Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1996, Qupperneq 29
LAUGARDAGUR 25. MAÍ 1996
37
Mér er það morgunljóst aö nú fyrst er maöur kominn inn í hringiðuna miðja og þar eru straumarnir þyngstir. Ég á
von á því að friðurinn verði minni. Ég hef oft sagt að forseti Alþýöusambandsins sé á sólarhringsvakt. DV-myndir
GVA
Þörfin er í blóðinu
- Kanntu einhverjar skýringar á
þessum félagsmálaáhuga þínum?
„í raun er engu líkara en að þetta
sé í blóðinu. Ég hef afskaplega
mikla ánægju af að vinna að félags-
málum og þegar svo er þá gerir
maður það.“
- Það hlýtur að koma að ein-
hverju leyti niður á einkalífinu:
„Það er rétt, þetta bitnar töluvert
á fjölskyldulífinu. Eftir á að hyggja
sakna ég þess að á þeim árum, sem
börnin mín fjögur voru að alast
upp, fór allur minn tími í vinnu og
félagsstörf. Á þeim árum vann ég
langan' vinnudag og svo tóku félags-
störfin við. Þess vegna var tíminn
með íjölskyldunni mjög lítill sem er
í raun óverjandi. En þetta gerðist
svona.“
Fjölmörg áhugamál
- Það er ef til vill út í hött að
spyrja mann eins og þig hvort hann
eigi önnur áhugamál, hvort það sé
yfirhöfuð einhver tími fyrir þau:
„Blessaður vertu, ég á mörg
áhugamál. Ég hef alltaf verið áhuga-
samur um íþróttir og þá sérstaklega
frjálsar íþróttir en ekki alveg eins
mikill áhugamaður um knatt-
spyrnu. Ég er einnig mikill útivist-
armaður og áhugamaður um veiði-
skap bæði með byssu og stöng enda
uppalinn við það. Ég nýt þess líka
að hlusta á góða tónlist, er þar alæta
þótt góður tenórsöngur sé í mestu
uppáhaldi, þar sem Pavarotti er í
fyrsta sæti. En það er nú svo að
störf fyrir verkalýðsfélag eru bind-
andi og maður gengur ekki inn og
út af vinnustað eftir klukkunni. Það
er þó ekkert til að gera athugasemd-
ir við, þetta er svona en skammtar
manni þó tómstundirnar. Samt er
það svo að rólegast er í vinnunni
hjá manni yfir sumarið og þá gefst
kostur á að skreppa í veiði eða
stunda aðra útivist."
Hef ekki sóst eftir
forsetastarfinu
- Á Alþýðusambandsþingi fyrir
fjórum árum var fast að þér lagt að
gefa kost á þér til forseta en þú
hafnaðir því. Þú sagðir mér þá að
það væri af persónulegum ástæðum.
Er það leyndarmál hvers vegna það
var, í ljósi þess að þú tekur starfið
að þér nú?
„Fyrir það fyrsta þá hef ég ekki
sóst eftir því að gerast forseti Al-
þýðusambandsins. Það er bláköld
staðreynd. En þegar maður hefur
áhuga á verkalýðsmálum, áhuga
fyrir því að bæta kjör hins vinnandi
manns, þá kemur að skyldunni þeg-
ar lagt er hart að manni að taka að
sér trúnaðarstörf. Ég lít svo á að
maður geti ekki vikið sér undan
þvi. Þetta er ástæðan fyrir atburða-
rásinni núna.
En þú spurðir um þingið fyrir
Qórum árum. Það var þannig að um
haustið, skömmu fyrir þingið, veikt-
ist ég. Ég léttist um 12 til 14 kíló og
var húinn að vera í stífum læknis-
rannsóknum áður en kom til þings.
Það fannst ekkert að mér og ég var
í óvissu meðan á þinginu stóð. Vissi
í raun ekkert hvað var aö gerast.
Það var því ómögulegt fyrir mig að
fara út í það að taka að mér starf
forseta ASÍ undir þeim kringum-
stæðum. En svo fékk ég heilsuna
aftur síðar og líður ágætlega."
Uppmælingaaðallinn
- Nú þegar þú hefur tekið við for-
setaembætti Alþýðusambandsins
má gera ráð fyrir að þú leiðir kom-
andi kjarasamninga. Fólk innan
verkalýðshreyfingarinnar hefur tal-
að um uppmælingaaðal og þú hefur
verið foringi hans. Óttastu að það
muni gera þér erfitt fyrir að leiða
allan hópinn í kjarasamningum?
„Auðvitað vona ég að þetta sem
þú nefnir trufli ekki starfið innan
Alþýðusamhandsins og það truflar
mig að minnsta kosti ekki. Málið er
auðvitað að það skilur ekkert í milli
í áherslum eða hverju við erum að
keppa að. Við þurfum kannski í
hreyfingunni að setjast niður og
ræða í alvöru og hreinskilni um
innri málefni hreyfingarinnar. Þær
ýfingar, sem stundum eru með
þessu yfírbragði sem þú nefndir, má
ef til vill skýra fyrst og fremst með
þvi að við höfum ekki sest yfir við-
fangsefnið og rætt það til hlítar."
- Nú eru kjör iðnaðarmanna,
einkum byggingariðnaðarmanna,
betri en ófaglærðra. Getur það ekki
valdið þessum ýfingum?
