sala IbljgenqJ
Dollar
Pund
Kan. dollar
Dönsk kr.
Norsk kr.
Sænsk kr.
Fi. mark
Fra. tranki
Belg.franki
Sviss. franki
Holl. (jyllini
Þýskt mark
ít. líra
Aust. sch.
Port. escudo
Spá. peseti
Jap. yen
irskt pund
SDR/t
ECUA
67,440
102,020
49,000
11,3290
10,2180
9,8530
14,2070
12,9230
2,1274
53,3600
39,0900
43,7400
0,04321
6,2180
0,4259
0,5246
0,63310
105,210
97,02000
82,6400
67,780
102,540
49,310
11,3890
10,2740
9,9070
14,2910
12,9970
2,1402
53,6600
39,3200
43,9700
0,04347
6,2570
0,4285
0,5278
0,63390
105,870
97,60000
83,1400
66,630
101,060
48,890
11,6250
10,3260
9,9790
14,3190
13,1530
2,1854
55,5700
40,1300
44,8700
0,04226
6,3850
0,4346
0,5340
0,62540
104,310
97,15000
83,3800
Skýjað með köflum víðast hvar
I dag verður Norðaustlæg eða
breytileg átt, víðast fremur hæg.
Með norðaustur- og austurströnd-
inni verður þokuloft, jafnvel súld og
fjögurra til sex stiga hiti. Að öðru
Veðrið í dag
leyti verður skýjað með köflum víð-
ast hvar á landinu, síðdegisskúrir
sunnan og suðvestanlands og ef til
vill víðar. Þó verður úrkomulaust
við Breiðafjörð og á Vestfjörðum.
Hiti 7 til 12 stig að deginum.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
norðaustlæg eða breytileg átt, lengst
af gola. Skýjað með köflum, en hætt
við síðdegisskúrum. Hiti 8 til 12
stig.
Sólarlag í Reykjavík: 23.11
Sólarupprás á morgun: 3.38
Síðdegisflóö í Reykjavík: 24.20
Árdegisflóð á morgun: 00.20
Veðrið kl. 12 á i hádegi i gœr:
Akureyri skýjað 9
Akurnes rigning 8
Bergsstaöir þoka í grennd 7
Bolungarvík léttskýjaó 7
Egilsstaóir skýjaö 7
Keflavikurflugv. léttskýjaö 7
Kirkjubkl. skýjað 10
Raufarhöfn skýjað 6
Reykjavík skýjaö 11
Stórhöföi rigning 8
Helsinki léttskýjaö 16
Kaupmannah. rign. síó.kls. 11
Ósló skýjað 11
Stokkhólmur léttskýjað 16
Þórshöfn rigning 7
Amsterdam rigning 15
Barcelona heiðskirt 22
Chicago alsýjað 10
Frankfurt skýjaó 21
Glasgow úrkoma i grennd 13
Hamborg skýjað 18
London rign. síó.kls. 13
Los Angeles heiðskírt 14
Luxemborg skýjað 20
Madrid heiöskírt 24
Paris skýjað 20
Róm léttskýjaó 23
Valencia heióskírt 24
New York skýjað 19
Nuuk skýjað 7
Vin léttskýjað 21
Washington hálfskýjað 22
Winnipeg léttskýjað 3
Ann Farholt í Leikhúskjallaranum:
Klassískar
perlur og
song-
spuni
Annan í hvítasunnu skemmtir í
Leikhúskjallaranum Ann Farholt
sem er í hópi bestu djassöng-
kvenna Dana. Síðasta áratug og
rúmlega það hefur hún heillað
hlustendur með heitri sveiflu og
snjöllum spuna. Hún er jafnvíg á
klassískar söngperlur og bí-
bobbópusa, svinglög og bossa
nova. Hún hefur lært mikið af
Ellu Fitzgerald í „skattsöng" og er
ein fremsta söngkona Evrópu í
þeirri listgrein. Ann Farholt hefur
Skemmtanir
sungið með fjölmörgum hljóm-
sveitum og hljóðritað bæði með
eigin kvartett og kvartett Jespers
Thilos, saxófónsnillingsins fræga.