„Auðvitað getur það verið og eng-
in launung að skeytasendingar hafa
oft gengið á milli þessara hópa. Þær
má kenna því að taxtakaup stórra
hópa í hreyfíngunni er lágt og kjör-
in slæm. Og ef við lítum til ná-
grannalandanna er bilið milli þess-
ara hópa mun minna en hér og kjör
allra snöggtum betri. En talandi um
tortryggni þá vona ég að hægt verði
að eyða henni enda tel ég hana á
misskilningi byggða. Samt sem áður
tel ég eðlilegt að einhvers staðar sé
tortryggni út í nýjan forseta ASÍ
hvað þetta varðar en vona bara að
hægt verði að eyða henni.“
Risi á brauðfótum?
- Um það er ekki deilt að Alþýðu-
sambandið, með tæpa 70 þúsund fé-
lagsmenn, er risi í íslensku þjóðlífi
og ef slíkt afl beitir sér stenst fátt
fyrir. En því er líka haldið fram að
ASÍ sé orðinn risi á brauðfótum:
„Ég tel það fjarri lagi. Við höfum
vissulega verið að lifa á síðustu
árum breytt samfélag og miklar
hremmingar. Fyrir svo stór samtök
sem ASÍ tekur það sinn tima að ná
tökum á þeim breytingum sem átt
hafa sér stað enda hefur hraðinn
verið svo mikill. En að tala um ASÍ
sem risa á brautfótum er fjarstæða.“
- í áratugi hefur verið um það tal-
að á ASÍ-þingum, og raunar á milli
þeirra líka, að nauðsyn sé á skipu-
lagsbreytingum innan sambands-
ins. Þær hafa jafnvel verið sam-
þykktar á þingunum en síðan ekki
framkvæmdar. Er það ekki orðin
nauðsyn fyrir ASÍ að koma ákveðn-
um skipulagsbreytingum á?
„Ég held að það sé orðið mjög
brýnt að koma á ákveðnum skipu-
lagsbreytingum. Ef til vill má segja
að það sé eðlilegt í svo fjölmennum
samtökum að það gangi hægt að
koma skipulagsbreytingum á. En sú
þróun og þær breytingar sem eru að
eiga sér stað í þjóðfélaginu munu án
vafa ýta á menn að hraða breyting-
unurn. Og ég er svo bjartsýnn að
gera ráð fyrir að mikið muni gerast
í þeim málum á næstu 4 árum og
hef raunar ailt að því sannfæringu
fyrir því. Það þarf að keppa að því
að veita hinum almenna félags-
manni sem hesta daglega þjónustu.
Auðvitað er mikilvægt að ná sem
bestum árangri i kjarasamningum
en það er líka mikilvægt að fylgja
málum eftir frá degi til dags. Þetta
er það sem við eigum að leggja til
grudvallar þegar við erum aö ræða
um breytt skipulag."
- Má búast við breyttum áhersl-
um þegar þú ert tekinn við Alþýðu-
sambandinu?
„Um það ætla ég ekkert að full-
yrða á þessu augnabliki. Ég hef set-
ið í miðstjórn ASÍ í 8 ár, hef verið
þátttakandi í því sem þar hefur ver-
ið að gerast og þeim ákvörðunum
sem þar hafa verið teknar og ber
þessa vegna fulla ábyrgð á þeim
eins og aðrir miðstjórnarmenn. En
það eitt að margt nýtt fólk kemur
nú inn í forystusveit Alþýðusam-
bandsins hlýtur að hafa einhver
áhrif. Það má gera ráð fyrir að þetta
nýja fólk hafl að einhverju leyti
önnur viðhorf en þeir sem voru að
hætta."
- Heldur þú að forsetastarfið
muni breyta miklu í einkalífi þínu?
„Sjálfsagt hefur það einhverjar
breytingar í fór með sér en hversu
miklar þær verða þori ég ekki að
segja til um. Það er mér hins vegar
morgunljóst að nú fyrst er maður
kominn inn í hringiðuna miðja og
þar eru straumarnir þyngstir. Ég á
von á því að friðurinn verði minni.
Ég hef oft sagt að forseti Alþýðu-
sambandsins sé á sólarhringsvakt.
En á móti kemur að þáð má skipu-
leggja málin þannig að þau kaffæri
mann ekki. Maður verður að gefa
sér tima til að sinna fjölskyldu sinni
og vinum."
- Sérðu Grétar Þorsteinsson fyrir
þér sem forseta ASÍ næstu 8 eða 12
árin ef guð lofar?
„Ég verð nú að segja þér alveg
eins og er að ég er ekki farinn að
leiða hugann að því enn þá. Það
hlýtur enda að ráðast af því hvern-
ig til tekst. Hvort okkur, sem nú
höfum verið valin til forystu í hreyf-
ingunni, tekst að halda vel á spöð-
unum. Ef það gengur eftir þá vænt-
anlega skoðar maður það eftir
svona þrjú og hálft ár hvort maður
er tilbúinn til framhaldsvistar."
-S.dór
Að starfa fyrir verkalýöshreyfinguna skammtar manni mjög tómstundirnar
en þó gefst tfmi til aö sinna veiðiskapnum yfir sumariö, segir Grétar sem er
hér meö eiginkonu sinni Eltsu Þorsteinsdóttur.