Með Ann Farholt koma til
landsins gítarleikarinn Henrik
Bay, sem hefur hljóðritað dúett-
plötu með Farholt, bassaleikarinn
Guffi Pallesen, sem er einn þessar-
ar stórkostlegu bassaleikara Dana
Ann Farholt er meöal fremstu djasssöngkvenna á Norðurlöndum.
og hefur meðal annars leikið með
hljómsveit Duke Ellington á
konsertum um gervöll Bandarík-
in, og trommarinn Andy Eberhart
sem er bandarískur og hefur leik-
ið bæði í Evrópu og Bandaríkjun-
um. Tónleikarnir hefjast kl. 21.30.
gsönn
61
\ Darren McCord (Jean-Claude Van
; Damme) kemur til íþróttahallar-
! innar ásamt börnum sfnum.
Bráður bani
i
Laugarásbíó sýnir um þessar
|mundir spennumyndina Bráður
j bani (Sudden Death). Þar leikur
j Jean-Claude Van Damme slökkvi-
I liðsmanninn Darren McCord sem
i fer meö börn sín tvö á úrslitaleik
I í íshokkí. í salnum hefur hryðju-
j verkahðpur hreiðrað um sig og er
fætlun hans að taka varaforseta
I Bandaríkjanna sem gísl en hann
I er staddur á leiknum. í leiöinni
jtaka þeir einnig dóttur McCord
(sem gerir það að verkum að
\ McCord verður að taka til sinna
j ráða til að frelsa dðttur sína. Með-
1 al annarra leikara í myndinni má
[nefna Powers Boothe, Dorian
I Harewood og Ross Malinger.
Kvikmyndir
Leikstjórinn Peter Hyams er
jreyndur í gerð spennumynda og
hefur hann sérstööu meöal leik-
stjóra að því leytinu til að hann
stjórnar alltaf kvikmyndatökum í
jmyndum sínum. Meðal kvik-
|mynda sem hann hefur gert er
2010, Outland, The Presido og
Capricorn One.
Nýjar myndir
Háskólabíð: Lán í óláni
Laugarásbíó: Tölvurefir
Saga-bíó: Stolen Hearts
Bíóhöllin: Last Dance
Bíóborgin: Executive Decision
Regnboginn: Barist í Bronx
Stjöriiubíó: Spilling
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270
Er á hælum innbrotsþjófs
&ÞOR'
Myndgátan hér að ofan lýsir orðtaki.
Fyrsta
stórmótið
í golfi
Það verður mikið um að vera í
íþróttum um hvítasunnuhelgina
og keppt í mörgum íþróttagrein-
um. Golfiþróttin hefur farið
óvenju snemma af stað og er þeg-
ar búið að halda nokkur mót.
Um hvítasunnuhelgina verður
fyrsta stigamót sumarsins sem
Iþróttir
er röð móta þar sem keppendur
geta unnið sér stig sem gilda síð-
an til vals á landsliði. Þetta er
Opna Flugleiðamótið og er það
haldið í Vestmannaeyjum. Þarna
verða allir bestu kylfingar lands-
ins að fjórum undanskildum sem
eru -í Skotlandi í keppnisferð.
Fleiri opin golfmót verða um
helgina, í dag og á mánudag eru
Golfklúbburinn Keilir, Hafn-
arfirði, og Golfklúbbm- Grinda-
víkur með opin mót og Keilir er
einnig með mót á mánudaginn.
Á mánudag, annan í hvíta-
sunnu, verður leikin önnur um-
ferðin í 1. deild karla í fótboltan-
um, íslandsmeistarar ÍA leika
gegn Kefiavík á heimavelli, KR
leikur á heimavelli gegn Leiftri,
Grindvíkingar taka á móti
Breiðabliki, í Vestmannaeyjum
leika ÍBV og Valur og í Garðabæ
leika Stjarnan og Fylkir.